Tíminn - 20.10.1960, Síða 3
T í MI N N, fimmtudaginn 20. október 1960.
3
Elfrida von Nardroff og Van Doren brosa af hamingju — Myndin er tekin
á8ur en í Ijós kom að getraunaþátturinn „21^ var falsaður.
Charles Van Doren og
13 aðrir fangelsaðir
Síldveiði
Nokkrir reknetabátar fengu
dágóðan síldarafla í fyrrinótt
norður af Eldey. Veður var þá
heldur óhagstætt en fór batn
andi í gær, og munu allir bát
ar hafa verið á veiðum á svip
uðum slóðum í nótt, og gerðu
menn sér vonir um góðan afla.
— Bátarnir sem síld fengu í
fyrrinótt voru Skipaskagi og
Ólafur Magnússon frá Akra-
nesi; Askur, Keflavík, og Dóra
frá Hafnarfirði. Munu þeir all
ir hafa fengið um 100 tunn-
ur. Fleiri reknetabátar og
einnig bátar með hringnót
voru á þessum slóðum, en veð
ur hamlaði þeim frá veiðum.
Síldin er enn nokkuð djúpt,
en sjómenn gera sér vonir um
að hún þokist senn nær landi.
í gær var veiðiveður orðið
ágætt eins og fyrr segir.
*
Island vann
Önnur umferð í undanrásum á
Olympíuskákmótinu í Leipzig var
'tefld s.l. þriðjudag. íslenzka sveit-
in átti þá í höggi við Mongólíu-
menn og lauk tveimur skákum.
Freysteinn vann sína skák á fyrsta
borði en Ólafur tapaði á fjór'ða
borði. Hinar skákirnar fóru í bið
en voru tefldar í gær. Þá vann
Gunnar Gunnarsson sína skák á
þriðaj borði en Arinbjörn gerði
jafntefli á öðru borðL íslendingar
hafa því unnið Mongólíu með 2 og
háHum gegn 1 og hálfum vinningi.
í þriðju umferð tefla íslending-
ar við Svía og í þeirr fjórðu við
Bolivíu
Rætt um afvopnun
Að tillögu stjórnmálanefnd
ar allsherjarþingsins var á-
kveðið, að afvopnunarmálin
skyldu fyrst tekin til um-
ræðu af dagskrármálum þings
ins. Umræðan hófst í gærdag
og flutti þá Zorin aðalfulltrúi
Sovétríkjanna mikla ræðu. —
Hann kvað tillögur stjórnar
sinnar hinar einu raunhæfu
til afvopnunar og minnti jafn
framt á, að afvopnunarvið-
ræður væru gagnslausar að
hálfu meðan Bandaríkin
héldu fast við þá fyrru sína
að meina Kína aðgang að sam
tökum S.þ. Kvað Zorin Vest
urveldin vilja tefja fyrir af-
vopnun með óraunhæfum til-
lögum. Fulltrúar Vesturveld-
anna taka til máls í dag.
Engir vöruflutningar
til Kúbu
Bandarikjastjórn hefur nú
bannað alla vöruflutninga til
Kúbu og jafnframt lýst ó-
heimilt að leigja Kúbustjórn
skip til vöruflutninga. Aðeins
lyf og nokkrar tegundir mat-
væla verða fluttar til eyjar-
innar. — Fulltrúi Kúbu hjá
S.þ. hefur nú ítrekað kröfu
stjórnar sinnar um það, að
þingið taki til umræðu aðgerð
ir Bandaríkjanna gagnvart
Kúbu.
Réttarhöldin halda áfram
í gær var haldið áfram rétt
arhöldunum í málum fyrrver
^tuidi leiðtoga í Tyrklandi. Les
Eins og flestum er í fersku
minni komst upp um víðtækt
sjónvarpshneyksli í Banda-
ríkjunum á s.l. ári. Það kom
í ljós, að nokkrir menn, sem
ið var upp ákæruskjal á hend
ur sakborningum og tók
klukkustund að lesa það. Þeir
Menderez fyrrum forsætisráð
herra og Bayar fyrrum for-
seti eru sakaðir um að hafa
stofnað til óeirða gegn grísk-
um mönnum í Miklagarði
1958. Á Bayar að hafa gefið
fyrirskipun um þetta og Men
derez látið framkvæma hana.
