Tíminn - 16.08.1960, Side 6
6
TÍMINN, þrH^ndaginp 16. ágúsatq96a.
Rafsuíhivélar
Rafsuðuþrátfar
RafsuSukapal)
RafsutSuhjálmar
Rafsu’ðuhanzkar
= HÉÐINN =
Vétaverztun
simi 24260
Rafmótorar
Rafmótorar einfasa
og þrífasa
Þessi mynd þarfnast varla skýringa, enda er nafn stúlkunnar
á allra vörum þessa dagana. Sigríður Geirsdóttir, þriðja'
fegursta kona heims, sést hér gæða sér á Canada Dry gos-
drykkjum frá H.f. Ölgerðinni Egill Skaliagrímsson í Reykja-,
Ýmsar stær'ðir.
= HÉÐINN =
Vélaverzlun
vík.
Seljavegi 2, simi 2 42 60
Það er ekkert sem jafnast á
við hina hreinu og hressandi
líðan eftir rakstur með Bláu
Gillette Blaði í
R£GD,
viðeigandi Gillette
rakvél.
Látið nýtt blað
í vélina í
fyrramálið
og kynnist
þvi sjálfir
Til að fullkomna
| raksturinn notið .
Gillette
§«§. rakkrem
Málmhylki með 10 blöðum og hólfi
fyrir notuð blöð
Gillette er skrásett vörumerki
KVEÐJUORÐ:
Elín Jónsdóttir
húsfrú
Elín Jónsdóttir var fædd á
Uppsölum í Selárdal í Arnar
firði 31. maí 1873 en andaðist;
10. þ. m. og varg því rúmlega
87 ára. Foreldrar hennar voru
Jón Jónsson bóndi á Uppsöl-
um og víðar og seinni kona
hans Kristín Ólafsdóttir. Elín
giftist 1. nóvember 1896 Ólafi
Kristjánssyni frá Hvestu, af
hinni vestfirsku grein Thorla
ciusættarinnar. Þau reistu sér
bú á Krók í Selárdal. En sam-
búðin varð ekki löng, þvi að
Ólafur drukknaði í mann-
skaðaveðrinu mikla á Amar-
firði 29 september 1900. Varð
Elín þá að hætta búskap og
fara í vinnumennsku með
Kristjönu dóttur sína, en Ólaf
son sinn, fæddan eftir lát föð
ur síns, varð hún að láta til
vandalausra. Eftir að Kristj
ana dóttir hennar giftist og
stofnaði heimili dvaldist hún
hjá henni, og naut þar jafn-
an sérstakrar hlýju og um-
önnunar. Kristjana, og maður
hennar, Bjarni Árnason, eiga
nú heima í Njörvasundi 24 í
Reykjavík. — Ólafur sonur
Elínar er sjómaður í Reykja
vík, ókvæntur.
Elín var um allmörg ár á
heimili tengdamóður minnar,
Ragnhildar Jensdóttur frá
Feigsdal, þegar börn hennar
voru að alast upp. Eg hef löng
um heyrt konu mína og systur
tala um Elínu og segja frá
ýmsum smáatvikum. Allar
eru þær frásagnir á eina lund.
Elín var fágæt manneskja
vegna góðlyndis síns, hjálp-
semi og hjartahlýju. Til henn
ar leituðu böm iðulega, ef þau
þurftu nokkurs með eða eitt
hvað amaði að, og fóru jafn
an af fundi hennar léttari í
lund og hlýrri í huga. Eng-
Starfsstúlka
í þvottahús óskast strax.
<*
SJÚKRAHÚS
HVÍTABANDSINS
inn getur metið, hver áhrif
slíkt viðmót hefur á börn á
viðkvæmu aldursskeiði til þess
að móta skapgerð þeirra og
tilfinningalíf, eða hvernig þau
áhrif koma svo fram í við-
móti barnanna, þegar þau eru
vaxin, við nýja kynslóð bama
og unglinga.
Elín var greind kona og
kunni mikið af vísum og kvæð
um, einkum bamavísum og
bænaversum, og mesta fjölda
af sögum. Hún kunni einnig
að segja þannig frá, að börn
hlustuðu, og allar miðuðu
frásagnir hennar til þess að
vekja athygli á því sem gott
er og rétt, til þess að vekja
hollar tilfinningar og efla sið
gæðisvitundina.
Elin var alla tíð trúuð kona.
Guðstrú hennar var mild og
umburðarlynd, gerði hana að
betri manneskju, gæddi hana
þreki og æðruleysi í erfiðleik
um, rann saman við og efldi
meðfædda hjartahlýju og sam
úð með öðrum mönnum, sér-
staklega smælingjum og þeim,
sem bágt áttu.
í stuttri grein, sem ég skrif
aði um Elínu, þegar hún varð
áttræð, komst ég þannig aö
orði:
„Eg held, að ég þekki enga
manneskju, sem frekar mætti
segja við en Elínu Jóndóttur
hið forna fyrirheit: Sæhr
eru hjartahreinir, því að þeir
munu guð sjá.“
Þessi orð séu kveðjuorð min
og venzlafólks míns til henn-
ar.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
ÞAKKARÁVÖRP
Innilega þakka ég öllum þeim, sem sýndu mér
sæmd og vináttu með hlýjum orðum, gjöfum og
heillaskeytum á 70 ára afmæli mínu.
Ólafur Jóhannsson.
Koti.
♦X*V*,V*'N*‘V*V*'
Innilega þakka ég öllum þeim er sýndu mér heiður
og vináím roeð heimsóknum, Llyjum orðum, heílla-
skeytum og gjöfum á 7v ara afmæli mínu
Ágúst ^iomason
Drdarbaki.
•V*V.<V*V«V«V*V‘V»V‘V‘V*V*V*V»V«V‘V«V«V*V»V*V‘V«V*V*V*V*V*V.