Tíminn - 31.05.1960, Síða 3
XÍMIJMJV, þriðjudaginn 31. maí 1960.
3
Myndin er frá Græniandi.
Tyrknesku hershöfðingjarnir
léku klóklega á Menderes
Ferð til Græn-
lands með Páli
Danska ferðaskrifstofan
AERO LLOYD efnir til einnar
ferðar til Grænlands í sumar
í samvinnu við Ferðaskrif-
stofu Páls Arasonar. Þátttak-
endur verða frá Norðurlönd-
um og Englandi og rúm er
fyrir 20 fslendinga. Lagt verð
ur af stað flugleiðis frá Rvík
30. júní og komið aftur 14.
júlí.
Fyrst verður farið til Nar.ssar-
suak á suðvesturströnd Grænlands
og dvalið þar í nýtízku hóteli,
Hótel Arctic.
Góður matur
Þar er framreiddur fyrsta flokks
matur að dönskum sið, og gefst
Daglegt líf í e(Jlilegt horf. Stjórnin vifturkennd
erlendis. Innanríkisráðh. framdi sjálfsmorð
NTB—Ankara, 30. maí. —
Herforingjanefndin, sem nú
stjórnar Tyrklandi, hélt fyrsta
formlega stjórnarfund sinn í
dag. Flest erlend ríki ætla um
svifalaust að viðurkenna hina
nýju stjórn. Fjöldi manna úr
innsta hring stjórnar Mender-
es hefur verið handtekinn.
Stjórnarskrárnefndin býst við
að skila frumvarpi eftir 6
vikur.
Allt daglegt líf virðist kom
ið i eðlilegt horf. Mjög' hefur
verið dregið úr öllum varúð
arráðstöfunum og sagt, að
þær verði afnumdar næstu
daga. Yfirleitt virðist almenn
ingur ánægður með stjómar
skiptin.
Framdi sjálfsmorð
Manik Gedik innanríkisráð
herra úr stjórn Menderes kast
aði sér snemma í morgun út
um glugga á fjórðu hæð í
húsi þvi, þar sem hann var
í gæzluvarðhaldi. Beið hannj
þegar bana. Innanríkisráð-!
herrann var einna verst þokk !
aður af öllum valdamönnum í
landsins. Sögur hafa gengið1
um að allmargir af áhrifa-
mönnum í stjóm Menderesar
Ný stjarna í
800 rcetrum
hafi framið sjálfsmorð, en
það er opinberlega borið til
baka. 19 háttsettir menn úr
flokki Menderes voru hand-
teknir í Istanbul í dag, þar af
tveir bankastjórar. Þá hafa
140 áhrifamenn Demokrata
verið fluttir í gæzlu til eyjar
innar Yassi-Ada í Marmara-
hafi. Menderes og flestir af
nánustu og valdamestu sam-
starfsmönnum hans sitja í
varðhaldi í Ankara.
Gursel var ekki einn
Enn hafa ekki verið gefiij
upp nöfnin á mönnum þeim,
sem tekið hafa að sér stjórn
landsins, en þeir munu nær
Á Frjálsíþróttamóti KR á Mela
vellinum í gærkveldi sigraði himn
tvítugi Akureyringur Guðmundur
Þorsteinsson, Svavar Markússon í
800 metra hlaupi. Báðir hlutu
ágætan tíma. Guðmundur 1.54.1
mín. og Svavar 1.54.3 mín.
Þetta er annað keppnisár Guð-
mundar og hann kom mjög á ó-
vart með hinum ágæta árangri.
Bezti tími hans áður var 2.02,9
nún. Nánar verður sagt frá mót-
inu á íþróttasiðu blaðsins á morg-
m-
Öítast iim líf
forsetans
LONDON, 30. maí. — Fregnir
frá Tokíó herma, að menn
þeir, sem sjá eiga um öryggi
Eisenhowers forseta, er hann
kemur í heimsókn til Japans
19. næsta mán., gerist all á-
hyggjufullir. Stöðugar mót-
mælagöngur eru í landinu og
jafnaðarmenn halda uppi öfl
gum andróðri gagn ríkisstjór
inni og varnarsamningi þeim
sem Kishi forsætisráðherra
hefur undirritað við Banda-
ríkin.
Pastemak
hrakar enn
MOSKVU, 30. maí. — Nóbels
verðlaunaskáldinu Boris Past
ernak þyngir stöðugt. Er hon
um nú vart hugað líf. Hann
mun þjást af lungnakrabba,
en fékk síðan hjartaslag og
einnig magablæðingar. —
Pastemak er 70 ára að aldri.
allir eða allir vera herforingj
ar. Sáust um 20 herforingjar
koma til stjórnarfundarins í
morgun. Þeirra á meðal var
Madanoglu hershöfðingi, sem
átti einna mestan þátt í bylt
ingunni og raunar gerði hana
mögulega. Fyrir nokkru gat
hann talið Menderes á, að
hætta við að kveðja herlnn
til vopna og láta hann berja
niður óeirðirnar. í þess stað
var honum falið, að ganga frá
nýrri áætlun og undir þvl yfir
skyni gat hann haft samband
við alla helztu herforingja og
leiðtoga leyniþjónustunnar.
Allir þessir aðilar féllust á að
taka þátt í byltingunni.
Gursel hylltur
Gursel hershöfðingi var á-
kaft hylltur af mannfjöldan-
um í Ankara í dag. Hann lof
aði að gera sitt bezta til. að
tryggj a lýðræði í landinu. —
Annar hershöfðingi, Sitri
Ulay, var þó ef til vill hyllt-
ur enn innilegar en Gursel.
