Tíminn - 08.06.1960, Síða 5

Tíminn - 08.06.1960, Síða 5
TÍMINN, miðvikudaginn 8. jóni 1960. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason. Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson. Auglýsingastj.: Egill Bjamason. Skrifstofur í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305. Auglýsingasimi: 19523. Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. ,Endurbætur4 Gunnars Það hefði mátt ætla af ræðu þeirri, sem Gunnar Thor- oddsen flutti í eldhúsumræðunum, að ríkisstjórnin hefði beitt sér fyrir stórfelldum umbótum í skattamálum. Gunnar talaði með miklu stærilæti um hina margvíslegu skatta og tolla, sem hefðu verið fyrir, þegar ríkisstjórn- in kom til valda, og hversu mikil þörf hefði því verið endurbóta. Menn munu því hafa ætlað, að miklar endurbætur hefðu orðið á þessu síðan Sjálfstæðisflokkurinn tók við fjárstjórn ríkisins undir forystu Gunnars. Sé nú að þingi loknu, litið yfir „endurbæturnar“, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert í skattamálunum, verður niðurstaðan þessi: Allir hinir mörgu skattar og tollar, sem Gunnar fjasaði mest vfir, haldast áfram. Hins vegar hafa verið gerðar þessar breytingar: 1. Tekjuskattur og útsvar hafa verið lækkuð þannig, að hátekjumenn fá 10—20-falt meiri lækkun en lágtekju- menn. 2. Lagður hefur verið á nýr 3% söluskattur. sem nær til svo að segja allra neyzluvara almennings, nema drykkjarvatns. 3. Veltuútsvar hefur verið lögfest í fyrsta sinn. Þessu til viðbótar hafa svo ýmsir eldri skattar verið stórhækkaðir. Innflutnmgssöluskatturinn t. d. meira en tvöfaldaður, benzíntollur hækkaður o. s. frv. Rétt er svo að víkja að hinum helztu „endurbótum" Gunnars nokkrum orðum. jEndurbói4 nr. 1 Fyrsta stóra „endurbótin“ er sú, að tjekjuskattur og útsvar hafa verið lækkuð með þeim hætti, að hinir tekjuháu fá 10—20-falda lækkun á við hina tekjulágu. í staðinn kemur söluskatturinn, er legst jafnt á alla. Niðurstaðan verður sú, að kjör hinna láglaunuðu versna, en hagur hinna hálaunuðu batnar. ,,Réttlætið“, er felst í þessari „endurbót“ dæmir sig sjálft, svo að eigi þarf fleiri orðum að fara um það. ,Endurbót‘ nr. 2 Önnur stóra „endurbótin“ er nýi 3% söluskatturinn, sem leggst á allar vörur og þjónustu, drykkjarvatn þó undanskilið. Þessi skattur leggst þyngst á fátækar, stór- ar fjölskyldur. Honum fylgir stórkostlega aukin skrif- finnska. Hann er erfiðastur í innheimtu allra skatta. Það er svo sem ekki ástæðulaust, að Sjálfstæðisflokkurinn sé hrifinn af þessari endurbót sinni. ,Endurbót‘ nr. 3 Þriðja stóra ,,endurbótin“ er svo lögfesting veltuút- svarsins, sem er óþekkt skattlagning í nágrannalöndum okkar og öllum kemur saman um að sé ranglátastur allra skatta, því að hann leggist á fyriríækin, án alls tillits til afkomu og efnahags. og fer verst með þau fyrirtæki, er veita bezta þjónustu og hafa því mikla veltu, en lít- inn ágóða. Það er ekki furða, þótt fjármálaráðherra Sjálfstæðis- flokksins tali digurbarkaiega um skatta- og tollamálin og „endurbæturnar“, sem hafa verið gerðar á því sviði. En vill þjóðin meira af slíkum „endurbótum“? - ERLENT YFIRLIT Samdráttarstefnan í Tyrklandi Hún átti veigamikinn þátt í Því atS steypa Menderes