Tíminn - 31.05.1960, Síða 5
T í MIN N, þriðjudaginn 31. maí 1960.
5
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKbRINN.
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarmsson (áb.), Andrés
Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson.
Auglýsingastj.: Egili Bjarnason. Skrifstofur
í Edduhúsmu. — Símar: 18300—18305.
Auglýsingasimi: 19523. Afgreiðslusimi:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
Hvað liggur á?
Útsvarsfrumvarp ríkisstjórnarinnar er nú komið til
efri deildar. Við meðferð frv. í neðri edild hefur það þó
tekið nokkrum breytingum til bóta frá því sem var,
er stjórnin lagði það íyrst fram. Ríkisstjórnin hefur
þannig nokkuð svignað fyrir gagnrýni stjórnarandstöð-
unnar og þeim mótmæium víðsvegar að af landinu, sem
rignt hefur yfir Alþingi að undanförnu. Þrátt fyrir þessar
lagfæringar er þó frv. ennþá þannig úr garði gert, að það
er óferjandi með öllu. Þrátt fyrir það mun þess þó sjálf-
sagt ekki að vænta, að frekari leiðréttingar fáist á frv.
en þegar eru fengnar og mun það verða drifið gegnum
þingið eins og það liggur nú fyrir.
Og hver er þá kjarni málsins?
í fyrsta lagi á nú að lögbjóða veltuútsvör, og skulu
þau álögð án þess að nokkurt tillit sé tekið til afkomu
þeirra einstaklinga og fvrirtækja sem hafa með höndum
atvinnurekstur eða framkvæmdir. Afleiðingin er sú, að
veltuútsvörin verða í mörgum tilfellum hærri en allar
hreinar tekjur hlutaðeigenda. Sjá allir að hverju stefnt er
með slíkum ráðstöfunum. Og fyrir þessu stendur flokkur-
inn, sem þykist vilja hlynna að framtakinu.
í öðru lagi er það ákveðið að veltuútsvar skuli lagt á
félagsmannaviðskipti samvinnufélaga og hefur þar með
áratuga gamall draumur íhaldsins íoksins rætzt. Þetta
þýðir að lagt er nýtt skattgjald á nauðsynjar þeirra mörgu
tugþúsunda manna í landinu, sem kaupfélögin annast um
útvegun á nauðsynjum fyrir og vitanlega einnig þá sem
láta þau selja framleiðsluvörur sínar.
f þriðja lagi skal leggja nýtt gjald á allar framleiðslu-
vörur landbúnaðarins, hvort sem þær eru seldar í um-
boðssölu eða ekki og það þótt aðrar umboðssöluvörur séu
undanþegnar veltuútsvörum. Má af þessu marka um-
hyggju stjórnarliðsins fyrir bændastéttinni. (Skyldi ekki
Bjartmar fara að skrifa aðra grein til að þakka Ingólfi?).
í fjórða lagi er að því stefnt að Jækka stórlega útsvör
á hátekjumönnum með því að lögbjóða þá reglu að útsvör
fyrra árs séu dregin frá tekjum áður en nýtt útsvar er á
lagt. Sem dæmi um stjórnarréttlætið má benda á, að ein-
staklingur með 200 þús. kr. tekjur fær um 15 þús. kr.
útsvarslækkun en annar hieð 60 þús. kr. tekjur fær um
2 þús. kr. lækkun. Og svo nefnir annar stjórnarflokkur-
mn sig „Alþýðuflokk“.
Afleiðingar þessara einstæðu ráðstafana stjórnar-
flokkanna eru auðsæjar. Þær miða beinlínis að því að
draga saman framleiðslustarfsemina og rýra þannig lífs-
kjörin. Þær miða að þvi að hækka vöruverð til neytenda
og lækka það til framleiðenda.
