Tíminn - 12.05.1960, Blaðsíða 8

Tíminn - 12.05.1960, Blaðsíða 8
8 TÍMINN, fimmtudaginn 13. maí 1860. „Það er eins og önn lífsins stígi Ijóslifandi fram“ „Hann er nútímama'Sur en þó frjáls af hvers koinar fordild og tizku, heimsborg- ari, sem eigi a$ siður er svo rótgróinn Islendingur, aS naumast veríur lengra jaf'iiaS“ Svetnn Þórarinsson og Karen Agnete kona hans hm af Öxarfirði breiðir sig fagurt og fjöl’areytt undir- lendi. Svartir sandar. iðgræn engi og blikandi vötn skipt- ast á. Kunnast þeirra er Vík- ingavatn, auðugt af ýmsu lífi með fergins- og stargresis- kögra við löndin. Kringum það standa nokkur býli, og er hið stærsta að vestan- verðu, samnefnt vatninu. Sunnan þess er bærinn Kíla- kot. Þaa- fæddist 29. ágást 1899 eirm af sérstæðustu listamannum þessa lands, málarinn Sveinn Þórarinsson. En hann er ekki aðeims sérstæður málari, heldur og einn undursamlegasti maður, sem guð af náð sáinni lætur fæð- ast á þessari jörð. Verður ekki gerð vKhmandi grein fyrir mái- aranum, nema mannsins sé getið að nokkru. Svo vel eru líf hans og Iist saman ofin. Foreldrar Sveins voru hjónin í Kílákoti, Ingveldur Bjömsdóttir og Þérarinn Sveinsson, snjail hagyrðingur. Eftir hann er m. a. þessi vísa: Örðugan ég átti gang yfir hraun og klungur. Einatt lá mér fjall í fang, frá því ég var ungur. I bernsku þótti Sveinn af- brigðilegur og fann upp á furðu- legustu hiutum. Einu s'inni tók fólk eftir því, að hann gekk á Víkingavatninu alauðu. Þessi frétt barst eins og eldur í sinu milli bæjanna. Allir þutu út á hlað og undruðust stórum. En þegar Sveinn kom að landi, sást, að hann gekk á vatnsskíðum, sem hann hafði smíðað s'ér. Oft hrá Sveiinn sér á næstu bæi, einkum höfuðbólið Vík- ingavatn, en þar voru ýmsir hlntír, sern hann hafði gaman af að rannsaka. Meðal þeirra voru klukka og barómet, en hvonigt var tfl. á neinum bæ í grennd- irmi öðrum. Drengurinn sótti mjög á að rífa þessa hluti sund- ur. En Þórarni gamla á Víkinga- vatni var lítið um heimsóknir Sveins gefið. Þegar svo bar til, mælti öldungurinn: „Þama er hamn kominn! Passið þið baró- metið! Passið þið klukkuna! Tak- ið þið hann!“ En áður af því yrði, var Sveinn litli búinn að sundra hvoru tveggja. Drengurinn var látinn hjálpa til við búskapirtn, þótt misjafn- lega gengi. Hann gat enga kind þekkt frá amnarri, eins og sést af þessari sögu: Dag nokkum sendi faðir Sveins hann að sækja svarta lambá. Leitaði Sveinn suð- ur í heiði, en fanm ána hvergi. Lpks sá hann svarta Idnd og elti hana, unz hún var orðin svo móð, að hún mam staðar, sneri sér við, stappaði niður fótunum og stámg- aði hanm. Greip þá Sveinn kind- ina og teymdi hana norður í Víkingavatn. Kom þá í ljós, að þetta var svartur forystusauður. Ungur var Sveinn skyggn á svipi og hermdi ettir þeim, svo að fólk þekkti dauða menn, sem hann aldrei hafði séð, eftir lýs- ingum hans. En þegar Sveinm fékk verkefni, hurfu svipirmir. Þá lifði hanm í æ námara sam- ræmi við umhveifið, talaði jafn- vel