Tíminn - 14.07.1960, Blaðsíða 16
Furðalegt njósnamál afhjúpað:
Ástarjátningin
árangursiaus
Hollenzka stjórnin vísar rússneskum
stúdent úr landi
Haag. — Hollenzki innan-
rikisráðherrann E. H. Toxop-
eus hélt um helgina ásamt
yfirmönnum leyniþjónustunn-
ar blaðamannafund í Haag,
sem sennilega á sér fáa líka.
Fundurinn hófst á því að ráð-
herrann las upp furðulegan
njósnarareyfara, sem í þessu
tilviki hafði þó við full rök að
styðjast, en aðalefni þessa ó-
venjulega máls var það, að
njósnararnir höfðu leitað fylgi
lags við starfsstúlkur ýmissa
stjórnarskrifstofa í þeim til-
gangi að nota þær til að kom-
ast yfir leyniskjöl ríkisstjórn-
arinnar.
Þetta óvenjulega njósna-
mál hefur nú leitt til þess að
hollenzka stjórnin hefur vís
að rússneskum stúdent, sem
kallaði sig Pjotr Smimov
(rétt nafn hans er Serge
Petrov) úr landi, en svo átti
að hetita, sem hann næmi
þjóðfélagsfræði við háskól
ann í Haag.
(Framhald á 15. sí5u).
Þessí bátur er 110 ára gamall, smíðaður 1850 af Jónl Jónssyni í Akurey. Hann heitir Bliki, en núverandi eigandi
heitir Kristján Jónsson og er líka úr Akurey. (Ljósm. JG)
Höfnin er full af sandi
Réttarhöld hafin í SuSur-Kóreu:
Fjórar milljónir falsaðra atkvæða-
seðla tryggðu „kjör” Rhees
Rætt við sjómenn á Hellissandi
Réttarhöld eru nú hafin í
Seoul í S-Kóreu yfir þeim er
ábyrgð báru á spillingunni
or ríkti undir stjórn Syng-
mans Rhee. Hefur 87 manns
verið stefnt fyrir rétt, en hand
járnuðu mennirnir á mynd-
inni hér að ofan eru (talið frá
vinstri): Choi In-Kyu, fyrrv.
innanríkisráðherra, Choi Jae-
Yoo, fyrrv. menntamálaráð-
herra og Sohn Chung-Wahn,
fyrrv. heilbrigðismálaráð-
herra.
Það var Choi In-Kyu, sem skipu-
lagði kosningasvikin við forseta-
kosningarnar og ekki er talið ó-
liklegt, að dauðadóms verði kraf-
iz* yfir honum vegna þeirrar spill
ingar er hann innleiddi í S-Kóreu.
Choi hefur nú játað fyrir réttin-
um. að hann beri meginábyx'gðina
á kosningasvikunum er tryggðu
Syngman Hhee sem forseta — en
le ddu hins vegar af sér uppreisn
þjóðarinnar gegn spillingunni.
Choi hefur játað, að kosninga
svikin hafi farið fram á þann hátt,
að áður en kosið var hafi 4 millj-
ónum falsaðra kjörseðla verið
komið fyrir í atkvæðakistunum, en
A þann hátt hafi Rhee verið tryggð
40% greiddra atkvæða FYRIR-
FRAM — eða áður en byrjað var
?ð telja. Choi sagði fyrir réttin-
um, að þetta hefði verið nauðsyn-
legt. í frjálsum kosningum hefði
hvorki Syngman Rhee né varafor
setinn Lee Ki-Pong verið kjörnir,
en skv. hinum opinberu „útreikn-
ingum“ fengu þeir félagar 80—
90% greiddra atkvæða.
