Tíminn - 12.05.1960, Side 12

Tíminn - 12.05.1960, Side 12
TÍMINN, fimmtBdagbm 12. maí W0O. 12 MTSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON Elns og kwrmugt er af frétt- Uffl, tryggOi Mikhail Tal sér titilinn heimsmeistari í skák með þyí að ná jafntefli í 21. einvígisskákinni við Botvinn- ik, sem tefld var á laugardag. Náöi hann þannig 12Vz vinn- ingi eða meira en helmingi bugsanlegra vinninga í 24 skákum, þess gerðist því ekki þörf að tefla nema 21 skák í einvíginu og má því komast svo að orði að Tal hafi tekið virki heimsmeistaráns með skyndiáhlaupi. í tilefni þess- ara atburða er gaman að rifja upp gamalt atvik: Fyrir réttum tólf árum var bar- ið að dyrum í gistihúsi við bað- ströndina í Riga í Lettlandi. Þegar dyrnar voru opnaðar, stóð ellefu ára snáði í ganginum með tafl- menn og borð undir hendinni. „Mig langar tii að tefla eina skák við heimsmeistarann," .sagði pilt- urinn. Frú Botvinni'k varð að segja drengnum, að eteki væri hsegt að verða við þessari bón hans, því að heimsmeistarinn hefði fengið sér síðdegisblund. Botvinnik var þá nýbúinn að vinna frægan sigur yfir fjórum fremstu stórmeistur- um heims og skipaði nú með sæmd sess heimsimeistara í skák, sem verið hafði. auður síðan Al- jechin lézt árið 1946. Botvinnik hafði að því loknu farið sér til hvfldar og hressingar á baðströnd- ina í Riga, og það var ekki fyrr en tólf árum síðar, sem þeir leiddu saman hesta sína, Botvinnik og Mikhail Tal, en sá var snáðinn, seim vildi fá að reyna sig við heims meistarann. 23. ára að aldri hafði TaJ unnið sér rétt til að skora á heimsmeistarann, og nú dugðu ekki neinar viðbárur um síðdegis- blund. Þann 15. marz síðasiiðiim hófst einvígi þeirra í Moskvu og lauk því á laugardag eins og áður segir. Yngsti heimsmeistarinn í 21. skákinni hafði Botvinnik svart og fylgdi í fyrstu gömlum slóðum drottningarindverskrar varnar, en f 12. leik flækti hann taflið með nýjum og góðum leik. í 17. leik hugsaði Botvinnik sig Skákmenn hafa átt erfltt me3 að tefla vlð Tal sökum þess hve mlkill óróleiki hefur einkennt hann við skákobrð- ið, sem farið hefur í taugarnar á sumum þeirra, þó enginn efist um snilli Tals sem skákmanns, eins og hann hefur nú rækilega sannað. Benkö hélt því fram, að Tal dáleiddi andstæðinga sína — og á síðasta kandidatamóti mætti hann með sólgleraugu, eins og myndin sýnir, en tapaði samt sem áður. — Heimsmeistarinn er til hægrl. Lettinn MIKHAEL TAL — yngsti heimsmeistarinn í skák svo um í hálfa klukkustund. Atti1 hann þá kost á tveimur aða'lleið- um. Loks lék hann og vaJdi þáj teiðina sem rólegri var og örugg- ari, en bauð um l'eið jafntefli, enda tatdi hann sig ekki hafa vinnings- líkur í endatafli því, sem Tal gatj þá fengið fram. Tai tók boðinu og! var þá um leið orðinn heimsmeist- ari í skák — yngsti heimsmeistari allra tíma. Tat var ákaft hylltur af á'horf- endum, en tók siíku með ró og þakkaði Botvinnik fyrir góða keppni. Botvinnik óskaði eftir- manni sínum til hamingju með sigurinn og tók ósigrinum eins og góðum keppnismanni sæmir. Lét Botvinnik svo um mælt að eigin- lega 'hefði hann sjálfur ekki teflt illa, heldur hefði hann staðið