Tíminn - 14.09.1960, Blaðsíða 3
T í MIN N, miðvikudagínn 14. september 1960.
3
Delirium búbónis í
149. sinn í kvöld
Til ágóía fyrir styrktarsjóí leikara
í kvöld sýnir Leikfélag
Reykjavíkur Delerium búbón-
is í 149. sinn, — og trúlega
í síðasta sinn í bili. Sýningin
cr tll ágóða fyrir Styrktarsjóð
Félags íslenzkra leikara, og
stendur í Austurbæjarbíói.
Sýningin hefst kl. hálftólf.
Blaðamenn ræddu við
nokkra leikaranna í fyrra-
dag. Kv^ðust þeir hafa sýnt
leikinn 148 sinnum hingað
til. Drýgstur hluti sýning-
anna úti á landi fór fram
í leikför í sumar, en Leikfé-
lagið fór með Delirium búbón
is umhverfis landið, eins og
vel er kunnugt af auglýsing
um. Létu leikararnir hið
bezta af förinni, og töldu auð
séð að almenningi út um land
væri mesti fögnuður að heim
sóknum góðra leikflokka.
Delirium búbónis hefur löngu
slegið öll met í sýningafjölda
og aðsókn, en sýningar þess
hófust í janúar 1959, og er
trúlegt að þær vinsældir eigi
enn eftir að haldast. Auk
Leikfélags Reykjavíkur hafa
tvö leikfélög önnur tekið það
upp, á Akureyri og Húsavík.
Er trúlegt að fast að 40 þús.
manns hafi þegar séð leikinn.
Leikendur eru 9 talsins, en
leikstjóri Lárus Pálsson og
hljómsveitarstjóri Carl Bill-
ich. Höfundar eru eins og
allir vita Jónas og Jón Múli
Árnasynir.
Eins og fyrr segir er sýn-
ingin í kvöld til ágóða fyrir
styrktarsjóð leikara. Hann
styrkir félaga í Félagi ísl.
leikara til námsfara til ann
arra landa, og hefur að und
anförnu getað veitt 3—4
styrki á ári. Væntanlega
styrkja þvi menn íslenzka
leikmennt framtíðarinnar um
leið og þeir skemmta sér í
Austurbæjarbíó í kvöld. ó.
Deilurnar í brezka verkam.flokknum:
Alvarlegasti klofn-
ingurinn í 29 ár
Verkalyðsfélögin
Gaitskells
London. — Formaður sam-
bands flutningaverkamanna á
Eretlandi Frank Cousins hef-
ur síðustu dagana unnið hvern
sigurinn á fætur öðrum gegn
Gaitskell formanni brezka
verkamannaflokksins og hafa
deilurnar innan flokksins ekki
verið eins magnaðar og síðan
klofningurinn varð árið 1931.
Það var ekki einungis, að
þing verkalýðsfélaganna sem
haldið var nú í vikunni, sam
þykkti ályktun um kjarnorku
vopn, sem er í algjöru ósam
ræmi við yfirlýsta stefnu
flokksins, heldur var þar einn
ig samþykkt ályktun þar sem
krafizt er meiri þjóðnýtingar.
Gaitskell og fylgismenn
hafa hins vegar haldið þvi
fram, að það hafi verið þjóð-
nýtingarstefnan sem fyrst
og fremst hafi haft fylgið af
Verkamannalokknum í síð-
ustu kosningum, en þá beið
flokkurinn mikinn ósigur. —
Gaitskell hefur því gert það
að stefnu sinni, að fyrri þjóð
nýtingarstefnu flokksins
verði að miklu leyti vikið til
hliðar. —
Hörð gagnrýni
Ályktanir ársþings brezku
verkalýðsfélaganna hafa ann
ars mjög verið fordæmdar í
brezku blöðunum þessa dag
ana — og hefur hörð gagn-
rýni einnig komið fram í blöð
ganga í berhögg viÖ stefnu
um jafnaðarmanna. íhalds-
blöðin og mörg óháð og frjáls
lynd blöð gera sér mikinn mat
úr því, að í einni ályktun árs
þlngsins er þess krafizt, að
þegar í stað verði byrjað á
þvf að eyðileggja allar kjarn-
orkuvopnabirgðir, þar sem í
annari ályktun er rætt um
nauðsyn þess að lýðræðisrík-
in hafi kjarnavopnin til varn
ar. Brezku blöðin eru nú flest
sammála um það, að deilurn
ar í Verkamannaflokknum
séu nú svipaðar þvf sem þær
voru árið 1931 er Mac Donald
gerði bandalag við íhalds-
menn og frjálslynda með
þeim afleiðingum, að flokk-
urinn klofnaði. Sum blöðin
eru þeirrar skoðunar að þaö
liggi nú fyrir Verkamanna-
flokknum að klofna ekki að-
eins í tvo hluta, heldur jafn-
vel þrjá — og þær ráðagerð-
ir flokksstjórnarinnar að ná
völdunum af íhaldsflokknum
hljót nú aðeins að vera fjar-
lægur draumur.
