Tíminn - 18.08.1960, Side 5
ffMINN, fimmtiiöagnm Í8. ágúst 1960.
5
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastióri: Tómas Árnason Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.i. Andrés
Kristjánsson Fréttastjóri: Tómas Karlsson.
Auglýsingastj.: Egil) Bjarnason Skrifstofur
í Edduhúsinu — Símar: 18300—18305.
Auglýsingasími: 19523 Afgreiðslusími:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
Léttvægur fyrirvari
Morgunblaðið hefur bví nær ekkert rætt um land-
helgismálið eða fyrirhugaðar viðræður við Breta síðan
s. 1. laugardag, er forystugreinin „Utanríkismál" birtist,
en þar var landhelgismáli íslands í fyrsta sinn gefið það
nafn af málgagni íslenzkrar ríkisstjórnar. Virðist biaðinu
ekki þurfa frekari skýringa við um meðferð þessa máls
Hins vegar flytur Mbl. allmiklar endursagnir af skrif-
um brezkra blaða um þessi mál, og kemur þar alls staðar
fram, að Bretar gera sér nú vonir um ,.góð“ málalok.
Morgunblaðið segir, að aðeins tvö brezk blöð hafi
skýrt „frá þeim fyrirvara, sem íslenzlca ríkisstjórnin setti,
er hún samþykkti að ræða málin við brezk stjórnarvöld
— að hún telji íslendinga eiga ótvíræðan rétt að alþjóða-
lögum til þeirrar fiskveiðilö0 'igu, sem ákveðin hefur
verið“, svo að notuð séu orð Mbl. í gær.
Sé þetta rétt, sést gerla, að Bretar telja þennan fyrir-
vara ekki mikinn þránd i götu, og að þrátt fyrir hann sé
hægt að ná ,,góðum“ samningum, énda hefur Mbl. það
eftir „The Times“, að er fréttin barst um viðræðuheit
íslendinga, hafi í fyrsta sinn um langan tíma sést bros á
vörum brezkra togaraeigenda.
íslendingar munu fara nærri um pað, að brezkir tog-
araeigendur væru varla svona bjartsýnir og brosleitir,
eins og Mbl. skýrir frá, ef íslenzka ríkisstjórnin hefði sett
þann fyrirvara, sem öll þjóðin og einróma samþvkkt Al-
þingis mælti fyrir um, sem sé þann að íslendingar teldu
sig ekki aðeins eiga réttinn heldur mundu einnig halda
fast við hann og í engu vúkja frá honum, og að afsláUur
af 12 mílna fiskveiðilandhelginni kæmi alls ekki til greina.
Þann margyfirlýsta fyrirvara íslendinga sveikst ríkis-
stjórnin um að setja.
Litilsigld auðsveipni
Flestir þeir, sem ræða um landhelgismálið þessa dag-
ana og þá ákvörðun íslenzku ríkisstiórnarinnar að ganga
til samningsviðræðna við Breta, eiga varla nógu sterk orð
til þess að fordæma slíkt framferði, og flestir telja, að
eftir það, sem á undan er gengið í afskiptum Breta í þessu
máli, sé alls ekki sæmandi fyrirsjálfstæða þjóð að ganga
til slíkra viðræðna, meðan Bretar lýsa ekki vfir að þeir
hætti vopnuðu ofbeldi í íslenzkri fiskveiðilandhelgi.
Menn sjá, að nú er afstaða íslendinga eins og bónda,
sem yrði fyrir því, að óviðkomandi maður tæki að slá
tún hans og flytja heyið brott. Bóntímn reyndi að reka
hinn rángefna gest af höndum sér og banna honum tún-
sláttinn, en þá kæmi rænmginn með drápsvopn og ofur-
efli liðs, sem berði á bónda og fremdi sláttinn með vopna-
valdi. Síðan kæmi ræninginn til bónda og segði- Komdu
heim til mín, kunningi, ' ið skulum semja um málið Allir
sjá og skilja, hverju bóndi með óskerta sómatilfinningu
hlyti að svara.
Eða hvaða álit mundu menn hafa á þeim bónda, sem
labbaði auðsveipur heim til ræningians til þess að semja
við hann um slægju á eigin túni? Með því að taka slíku
lítilsvirðingarboði, væri bóndinn að v’ðurkenna. að ræn-
inginn kynni að eiga rétt til slægna í túni hans, og um
það þyrfti því að semja.