and- stæðingi sínum að baki hvað tækni snertir, og hefði það orðið honum að faíli. Kvaðst hann ebki hafa Bæjarkeppni í knattspyrnu milli Akraness og Reykjavíkur í kvöld / kvöld xerður háður hinn árlegi bœjarleikur i knatt- spyrnu milli Akraness og Reykjavíkur — en á undan- förnum árum hefur þessi leikur verið einn merkasti knattspyrnuviðburðurinn á hverju vori. Akurnesingar hafa oftar borið sigur úr být um í þessum viðskiptum, en þó hafa leíkirnir oftast ver- ið jafnir og skemmtilegir. Akranes-liðið er að þessu sinni ekki eins sterkt og á undanförnum árum og munu áhorfendur mjög sakna Rík arðar Jónssonar og Þórðiar Þórðarsonar, sem geta ekki Ieikið að þessu sinni. Ríkarð- ur hefur enn ekki náð sér eftir meiðslin, sem hann' hlaut í Englandi í haust og vafasamt að hann geti tekið þátt í knattspjrmuleikjum j fyrr en síðari hluta sumars.! í Akranes-liðinu eru þó margir ágætir leikmenn og má þar nefna Helga Daníels- son, Svein Teitsson, Þórð Jóns son, Kristinn Gunnlaugsson, Jón Leósson Helga Hannesson og Ingvar Elíasson. Lið Reykjavíkur, sem leik ur í kvöld, var nýlega valið og leika þessir menn í því: Markvöröur Björgvin Her- mannsson, Val; bakv. Árni Njálsson, Val og Hreiöar Ár- sælsson, KR; framv. Garðar Árnason, KR, Hörður Felixson KR og Ormar Skeggjason Val; framherjar Örn Steinsen KR, Jón Magnússon, Þrótti, Þór- ólfur Beck KR, Bergsteinn Magnússon Val og Ellert Schram, KR. Knattspyrnuráð Reykjavík ur valdi þetta lið og kemur þeim, sem séð hafa leikina á Reykjavíkurmótinu, á óvart að leikmenn eins og Þórður Ásgeirsson, Þrótti, Rúnar Guð mannsson Fram og Sveinn Jónsson KR, skuli ekki hafa fundið náð fyrir augum ráðs manna. Þessir leikmenn eru þó varamenn ás-amt Ragnari Jóhannssyni Fram og Guðj- óni Jónssyni Fram. Leikurinn verður á Melavellinum og hefst kl. 8,30. verið verr fyrirkallaður en það, að líklega hefði hann getað varið titil sinn fyrir öðrum andstæðingum en Tat. Hinn nýi 'heimsmeistari er enn ekki orðinn fullra 24 ára og er það einsdæmi í skáksögunni. Lask- er var 25 ára þegar hann sigraði Capa'bíanca árið 1928 Vann sex skákir í þessu einvígi hefur Tai unnið sex skákir og gert 13 jafntefli, en Botvinnik hefur unnið tvœr skák- ir. Sex ská'kir unnust á hvítt, en aðeins tvær á svart. Eins og nærri má geta þegar slíkum skákjöfrum lendir saman, komu fram ýmsar merkar nýjungar í einvíginu, og hafa því skákfræðingar nóg á sinni könnu um .sinn að rannsaka og bera saman bækur sínar. Það leikur ekki á tveim tungum, að Tal er vel að sigrinum kominn, enda þótt munurinn á lokatölu keppenda hefði mátt vera heldur minni, ef tekið er tiltit tit gangs skákanna í einvíginu. Tat teflir sennitega hvassar en nokkur ann- ar meistari og hann er sérfræðing- ur í fórnarleikfléttum, en þetta einvígi sýnir, að hann hefur nú stórum aukið þroska sinn á öðrum sviðum .skákarinnar, svo sem til dæmis í endatafli. Botvinnik komst oft í tímaþröng í einvíginu og tap aði á því nokkrum vinningum, en þess ber að gæta, að þetta orsak- ast meðal annars af hinum mikla hraða í útreikningum Tals og hvössum stíl hans. Heimsmeistari 1948 Á þessum tímamótum er ástæða til þess að rekja