Tíminn - 12.05.1960, Blaðsíða 1
Ríkisstjórnm hefur þegar tekií 296 millj.
króna gjaldeyrislán
Þær upplýsingar komu
fram í svari viðskiptamálaráð-
herra við fyrirspurn frá Ey-
steini Jónssyni um gjaldeyris-
iántöku stjórnarinnar við' um-
ræður í sameinuðu þingi í
gær.
Eysteinn Jónsson varaði mjög
eindregið við slíkum gjaldeyrislán-
tökum og vísaði til andstöðu Fraim
sóknarflokksins við þá lántöku-
stefnu ríkisstjórnarinnar, sem
fram kom í umræðunum um efna-
hagsmálin í vetur og væri afstaða
Framsóknarmanna óbreytt.
Eysteinn Jónsson kvað það skoð
un sína, að þær ráðstafanir, sem
ríkisstjórnin hefði efnt til, mundu
leiða til lhins mesta jafnvægisleysis
í þjóðartmskapnum þótt þeim væri
ætlað að stuðla að hinu gagn-
stæða. Mundi af þeim rísa ný verð
bólgualda og upplausn. Væri þvi
stórfelld hætta á því, að gjald-
eyrislánin festust og yrðu þjóðinni
mjög erfiður fjötur um fót.
\
1-2-3 ár - í bili
Það er ekki gott að segja um
það, hvað hinar ýmsu ráðstafanir
ríkisstjórnarinnar í efnalhagsmál-
um kunna að standa lengi, sagði
Emil Jónsson í gær við umr. um
fyrirspurn Daníels Ágústínussonar
um vexti af íbúðalánum sparisjóða.
Daníel spurði ráðherrann hvað
hann ætti við með orðunum:
„■stuttan tíma“ og „í bili“. Það er
(Framhald á 3. síðu).
Humprey hefur dregið sig til baka - bls. 3
ólafsvíkingar eiga afla-
kónginn á þessari vertíð
í gær var lokadagur, og
mátti glöggt sjá það víða um
bæinn, einkum mun þó hafa
verið annríki vegna þessa hjá
tögreglunni. Um sjöleytið í
Einar
launar
kjósendum
Ves'tmannaeyjum, 11. maí.
Hjá útgerðarmönnum hér
rikir mikii óánægja út af
lækkun fiskverðs, sem til-
kynnt hefur verið. Á laugar-
daginn héldu þeir fund þar
(Framhald á 3. síðu).
gær var búlð aS fyfla kjaílar-
ann fyrir löngu, og verið að
losa hann aftur til þess að
koma öðrum verri að Arnar-
hóll hafði verið smalaður
rækilega, en mikill fjöldi sjó-
manna, sem gerðu sér glaðan
dag í gær, leitaði þangað til
þess að komast í snertingu við
græna jörð í góða veðrinu,
eftir sjóvolkið í vetur.
Þessi ventíð hefur víðast hvar
verið ein sú bezta sem komið hefur
r.ú um langt skeið. Þó hefur hún
scnnilega verið hvað bezt í Ólafs-
vík, að öllum öðrum stöðum ólöst-
i’ðum, en þéss ber líka að gæta,
að þar bættust við fjórir nýir og
stórir bátar. Þar er S'ennilega að
fmna aflakóng þessaxar vertíðar,
þótt ekki sé búið að fullganga frá
aflaskýrslum, Tryggva Jónsson,
skipstjóra á Stapafelli. Fyrir dag-
inn í gær hafði hann fengið 1222
tonn, og er ekki vitað um meiri
afla hjá öðrum bát. Hins vegar
mun að sjálfsögðu mesta afla-
niagnið haía borizt á land í Vest-
inannaeyjumS'
I Grindavfk er Arnflrðlngur
hæsti bátur, með um 1200 tonn.
Til samanburðar má geta þess, að
sá hæstt í íýrra, Hrafn $veSa-
bjarnarson, var þá með tæp 900
(Framihald á 3. síðu).
Spara milljónir
króna í gjaldeyri
FeSgar tveir á Akureyri hefja fram-
leiðslu á „bobbingum“
Akureyri, 11. maí.
Albert Sölvason járnsmiður,
fyrrverandi forstjóri Atla á
Akureyri, og Jón sonur hans
hafa nú tekið að framleiða
nauðsynjavöru, sem ekki hef-
ur áður verið framleidd hér á
landi. Eru það svo kallaðir
bobbingar" fyrir togara og
minni togskip,
„Bobbingar" hafa verið fluttir
inn fyrir 22,5—23 milljónir króna
á ári, miðað við núgildandi verð-
lag.
Feðgarnir munu geta framleitt
„bobbinga“ fyrir allan skipakost
okkar, og er það ekki svo lítili
sparaaður, þegar þess er gætt, að
hvert stykki framleitt hjá þeim
er á annað hundrað króna ódýrara
en það kostar úti í Englandi áður
en flutningskostnaður og þess hátt
ar viðbætur eru komnar á miðað
við það, að hver togari noti miili
60 og 70 „bobbinga“ á ári, er
þetta beinn sparnaður fyrir út-
gerðirnar, auk þess sem það spar-
ar þjóðinni stórfé í erlendum gjald
eyri.
Feðgarnir Albert og Jón eru
þekktir hagleiks- og dugnaðar-
menn, og má geta ,þess hór, að
allar vélar, sem þarf til þessarar
framleiðslu, hafa þeir sjáifir smíð
(Framhald á 3. síðu).
12323
105. tbl. — 44. árgangur.
■jiiuiiwwiiiihui1 i' i wi;'wiwnnpTriiiiiiiiwmiiipwHr
Nýlr áskrífendur fá
blaðið ókeypis til
mánaðarloka
Fimmtudagur 12. maí 1960.
VERTIÐARLOK
Vertíðarlok voru í gær — Lokadagur. Þetta hefur verið einstak-
lega gæftasæl vertíð og metafli hefur borizt á land í mörgum ver-
stöðvum. Nú leggjast bátarnir vlð festar — en brátt hefst undir-
búningur undir aðra vertíð, síldarvertíðina, og þá verða festar leyst-
ar að nýju og haldið norður fyrir land að sækja meirl björg í bú.
Vonandi verður sá silfraði eins fryggur og sá guli.
8UNIR MED 300 MILL
AF YFIRORÆTTINUM