Tíminn - 03.07.1960, Qupperneq 14
14
T f M I N N, stmnttilagnm 3. júlí 1960.
að bún skalf eins og strá í
yindi.
— En .... hann .... hann
getur ekki verið viss, hvíslaði
hún og andaði ótt og titt. Loks
ins hafði hún viðurkennt það
— ekki aöeins fyrir sjálfri sér,
heldur einnig fyrir mannin-
um, sem við hlið hennar sat.
Maðurinn, sem hún hafði
séð fremja morð fyrir þremur
árum og sem einnig hafði
reynt að koma henni sjálfri
fyrir kattarnef, var hr. Valen-
tine, stjúpfaðir Frins.
— Nei. Clark talaði einnig
mjög lágt. Hann getur ekki
verið viss. En hann grunar, að
þú þekkir sig — og það gerir
honum fjandi órótt. En mér
lízt ekki á þú verðir hér leng-
ur. Finndu upp einhverja af-
sökun og farðu sem skjótast
til London aftur.
— Hvaða afsökun gæti ég
komið með?
— Áttu enga ættingja, sem
gætu hafa orðið veikir?
— Enginn, sem gæti sann-
fært Frin. Hann veit að
mamma mín dó þegar ég var
lítil og pabbi dó fyrir þremur
árum. Ég var einmitt að fara
að heimsækja hann þegar
.... þegar það skeði. Ég á
enga aðra nákomna ættingja.
— Þá verðum við að finna
upp á einhverju öðru.
— Nei, sagði hún skyndilega
og var nú ákveðin. Ég get ekki
farið núna. Ég vil það ekki.
Ég hef hugsað málið, en ég
get ekki farið ....
— Af þvl að það yrði eins
konar flótti? spurði hann lágt.
Eða er það vegna Frins?
Þegar hún svaraði engu,
bætti hann vlð:
— Þú ert ástfangin af hon-
um, er ekki svo?
— Jú .... ég hafði búizt við
svo miklu af þessum tveim
vikum á Glebe House. Ef ég
hlypi nú frá því öllu .... hún
þagnaði.
— Ég skil, sagði hann ró-
andi.
— Og alla vega, getur hr.
Valentine ekki verið viss,
sagði hún þrjózkulega:
— Láttu hann þá í ham-
ingju bænum ekki fá tilefni til
að sannfærast, þú verður að
leika og þú verður meira að
segja að leika harla vel. Held-
urðu að þú getir það?
— Já, ég býst við því, sagði
hún seinlega. Hann reynir
ekki að gera neitt, meðan ég
er með Frin. Hann myndi
aldrei vilja særa Frin. Ég held
þeim þyki mjög vænt hvorum
um annan.
— Ertu viss um það?
— Frin dáir hr. Valentine.
— Þrátt fyrir það, sem hann
gerði móður Frins? spuröi
Clark hranalega.
Hún rétti sig upp í stólnum
og greip krampakenndu taki í
stólarmana.
— Þú heldur þó ekki að
hann hafi ....
— Hún framdi sjálfsmorð,
var það ekki? greip hann fram
í fyrir henni.
— Það var álitið vera slys.
— Ég trúi aldrei á svona
slys.
Hún vissi, að innst inni
gerði hún það ekki heldur.
Hún var sannfærð um að það
hafði ekki verið slys, hún var
jafn sannfærð um það eins og
að það hafði verið hr. Valent-
ine, sem hafði drepið föður
Clarks.
— Hann getur hafa reynzt
henni svo illa, að hún hafi
ekki séð aðra leið, sagði hann
alvarlegur á svip.
— En hann bar ekkert úr
býtum, þótt hún dæi.
— Mér hefur skilizt á fólki,
að hún hafi verið forrik.
— Já, Frin sagði mér það.
Hann erfir alla peningana
hennar á afmælisdaginn sinn
í næstu viku. Hann verður
tuttugu og fimm ára.
— Áttu við, að hann hafi
ekkert erft ennþá? spurði
Clark undrandi.
