Tíminn - 16.08.1960, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.08.1960, Blaðsíða 2
TÍMIffN, þrigjudagúm JgftýAiag). Mér getor að líta mynd af svifbíl á vegum bandaríska varnarmálaráðuneytisins. Ekkert er upplýst um afl eða vélargerð bifrelðarinnar en sagt er að bíll þessi fari um hvers konar torfærur og sé hernaðarlega mikilvægur. Sagt er að Sovétríkin keppist að smíði svipaðra farartækja. Fréttir frá landsbyggðinni Geysimikii berjaspretta. Akureyri, 15 ágúst. — Berja spretta hefur verið óhemju mikil í Eyjafirði og annars! staðar norðanlando í sumar. i Berin eru þegar orðin _ full- • þroskuð, a. m. k. hálfum mán j uði fyrr en venjulega. Mikið var um að Akureyringar færu til berja um síðustu helgi, og náðu margir mjög miklu á skömmum tíma með tínum, jafnvel svo skipti tugum litra. Er drjúg búbót að berjunum, og nota þau sér allir, sem eitt hvað geta svifað sér til tínslu. Stirð tíð nyrðra. | Akureyri, 15. ágúst. — Þurrk leysur hafa verið norðanlands ' í nær fjórar vikur, og eru j hey á túnum talsvert tekin að skemmast. Þau hey eru þó yfirleitt af seinna slætti, en hey af fyrra slætti eru víðast komin í hús og varð nýting þeirra ágæt, enda góð tíð fram an af srf.nri. E. D. Mékil hey úti. Grímsstöðum, 15. ágúst. — Heyskapur hefur gengið stirðlega á Fjöllum í sumar,- og eru enn mikil hey úti af fyrra slætti. Þau eru talsvert farin að hrekjast enda hafa verið stöðugar þurrkleysur undanfarnar vikur, aðeins komið einn og einn flæsudag ur. Þessa dagana er hér norð austanátt og súld og hið leið inlegasta veður. K.S. Góður afii og atvinna mikil. Stöðvarfirði, 15. ágúst. — Hér er hvorki sildarsöltun né bræðsla og verksmiðjan hefur tekið við 400 — 500 tunnum síldar til frystingar. Heimabátarnír báðir liggja hér inni í brælunni. Þeir hafa báðir aflað vel á síldveiðum í sumar, Kambaröst 5700 mál og tunnur og Heimir tæplega 5000 mál og tunnur. 10 færa- bátar róa héðan og hafa fisk að ágætlega í sumar. Er mik 11 atvinna í frystihúsi staðar ins og nokkur við byggingar, en 3 íbúðarhús eru í smíðum hér í sumar. S. G. hinum síðari. — 5 eða 6 leik- flokkar hafa komið hér und- anfarið. Fá flestir allgóða að sókn, en nokkuð líkar mönn um misjafnlega það"sem þeir hafa að flytja. G.A. Einmuna tíð í Hrútafirði. Góðæri og leikflokkar. Breiðdalsvík, 15. ágúst. — Tíðarfar hefur verið ágætt hér síðustu vikurnar, en fram an af sumri var veðurfar held ur leiðinlegt. Heyskapur hef’ ur gengið ágætlega í seinni' tíð, fyrra slætti alls staðar j lokið, og margir byrjaðir á' Melum, 15. ágúst. — Tíðar far hefur verið hér einmuna gott alllengi undanfarið, og miðar heyskap vel. Fyrra slætti er víðast lokið, og hef ur nýting heyja verið ágæt. Hins vegar lítur ekki vel út með síðari s’/.tt. Há sprettur treglega, og eru fáir fámir að slá hana. J.J. IJm meðferð fisks á dragnótaveiðum Bfaðinu hefur borizf eftir- farandi tifkynning um með- ferð fisks á dragnótaveiðum: Skipstjórum dragnófabáta er fiér með bent á, að veiðileyfi með dragnót eru háð ákveðn- um skilyrðum um meðferð aflans. Meðal annars stendur í hverju veiðileyfi eftirfar- andi: ..sJægður, þveginn og ísaður í lest þegar eftir að hann hefur verið ir.nbyrtur" Þetta þýð;r að ekki má koma að landi með óslægðan eða óísvarinn fisk. Enn fremur skal það tekið fram, að algerlega er oheimilt að þvo íisk úr sjó sem tekinn er innan hafnar. Verði þessi ákvæði um meðferð fisksins brotin, mun Fiskmat ríkis- ;ns kæra brotið og áska þess, að veiðileyfi verði tekin aí viðkom- andi bátum. Viðkomandi þeim ákvæðum veíðileyfanna að fiskurinn skuli ísaður í kassa um borð í veiðibát- unum, ber bátseigendum að sanna Fiskmati ríkisins fyrir 20. ágúst n. k„ að þeir hafi þegar pantað sér hæfa kassa, ella verður það atriði kært sem hrot á veiðileyfi. Hraðfrystihús og aðrir kaupend- ur er kynnu að veita viðtöku fiski, sem ranglega er meðfarinn svo sem að framan