Tíminn - 14.09.1960, Síða 16

Tíminn - 14.09.1960, Síða 16
206. blaS. Miðvikudaginn 14. september 1960. Fundur um kjaramál stúdenta erlendis StoínuS heildarsamtök islenzkra stúdenta erlendis? Nokkur hluti fundarmanna á stúdentafundinum í síðustu viku. Íslenzkií stúdentar, sem nám stunda við erlenda há- skóla og staddir eru á landinu, eru boðaðir til fundar í kvöld. Fundurinn stendur í Fjósi Menntaskólans í Reykjavík og hefst klukkan 9. Þar verður rætt um Kjaramál stúdenta í framhaldi af stúdentafundin- um í síðustu viku Eins og skýi't er frá á öðrum stað í blaðinu, kaus sá fundur nefnd til viðræðna við mennta- málaráðherra. Munu nefndarmenn skýra frá niðurstöðum þeirra á fundinum í kvöld. Eru stúdentar hvattir til að fjölsækja þennan fund, ekki sízt nýstúdentar, sem 'hyggjast hefja nám erlendis, enda gefst þeim ekki betra tækifæri til að kynna sér hvað að þeim snýr í fjárhagsmáium. Rætt um heildarsamtök Á stúdentafundinum í síðustu viku var m. a. rætt um að nauðsyn legt væri að koma á fót einhvers konar heildarsamtökum íslenzkra stúdenta er'lendis og þá helzt í samstarfi við Stúdentaráð Háskóla íslands. Komu fram ýmsar tillögur um skipulag slíkra samtaka, en við erfiðleika er að etj-a þar sem náms- menn eru dreifðir í mörgum lönd- um meiri hluta ár'sins. Hins vegar Samþykkt stúdentafundar í síÖustu viku: Nauðsyn að stórauka lán til námsmanna erlendis er hér um nukið nauðsynjamál að ræða, og verður það væntanlega tekið upp á fundinurn, í kvöld. —ó til að háskólanám erlendis sé kleift fram- vegis. - Rætt um kjaramál við ráðherra Silfurbrama veiðist við Vestmannaeyjar Hefur ekki áður veiðzt hér við land í vor veiddist undarlegur fiskur við Vestmannaeyjar og báru sjómenn ekk> kennsl á hann. ÞaS vafðist jafnvel fyrir náttúrufræðingum hvaða fisk- ur var þar á ferð. Reyndist hann þó vera af svonefndrí guðlaxaætf og hefur aldrei áður fundizt hér við land. Mynd af þessum furðufiski er á bls. 1. í aprílmánuði síðastliðnum for vélbáturinn Vonin II. í róður og fengu skipverjar þá furðufisk þennan í net- sunn- an við Vestmannaeyjar. Pluttu þeir fiskinn með sér í land. Skipstjóri á Voninni er Þorgeir Jóelsson. Við mnnsóJcn kom í Ijós, að hér var um að rœða fisk af guðlaxaœttinni eða bramafiskaœtt. Fiskur þessi hefur aldrei áður fundist hér við land og er því til- koma hans merkur viðburð ur i sögu islenzkrar nátt- úrufrœði. Ingimar Óskars- son náttúrufrœðingur gaf fiskinum íslenzkt nafn og kallaði silfurbrama. Lítt þekktur Silfurbraminn er djúpfisk- ur og er í sunnanveröu At- lantshafi. Mjög lítið er kunn ugt um lífshætti hans og hefur íslenzkum náttúrufræð ingum gengið illa að hafa uppi á honum í bókum sín- um. Má af því marka að hér er um óvenju sjaldgæfan fisk að ræða. Tvær skyldar tegundir munu þó þekkjast hér við land. Ijatneska nafnið á silfurbramanum er Ptery- combus brama. Eins og áður er getið hef- ur enqinn slíkur fiskur veiðst við ísland fyr en þessi og í heild hafa aðeins 13 slíkir veiðst i Norðurat- lantshafi. Piskurinn sem hér um ræð- ir er nú í eigp náttúrugripa- safns Gagnfræöaskóla Vest- mannaeyja. Tíminn hitti Þor stein Víglundsson skólastjóra að máli fyrir stuttu en hann var þá að sækja fiskinn, sem hafði verið settur upp hér. Hefur Jón Guðmundsson kennari leyst það verk af hendi af mikilli kostgæfni. Þunnur og hávaxinn Fiskurinn er 47 sentimetr- ar að lengd, þunnvaxinn mjög og hávaxinn, munnur- inn lítill en augun stór. Hann er silfurlitur og ljósari að af- an. Hann hefur einn bakugga og kviðugga, tvo eyrugga, langan gotraufarugga og sýld an sporðugga. Þessi sjaldgæfi h»rðufiskur er mikill fengur fyrlr náttúru gripasafn GagnfræCaskólans en þar eru margir g#ðir gripir fyrir. Þa8 væri ekki ónýtt að eiga svona hafkónga í safninu sínu. Sá stærri er 20,6 cm að lengd og sá stærsti sem fundizt hefur hér við land. (Ljósm.: Tíminn, K.M.). Efnahagsaðgerðir ríkis- sijórnarinnar á síðast liðnum vetri hafa bitnað hart á ýms- um það sem af er og eiga víst eftir að segja frekar til sín áður en lýkur. Þó munu þær ekki hafa komið harðar niður á nokkrum einstökum hóp eða stétt en námsmönnum sem stunda nám sitt erlendis, og mun sízt ofmælt að kjör þeirra hafi versnað um helm- ing í „viðreisninni". Félög íslenzkra stúdenta erlendis hófu þegar mótmæli og birtu þau flest eða öll yfir lýsingar í fyrravor, þar sem þess mr krafizt að náms- Um 50 manns undirrituðu mönnum yröi gert kleift að halda áfram námi sínu er- lendis án þess aö kjör þeirra rýrnuðu til mikilla muna. Að vísu voru styrkir og lán Menntamálaráðs hækkuð í hlutfalli við gengisbreyting- una og ríflega það, en að dómi flestra námsmanna var þó enn meiri aðgerða þörf til að vega upp á móti hinni stór felldu kjararýrnun. Fundur sfúdenta Nokkur töf varð á aö náms menn ítrekuðu kröfur sínar hér heima í sumar, þótt margt væri um það rætt manna meöal. Kom þar (Frafnhald á 2. síðu). mótmælaskjal til ráðherra. Skúrir Suðvestan kaldi eða stinn- ingskaldi, skúrir, hiti 7 til 9 stig. Svo kemur fellibyl- urinn Donna hingað á morgun, svo nú fer að kárna gamanið. (Frarnhald t 2. síðu).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.