Tíminn - 14.07.1960, Blaðsíða 12

Tíminn - 14.07.1960, Blaðsíða 12
 TIMIN N, fimmtudagmn 14. júlí 1960. I fœSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON Verja Conolly-hjónin titla sína í Róm? Um næstu helgi fer fram í Bandaríkjunum úrtökukeppni fyrir konur í sambandi við Ólympíuleikana í Róm. Þar keppir meðal annarra Olga Conolly, sem myndin er af hér fyrir ofan. Um síðustu helgi varð hún bandarískur meistari í kringlukasti með 47,39 metra. í fyrri viku vann hún eið sem bandarískur borgari — og getur því keppt fyrir hönd síns nýja föðurlands á Rómar-leikunum. Olga or ein af kunnustu iþróttakonum heims undir nafninu Fikotova. Hún er tékknesk og varð ólympíumeistari í Melbourne 1956 í kringlu- kasti. Þar kynntist hún bandariska sleggjukastaranum Harold Con- olly, sem varð ólympíumeistari í sinni grein og síðar heimsmethafi, og það varð ást við fyrstu sýn — eins og rakið var hér í blaðinu á sinum tíma, og eftir mikið erfiði tókst Harold að fá Olgu með sér til Bandarikjanna frá Tékkóslóvakiu. Hann fór þá meðal annars til Tékkóslóvakíu og ræddi við yfirvöldin þar, og á heimleiðinni kom hann við hér á íslandi, og keppti hér og kenndi í sleggjukasti Þau Olga og Harold eiga einn son. — Harold Conolly hefur þegar tryggt sér rétt í Ólympiulið Bandarikjanna og mun því verja tltil sinn í Róm — og nú er að vita hvort Olgu tekst þetta einnig — en allar líkur eru taldar til þess, enda lítið um snjallar iþróttakonur í Bandaríkjunum í kastgreinum frjálsra íþrótta. Akurnesingar sigruöu unglinga- landsliöið með 4 mörkum gegn 0 — Skoru'ðu þrjú mörk fyrstu tíu mínúturnar Leikur Kelsey í markinu vakti mikla athygli, og Dodgin og Clampton léku einnig mjög vel Akranesliðið, styrkt með|og Sveinn Jónsson vel saman, og Arsenal-leikmönnunum bram- Sáfu knöttinn til Arnar Stemsen. ur, sigraði Þ™™ | sem komst frír innfyrir vörn Ak- unglingalandslidjutnesjngaj en hajm Spyrnti fram KSI í Njarðvíkum í fyrrakvöld með fjórum mörkum gegn engu. Ekki gefur þessi marka tala rétta mynd af gangi leiks ins, því hann var ekki ójafn, en ekkert virtist geta lánazt hjá unglingalandsliðinu, þeg- ar að marki kom, utan einu sinni að Sveinn Jónsson skor- aði ágætt mark, en sökum kunnáttuleysis dæmdi línu- vörður markið af, og dómar- inn fór eftir honum, þótt hann segði eftir ieikinn að það hefðu verið mistök. En leik- menn Akraness voru yfirleitt fljótari á knöttinn og léku oft á tíðum vel saman, svo sigur liðsins var réttlátur, þótt markatalan sé fullmikil. Kels- ey sýndi frábært öryggi í marki. Unglingaliðið breyttis't mjög frá þvi, sem það var upphaflega valið. Enginn úr öftustu vörninni, sem valinn var, gat leikið, og veikti það liðið mjög, einkum þó fjar- vera Rúnars Guðmannssonar, en hann meiddist lítilsháttar í leikn; um við Akranes á sunnudaginn. í staðinn léku í vörninni Reynir Smith, KR, Björn Júlíusson, Val, og Birgir Lúðvíksson, Fram. Nokk uð sterkur vindur var af norðri, þegar leikur hófst og kaus fyrir- lði unglingaliðsins, Þórólfur Beck, að leika undan vindinum. Akurnesingar hófu því leik, og trunuðu beint upp með knöttinn c.g inn í vítateig unglingaliðsins. Þar náði Ragnar Jóhannsson, fram vörður, knettinum, en missti hann mjög klaufalega frá sér til Clampt on, miðherja, sem þakkaði gott boð og spymti óverjandi í mark — og var þá varla ein mínúta