— Já, það var einhver
klausa í erfðaskránni, þar sem
kveðið er á um, að hann eigi
að fá peningana, þegar hann
verði tuttugu og fimm ára.
Hún þagnaði og leit skelf-
ingu lostin á Clark.
— En það getur ekki verið,
að nokkuð komi fyrir Frin?
Orðin komu eins og hálfkæft
örvæntingaróp.
— Nei, auðvitað ekki' sagði
hann fljótt til að róa hana. En
.... ég er að hugsa um, hvort
nokkuð sé eftir af þessum
peningum .... kannske það
verði eins og þegar faðir minn
dó. Allir peningarnir glataðir.
Þú verður að horfast í augu
við eitt, Natalía — og rödd
Clarks varð ákveðin — hr.
Valentine var leiðbeinandi
bæði konu sinnar og föður
míns. Þau eru bæði dáin.
Þau heyrðu, að dyrnar voru
opnaðar og einhver kom út til
þeirra. Það var Celia Rocka-
way. Natalía var fegin að eitt-
hvað varð til að leiða hugann
frá hinu skelfilega umræðu-
efni.
— Fólkið er að leika kúlu-
spil niðri í kjallaranum, sagði
hún, settist hjá þeim og
kveikti sér í sígarettu. Ég kom
til að vita, hvort yður liði skár,
Natalía.
. — Já, þakka yður fyrir,
stamaði Natalía og langaði til
að hlæja og gráta í senn.
— Voruð þér að segja Nat-
alíu frá Jamaica, sagði Celia
og sneri sér að Clark. Það er
sannarlega dásamlegur stað-
ur. Svo litríkt, ég elska fallega
litl .... Hún hélt áfram að
rabba, eins og hún fyndi að
eitthvað hefði gerzt, sem þau
vildu leiða hugann frá. Að
sjálfsögöu gat hana ekki
grunað, hvaö gerzt hafði, en
eftir rannsakandi augnaráði
hennar, var sýniltgt, hvað hún1
hélt það vera!
Að síðustu risu þau á fætur
og gengu öll niðrí spilaher-
bergið. Frin hafði unnið síð-
ustu umferð og allir óskuðu
honum til hamingju.
Celia sneri sér brosandi að
eiginmanni sínum.
— Viltu bæta í glösin, elsk-
an. Þér fer svo vel að upparta.
Allir hlógu og Rockaway of-
ursti líka.
Hann var sýnilega í góðu
skapi í kvöld, hugsaði Natalía.
Eða kannske var hann alltaf
svona. Andrúmsloftið á Gle-
bee House kvöldið áður hafði
verið .... hálf þvingað.
Ofurstinn hellti í glösin og
Frin kom til Natalíu.
— Liður þér betur, Nat?
— Miklu betur, þakká þér
fyrir.
— Þú hefur verið lengi í
burtu.
— Tókstu virkilega eftir því,
Frin?
Hann varð gramur.
— Hélztu að ég hefði ekki
tekið eftir því. Hvað heldurðu
ég sé?
— Mér fykir vænt um, ef þú
hefur saknaö mín.
Þau stóöu hliö við hlið og
hölluðust upp að veggnum.
Hann tók um hönd hennar
og þrýsti hana.
— Hvers vegna heldurðu ég
hafi boðið þér hingað? sagði
hann.
— Ég .... ég veit það ekki,
Frin. Hún ætlaði að bæta við:
ég vonaði .... En hún sagði
ekkert og beið með öndina í
hálsinum.
Hann virtist ætla aö segja
eitthvað, en skipti um skoðun
og sagði:
— Mig langaði að þú
skemmtir þér í leyfinu þínu.
— Ó .... en fallega hugsað,
Frin. Ég skemmti mér ljóm-
andi.
— Það þykir mér vænt um
að heyra. Hann brosti. Og ég
vona við skemmtum okkur
sérstaklega vel á afmælinu
mínu í næstu viku. Þá erfi ég,
eins og þú manst.