við björg og brunna, reri yfir vatnið með æ vaxandi hraða, Mjóp út um víðavamg, knúinm ó-. viðráðanlegum krafti, líkt og ímjmdumaraflið gæfi honum byr í seglim. Má ætla, að þarna hafi komið í ljós listamammseðii hans. Snemma beihdist hugur Sveins að dráttlist. Þegar hanm var að teikna í æsku, sagði kona ein í Hverfimu: „Það er svo sfcrítið með myndrmar hans Sveins, þótt þær séu ekkert líkar mamninum, sem þær era af, þá hafa þær svip af ættingjum hams, sem eru löngu dauðir. Það getur fcann- ske verið, að sé einhver neisti í honum." Enginm hvatti Sveim til að læra, em löngun hams var svo rík, að hann brá sér til Reykjavikur tvítugur að aldri til undirbún- ingsmáms hjá Ásgrími Jónssyni. Síðar var Guðmundur Thor- steinsson kennari hans. Sveinn sigldi til listaháskólans í Kaup- mannahöfn 1925 og nam þar hálft fjórða ár. I fyrstu, og reyndar alltaf, kostaði Sveinn sig af eigin ramm- leik, en þegar hann var búinn að vera einn vetur í Höfn, voru peningar hans þrotnir. Hlupu þá undir bagga með Sveini nokkrir menn á Húsavík og Þórshöfn og lánuðu honum 1500 krónur, gegn því að hamn borgaði þær við hentugleifca. Brást það ekki. Öðru smni var Sveinn félaus, þegar hanm ætlaði heim; fékk 200 kr. lán hjá kunnimgja sínum f Kaupmannahöfn og fór með „Tjaldi" til Færeyja. Þegar þamg- að kom, átti hanm aðeins eftir 11 kr., sem lirukku skammt þaðan og heim. Tók hann þá eftir aug- iýsingu þess efnis, að mann vant- aði til að tjarga þak og spurði, hvort hann gæti fengið þetta starf. Nei, við það var ekki kom- andi, að hamn tæki atvinnu af landsmönnum. Datt Sveini þá í hug að h&Ida málverkasýnimgu og afla sér þannig farareyris. fékk hús hjá lyfsala nokkrum og hengdi upp myndirnar. Þetta var á fimmtudag. Opnaði nú Sveinr sýninguna morguninn eftir. Leif svo allur s'á dagur, að enginn kom. Á laugardaginn fékk hann enga heimsókn heldur, þar til um þrjúleytið að skrörc nokkurt heyrðist í stiganum. Glaðnaði nú heldur en ekki yfir málaranum, þegar tekið var í hurðarhand- íamgið. En þegar opmað var, kom í Ijós, að gesturinn var fábjáni, og sá Sveinn sér ekki fært að krefja hann inngangseyris, sem var 1 kr. Eigi komu fleiii þann dagimm. Treysti nú Sveinn mest á sunmudaginm, opnaði á sama tíma og áður, en enginn kom lengi vel. Loks klukkan að ganga fjögur h'eyrðist giaðværð niðri í stiganum, ólík skröltimu daginn áður, og inn komu þrír herrar, vel búnir og föngulegir, spurðu, hvort þetta væri listmálarinn. Hann kvað svo vera. Komu þeir ? í Listaháskólann sótti Sveinn ekki aðeins menntun sína, held- ur og mestu hamingju lífs síns. Þar kynntisl hamm ungri stúlku, Karen Agnete Enevoldsen, sem síðar varð kona hans og einnig er snjall málari, eins og síðar verður getið. Stunduðu þau framhaldinám í París, en fluttust himgað til lands 1929 og hafa að mestu dvalizt hér síðan, framan af ámm á Húsavík og æskustöðv- um Sveins í Kelduhverfi. Um það leyti mun Sveinn hafa rrttJað iitla, en fagra mynd, Húsavík um vetur. Skemmtilegar litaandstæð- ur sýna Húsavíkurfjall og Höfðinn, snævi hulin, þoipið í skjóli þeirra, fagurblár sjór neð- Þóroddur Guðmundsson, rithöfund- ur, frá Sandi ritar eftirfarandi grein fyrir Tímann um Svein Þórarinsson, listmálara auga á mynd, „og heitir fjós elns og hjá okkur,“ segir einn þeirra. „Eg kaupi þessa mynd.