Eignir grískra manna voru
eyðilagðar í þessum róstum
fyrir milljónaverðmæti. Báðir
hafa neitað sakargiftinni en
réttarhöldin halda áfram í
dag.
Soustelle gagnrýnir
de Gaulle
Soustelle fyrrum ráðherra í
stjórn de Qaulle, hefur ráðist
harkalega að forsetanum
vegna stefnu hans, jafnt í
innanríkis- sem utanríkismál
um. Segir Soustelle að stefna
forsetans /’í Alsírmálinu sé
fjarstæða. Alsír geti aldrei
orðið annað en franskt og
sjálfsákvörðunarréttur þýði
aðeins slit úr tengslum við
Frakkland sem ekki nái nokk
urri átt. Þá gagnrýndi Sou-
stelle stefnu forsetans í efna
hags- og iðnaðarmálum Frakk
lands og skoraði á þá, er sér
væru sammála að fylkja liði
gegn de Gaulle og stefnu
hans. Soustelle var vikið úr
stjórn og flokki de Gaulle
snemma á þessu ári, er hann
neitaði að samþykkja stefnu
forsetans í Alsírmálinu.
svöruðu hvað eftir annað rétt
öllum spurningum í spurninga
þáttum sjónvarpsstöðvanna,
höfðu fengið að vita um svör-
in fyrirfram.
Maöur sá, sem mest græddi
vegna-y,kunnáLbu“ sinnar heit
ir Charles van Doren og hafði
hann komizt yfir 129 þúsund
ir dollara á þennan hátt. —
Hann sagði fyrir undirrétti
vestan hafs, að hann hefði
hreint ekkert vitað um svör-
in við spurningunum, bara
vitað öll þessi ósköp.
Vissu svörin.
En nú hefur van Doren snú
ið við blaðinu og viðurkennt
að hafa farið með rangt mál.
Hann hafi vitað um svörin
fyrirfram eins og hann var
sakaður um. Hefur van Doren
nú verið handteknn og hefur
misst atvinnu sína hjá NCB
sjónvarpsstöðinni og kennara
stöðu við Columbía-háskólann
vestra.
En það eru fleiri en van
Doren, sem hafa verið hand-
teknir vegna sömu sakargifta
eða þrettán aðrir. Meðal
þeirra eru Elfrida von Nardr-
off, sem búin var að vinna
sér inn 220 þúsundir dollara
með kunnáttu sinni. Einnig
hún neitaði í fyrstu sakargift
um á hendur sér en hefur nú
játað eins og van Doren.
Sjónvarpthneyksli V þetta
varð opinbert seint á árinu
1958, er manni einum voru
gefin svör við spurningum
fyrirfram, og skyldi hann
keppa við van Doren (sem
einnig vissi rétt svör) en tapa
að lokum. Þessu sagði maður
inn frá og rannsókn var þeg-
ar hafin.
m UWfÆÆML^
Aðilar ekki vitnls-
bærir hvor um annan
Staðhæfingar stangast á í árásarmálinu
Eins og frá hefur verið
skýrt í fréttum, urðu hjón
fyrir líkamsárás í Vesturbæn-
um á aðfaranótt sunnudags-
ins. Maðurinn var sleginn illa,
svo hann nefbrotnaði og flaski
fór úr tönn í honum, og er
hann rúmliggjandi af þessum
sökum.
í skýrslu sinni til lögregl-
unnar kærðu hjónin tvo unga
menn, sem samkvæmt fram-
burði þeirra áttu að hafa ráð
ist með hrópum að mannin-
um, en síðan slegið hann
svona, er hann vildi svara fúk
yrðum þeirra. Enn fremur
hefði önnur stúlkan, sem
var í slagtogi með þessum ár
ásarmönnum, látið lítið kven
lega við konuna, er þau hjón
in ætluðu að bjarga sér í húsa
garð þar nærri.
Kom einn enn?