Ulay er yfirmaður liðsfor-
ingjaskóians í Ankara og það
var hann sem fyrstur allra
hershöfðingja vogði sér opin
berlega að sýna Menderes
mótþróa er hann gekk I farar
broddi liðsforingja sinna um
götur borgarinnar og mót-
mælti stjómarháttum Mend
eresar.
Fregnir berast um, að nær
allar ríkisstjómir hyggist við
urkenna hina nýju stjórn um
svlfalaust. Á sinn þátt í því
sú ákvörðun hennar, að
standa við allar skuldbinding
ar fyrri ríktsstjórnar út á við,
þar á meðal aðild landsins að
NATO.
^ .... ■ ,
Vitkast ekki
(Framh aí l síðu).
kerfið.
★★ Útflutningsgjaldið nýja á
sjávarafurðir verði alveg
fellt úr gildi og verð á
fiski og síld til framleið-
enda hækkað að sama
skapi.
★★ Greiddar verði sérbætur
á sumarveiddan fisk,
steinbít, ýsu og smáfisk.
Ferðamenn
- njósnarar
Danska blaðið Politiken skýr-
ir svo frá, að rússnesku blöðin
vari nú almenning mjög ákveðið
við „kapitalistiskum njósnurum
og flugumönnum“, sem kunni
að heimsækja Sovétríkin í gervi
saklausra ferðamanna. „Rauða
stjrnan" segir, að það sé ekki að
eins úr lofti, sem njósnir séu
reknar, heldur líka á jörðu niðri.
Blöðin benda á, að ferðamanna-
straumur í sumar muni verða
meiri en nokkru sinni, og megi
vænta þess að í þeim hópi verði
ófáir njósnarar. Leyndarmál,
sem hafi verið sagt öðrum, sé
ekki lengur leyndarmál.
ferðamönnum kostur á að kaupa
grænlenzka minjagripi. Þá verður
dvalið í Narrsak, þorpi skammt
frá og búa þátttakendur þar á
heimilum og fá því að kynnast
fólkinu, sem landið byggir, af eig-
in raun. Loks verður dvalið í Júlí-
aneháb en þar er fyrsta flokks
viðurværi að danskri fyrirmynd.
Laxveiðar og fjallgöngur
Ferðamennirnir munu fá tæki
færi til að kynnast grænlenzku
þjóðlífi á ýmsan hátt. Farið verð-
ur á laxveiðar, en óvíða í heimi
munu laxár betri en á Grynlandi.
Fjallgöngur verða skipulagðar og
einnig verða Skoðaðar rústir ís-
lendingbyggðar.
Þjóðdansar
Ferðalangarnir munu einnig fá
tækifæri tii að sjá grænlenzka
þjóðdansa, sem eru mjög sérstæð-
ir og þjóðbúningur Grænlendinga
er einnig mjög fallegur og litskrúð
ugur.
Er ekki að efa að marga muni
fýsa að sækja þetta nágrannaland
okkar, sem hefur verið til þessa
alltof fjarlægt. Frekari upplýsing-
ar um ferðirnar er að fá á ferða-
skrifstofu Páls Arasonar.
Cubu ógnað
NTB_ Whasington, 27. maí.
Bandaríkin hafa stöðvað
tækniaðstoð við Cubu. Tók
Eisenhower ákvörðun um
þetta 14. maí s. 1., þetta var
'tilkynnt Cubu-stjórn í orð-
sendingu í gær.
Segir
að aðstoð þessi sé ekki lengur
samrýmanleg hagsmunum
Bandarikj anna gagnvart rikj
um í Ameríku. Sambúð Cubu
og Bandaríkjanna hefur f$r-
ið síversnandi undanfarið.
Fóstbræðrum for-
kunnar vel tekið
Einkaskeyti frá Khöfn.
S. 1. laugardag hélt Karla-
kórinn Fóstbræður söng-
skemmtun í Konsertsal Tív-
ólís í Kaupmannahöfn. Söng-
skráin var mjög fjölbreytt og
undirtektir fráhærar. Gagn-
rýnendur blaðanna skrifa |
einnig einróma lof um söngj
kórsins.
Karlakórmn Fóstbræður hefur
sem kunnugt er verið á söngför
um Noreg og hlotið þar ágætar
viðtökur.
Ágætar raddir
Eitt blaðanna segir, að í kórn-
um séu ágætar raddir og hinum
framúrskarandi söngstjóra Ragn-
ari Bjöjrnssyni hafi með mikilli
vinnu og góðum aga tekizt að sam
æfa og þjálfa þessar raddir ágæta
vel, enda sé árangurinn aðdáun-
arverður. Sérstaklega er lögð á-
herzla á góða frammistöðu ein-
söngvara. Allur flutningur hafi
! c-inkennzt af músíkmenningu og
öruggri tilfinningu fyrir stílrænni
tjántogu og framsetningu. Við-
staddir voru margir íslandingar
, bæði aðkomnir og búsettir í Kaup
mannahöfn, þeirra á meðal sendi-
herra fslands þar.
Um kvöldið hélt íslendingafé-
lagið samkomu til þess að gefa
sem flestum íslendingum kost á
að heyra til kórsins. Söng hann
alimörg lög og var ákaft hylltur
i lokin af þakklátum áheyrendum.
Aðils
Signr Gaull-
ista í Alsír
PARÍS, 30. maí. — Fylgis-
menn de Gaulle forseta hafa
unnið mikinn sigur í bæjar
og sveitarstjórnarkosningum
í Alsír. Þykir þetta mikill sig
ur fyrir de Gaulle og Alsír-
stefnu hans. Hægri menn
hafa tapað fylgi, en það vek
ur þó athygli, að kona Pierre
Laguerre, sem stóð fyrir upp
reisn frönsku landnemanna í
Alsírborg í vetur, náði kosn
ingu.