Nú er það játað af stjórnarliðinu, að mál þetta sé svo
flausturslega og illa undirbúið, sem frekast má vera. Nú
eru starfandi nefndir, sem hafa með höndum endurskoð-
un skattalaganna og gildandi ákvæði um tekjusfofna
sveitarfélaga. Því er þetta mál ekki látið bíða þeirrar end-
iirskoðunar? Hvað liggur á? Jú tvennt rekur á eftir. Það
hefur lengi verið óskadraumur íhaldsins að lama sam-
vinnuhreyfinguna með því að skattleggja félagsmanna-
viðskiptin. Hingað til hefur það ekki tekizt. En nú kom
tækifærið í samvinnu við Alþýðuflokkinn. Og vitanlega
mátti ekki láta það hjá líða ónotað. Hin ástæðan er sú,
að sjá varð um að útsvarslækkunin kæmi fyrst og fremst
hátekjumönnum til góða, eins og sýnt er með dæmi því
sem hér er nefnt að ofan. Hvorugt þetta þoldi bið, að
dómi stjórnarflokkanna. Enginn furðar sig á þeirri skoð-
un íhaldsins en hvað sýnist Alþýðuflokksmönnum um
frammistöðu síns flokks?
/
'/
'/
'/
/
/
/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
‘/
'/
'/
‘/
'/
?
'/
'/
'/
'/
ERLENT YFIRLIT
Er röðin komin að Japan?
För Eí/senhowers til Japans getur orðiS hin sögulegasta
SITTHVAÐ bendir nú til
þess, að ekki ólí/kir atburðir
eigi eftir að gerast í Japan áður
en langt um líður og þeir, sem
hafa gerzt nýlega í Suður-Kór-
eu og Tyrklandi. Núverandi
stjórn Japans stendur a. m. k.
mjög völtum fætii, en mótmæla
fundir og mótmædagöngur, sem
haldið er uppi gegn henni,
magnast nær daglega. Aukin
athygli beinist að þessari stjórn
málaþróun í Ja;pan vegna þess,
að Eisenihower hefur ráðgert
að fara í opínbera heimsókn
til Japans 19. júní n. k.
Segja má að tildrög þessara
atburða reki Tætur til þess, að
núv. stjórn Japans gerði á síð-
astl. ári 10 ana varnársamning
við Bandaríb.in, og er ætlunin
að hann komi í stað þess varn-
arsamnings, er nú gildir, og
Japanir hald.a fram, að þeir
hafi raunver ulega ekki gert
með frjálsum vilja. Slífct yrði
hins vegar ekki sagt um hinn
nýja sanmíng, ©f hann nær
gildi, þar siem hann yrði þá
gerður af stjórn og þingi, sem
hefði náð völdum í frjálsum
kosninguœi.
Af þessum ástæðum hafa
Bandaríký þmenn lagt mikla
áherzlu a að fá nýjan samning,
þar sem jieir vilja losna við þá
gagnrýni, að þeir byggi leyfi
sitt til herstöðva í Japan á
nauðungarsamningi.
Af hálf u Bandaríkjamanna
var það líka talinn mikill sig-
ur fyrir þá, er Kishi forsætis-
ráðherra b;om til Washington á
síðastliðnuan vetri, og gekk þar
frá hinum nýja varnarsamningi.
Fullt gildl fær hann þó ekki
fyrr en eiTtir að þingið hefur
staðfest hann.
Samkvæmt hinum nýja samn
ingi, fá E.andaríkin að halda
áfram herstöðvum í Japan, og
er nokkuð -sjálfinátt um, hvernig
þau 'haga notkun þeirra.
HINN NÝI varnarsamningur
sætti .stra.K harðri andspyrnu
af 'hálfu jafnaðarmanna, sem
eru eini stóri stjórnarandstöðu
flokkurinn. í Japan. Jafnaðar-
mönnum barst mjög skætt vopn
í hendurmar, er U-2 njósnarflug
vélin var skotin niður í Sovét-
ríkjunum, en kunnugt er .um,
að slíkar flugvélar Bandaríkja-
manna ha:Ea bækistöðvar í Jap-
an. Fyrir stjórnina var það
hins vegar- álíka óheppilegt, að
samninguxaiin kom til meðferð
ar í þingiiau rétt á eftir.