— Er það mikið, Frin?
Hann leit undrandi á hana.
— Hefurðu áhuga á því,
Nat?
Hún fann hún roðnaði, en
samt hélt hún áfram:
Já, ég hef áhuga á því, Frin?
Er það mikið? Veiztu ná-
kvæmlega, hvað það er mikið?
Hann virtist vera hvort
tveggja í senn, undrandi og
gramur.
— Ef ég á að vera hreinskil-
inn, þá veit ég ekki nákvæm-
lega, hvað það er mikið. Ég
veit bara aö það er geysifé.
Það sagði mamma mér að
minnsta kosti. Ég var bara
smástrákur þá, en ég man að
í síðasta skiptið, sem ég sá
hana — Frin hikstaði lítið eitt
— sagði hún: Gleymdú ekki,
elsku drengurinn minn, að ef
eitthvað skyldi koma fyrir
mig, þá erfir þú mikið fé, þeg-
ar þú verður tuttugu og fimm
ára. Láttu engan, alis engan,
reyna að telja þér trú um
nokkuð annað.
— Undarlega til orða tekiö,
finnst þér ekki, hélt hann
áfram. Það sannar það sem
Val segir, að hún var ekki
heilbrigð undir það síðasta.
Hún svaraði ekki, en
skyndilega fannst henni eins
kalt þarna í herberginu, eins
og úti á veröndinni skömmu
áður.
— Mér þykir vænt um það
eru miklir peningar, Frin.
Gleymdu ekki að hún sagði
það.
— Hvað í ósköpunum áttu
við? Ætlarðu að segja mér þú
sért á höttunum eftir pening-
unum mínum?
— Heldurðu það, Frin? Hún
leit á hann.
— Nei, það gæti ég svarið að
þú værir ekki. Ó, Nat ....
Hann þrýsti hönd hennar, svo
að hana kenndi til. Nat ....
en hann snarþagnaði. Meg
stóð fyrir framan þau, geisl-
andi af fegurð og ánægju.
— Við viljum hefna okkar,
Frin, ef þú getur þá slitið þig
lausan frá Natalíu? Þú gætir
nú kannske lánað okkur Frin,
augnablik, sagði hún ertnis-
lega við Nataliu.
— Láttu ekki eins og flón,
Meg, sagði Frin gramur. Auð-
vitað spila ég með.
— Afsakaðu mig, Natalía,
sagði hann og gekk að spila-
borðinu ásamt Meg. Natalía
stóð í sömu sporum og horfði
á gestina. Clark var að spila
við Adrian Henry, en hún sá
hann hafði ekki hugann við
leikinn.
— Loksins fann ég skriffæri,
er það ekki undarlegt, hvað
■ manni getur gengið illa að
Hættulegt
sumarleyfi
Jennifer Ames :
15.
EIRIKUR
viöförli
Töfra-
sverðið
167
Tsacha kastar sér niður og skríður
burt 4n þess að hirða um örlög stríðö
manna inna. í mosanum sér hann
spor konu. — Látum heimskingana
berjast, hvíslar hann. — Eg finn
sverðið.
Chu Chandra hljóp niður að fljót
inu með hið þunga örlagaríka sverð
í hendinni. Þetta var sigur fyrir
svikaranum Tscha og yfir Eiiriki,
sem hafði forsmáð át hennar.
Bardaganum er lokið í öúðunum
og Eiríkur og Erwin flýta sér til
Winnonah. En það er ekki tími til
að esgja fréttir.
Tsacha er horfinn. Chu Chandra
somul'eiðs ásamt Kohonr og Alhab
ar.
Einn hinna fjögurra hefur töfra
verðið, hrópar Eiríkur. Leitið í öll-
um áttum. Finnið sverðið og oálð því
aftur. Menn hans fara þegar á stúf
ana.
En í fylgni sínu skelfur Tsacha af
reiði, or hann ér hina kispuiögðu
leit. Hver mun stgra I baráttunm
um að vinna Swerð Týs?