stuttlega feril þessara tveggja stórmeistara. Bot- vinnik, sem er 48 ára að aldri og verkfræðingur að menntun, vakti snemma á sér athygli og var orð- inn mjög sterkur meistari, þegar •hann í fyrsta sinn tók þátt í skák- þingi Sovétríkjanna 16 ára að aldri og árið 1930 verður hann í fyrsta sinn skákmeistari Sovétrikjanna 19 ára gamatl. Þennan titil áttl hann eftir að vinna oftar, og marg- sinnis vann hann sér frægð á al- þjóðavettvangi á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöldina. Árið 1946 var búið að ákveða einvígi um heimsmeistaratitiiinn í skák milli þeirra Botvinniks og Aljebhins, en Aljekhin lézt áður en af þeirri keppni gæti orðið. Tveimur árum síðar kepptu þeir Botvinnik, Smý- stoff, Keres, Resbevský og Euwe um heimsmeistarati'gnina og bar Botvinnik sigur úr býtum með alt- miklum yfirburðum. Síðan hefur hann fjórum sinnum varið titil ■sinn. Bronstein og Smýsloff náðu aðeins jöfnu í fyrstu tvö skiptin, síðan vann Smýstoff Botvinnik árið 1957, en missti titilinn aftur í einvígi við Botvinnik 1958, og nú hefur Botvinnik tapað fyrir Tal. Málfræðingur Hinn nýi heimsmeistari, Mikhail Tal, sem er 23 ára að aldri og hef- ur lokið námi í mátfræði við há- skóta í Ríga, hóf kornungur að tefla og naut frá upphafi góðrar handteiðstu hins kunna skákmeist ara Koblenz, sem rekið hefur skák- skóla í Ríga. Tal sýndi snemma frábæra hæfileika sem skákmað- ur, en þó hiaut hann ekki verulega frægð fyrr en hann sigraði á Skák- þingi Sqvétríkjanna 1956 öllum á óvænt. Ári síðar varði hann meist- aratitil sinn með sóma, og undan- farin fjögur ár 'hefur hann sigrað á flestum þeim stórmótum, sem hann hefur tekið þátt í. Mikhail Tal er liktegur til að verða leiðandi stjarna í skábheim- inum næstu áratugina, þótt menn eins og Fischer og Spasský, svo einhver nöfn séu nefnd, kunni að verða honum hættulegir keppi- nautar um æðstu tignarstöðu skák- arinnar. ^ Síðasta skákin Hér bemur 21. skákin: Hvítt: Tal— Svart: Botvinnm. 1. d4. Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 Botvinnik velur hina rólegu en traustu drottningarindversku vörn, sem oft leiðir til uppskipta og jafn teflis. 4. g3 Bb7 5. Bg2 Be7 6. 0—0 0—0 7. Rc3 Re4 8. Dc2 Rxc3 9. Dxc3 f5 10. b3 Bf6 11. Bb2 d6 12. Hadl De7 Áður var taiið, að bezt væri hér 12. — Dc8, en nýjustu rannsóknir hafa bent til þess, að leikur Bot- vinnifcs sé ekki lakari. 13. Rel Bxg2 14. Rxg2 Rc6! Áður hafði verið leikið 14. — Rd7 og hélt þá. hvítur betra tafli með 15. Df3! 15. Df3 Dd7 16. Rf4 Hae8 17. d5 Nú átti Botvinnik einkum um tvær leiðir að velja. Önnur var sú, að leika 17. — Bxb2 18. dxe6 Re5, sem leitt gæti tit líkrar stöðu eftir, 19. exr7 Rxf3f 20. exf3 He7 o.s. frv., en hin var sú, sem Botvinnik vatdi eftir liðlega hálftíma um- hugsun, en hún leiðir einnig til mikilta uppskipta og er raunar enn jafnteflislegri en sú fyrr- nefnda. 17. — Itd8 Botvinnik, sem taldi sig ekki hafa vinningslikur eftir þau upp- skipti, sem Tat getur þvingað fram í stöðunni, bauð jafntefli um leið og hann lék 17 leik sínum, og táknar hann því ný þáttaskil í skák sögunni. Freysteinn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.