Það er þetta, sem er að gerast í landhelgismáli íslend-
inga í dag. Sjálfstæð þjóð getur ekki borið virðingu fyrir
sjálfri sér fyrir slíka auðsveipni, og aðrar þióðir munu
þaðan af síður gera það. Þvert á móti mun þett* stvrkja
það álit annarra þjóða að tiltölulega auðvelt sé að bevgja
íslendinga, og það getur átt eftir að nefna sín geypilega í
fieiri málum en þessu.
t
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
t
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
t
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
t
)
)
)
)
)
)
)
)
)
andarískt og rússneskt réttlæti
Grein Jiá, sem hér fer á eftir, reit Sanche de Gar-
mont fyrir skemmstu í New York Herald Tribune.
Hún er nokkuð stytt í þýíingu.
Réttarhöldin sem hófust
í gær yfir Francis Powers
flugmanni í Moskvu, leiða
huga okkar þrjú ár aftur í
tímann til þess atburðar, er
rússneskur maður, Rudolf
Ivanovitsj Abel stóð fyrir
rétti í Brooklyn, ákærður
fyrir hina sömu sök,
njósnir.
Sannasí sagna er ákaflega
margt áþekkt með málum þess-
um. Eiginlega hljóta Rússar að
minnast þess gamla georgí-
anska máltækis, er þeir leiða
Powers í réttarsalinn, að þeir
séu að hella gömlu víni á nýja
belgi, séu að gefa heiminum
eins konar Moskvuútgáfu af
Abelr'éttarhöldunum
Báðir voru þessir menn
þekktir sem sérlega hæfir í
starfi sínu. Annar var fífldjarf-
ur og snjall flugmaður og ljós-
myndari, er lagði sig í þá
hæftu að fljúga inn yfir móður
Rússíá í því skyni að afla vitn-
eskju um hernaðarmannvirki
þar í landi. Hinn var sannkall-
aður meistari í njósnalistinni
og lék um níu ára skeið lausum
hala í New York ásamt fjöl-
mennu liði hjálparkokka og
handbenda, sem drógu fram í
dagsljósið ýmis leyndarmál, er
Bandaríkjamenn ekki vildu
láta liggja á glámbekk.
HVORUGUR ÞEIRRA féll í
hendur óvina sinna sakir eigin
mistaka Að því er Powers við-
vikur bendir flest til þess, að
hann hafi neyðzt til að lækka
flug vegna bilunar í véi sinni.'
Abel var á hinn bóginn svik-
inn í hendur Bandaríkjamanna
af einum aðsfoðarmanna sinna.
Eftir að þeir voru handtekn-
ir, voru peir báðir meðhöndlað-
ir af sérstakri mannúð. Powers
ritar konu sinni að aðbúðin í
Lubjankafangelsinu í Moskvu
sé óaðfinnanleg oe vörðurinn
fari daglega með nann í göngu-
ferð. Jafnvel hefur verið farið
með hann um Moskvu til þess
að sýna honum staðinn. Þeirra
hlunninda naut Abel hins vegar
ekki, þar eð menn töldu, að
hann heíði þegar séð meira en
nóg.
Powers er séð fyrir nógu
lestrarefn; í fangelsinu, og á
sínum tíma var Abel leyft að
lesa sem hann lysti um uppá--^.
haldsefni sitt, njósnir. þótt '/
reglugerðir mæli svo fyrir, a'ð)
eigi skuli leyfa föngum að lesa)
neitt það, er leitt geti þá aftur)
á braut g'æpanna. )
Báðum föngunum hefur verið )
gefið færi á að fjölskyldur)
þeirra væru viðstaddar réttar-i
höldin. Foraldrar Powers og)
kona hans eru þegar komin til •
Moskvu. en 1957 gat kona Ab-- _ -
els, sonur hans og dóttir ekki-fíkið af öSru 1 Afríku sjálf-
komið þvi við að fara til New.stæði. í gær bættist enn eitt
York. • ríki'ð i hópinn en það er
i franska Kongó, sem er í næsta
BAÐIR VORU ’ '
sakaðir um verk
legið dauðarefsing
fangelsisvistar, en sakir góðrar
hegðunar var sá tími styttur í
20 ár, svo að hann losnar úr
fangelsinu, þegar hann verður
78 ára gamall. Að því leýti var
Abel ólíkur flestum sakborning-
um, sem sekir eru fundnir, að
hann taidi sig hafa hlotið sann-
gjöin málalok. Meðan á réttar-
höldunum stóð, neitaði hann að
láta nokkuð eftir sér hafa, en
þegar þeim var lokið flutti
hann verjanda sínum og að-
stoðarmönnum hans þakkir
fyrir frábæra málsvörn.
