Tíminn - 28.09.1960, Qupperneq 2
2
T f MIN N, miðvikudaginn 28. september 1.964
Meirihluti kjósenda á Akranesi mótmælir
5 unglingabækur ný-
konuiar út hjá Leiftri
Einnig skáldsagan ,.Ha’nn bar hana inn í bæinn“
eftir Gu(Jmund Jónsson gar’ðyrkjumann
Ný klæðskera-
yinnustofa
í gær opnaði Haraldnr Örn
Sigurðsson, klæðskeri, mýtt
klæðskeraverkstæði í Banka
stræti 6 uppi. Hann heifur
undanfarin ár starfað hjá Vig
fúsi Guðbrandssyni og Co.,
sem sniðmeistari.
Hann hefur reynt að láta
gera afgreiðslu verkstæðisins
sem smekklegasta að öllum
frágangi og nýtízkulega og
vinnuskilyrði sem bezt á
sjálfu verkstæðinu og mun
hann kappkosta að veita við
skiptamönnum sínum hina
beztu þjónustu í hvívetna.
Bæði mun hann leggja á-
herzlu á fyrsta flokks vinnu
og eins að hafa sem mest úr-
val af vönduðu efni á boð-
stólum. Sömuleiðis að við-
skiptamenn hans fái sem fljót
asta og áreiðanlegasta af-
greiðslu.
Ennfremur mun hann út-
vega allt tilheyrandi samkv.
fatnaði s.s. skyrtur, vesti og
fleira, sem mör/um mun
þyka þægilegt að geta fengið
á einum og sama stað.
Gífurlegur halli
(Framh. af 1. síSu).
Engin brögð í tafli ,
Því heyrðist fleygt í sumar
að einhver brögð hefðu verið
i tafli af hálfu danskra um-
boðsmanna Fiskivers. Voru
tveir menn sendir utan til að
hraða uppgjöri, Ijeir Jón Ei-
ríksson og Pálmi Sigurðsson,
og eru þeir komnir heim aft
' ur fyrir nokkru. Kvað Ágúst
Helgason það ekki verða séð
að neinir prettir hefðu verið
hafðir í frammi. Hins vegar
hefði aflur kostnaður vig út-
flutninginn reynzt meiri en
ráð var fyrir gert í upphafi,
og samningar um leiguskipin
einkum reynzt óhagstæðir.
Ágúst kvaðst ekki geta skýrt
nánar frá fjárhar/ihlið máls-
ins meðan uppgjöri væri ekki
lokið. Það virðist þó blasa
við að ekki verður framhald
á þessum fiskútflutningi frá
Eyjum að sinni. -Ó
Síld í botnvörpu
(Framh. af 1. síðu).
á honum er Hjalti Gunnars-
son. Hefur hann áður feng-
izt við ýmsar tiiraunir með
nýjar veiðiaðferðir. Gunnar
er ársgamallt skip, 250 lestir
að stærg og byggður í Austur-
Þýzkalandi. Verið er að búa
bátinn á veiðar þessa dagana,
en ætlunin mun vera að hann
reyni fyrir sér um veiði í
Faxaflóa á næstunni. Síld
hefur ekki áður verig veidd
í botnvörpu hérlendis, en Sví
ar munu hafa veitt síld með
góðum árangri á þennan hátt.
Gera menn sér vonir um að
þessi tilraun lánist vel, þótt
hún sé að vísu mjög kostn-
aðarsöm. M.S.
Fuíítrúi á bingj ASÍ
Sveinafélag skipasmiða kans
í fyrrakvöld Helga Arnlaugs-
son fulltrúa sinn á 27. þing
Alþýðusambands íslands. —
Varafulltrúi var kosinn Björn
Emil Björnsson.
(Framh. af 1. síðu).
lega hug sinn til þessa máls á hin-
um geysifjölmenna borgarafundi
þegar eftir gerræði bæjarstjórnar
hinn 24. ágúst s. 1. og á fundinum
var eftirfai’andi ályktun samþykkt
einróma:
„Almennur borgarafundur á
Akranesi, haldinn í Bíóhöllinni
26. ágúst 1960 samþykkir að
skora á bæjarstjórn Akraness að
falla frá samþykktri tillögu, er
flutt var af fulltrúum Alþýðu-
flokksins á síðasta bæjarstjómar
fundi um að víkja Daníel Ágúst-
ínussyni bæjarstjóra úr starfi.