Aukning vígbúnaðarkapp-
hlaupsins
Brezka blaðið „The Guar-
dian“ tekur eindregna af-
stöðu gegn ályktunum verka
lýðsfélaganna. Blaðið telur,
að þó að Englendingar leggi
niður kjarnorkuvopnin muni
aðrar þjóðir ekki fylgja í fót
spor þeirra. Það muni öllu
frekar verða til þess, a? ríkis
(Framhald á 15. síðu).
ÞaS er líklegt aS vefjist fyrir mönnum hvaS þessi mynd á aS sýna. Þetta
er ekkl jurtagróSur og því síSur steinmyndun, heidur tilheyrlr þessi
kynjahlutur dýraríkinu. Þetta er reyndar sjódýr. Þó er þetta ekki af-
kvæmi sjóskrímslis elns og telja mætti, heldur ígulker. ÞaS kom t net
sjómanna undan Garðskaga eftir því sem viS vitum bezt. Ekki þekktu
þeir dráttinn en kölluðu hann „spútnlk" sin á milli og er þaS ekkl fjarri
lagi. (Ljósm.: Tíminn, K.M.).
Félagsdeild Junior
Chamber á IsL stofnuð
Félagar geta ortSiÖ allir menn, sem eru í
ábyrgíarstöíum fyrirtœkja og stofna'na, en
vería þó aí vera innan viÖ 40 ára aldur
Mánudaginn 5. september
s. I., komu nokkrir ungir kaup
sýsluménn saman í Þjóðleik-
húskjallaranum til að ræða
stofnun félags í anda Junior
Chamber « Svíþjóð, en þá
hreyfingu höfðu þeir kynnt
sér og fengið áhuga fyrir að
koma upp líkum félagsskap
hér á land'.
Ákveðið var að stofna félag-
ið og því valin stjórn þá þeg-
ar, en framhaldsstofnfundur
mun verða innan skamms. Á
fundinum mætti fulltrúi frá
Junior Chamber sambandinu
í Evrópu, hr. Liljenqist, og
hvatti til stofnunar deildar á
íslandi, gaf góðar leiðbeining-
Viðskiptalífið
lamaö
Kaupmannahöfn 12. sept. —
Einkaskeyti til TÍMANS. —
Fyrsta verkfall opinberra
stárfsmanna í Danmörku
hófst í dag, er póstmenn í
miðhluta Kaupmannahafnar
gerðu verkfall, en búizt er við
því, að verkfallið kunni að
breiðast út um alla Kaup-
mannahöfn. Áður hafði sam
komulag náðst um deiluefnið,
en það var fellt á fundi póst
manna. Ekki verður annað
ar um stofnunina og ræddi við
væntanlega félaga. í stjórn
Reykjavíkurdeildar Junior
Chamber voru kjörnir:
Form. Ingvar Helgason, verzl
unarmaður, varaform. Pétur
Pétursson, forstj. Innkaupa-
stofnuna ríkisins og Erlendur
Einarsson forstj S. í. S., ritari
Haraldur Sveinsson forstj. Völ
undar, meðstj. Hjalti Pálsson
framkv.stj. S. í. S., og gjaldk.
Ásmundur Einarsson forstj.
Sindra.
í félagið gengu á þessum
fundi 25 félagar og kusu sér
laganefnd, sem skila á upp-
kasti að lögum fyrir daildina
og tillögur um nafn félagsins
á framhaldsstofnfundi. í laga
nefnd voru kosnir:
Sigurður Helgason forstjóri
Verzlunasambandsins, Ágúst
Hafberg, forstjóri Landleiða.,
Einar Ágústsson Sparisjóðsstj.
og Vilhjálmur Jónsson forstj.
Olíufélagsins.
Tilgangur félagsins er fyrst
og fremst að efla kynni meðal
ungra kaupsýslumanna, bæði
innanlands og erlendis, og
vinna að auknum kunnugleika
meðal félaganna á verzlunar-
viðskipta- og fjárhagsmálum.