liðin af leik. Þrátt fyrir þessa slæmu byrjun fyrir unglingaliðið náði það þó á efiir góðum sóknartilraunum og í einni þeirra komst Þórólfur frir að markinu, en spyrnti beint á Kelsey, markvörð. En þetta stóð aðeins skamma stund 02 á 8. mín. átti Helgi Björg v.nsson gott skot á markið, sem Reimir varði. Og þegar rúmar 10 mín. voru r.f leik skoraði Akranes annað r.iark. Clampton var þá með knött inn og lék vörnina í sundur og sendi síðan til Helga Björgvinsson- ar, sem komst frír að markinu og sicoraði hann örugglega. Og tveim- ur mín. síðar bætti Clampton sjálfur þriðja markinu við. Hann var með knöttinn á vítateig og spyrnti föstu skoti á markið, og knötturinn hafnaði í netinu. Síðar í þessum hálfleik fékk unglingaliðið tvö mjög góð tæki- freri til að skora. en ekkert lán- aðist. Á 20. mín. léku Þórólfur hjá marki. Og nokkru síðar lék Þórólfur vel á Dodgin, síðan plat- aði hann Kelsey markvörð, og markið stóð opið fyrir framan hann, en Þórólfur spyrnti knett- inum í hliðarnetið. Þarna fór gott tækifæri illa. Og á 33. mín. bættu Ákurnes- ingar fjórða markinu við og var það mjög ódýrt. Helgi Björgvins- son átti laust skot á markið frá vítateig, og öllum til undrunar gerði Heimir enga tilraun til að verja, og knötturinn rann inn í markið. Engin skýring er á þessu önnur en sú, að Heimir hafi ekki séð knöttinn. Hálfleik lauk því nieð fjórum mörkum gegn engu, og útlitið var ekki gott fyrir ung- h.ngaliðið, sem á'tti nú einnig að sækja gegn vindinum. En svo einkennilega vildi til að leikurinn var miklu jafnari í síð- ar: hálfleiknum og þá var ekkert mark skorað — en tækifæri vant- aði þó ekki á báða bóga. Til dæmis komust framherjar Akraness nokkrum sínnum fríir að mark inu, en Heimir og síðar Gunnlaug- ur Hjálmarsson vörðu vel, eða framherjarnir spyrntu framhjá. Tveir af leikmönnum unglinga liðsins urðu að yfirgefa völlinn í þessum hálfleik. Fyrst Ellert Schram, sem hafði verið einn bezti maðu'r liðsins, og síðar markmaðurinn Heimir, sem meiddist talsvert illa, og það fyrir hrottalegan leik eins Akur- nesingsins. Knettinum var þá spyrnt að markinu og Heimir greip knöttinn örugglega, og ætl- aði að fara að losa sig við hann, þegar Helgi Björgvinsson kom á mikilli ferð beint á Heimi og kastaði honum í völlinn. Fékk Heimir slæmt högg á hnéð — cg verður frá Ieik nokkurn tíma. Þetta var mjög hugsunarlaust atvik hjá Helga, og ekki likt h.onum, þar sem hann er yfirleitt mjög prúður leikmaður — og þess leiðinlegra fyrir hann að verða fyrir þessu. En dómarar eiga að taka strangt á slíkuttf leik, og það e’r slæmt til þess að vita hve margir knattspyrnu menn cru nú frá vegna meiðsiá," og alvarlegt athugunarefni. En snúum okkur að leiknum aftur. Á 13. mín. átti Þórólfur góð an skallknött á markið, en Kelsey varði mjög vel og á 18. mín. átti unglingaliðið snöggt upphlaup og Sveinn átti gott skot, sem hafn- aði í markinu. En öllum til undrunar veifaði Iínuvörðurinn og dómarinn dæmdi markið af. Ég spurði línu vörðinn strax hvers vegna hann hefði dæmt markið af, og sagði hann að Þórólfur Beck hefði Kelsey nær hærra en Þórólfur og grípur knöttinn á höfði miöherjans. Svipuð atvik komu oft fyrir í ieiknum. Til hægri er Jón Leósson og mið- vörðurinn Dodgin til vinstrl. Ljósmynd: Sveinn Þormóðsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.