Að öðrum kosti verði bæjarstjórn
arkosningar látnar fara fram nú
þegar“.
í ljós kom á fundinum, að menn
vildu leggja enn meiri áherzlu á
þessa ályktun með því að undir-
rita hana. Gerðu kjósendur á fund
inum það þá þegar mjög margir,
en síðan hafa undirskriftir haldið
áfr’am og hundruð manna bætzt
við, eins og listar þeir, sem lagðir
hafa verið fram, sýna gleggzt.
Á kjörskrá á Ákranesi s. 1. haust
voru 1934 menn, svo að þeir 1020
kjósendur, sem undir hafa ritað,
eru rúmur helmingur þeirra og
61% af þátttökunni í síðustu bæj-
arstjórnarkosningum. Miklu fleiri
kjósendur hafa þó látið í ljós full-
komna andúð á aðförum bæjar-
stjórnarmeirihlutans, þótt þeir
hafi ekki viljað undirrita sam-
þykkt borgarafundarins af ýmsum
ástæðum. ,
Þannig hafa nú meira en helm
ingur kjósenda á Akranesi mót-
mælt uppsögninni, krafizt þess
að hún verði afturkölluð eða nýj-
■ar kosningar látnar fara fram
nú þegar.
Þessi skeleggu viðbrögð kjósend
anna sýna betur en flest annað,
hvilíkt gerræði hér hefur verið
framið og í fullkominni óþökk og
andstöðu við borgara bæjarins, Sjö
bæjarfulltrúar af níu standa að
aðförinni, og ef allt vær’i með
felldu, hefði verið eðlilegt, að svip
að hlulfall borgaranna væri henni
samþykkir. En í stað þess mót-
mælir meirihluti kjósenda. Mun
það algert einsdæmi, að aðgerðir
svo mikils meirihluta bæjarstjórn-
ar fái slíka fordæmingu borgar-
anna.
Segi af sér
Eftir þetta er augljóst, að meiri
hluti bæjarstjórnar Akraness er
kominn í mikinn minnihluta í bæn
um og á þann eina kost sæmilegan
að segja af sér, enda er það ský-
laus krafa meirihluta bæjarbúa.
Bæjarstjórnin hefur hvorki sið-
ferðilegan né iýðræðislegan rétt
til setu lengur og hlýtur að af-
•henda umboð sitt í hendur borgar-
anna eins og þeir krefjast.
Fari nýjar bæjarstjórnarkosning
ar ekki fr’am nú á Akranesi, er
framið stórfellt brot á borgaraleg-
um rétti, því að með undirskrift-
unum hefur bæjarstjórnin raun-
verulega verið svipt umboði.
Hlýtur aS víkja
Ályktun BORGARANS eftir
þessar undirskriftir er þessi:
„Bæjarstjórnin er siðferðilega
skuldbundin til að fara eftir
kröfu méiri hluta kjósenda. Hún
er komin í minnihluta í bænum
í máli þessu, og bezti kostur,
sem hún á völ á, er að efna til
kosninga strax. Því verður ekki
trúað að óreyndu, að bæjarstjóm
in sitji áfram, eftir að kjósendur
hafa jafngreinilega lýst van-
trausti á hana. Hún hefur þegið
umboð sitt af kjósendum og er
skyldug til að hlíta úrskurði
þeirra. Kjósendurnir eru sá dóm
stóll, sem bæjarstjórninni ber að
hlíta“.
Bæjarstjóri ókosinn
Undirskriftalistar þessir munu
nú verða lagðir fyrir bæjarstjóm
ásamt kröfum ályktunarinnar, en
dugi það ekki til þess að bæjai’-
stjórnin sjái sóma sinn í því að
segja af sér, hlýtur kröfunni um
nýjar kosningar. að verða haldið
fram á æðri stöðum.
f blaðinu Borgarinn er einnig
bent á það, að nýr bæjar’stjóri hafi
ekiki verið kosinn enn, heldur að-
eins falið forseta bæjarstjórnar að
gegna bæjarstjórastðrfum „fyrst
um sinn“. Muni þetta vera harla
óvanalegt.
Hér er að sjálfsögðu um hár-
rétta ályktun að ræða.
Prentsmiðjan og bókaútgáf-
an Leiftur hefur nýlega sent
trá sér 5 unglinga- og barna-
bækur svo og skáldsöguna
„Hann bar hana inn í bæinn",
eftir Guðmund Jónsson garð-
yrkjumann. Þá er einnig kom-
ið út hjá Leiftri 18. hefti af
Studia Islandica, ritstjóri
Steingrímur J. Þorsteinsson.
