Tíminn - 16.08.1960, Blaðsíða 12
'PfMINN, þrWyudagiim 16. ág&t W&K
n..........................................................................................................................
RéTSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON
Fyrsti tapleikur Fram í 1. deild
íslandsmótið í knattspyrnu,
1. deild, er nú hafið að nýju
eftir það hlé, sem varð vegna
heimsóknar þýzka landsliðs-
ins. Þrír ieikir hafa verið háðir
að undanförnu og eftir þá eru
Akurnesingar nú komnir í
efsta sætið með 10 stig, þar
sem Fram tapaði mjög óvænt
í fyrrakvóld fyrir Keflvíking-
um. KR hefur hins vegar tap-
að fæstum stigum af öllum fé-
lögunum, en leikið miklu
færri leik>. Eftir þessa leiki er
staða Akureyringa í 1. deild
orðin nær vonlaus Liðið lék
tvo leiki og tapaði báðum og
er nú þremur stigum á eftir
r.æsta liði i deildinni.
Keflvíkingar komu saimarlega
mjög á óvart með að vinna Fram
í leiknum á Laugardalsvellinum
fyrrakvöld — enda er það fyrsti
tapleikur Fram í mótinu hingað
til, og Fram hafði fyrir leikinn
talsvert miMa sigurmöguleika í
mótinu.
En í leiknum var ekki hægt að
sjá , að það væri efsta liðið í deild
inni, .sem var að keppa við það
næst neðsta, því Keflvíkingar voru
yfirleitt fljótari á knöttinn og
sigurvilji þeirra virtist mikíu
meiri en Framara. í fyrri hálfleik
var aðeins eitt mark skorað og
gerðu Keflvíkingar það á síðustu
•mínútum hálfleiksms. í , síðari
hálfleik tókst Keflvíkingum að
komast í 3—0 áður en Fram skor-
aði mark. Fram .tókst þá með
stuttu millibili að skora tvö mörk,
svo staðan var 3—2, og bjuggust
áhorfendur þá við, að Framarar
myndu nú hrista af sér elenið, og
taka leikinn í sínar hendur. En
það var öðru nær. Keflvíkingar
skoruðu síðasta markið í Ieiknum
— Keflvíkingar unnu Fram verískuldaí 4—2.
Akureyringar í nær vonlausri stöftu í 1. deild.
TöputJu me<J 7—1 á Akranesi á sun'nudaginn.
og unnu verðskuldaðan sigur. Tals1
vert mi'Mar stöðubreytingar voru
í liði Keflvíkinga, t. d. lék Högni
Gunnlaugsson ná framvörð, og
skoraði-tvö mörk úr þeirri stöðu.
Skúli Skúlason lók miðherja, þar
sem Högni hefur verið áður, og
gerði þeirri stöðu nokkuð góð skil,
en það var þó Páll Jónsson, út-
herji, sem vafcti mesta athygli af
Keflvíkingum í Ieiknum.
Keflavíkurliðið hefur sýnt
mUda framför að undanförnu og
má segja, að liðið hafi lagazt með
hverjum leik. Fyrir rúmum mán
uði töldu flestir, að liðið myndi
falla niður í 2. deild, en nú er
nær öruggt, að það heldur stöðu
sinni í deildinni. Keflvíkingar
geta án efa þakkað Albert Guð-
mundssyni þennan árangur að
verulegu leyti, en hann hefur
þjálfað leikmenn undanfarið og
verið ráðgjafi þeirra í leikjum,
og Keflvíkingar hafa kunnað að
notfæra sér kunnáttu hans og
færni. En hvenær kemur að því,
að forráðamenn knattspyrnumála
á fslandi opna augun fyrir þeirri
staðreynd að -Albert kann meira
og veit meira' um knáttspyrmi
en nokkur anna.r ntaður hér á
landi? Er ekki mál til komið, að
hann taki að sér íslenzka lands-
liðið?
Vonlaus staða Akureyringa
Akureyringar Iéku tvo% leiki,
fyrst á föstudaginn við Val, og
má segja, að liðið fiafi verið óhepp
ið að tapa þeim leik, sem var lé-
legur af hálfu beggja liða. Valur
vann með 2—1 og skoruðu Akur-
eyringar sjálfsmark. Það mark
var sennilega lokafcveðja þeirra í
1. deild þetta keppnistímabil, og
staða liðsins í deildinni má nú
heita vonlaus.