Framburður „árásarmann-
anna" og kvenna þeirra, sem
eru systur, stangast mjög á
við sögu hjónanna, því þeir
segja, að hjónin hafi í fyrstu
ætlað að fara inn í húsagarð-
Helmingi meiri
kartöflur
RófubírgtSir liggja undir
skemmdum
Höfn, 19. okt. — Kartöfluupp-
skeran varð með allra mesta móti
; Hornafirði í haust, en henni er
lokið fyrir nokkru. Áætlað er að
uppskeran nemi alls um 15000
tunnum, og er það allt að því
helmingi meira en verið hefur
undanfarin ár. Kartöflurnar eru
teknar til geymslu á Höfn eftir
því sem föng leyfa, en geymsl-
urnar reynast nú of litlar til að
rúma alla bessa uppskeru. Verða
því bændur að geyma talsvert
magn af kartöflum hver heima
hjá sér. — Kófnauppskera var
emnig góð í Hornafirði í haust,
og er talsvert magn þeirra fyrir-
iiggjandi. Það veldur hins vegar
áhyggjum að sala á rófunum er
treg og þær þola illá geymslu. Er
þv; ekki sýnna en talsverður hluti
uppskerunnar muni eyðileggjast.
A. A.
inn, þangað sem þau áttu ekk
ert erindi. Þeir höfðu varnað
þeim þess, enda hafi bæði
hjónin verið mjög ölvuð. Með
an á því stóð, skaut upp ein
um manninum enn, og átti
h-ann nokkurn orðastað við
eiginmanninn og sló hann síð
an niður, með fyrrgreindum
afleiðingum.
Ekki vitnisbær
Þannig stendur staðhæfing
gegn staðhæfingu, og á hvor
ugan veginn hægt að dæma
sem stendur, því annars vegar
eru systur tvær og svilar, og
því ekki vitnisbær hvort um
annað, en hins vegar hjón,
sem heldur eru ekki vitnis-
bær. Eru það því eindregin
tilmæli rannsóknarlögreglunn
ar, að ef einhver hefur séð
atburð þennan, eða mann á
hlaupum í grennd við Marar-
götu og Hrannarstígs um kl.
3 aðfaranótt sunnudags, að
hann gefi sig fram hið fyrsta
við rannsóknarlögregluna.’
—s.
Fjórír fundir
Næstkomandi sunnudag
halda Framsóknarmenn í Suð-
urlandskjördæmi fjóra al-
menna stjórnmáiafundi og
hefjast þeir allir kl. 2,30 e.h.
Fundirnir verða á Kirkjubæj-
arklaustri, Hvolsvelli, Selfossi
og Hveragerði.
Á Kirkjubæjarklaustri hafa
framsögu Halldór E. Sigurðs-
son, alþingismaður, og Helgi
Bergs verkfræðingur Á Hvols
velli eru þeir alþingismenn-
irnir Ágúst Þorvaldsson og
Einar Ágústsson frummælend
ur, á Selfossi hafa þeir fram-
sögu Eysteinn Jónsson fyrr-
verandi >-áðherra og Björn
Björnsson sýslumaður, og
loks í Hveragerðj eru frum-
mælendur Karl K ristjánsson
alþingismaður og Óskar Jóns-
son, fulltrúi.
Allir Framsóknarmenn og
aðrir andstæðingar núverandi
stjórnarstefnu eru eindregið
hvattir til að mæta á fundun-
um.
Eldur í bólstri
Klukkan 9.41 í gærmorgun var
slökkviliðið kvatt að Efstasundi 21,
að húsgagnabólstrun sem þar er til
húsa. Þar hafði neisti fallið frá
reykröri á legubekk og stoppaðan
stól. Eldurinn varð fljótt slökktur og
skemmdir litlar. Þá var slökkviliðið
kallað inn í Heiðargerði kl. rúmlega
eitt, til þess að slökkva eld, sem
krakkar höfðu kveikt í rusli.
Skarst á hendi
Klukkan 0.22 í fyrrnótt var sjúkra-
liðið kvatt að Selajvegi 33, en þar
hafði maður nokkur, Kristján Pét-
ursson, skorizt á hendi. Hann var
fluttur á Slysavarðstofuna.
Fékk afékenningu
aó slagi
í gær var sjúkraliðið kvatt að
Þjóðskjalasafninu, en þar hafði Þór-
arinn Kristjánsson fa-Ilið í dá í s-tól,
og reyndist ekki unnt að vekja
hann. Hann var fluttur á Slysa-
varðstofuna og þaðan á Landakot.
I-Iann mun hafa fengið aðkenningu
að slagi. |g>mkvæmt upplýsingum
Landakotsspítala í gærkvöldi var
hann þá hitalaus, hafði rænu, en
var dálítið máttlaus.
«