greinir, verða að teljast samábyrgir fyrir brotinu. Yfirfiskimatsmönnum eða mats- mönnum er þeir setja til eftirlits, matsmönnum frystihúsa og eftir- l.tsmönnum sölusamtaka frystihús- airna, ber aö fylgjast vel með að ákvæðum þessum viðkomar.di gæð- vm fisksins sé framfylgt. Sömu aðilum er einnig hér með bent á, að ytir sumarmánuðina er ekki leyfilegt að taka til vinnslu eða útflutnings ísvarið fisk sem komið er með að landi ósiægðan eða óísvarinrx Fiskimatsstjóri. Fjölmennt mót F.U.F. að Núpi Hinn 13. þ. m. hélt FUF í V-ísaf jarðarsýslu héraSshátío aS Núpi í DýrafirSi. og er þetta 7. áriS í röð, sem FUF í V-ís. gengst fyrir henni, og alltaf undir forystu sama manns, Gunnlaugs Finnssonar bónda í Hvilft í Önundarfirði. Gunnlaugur setti samkomuna kl. 5 e. h. með ávarpi, En að loknu ftvarpi hans tók til máls Jón Jó- hannesson, formaður Kjördæma- snmhands Vestfjarðakjördæmis og taiaði um sameiginleg mál flokks- félaganna í kjördæminu, stjórn- málaviðhorf’ð í dag og drap að lokum á nyjustu viðburði í land- hr.lgismálinu. Þá tók til máls Sigurvin Einars- son alþingismaður og ræddi sér- staklega um þau mál, sem Vest- firði varða og fram komu á síðasta aiþingi, og lýsti neikvæðri afstöðu þingmanna stjórnarflokkanna. Að lokum ræddi hann landhelgismálið og það sem skeð hefur að undan- förnu í sambandi við þa?. Að því ióknu talaði Örlygur Hálfdanarson, formaður Sambands ungra Framsóknarmanna. Flutti hann FUF í V.-fs. kveðjur SUF og þakkaði því fyrir gróskumikið fé- lagsstarf, og ræddi sérstaklega um árásir stjórnarfiokkanna á sam- vinnufélögin. Hann lauk máli sínu á sama háít og fyrri ræðumenn: Með því að ræða um landhelgis- málið. Því næst söng Erlingur Vigfús- son nokkur lög með undirleik Frilz Weisshappel, en að því loknu fiutti Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli í Önundarfirði skemmti lega frásögn um ferð Framsóknar- manna á kjördæmaþingið í Króks- fiarðarnesi fyrr í sumar. Var frá- saga sú að verulegu leyti í ljóðum. Að því loknu söng Erlingur Vig- fússon aftur, en síðan sleit Gunn- laugur samkomunni. Siðar um kvöldið hóíst síðari þáttur sam- komunnar með almennum dans- leik. Mótið var mjög fjölmennt, og reikill einhugur ríkti meðal fund- armanna. Héraðsmót Framsóknarmanna í Skagafirði Næstkomandi sunnudag halda Framsóknarmenn í Skagafirði héraðsmót sitt í Félagsheimilinu Bifröst, Sauðárkróki. Hefst mótið kl. 8 s.d. Ræðu flytur Ingvar Gíslason, lögfr. Akureyri og ávörp alþm. Ólafur Jóhannesson og Björn Pálsson Meðal skemmtiatriða verða einsöngur og tvísöngur: Jó- hann Konráðsson og Kristinn Þorsteinsson frá Akureyri. Dansað frá kl. 10. Gautlandsbræður leika. HéraSsmót Framsóknarmanna í Árnessýslu Framsóknarmenn í Árnessýslu halda héraðsmót sitt að Flúðum, Hrunamannahreppi laugardaginn 20, ágúst n.k. og hefst það kl. 9.30. DAGSKRÁ: 1. Mótið sett af Sigurfinni Sigurðssyni, form. F.U.F. 2. Ávörp: Helgi Bergs, verkfr. og Dagur Þorleifsson, blaðamaður. ' 3. Einsöngur: Erlingur Vigfússon, tenór, undirleikari Fritz Weisshappel. 4. Gamanleikararnir Haraldur Adolfsson og Gestur Þorgrímsson, skemmta. 5. Góð hljómsveit leikur fyrir dansi. HéraðskátíS Framsóknarmanna á SnæMsnesi Framsóknarmenn á Snæfellsnesi halda héraðsmóf siff að Breiðabliki sunnudaginn 21. ágúst n.k. og hefst það kl. 5 e.h. Ræður og ávörp flytja Hermann Jónasson, fyrrverandi forsætisráðherra, Gunnar Guðbjartsson, bóndi. Hjarð- arfelii, Jóhannes Jörundsson, skrifstofumaður. Skemmtiatriði annast gamanleikararnir Haraldur Ad- olfsson, Gestur Þorgrímsson og Jón Sigurðsson Erling- ur Vigfússon, tenórsöngvari, syngur. Hljómsveit Einars Halldórssonar leikur fyrir dansi. Áðalfimdur og sumarhátíð Frarr.séknarfélags Vestur-Húnvefninga voi-Syr aS íkaug- arbakka sunnudaginn 23 ágúsí n. k. ASalfundurinn hefst kl 4 síðd. Skemmtiin um kvöldið. Nánar auglýst síðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.