Á sunnudaginn léku Akureyr-
ingar svo síðari leik sinn við Akur-
nesinga og var Ieifcurinn háður á
Akranesi. Þar fengu Aikureyringar
sína verstu útreið í sumar, því að
Akurnesingar unnu með sjö mörfc-
um gegn einu — og skoruðu reynd
ar þetta eina marfc einnig, sem
kom í hlut Akureyringa. Það er
leitt til þess að vita, að lið, sem
hefur 'jafn mörgum góðum leik-
mönnum á að skipa og Akureyri,
fær lítið út úr leik sínum.
Úlympíu-
dagurinn
Úlympíueldurinn tendraður
/
í kvöld fer fram á Laugar-
dalsvellinum mikil íþrótta-
keppni, sem Ólympíunefnd
íslands gengst fyrir. Keppnin
hefst kl. 7.45 og verður þá
handknattleikur. Landsliðið
í kvennaflokki leikur þá við
úrvalslið úr Reykjavík og
Hafnarfirði. Að þeim leik
loknum hefst úrslitaleikur
íslandsmótsins í 2. flokki
milli Vals og Akraness.
Aðalkeppni kvöldsins verð
ur þó í frjálsum íþróttum, en
þar munu allir þeir frjáls-
íþróttamenn keppa, sem vald
ir hafa verið fyrir íslands
hönd sem þátttakendur á
Ólympíuleikana. Meðal ann-
ars keppir Vilhjálmur Einars
son í þrístökki, en aðrar keppn
isgreinar verða 100, 400- og
1500 m. hlaup, 110 m. og 400
m. grindahlaup, kúluvarp,
hástökk og stangarstökk, og
t einnig verður keppt í kvenna-
' og drengjagreinum.
Staðan í
1. deild
Úrslit í leikjum í 1. deild undan-
farna daga hafa orðið þessi:
Valur—Akureyri
Akranes—Akureyrí
I' ram—Kefiavík
2—1
7—1
2—4
Staðan í dcildinni er nú þannig:
Grískar fegurðardrottningar sjást hér tendra hinn ólympíska eld í Aþenu
— og hann er nú á leið til Rómar, og þangað á hann að vera kominn opn-
unardag leikanna, 25. ágúst. Ólympíueldurinn mun loga alla hina ólympísku
daga, það er að segja til 11. september, en þann dag verður leikunum
slitið.
1 Akranes
2. Fram
3. Valur
4. K.R.
5. Í.B.K.
I 6 Í.B.A.
7 4 2 1 25—13 10
7 4 2 1 17—13 10
7 2 3 2 12—17 7
4 3 0 1 18—6 6
8 2 15 13—23 5
7 1 0 6 11—24 2
Fögnuður hjá einum, sorg hjá öðrum. Keflvikingar skora fyrsta mark sitt
í lciknum gegn Fram. Vinstri innherji þeirra fagnar markinu mjög, en
sá, sem átti að gæta hans i Framliðinu, liggur flatur á vellinum og grefur
andlit sitt niður í hann. — Ljósm.: Bj. Bj.
Þrír lögregluþjónar
syntu Viöeyjarsund
Á sunnudaginn syntu enn
þrír lögregluþjónar Viðeyjar-
sund og vegna sjávarfalla var
nú synt frá Loftsbryggju í
Viðey. Lögregluþjónarnir
voru Guðni Sfurlaugsson, Guð
mundur Þorvaldsson og Hall-
dór Einarsson og voru þeir frá
tveimur klsf. og fjórum mín.
og fveimur klsf. og sjö mín. á
leiðinni.
Veður var mjög gott á
sunnudagsmorgun, þegar lög
regluþjónarnir lögðu af stað,
enda sóttist þeim sundið vel,
en vegalengdin er um fjórir
og hálfur kílómeter. í fyrri
viku syntu tveir lögregluþjón
ar, Karl Kvaran og Björn
Kristjánsson, Viðeyjarsund
(ekki úr Engey, eins og stóð
hér í blaðinu) og hafa því alls
sex lögregluþj ónar synt Við-
eyjarsund í sumar.
Pétur Eiríksson, þjálfari
þeirra, sem var aðstoðarmað
ur við sundið á sunnudaginn,
•sagði blaðinu í gær, að senni
lega myndu enn tveir í við-
bót reyna við Viðeyjarsund.
Sextíu stig-
um frá iág-
markinu
Tugþrautarkeppni meistara-
móts íslands var háð um helg-
ina og bar Björgvin Hóim sigur
úr býtum. Hann hlaut 6440 stig,
sem er aðeins sextíu stigum
minna, en lágmarksafrek það,
sem sett var fyrii þátttöku i
Ólympíuleíkunum Annar í tug
þrautinni varð Valbjörn Þorláks
son með tæp sex þúsund stig Þá
var einmg keppt í 10000 m.
hlaupi meistaramótsins og sigr-
aði Kristleilur Guðbjörnsson á
33:39.4 mín.