þjóðabankinn og Efnahagssam- vinnustofnunin héldu þó áfram að klifa á þessu, og vorið 1958 var svo komið, að Mendsres átti ekki nema um tvo kosti að velja: Anmaðhvort að gera efna hagsráðstafanir að vilja þess- ara stofnana eða að missa þá efnahagsaðstoð, er hann hafði notið frá Bandaríkjunum. Niðurstaðan varð sú, að Menderes valdi fyrri kostinn. Hann lækkaði gengið og gerði fleiri samdráttarráðstafanir, en fékk í staðinn 376 millj. doll- ara lán til vörufcaupa. Fyrst í stað virtist þetta ætla að heppnast. Gjaldeyrisstaðan batnaði mikið út á við og inn- eignir ukust nokkuð í bönkum. Þegar sérfræðingar Efnahags- samyinnustofnunarinnar ræddu við íslenzka ráðamenn á síðastl. vetri um efnahagsmál fslands, munu þeir ekki sízt hafa bent á, hve umræddar efnahagsráð- stafanir hefðu gefizt vel í Tyrk- landi. ÞETTA var hins vegar ekki nema önnur hlið málsins. Efna- hagsráðstöfununum fylgdu stór kostlegar verðhækkanir eða verðbólga (sjá línuritið úr New York Times um fram- færslukostnaðinn í Tyrklandi, sem birt er á öðrum stað.) Kjaraskerðingin varð því mjög mikil hjá almenningi og mikill samdráttur varð hjá smá kaupmönhum og fleiri milli- stéttum. Menntamenn, sem eru launamenn, urðu .sérstaklega hart úti. Þetta ýtti mjög undir óánægju í landinu, einkum þó borgunum, þar sem hún var mest fyrir. Stjórnarandstaðan fékk því aukinn byr í seglin. Menderes reyndi að bæta að- stöðu sína með því að grípa til þeirra óyndisúrræða að tak- marka í vaxandi mæli prent- frelsi og málfrelsi andstæðinga sinna. Segja má, að hann hafi endanlega ákveðið örlög sín, er hann lét beita hervaldi til þess FramfærslukostnaSurinn f Tyrk-að banna foringja stjórnarand- landl. Línurit þetta er tekiS úrstöðunnar, Inonu, að fara í „New York Times". fundarferðalag, og beitti svo AÐ SJALFSOGÐU hafa marg ar ástæður átt samverkandi þátt í þeim stjórnmálaatburð- um, sem hafa verið að gerast í Tyrklandi undanfarnar vikur. Ein meginorsökin rekur rætur til þeirra efnahagsaðgerða, sem voru gerðar þar árið 1958 að ráði Efnahagssamvinnustofnun- ar Evrópu og fleiri stofnana, er tii þeirra efnahagsráðstafana, sem nú er verið að gera hér á landi. Hagfræðingar Alþjóðabank- ans, Efinahagssamvinnustofnun- ar Exrópu og fleiri stofnana, er sáu um amerískar lánveitingar til Tyrklands, hafa um alllangt skeið fundið að því við stjórn Tyrklands, að stefna hennar leiddi til ofmikillar fjárfesting- ar, sem síðar hefði verðbólgu í för með sér. Þetta töldu þeir, að helzt mætti lækna með sam- drætti, en það er sameiginlegt um flesta ráðunauta þessara stofnana, að þeir eru íhalds- sininaðir og fylgja því samdrátt arstefnu. TYRKNESKA s'tjórnin brást fyrst þannig við þeim ráðlegg- ingum, að hún gripi til stór- felldrar samdráttarstefnu, að hún vísaði sérfræðingum Al- þjóðabankans, sem höfðu dval- izt í Tyrklandi og gert slíkar tillögur, úr landi. Bæði Al- m stjórnarandstæðinga á þingi sérstöku ofbeldi. Þá risu .stú- dentar upp, en mótmælagöngur þeirra, studdu mjög að falli hans. ÞAÐ MÁ því segja, að hjálp sú, sem Efnahagssamvinnu- stofnunin og Bandaríkin veittu Menderes 1958 og átti að að verða til þess að styrkja hanm í sessi, hafi orðið bana- biti hans. En þetta er því miður ekki