VERJANDI HANS. James
Britt Donovan, var tilnefndur
af sambandi bandaiískra mál-
íærslumanna sakir reynslu
hans af stríðsdómum bæði
heima í Bandaríkjunum og eins
í Nurnberg. Donovan tók
þetta starf engan veginn að sér
glaður í hjarta. Réttarhöldin
lokuðu hann algerlega úti frá
öðrum stórfum um langan tíma,
og þau kostuðu hann mikla
andúð almennings —- Hann
stendur í að verja kommúnista-
njósnara, snaran er þessum
bölvuðum kommúnista jafnvel
of góð, sagði margui i þann
tíma. Donovan varð að láta taka
síma sinn úr sambandi, því að
hann þagnaði ekki allan daginn
fyrir hringingum manna, sem
hótuðu ftonum öllu hinu versta.
Börn hans urðu fyrir aðkasti
skólafélaga sinna svo að hann
neyddist til þess að taka þau
heim. Samt hélt Donovan ó-
trauður afram vörninni ásamt
aðstoðarmönnum sínum tveim-
ur Vörn hans var hin frækileg-
asta, og það tók kviðdóminn
þrjár klukkustundir að koma
sér saman um dómsorðið, og
þegar dómarinn Mortimer W.
Byers, las up dómsorðin, var
bersýnilegt, að sú röksemd
Donovans, að Abel væri Banda-
ríkjamönnum dýrmætari lifandi
en dauður hafði haft sín áhrif.
Donovan fann ástæðu til
áfrýjunar Hann hélt því fram,
að bandaríska leynilögreglan
hefði á oiöglegan hátt komizt
yfir ýmsar eigur Abels og notað
þær síðan gegn honum í mála-
ferlunum. Meðferð hins áfrýj-
aða máls tók nærri brjú ár, og
þegar það loks kom fyrir hæsta-
rétt í marz s 1. var undirréttar-
dómurinn staðfestur með fimm
atkvæðum gegn fjórum
Francis Power
ÞÖTT ABEL væri Iiðsforingi
að tign í rússneska hernum,
fóru öll réttarhöld gegn honum
fram fyru borgaralegum rétti.
Hins vogar var Powers alls
ekki í bandaríska hernum, en
er færðui fram fyrir herrétt í
Moskvu. sem hefur bað í för
með sér. að hann á þess engan
kost að áfrýja máli sínu.
Það eir.a, sem hann getur
gert er að biðja um náðun.
Powers er varinn af rússæesk-
um málafærslumanni, og senni-
lega háir málakunnátta þeim að
einhverju leyti. Aftur á móti
talaði Abel ensku eins og inn-
fæddur, svo að hann átti auð-
velt með að fylgjast með öllu,
sem gerðist í réítinum. Þar
verður Powers hins vegar eins
og í annarri veröld og veit
ekkert, hvað fram fer. getur
einungis hlýtt ókennilegum
hljóðuro rússneskrar tungu Ifkt
og í draumi.
Abel oeitaði ávallt sekt sinni,
hverjar svo sannanir sem
bandaríska leyniþjónustan
færði fram gegn honum Pow-
ers hefui aftur á móti þegar
játað sekt sína, að því er Rúss-
ar segja.
Það er ómótmælanlegt, að
Abel hlaut í alla staði drengi-
lega og opinskáa -málsmeðferð,
vonandi að Powers geti sagt
hið sama að öllu loknu.
t
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
t
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
t
)
)
)
)
)
t
)
)
r
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
Franska K@sigo
fær sjáSfstæði
Þessa dagana hlýtur hvert
þessir menn'nágrenni við hið nýst0fnaða
samvinnusáttmáli við Frakk-
land. Yould sagði að tími ný-
lendukúgunar væri úr sög-
unni og mikil ástæöa væri fyr
ir þjóðir heims að vinna ötul
■ —: ) uttgiemn viu ino uysvuiiiaoa lega saman. Kvað hann samn
ing511^®1 bfðurn^ Kongólýðveldi’ Þar sem Þeir úiginn við Frakka ganga út á
var"fengfnn hinn hæfasti verj-1 atburðir hafa gerzt undan-! menningarlega og efnahags-
andi, en þegar bar er komið/farið, sem flestum eru kunn lega hjálp. Að lokum fór
sögunni telja margir að líkingu^ir. Hið nýja ríki mun áfram Yould viðurkenningaiiorðum
mála þeirra sé lokið tverða í franska samveldinu. um de Gaulle, Frakklandsfor
Bandariski kviðdómurinn/ Forseti þessa nýja lýðveld seta, sem hann kvað hafa
dæmdi Abel sekan og tii 30 árat is> Yould, skýrði svo frá í dag, barizt ötullega fyrir sjálfstæði
að undirritjaður hefði verið I til handa franska Kongó.