Tíminn - 16.08.1960, Blaðsíða 1

Tíminn - 16.08.1960, Blaðsíða 1
A«léi‘i#ai'símirm er 1 2 3 2 3 181. tbl. — 44. árgangur. þriðjudagur 16. ágúst 1060. Siqríður í þjóðbúningnum Hér er Sigríður íklædd kyrtlinum bláa. Þess má geta hér, að hið mikla umtal, sem litur þessa búnings hefur vakið, er tilhæfulaust með öllu. Menn rugla saman kyrtli og samfellu. Kyrtil má hafa í hvaða lit, sem er, og má sjá þess dæmi í fornsögunum, að talað sé um græna kyrtla, bláa kyrtla o. s. frv. Hitt er svo annað mál, sem enginn hefur minnzt á til þessa, að sniðið samrýmist ekki með öllu því, sem hefðbundið er. Búningurinn virðist sníðinn eins og blússa á kjól, að því er bezt verður séð. En fallegur er hann, og sómir Sigríður sér hið bezta í honum. Með aðstoð flotans ætla Bretar að veiða áfram við Island - ef ekki næst skjótur og „góður“ árangur af samningaviðræðum í brezka blaðinu „Fishing News" 12. þ. m er frá því skýrt, að brezkir togaraeig- endur vænti skjótrar og sann- gjarnrar lausnar í fiskveiði- deilunni við ísland. Annars muni þeir brátt hefja að nýju veiðar innan 12 mílna mark- anna við ísland og vænti verndar brezka flotans við veiðarnar þar, enda hafi þeir til þeirra fullan rétt sem á út- hafinu. Brezkir togaraeigendur und- ir forystu Sir Farndale Phil- ipps sátu fund með hinum nýja fiskveiðimálaráðherra C'hristopher Soames og Home utanríkisráðherra fyrir skemmstu. Að loknum þeim fundi var birt svohljóðandi yfirlýsing: Fiskveiðimálaráð- herra og utanríkisráðherra bafa átt viðræður við brezka íogaraeigendiþ’ ííi þess að (Framhald á 3. síðu). Moka upp sil- ungi í ósnum Kirkjubæjarklaustri, 15 ágúst. Mikil silungsveiði hefur ver- ið í sumar í Veiðiós þar sem Skaftá og fleiri vötn falla til sjávar. Slðubændur stunda þar ádrátt og hafa mokað upp silungi undanfarið. Ádráttur er að vísu bann- aður í flestum tilfellum, en Síðubændur hafa fengið und anbágu frá veiðimálastjóra og»Ieyfi til að stunda ádrátt í ósnum tvo daga vikunnar. Hafa þeir skipzt í tvo hópa við verkið, og hefur hvor hóp ur fengið að meðaltali 100— 150 fallega silunga á dag, en það þykir mjög gott. Utflutningur? Síðubændur eru flestir í fé lagi um þennan veiðiskap og eru að honum drjúg hlunn- indi. Silungurinn er seldur til Klausturs, Víkur og Reykja- víkur og hefur markaður ver ið nægur fyrir hann til þessa. Hins vegar má framboðið tæp ast vaxa úr þessu, og hefur jafnvel komið til orða að reyna að flytja hann út, ef samband næst við útflytjend ur í Reykjavík. Hins vegar er erfitt um flutninga á fiskin- um að austan og þyrfti helzt að fá flugvél undir hann frá Klaustri til að hann komist nýr á markað. Vafasöm hlunnindí Eins og fyrr segir hafa Síðu bændur sérstakt leyfi til þess ara veiða, stunda þær þriðju daga og miðvikudaga. Bænd- um, sem land eiga ofar að án um finnst þetta leyfi hins veg ar nokkuð vafasamt, þar sem ádrátturinn spillir mjög fisk- gengd í árnar, en þar gæti ella verið ágæt stangaveiði. Telja menn þar efra hæpið að veita þessa undanþágu til nokkur ar frambúðar. V.V. —ó Eitt skip yfir 10 þúsund mál — bls. 3 ;

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.