Auk þessa hefur Choi játað að
hafa skipulagt harðsnúnar sveitir
er áttu að fylgjast með því á
kjörstað, að kosið yrði „rétt“ um
leið og skipun var gefin um að
fjarlægja fylgismenn andstöðu-
fiokksins frá kjcrstöðum. En þetta
nægði ekki — skipun var útgefin
þess efnis, að þar sem þessar ráð-
stcfanir dygðu ekki og talningin
yrði óhagstæð mætti aldrei gefa
annað upp en það sem Syngman
Rhee og stjórn hans væri hag-
stætt.
Krossavík heitir hún. Þar
lóa nokkrir trillubátar, stærri
bátarnir róa frá Rifi, sem er
skammt utan við Sand, en
fiskinum er síðan ekið í kaup-
túnið á vörubílum.
Krossavikin er falteg vík, girt
svörtum klöppuim, en í bo'.ninum
er hvítur sandur, eins og á bað-
strönd. Þorpið, Hellissandur, eða
Sandur, heitir sennilega eftir þess
um hvíta sandi.
Það var aðeins ein trilla á floti
núna. Það voru tveir menn um
borð, og þeir voru að toga í spotta,
sem lá niður í vélarhúsið. Þeir
voru að koma fyrir línuspili, en
iþar sem við vildum ekki tefja þá,
gengum við upp bryggjuna, þar
sem v,erið var að vinna við tvo
báta, sem stóðu á þurru. Maður
hefur a©taf betri tíma til að
spjaRa, þegar báturinn manns er
á þurru.
Góður afli hjá Öldunni
Stærri báturinn var hvítur, og
það var verið að mála hann.
— Ertu að mála? Svona spyrja
menn á íslandi, þegar þeir tefja
ókunnuga.
— Já, það á að heita svo, sagði
maðurinn og hætti a. mála. —
Annars áttu þeir svo sem enga
almennilega málningu fyrir sunn
an, svo maður klínir þessu bara
yfir skítinn.
— Ætlarðu ekki að fara að fara
á flot?
— Jú, sagði maðurinn og hélt
áfram að mála yfir skítinn. —
Við förum bráðum að skoð’ann.
Annars erum við tveir á. Ég og
annar tii. Við rerum héðan aleinir
í vetur. Allir aðrir fluttu sig að
Rifi. Það þykir víst betra að róa
. þar á veturna. Mér finnst samt
! bezt að róa héðan úr Krossavík,
enda hefur það verið gert. Það
reru einu sinni 30 trilhir úr
Krossavík á vetrarvertíð, enda er
þetta góð ver.stöð. Við fengum 110
lestir af fiski í vetur. Það gerir
1 á þriðja hundrað þúsund krónur.
Gott fyrir tvo kalla það.
i Iíann var aftur hættur að mála.
— Ekki vera að taka myndir,
sagði hann og benti á annan bát.
Myndaðu heldur þennan svarta.
Það er merkilegur bátur. Innan úr
eyjnm, meira en 100 ára og enn
í standi, sagði maðurinn, sem var
að mála yfir skítinn.
Smiðaár 1850
Maðurinn, sem var að vinna í
svarta bátnum, leit upp, þegar við
komum.
— Jú, rétt er nú það. Hann er
orðinn 110 ára. Smíðaður af Jóni
Jónssyni í Akurey árið 1850. Þetta
er góður bátur og aldrei hefur
orðið slys á honum í þessi ár —
og ekki hefur verið sótt minyia
en annars staðar. Ég fókk hann
eftir föður minn og ég mundi ekki
selja hann, hvað sem í boði væri.
Þetta er ættargripur, skilurðu.
Gefinn mann fram af manni. Áð-
ur en vélarnar komu, reru 9 menn
á ’honuai, -n vél var sett í hann
1927, Scandía.
Gamli svarti báturinn heitir
(Framhaid a 15 >íðu i
Þetta þykir þeim sem á
skrifstofum sitja, ekkert
sældarbrauð, að þurfa að
kúldrast inni, þegar sólin
hamast við að skína dag-
inn út og inn. En þeir
ættu bara að hugsa sér,
hvað mjólkin verður góð
næsta vetur.