í fyrsta sinn, sem það hef- ur orðið hinum vestræna heimi til tjóns, hve Bandaríkjastjórn og sérfræðingar hennar hafa haldið mjög fram samdráttar- stefnunni. Vegna hennar er framleiðsluaukningin nú ber- sýnilega mun minni í Bandar. og víðast vestan hafs en í komm únistalöndunum. Ef slíku held- ur áfram, mun styrkur komm- únistarikjanna halda áfram að vaxa meira en lýðræðisríkj- anna. Án efa er hér að finna eina mestu hættuna, er nú vof- ir yfir hinum frjálsa heimi. Ef lýðræðisríkin bera ekki gæfu tii að taka up þróttmeiri og markvissari uppbyggingar- .stefnu, mun halda áfram að síga á ógæfuhlið. Það er góðs viti, að hinir framsýnni stjórn- málaleiðtogar Bandaríkjanna í báðum aðalflokkunum virðist nú gera sér þetta ljóst. Þ.Þ. U. S. Ai0TGTU^KS’r ■ ■ 7oo ; .. t 1 -mfö ; - * : ISO • 0 M8 •«/ 'M 'íh I9SV Fjárhagsaðstoð Bandaríkjanna við Tyrkland. Línurlt þetta er tekið úr „New York Times". Hellumálið - er fyrir neð- an allar hellur Fátt sýnir meiri óskammfeilni íhaldsráðherranna tveggja Gunn- ars og Ingólfs en hið svokallaða Hellumál. Sannleikur málsins er sá að mál þetta er alls ekki dóm- tækt, og þar af leiðandi gætu hvorki dómstólar eða gerðardóm ar fjallað um það. Aðrir dómar fjalla um eitthvað sem skeð hef- ur, en ekki óorðna hluti — það sem á eftir að ske. Hjá Kaupfélaginu Þór var eng- inn skaði skeður — ekkert tjón orðið. Hvað finnst ykkur um þau rök, ef skipstjóri vildi fá greitt trygg- ingarfé fyrir skip sitt fyrirfram, sem hann teldi öruggt að færist eftir tvö ár? Brunabótafélagið mundi gera skop að þeim manni, sem krefðist tryggingarfjár fyrir hús sitt, sem hann hefði dreyrnt um að brynni eftir tvö ár? Hvaða tryggingarfélag mundi greiða skaðabætur fyrir bfl, scm ekki hefur orðið fyrir tjóni? Menn, sem færu fram á slíkar bætur, væru ekki taldir með fullu viti, — að sálarástand þeirra væri „FYRIR NEÐAN ALLAR HELL UR“. Á árinu 1960 á íslenzka þjóðin tvo ráðherra, sem eru svo forhertir í ósómanum að þeir láta kveða upp skaðabótadóm fyr ir augum alþjóðar fyrir tjón, — sem ekkert tjón er orðið. Það eru aðeins komnar undir- stöður að hinni fyrirhuguðu Rangárbrú. Brúin verður tæp- lega fullgerð fyrr en eftir 1—2 ár. Þegar brúin er byggð, og komin í full not, gat Kf. Þór á Hellu fyrst farið að hugsa til að fara í mál. — Bændur í Rang árþingi, sem eru viðskíptamenn Kf. Þórs, munu jafnt skipta við félagið þó brúin liggi 100 metr- um ofan eða neðan við gömlu brúna á Rangá. Það gæti verið að örfáir bílar ferðamanna rynnu ekki fyrir framan búðardyr Ing- ólfs, það eu nú öll ósköpin. Hinn nýi þrengslavcgur yfir Hellisheiði kemur niður neðst í Ölfusið. Það sem lilýtur að koma í sambandi við hann er stórbrú yfir Ölfusá á Óseyrarnesi. Sá austurvegur tengri saman Þor- lákshöfn, Eyrarbakka og Stokks- eyri. Hvað yrðu háar skaðabætur sem Hveragerði og Selfoss fengju, ef hin nýja þjóðbraut sneiddi þar hjá garði? Þau dærni, sem hér hafa verið tekin sýna Ijóslega hvílíkt glapræði þessi gerðardómur er. Og vitanlega sjá allir að hann er markleysa ein. AHir þeír, sem að honum stóðu, ættu að vera það miklir menn að játa yfirsjón sína og biðja þjóðiha fyrirgefningar. Ungur bóndi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.