Síðan samningurinn kom til
meðferðar í þinginu, hefur
ekki linní á mótmælafundum
og mótmælagöngum í Japan.
Einn dagimn nú í vikunni er
K I S H I
talið að 2 millj. manna hafi
tekið þátt í þeim víðs vegar í
Japan. Suma dagana hefur
Kiáhi forsætisráðherra orðið
að halda til í þinghúsinu, því
að óvinveittur mannfjöldi hef-
ur umkringt það og lögreglan
viljað forðast átök. Kishi hefur
nú fengið samninginn sam-
þykktan í neðri deild þingsins,
en jafnaðarmenn hafa svarað
með því að gera efri deildina
óstarfhæfa með því að sækja
ekki fundi hennar. Þetta mun
þó ekki nægja til að hindra
staðfestingu samningsiris, því
að samþykkt neðri deildar fær
gildi eftir 30 daga, hvað sem
afstöðu efri deildarinnar líður.
ÞRÁTT fyrir það þótt Kishi
geti þannig komið sanmingn-
um fram, og flokkur hans hafi
nær % meirihluta á þingi, telja
ýmsir blaðamenn er til þekkja,
að dagar hans séu brátt taldir.
Ástæðn er ekki sízt sú, að ýms
ir áhrifamenn í flokki hans
vilja gjarnan fella hann og fá
sæti hans, en um flesta þeirra
gildir það, að þeir eru andstæð
ari Bandaríkjamönnum en
hann.
Von Kishis um áframhald-
andi völd byggjast nú ekki sizt
á því, að fyrirhuguð heimsókn
Eisenhowers geti styrkt hann
í sessi, ef honum tækist að
hanga þangað til. Þetta gera
andstæðingar hans sér líka
ljóst, og því hafa foringjar jafn
aðarmanna gengið á fund sendi
herra Bandaríkjanna og ráð-
lagt að Eisenfaower frestaði
heimsókn sinni. Bandaríkja-
stjórn hefur hins vegar neitað
að verða við þessu og áætlun
Eisenhowers verði ekki breytt,
nema stjórn Japans óski þess,
en Kishi leggur hins vegar allt
kapp á, að Eisenhower fresti
ekki förinni þangað.
Vel getur því svo farið, að
för Eisenhowers til Japans geti
orðið hin sögulegasta, ef ekki
hafa þá gerzt stærri tíðindi í
Japan áður. Þ. Þ.
Mótmælafundur fyrir framan þinghúsið í Tokíó.
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
t
ý
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
‘/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
i
Fimmtíu þús. Ferguson í Danmörku
Fimmtíuþússnindasta Massey-1
Ferguson drá^ttarvélin var nýlega
flutt inn til Danmerkur. Var hún
gjöf frá Mas sey-Ferguson fyrir-
tækinu og veitti Karl Skytte land J
Lúnaðarmálaraðherra Dana henni
rnóttöku í hóiii er haldið var 30.
marz s.l.
Þessi' mikli fjöldi drá'tfcarvóla |
hefur verið fluttur inn til Dan-I
merkur á s.l. 12 árum og hefur
ekfcert annað land flutt inn eins
n^argar dráttarvélar frá Massey-
lerguson og Danmöi'k. Þetta er
þv' algjört sölumet og á sér hvergi
hiiðstæðu því Nordisk Tracktor
C'ompany tiefur með þessu keypt
10% allra þeirra dráttarvéla, er
Massey-Ferguson hafa flutt út frá
Bretlandi, og er 48% af traktor-
eign Dana nú Massey-Ferguson.
Massey-Ferguson dráttarvélarn-
ar njóta því geysi vinsælda í Dan
mörku sem hér á íslandi og kost-
ir þeiirra viðurkenndir af öllum.
Þess er skemmst að minnast að
Danmerkurmeistarinn í dráttar-
velaakstri (plægingu) notaði
iiass'ey-Ferguson dráttarvél í
keppninni.