Fullgildir félagar geta orðið
allir menn, sem eru í ábyrgðar
stöðum fyrirtækja og stofnana
en verða þó að vera innan 40
ára aldurs.
Arekstur
Yfirlýsing frá
pósti og síma
Blaðinu Darst eftirfarandi yfir-
lýsing frá póst og símamálastjórn
í gær:
„Með bréíi, dags. 7. þ.m., ósk-
aði Gjaldeyrisefth'litið eftir upp-
lýsingum írá póst- og símamála-
stjórninni um heildargjaldeyris-
tekjur stofrmnarinnar á timabilinu
1 janúar 1956 til 1. júní 1960, og
hvé miklu af þeim gjaldeyri hefði
verið skilað til gjaldeyrisbank-
anna. Ennfremur um gjaldeyris-
greiðslur á sama fima, sem inntar
hífa verið af hendi af eigin sjóð-
um án þes-s að gjaldeyris og/eða
innflutningsleyfis hafi verið aflað,
svo og um afhendingu slíks gjald-
eyris til einstakra starfsmanna.
Tveim starfsmönnum símans
(aöalbókarr og fulltrúa í gjald-
eyrisdeild) og tveim starfsmönn-
vm póstmáiastofunnar (forstöðu-
manns hennar ásamt bókara í stað
aðalbókara, sem hefur verið er-
lendis) var falið að taka saman
nefndar uppiýsingar, og var því
verki lokið 12. þ.m., og greinar-
gerð þessara manna send Gjald-
eyriseftirlitinu næsta morgun
(13/9). Gretnargerð þeiira er 23
vélritaðar siður, og upplýsir m.a.
að á nefndu íímabili (um 4>/2 ár)
hefur veriö greift út beint af eig-
in gjaideyi-jsinneign stofnunarinn-
ar án gjaideyris- og/eða innflutn-
ingsleyfa íyrir milliviðskipti, þjón
ustu og vinru erl. aðila sem svar-
ar um £19.960, fyrir vörur £91,
fyrir ferðakostnaði 15 starfsmanna
* 4.176 (þar af £657 af lausagjald
eyri) og fyrir burðargjöld o. fl.
£23. Um gjaldeyrisnot í ferðum
póst- og símamálastjóra bæði fyrir
núlligöngu banka og af slíkri inn-
eign er þar sagt, að þau hafi verið
£2.137 í dagpeninga fyrir 234
daga, og um £360 í annan kosfn-
að (fargjöld erlendis, símakostnað
o. fl.) s-kv. reikningum. Við upp-
gjör hafi verið gengið út frá not-
uöum erlendum gjaldeyri, en síð-
an bókað í lslenzkum krónum með
sama gengi út og inn.“
Ríkisendui'skoðunin endurskoð-
ar alla reikninga stofnunarinnar.
(Frá póst- og símamálastj.)
Tók inn
svefnlyf
Piltur íluttur miÖur sín
úr Trvggvagötu
í gærdag fhnn lögreglan
pilt í Tryggvagötu og var
hann miður sín af inntöku
svefnlyfja, og auk þess drukk
inn. í fórum piltsins fannst
lyfjaglas mierkt öðrum
manni, og kærði eigandinn
stuld glassins til lögreglunn-
ar skömmu síðar. — Piltur-
inn var fluttur á Slysavarð-
stofuna og þaðan í Bæjar-
sjúkrahúsig í Heilsuverndár-
stöðihni. Mun hann ekki í
hættu vegna lyfjatökunnar.
Að öðru leyti er mál þetta í
rannsókn. —h.
Missti fingur
sagt en að verzlunarst&rf-
semi og skrifstofustörf í aðal
viðskiptahverfi Kaupmanna-
hafnar hafi lamazt meira og
minna,. því að peningar með
pósti o.fl. komast að sjálf-
sögðu ekki til skila.
— Aðils.
í gærdag varð harður á-
rekstur í Fossvogi, á móts við
Gróðrarstöðma Garðshorn.
Rákust þar á Hafnarfjarðar
vagn og önnur bifeið. Ekki
urðu meiðsli á mönnum en
bifreiðarnar báðar munu
hafa skemmst mikið. —h.
Um fjögur leytið í gserdag
varð það slys í frystihúsinu
ísbirninum, að stúlka, Karen
Þorvaldsdóttir, lenti með
hendina í flökunarvél og
missti fingur af vinstri hendi.
Sjúkrabifreið flutti hana á
slysavarðstofuna. ú —h.