Tíminn - 20.10.1960, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.10.1960, Blaðsíða 4
4 T f IVIIN N, fimmtudaginn 20. októbe-r 1960. Eiga þau á hættu a3 missa börnin sín? ötrýmir svarthakuriiín æðarvarpi og Baxveiði? Undanfarinn áratug hefur Evartbak fjölgað svo gífúrlega að stórhætta er fyrir dyrum, að hann gjöreyðileggi æðar- varp og dúntekju landsmanna, einnig er lax- og silungsveiði í stór hættu af hans völdum. Hverjar eru ástæðurnar til að svartbak hefur fjölgað svo mikið? 1. Nú eru ekki tök á því vegna fólkseklu að leita að eggjum hans og lóga ungunum eins og gert var áður, 2. Það var heimilt samkvæmt lögum að eitra fyrir hann, en nú er það bannað. 3. Með tilkomu frystihúsa og fiskvinnslu- stöðva í flestum kauptúnum landsins hefur Svartbakurinn fengið hreinar uppeldistöðv- ar. Nytjar af Svartbak eru engar nema eggin, séu þau óunguð, en til að safna þeim þarf mikinn vinnukraft. Og meðan eyjar voru slegnar þótti hann rækta vel, en nú eru slík not af eyjum að mestu úr sögunni. Allir þeir, sem þekkja til í varplöndum og hirða um æðarvörp horfa á það með skelfingu að Svartbakurinn drepur meiri part allra æðar unga sem koma úr eggi, á sumum stöðum er það allt að 80—90%. Það geta allir séð, að enginn stofn þolir slíka eyðingu. Æðardúnn er dýr- asta vara sem íslenzkur landbúnaður framleiðir, og fyrir hann er ótakmark- aður markaður utanlands og innan. í mörgum eyjum á Breiðafirði er æðardúnn nú ekki nema 10% af því. sem hann var fyrir 40—50 árum. Við flesta árósa liggur Svart bakurinn og týýnir upp laxa- og silungssíli auk þess sem hefur auga með hrigningar- stöðum og étur hrognin. Á leirunum fyrir framan Laxá í Leirársveit hefur Svartbak uinn leikið sé að því undan- farin sumur, að sögn kunn- ugra, að ráðast á fullorðna laxa og stinga úr þeim aug- un, festa í þá klærnar og stýra þeim upp á grinningar og setjast svo að krásinni. Er nú, ekki kominn tími til að okkar 60 alþin-gismenn setji löggjöf um eyðingu Sivart- baks. Með útrýmingu hans má auðveldlega tlfalda æðar varpið og stórauka lax og silungsgengd í ám og vötnum. Það á að veita verðlaun fyrir hvern Svartbak sem felldur er, h'áfih“Stýggur og veðu því ékkf ^.elfð^'uiteð skotvopnum einum saman, en með eggjatökunni, sem væri að einhverju leyti styrkt af því opinbera, mætti halda fjölguninni niðri. Svartbaksgildrur er mjög auðvelt að setja upp. Þær eru þannig: Lítill blettur er girtur meö þéttu vírneti tvær til þrjár mannhæðir, fiskúr- gangur eða síld er sett á botn inn, fuglinn steypir sér niöur og nær ekki flugtaki upp og er þá auðvelt að lóga honum. Ef til vill þykir þetta ekki fín aðferð, en Svartbakurinn er nú ekkqrt klökkur, þegar (Framhald á 13 síðu) Kostakjör Ódýra bóksalan býður yður hér úrval skemmti- bóka á gamla lága verðinu. Bækur þessar fást yfirleitt ekki í bókaverzlunum og sumar þeirra á þrotum hjá forlaginu. Sendið pöntun sem fyrst. Borg örlaganna. Stórbrotin ástarsaga e. L. Brom- field, 202 bls. ób. kr. 23.00. Nótt í Bombay, e. sama höf. Frábærlega spenn- andi saga frá Indlandi, 390 bls. ób. kr. 36.00. Ævintýri í ókunnu landi. Sönn frásaga með mörgum myndum. 202 bls. lb. kr. 28.00 Njósnari Cicerós. Heimsfræg og sannsöguleg njósnarasaga úr síðustu heimsstyrjöld, 144 bls., ib. kr. 33.00. Á valdi Rómverja. Afar spennandi saga um bar- daga og hetjudáðir. 138 bls. ib. kr. 25.00. Leyndarmál Grantleys, e. A. Rovland. Hrífandi, rómantísk ástarsaga, 252 bls. ób. kr. 25.00. Ástin sigrar allt, e. H. Greville. Ástarsaga, sem öllum verður ógleymanleg. 226 bls. ób. kr. 20.00. Kafbátastöð N. Q. Njósnarasaga, viðburðarík og spennandi. 140 bls. ób. kr. 13.00. Hringur drottningarinnar af Saba. e. R. Haggard, höf. Náma Salómons og Allans Quatermains. Dularfull og sérkennileg saga, 330. bls. ób. kr. 25.00.. Hallarleyndarmálið, e. G. Wilder. 122 bls. ób. kr. 12.00. Farós egypzki. Óvenjuleg saga um múmíu og dul- arfull fyrirbrigði. 382 bls. ób. kr. 20 00. Jesús Barrabas. Skáldsaga e. Hjalmar Söderberg. 110 bls. ób. kr. 10.00. Dularfulla vítisvélin. Æsandi leynilögregiusaga. 56 bls. ób. kr. 10.00. Hann misskildi mágkonuna. Ásta- og sakamálasaga. 44 bl. ób. kr. 10 00. Leyndardómur skógarins. Spennandi ástarsaga. 48 bls. kr. 10.00 Tekið í hönd dauðans. Viðburðarík sakamálasaga. 48 bls. ób. kr. 10.00. Morð í kvennahópi. Spennandi saga með óvæntum endi. 42 bls. ób. kr. 10.00. Smyglaravegurinn. Leynilögreglusaga. 72 bls. ób. kr. 10.00. Græna maban. Leynilögreglusaga 56 bls. ób kr. 10.00. Huldi fjársjóðurinn. Leynilögreglusaga. 86 bls. ób. kr. 10.00. Morð Óskars Brodkins. Sakamálasaga. 64 bls kr. 10.00. Maðurinn í ganginum. Leynilögreglusaga. 60 bls. kr. 10.00. Loginn helgi e. Selmu Lagerlöf 64 bls. ób kr. 10.00 Njósnari Lincolns. Spennandi saga úr þrælastríð- inu. 144 bls. ib kr. 35.00. Kviksettur. Spennandi sakamálasaga > stóru broti. 124 bls. kr. 15.00. Sagan af Maggie Lane. Ástarsaga. 192 bls kr. 15.00. Mig langar til þín. Ástarsaga. 124 bls. kr. 12.00. Látfu hjartað ráða Ástarsaga. 182 bls. kr. 15.00 Hverflynd er veröldin. Ástarsaga. 182 bls. kr. 15.00. Smásögur 1—3 96 bls. kr. 10.00. Völundarhús ástarinnar. 10 ástarsögur. 138. bls. kr 15:00. Klippið auglýsinguna úr blaðinu og merkið x við þær bækur, er þér óskið að fá sendar gegn póst- kröfu. Merkið og skrifið nafn og heimilisfang greinilega. NAFN ....................................... * Odýra bóksalan Box 196, Reykjavík

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.