Unglingabækurnar eru „Andi
eyðimerkurinnar“ eftir hinn
þekkta barnabókahöfund Karl
May. Andi eyðimerkurinnar fjallar
um landnámið í villta vestrinu og
baráttu milli hvítra manna og
rauðskinna. „Kim og týndi lög-
regluþjónninn" er þriðja „Kim-
bókin“ sem Leiftur gefur út, og
mun án efa njóta eins mikilla vin-
sælda og hinar fyrri. „Ungur ofur-
hugi“ er fyrsta bókin í bókaflokkn-
um „Bob Moran-bækurnar“ en á
þessu ári og því næsta koma út
hjá Leiftri 6 bækur í þeim flokki.
Þá er níunda „Hönnu-bókin“
komin út og heitir hún Hanna fer
í siglingu. Hanna og Matta Maja
eru söguhetjur stúlknanna og ní-
unda „Möttu-Maju-bókin“, Matta
Maja sér um sig, er einnig komin
út
Þá er einnig komin út skáldsag-
Skýrar raddir
f Borgarann rita allmargir Ak-
urnesingar greinar eða segja álit
sitt um atferli bæjarstjóx’narmeiri-
hlutans og fordæma það skýrt og
skorinort og rökstyðja kröfu sína
um nýjar kosningar. Þar er gréin-
in „Kjósendur vilja nýjar kosning-
ar“ eftir Þórleif Bjarnason, náms-
stjóra, grein eftir ritnefnd blaðs-
ins, greinin „Máttur kjósandans“
eftir frú Guðrúnu Guðmundsdótt
ur, „Að tjaldabaki" eftir Halldór
Þorsteinsson. „Réttlætiskennd
fólksins er sterk“ eftir Daníel
Ágústínusson, og siðan segja álit
sitt um málið í heild þau Stefán
Teitsson, trésmíðameistari, Val-
geir Runólfsson, rafvirki, Ríkharð
ur Jónsson, málarameistari, Þoi’-
geir Jósefsson, fra-mkvæmdastjóri,
Jóhannes Jónsson, bakarameistari,
Bjar-nfriður Leósdóttir, frú, Hall-
freður Guðmundsson, hafnsögumað
ur, Halldór Jörgensson, trésmíða-
meistari og Hallgrímur Magnúss-on
vélvirki.
Þess má geta, að enn munu vera
að bætast við undirskriftir fólks
að ályktun borgar’afundarins.
an „Hann bar hana inn í bæinn"
eftir Guðmund Jónsson garðyrkju-
mann. Þetta er önnur bókin, sem
Guðmundur gefur út — 1957 gaf
hann út bókina „Heyrt og séð er-
lendis", fjörlega bók, sem fékk
góða dóma.
30 férust í flugslysi
í gær fórst austurísk flug-
vél á leið til Moskvu. Vitað
er aS 30 manns biðu bana en
7 munu hafa komist llfs af.
Meðal þeirra sem fórust voru
austurrískir verkamenn, sem
áttu að vinna við endurbætur
á austurríska sendiráðinu í
Moskvu.
Gilfersmótið:
Ingi R.
efstur
Að loknum átta umferðum
var staðan þessi á Gilfers-
mótinu:
1. Ingi R. 7 y.
2. Arinbjörn 6 y2 v.
3. Friðrik 6 v. og biðskák
4. Johannesen 5 v. og biðsk.
5. Ingvar og Guðm Ágústsson
il/2 v.
7. Gunar 3i/2 v.
8. Benóný 3 v.
9. Ólafur 2 y2 v.
10. Guðm. Lárusson 2 v.
11. Kári ii/2 v.
12. Jónas l v.
Blaðinu var ekki kunnugt
um úrslit í 9. umferð, sem
tefld var í gærkveldi. í kvöld
verður tefld 10. umferðin og
sú næst síðasta kl. 19.30 1 Sjó
mannaskólanum og eigast þar
viö: Friðrik—Jónas, Ólafur
—Guðm._ Lárusson, Ingvar—
Guðm. Ágústsson, Benóný—
Johaniieson, Arinbj.—Kári
og Ingi R.—Gunnar.
Biðskákir eru á fimmtudags
kvöldig kl. 19.30.