“ Sveinn fékk svima af gleði, en náði sér fljótt aftur. Og áður en varði höfðu þeir keypt af honum mál- verk fyrir á annað þúsund krón- ur, sem var mikið fé í þá daga. Einm gestanma var Djurhus skáld, sem bauð Sveini heim til sín um kvöldið og gaf honum kvæðabók sína með áletmn. Svo fór hann heim með „Lýru“ og málaði um sumarið var hepp- inn og hafði nægilega peninga til að halda áfram námi næsta vetur. an við Bakkann, en rauður hest- ur fremst. Einhverju sinni þegar Sveinn dvaldist á Húsavík, kom þar upp taugaveiki. Skaut honum þá skelk í bringu, því að hann er veikindahræddur mjög, þorði aldrei að opna neinar dyr með hendinni, heldur gerði það með fætinum. Drykkjarvatn sótti hann í læk ofan við þorpið. En þá kom í Ijós, að einmitt með þessum læk bárust taugaveiki- sóttkveikjurnar. Loks þorði Sveinn exki annað af ótta við taugaveikma en flýja frá Húsa- vík og fór norður í Kílakot, en var þá settur í sóttkví í fjósinu og hafðist.þar við hálfan mánuð. Listahjónin reistu sér hús á einum fegursta stað þessa lands, við Ásbyrgi, með ki'ingd stand- björgin, skógarlundinn og tjörn- ina fögru á aðra hönd, en ljóm- andi víðsýnið til hafs og nesja á hina, þar sem lyngs- og bjarka- ilmur berst að vitum, Jökulsá leikur í grjóti og tíbrá sandanna töfrar augað. Þarna bjuggu þau nokkur ár, efalaust til mikils góðs fyrir þroska sinn. Engum, sem kumiugur er þessari fögru sveit annars vegar og málveikum Sveins Þórarins- sonar á hinn bóginn, dylst, hver áhrif náttúra hennar, saga og þjóðlíf haía haft á listamanninn. í æsku talaði hann við umhverf- ið, sá svipi framliðins fólks og tók þátt í búskapnum, eftir því sem kraftar leyfðu. Þannig urðu honum fortíðin og dauð og lif- andi náttúran samgróin. Við end- urnýjuð kyrtni sá hinn þroskaði listamaður allt í skýrara ljósi: Spegiiskyggð vötnin, gróið hraun með hyldjúpum gjám niður í undirheima, starengin úti við bláan sandinn með brimkögri fyrir utan, mes'ta foss Norðurálfu hjá næsta leiti, en yfir svifu ský himinsins ýmist regni þrungin eða glitrandi í ijóma friðarbog- ans, eins og þau geta fegurst ver- ið á þessu landi, og síðast en ekki sízt glitraði kjarr, víðir og lyng í þúsund logum haustsins. Innan um þessi dularfullu undur lifði og hrærðist fólk og búfé. Allt speglast það í myndum Sveiins líkt og hæðir og fjöll í skuggsjá Víkingavatns og Lóns. Þjóðlífið í þessu umhverfi er eftirlætisverkefni Sveins. Ég hef séð tvær myndir eftir hann, sem heita Kirkjufólk, auðsjáanlega teknar við sóknarkirkju lista- mannsins að Garði í Kelduhverfi. Öninur þeirra er gerð með vatns Málverk eftir Svein Þórarinsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.