Tíminn - 20.10.1960, Blaðsíða 9

Tíminn - 20.10.1960, Blaðsíða 9
^TÍ M I N N, fimmtudaginn 20. október 1960, 9 „Síðasti bóndinn í Þjóðgaróinum" Haustið 1934 braut þáverandi forsætisráðherra Dana, Stauning, odd af oflæti sínu og steig í fyrsta s’ripti fæti sínum inn í herbúðir ands'tæðinga sinna, sali danska stórblaðsins Berlinske Tidende í Kaupmannahöfn. Tilefni þessarar heimsóknar var málverkasýning ungs fslendings, Eggerts Guð- n.undssonar, sem hið danska stór- biað hafði boðið að halda í sölum sínum. Sýning þessi vakti mikla íthygli, og einn frægasti listgagn- rýnandi Dana O.V. Borch fór um hana viðurkenningarorðum. Hér b’rtust í hinum framandi sýningar- sölum rammíslenzkar þjóðlífs- myndir, kynjamyndir íslenzkra þjóðsagna, hvítfyssandi brimlend- ing við hafnlausa strönd, bruna- candar, hraun og eldbor'gir, hrika- fegurð íslenzkrar náttúru, töfra- bjarmi og seiður sumarnæturinnar á ströndinni við yzta haf. Þetta var háíslenzk sýning og Danir mátu hana að verðleikum. B.T. getur þess, að „sýningin hafi verið mjög mikið sótt af stórhrifnum áhorf- cndum“. Eggert Guðmundsson er fæddur í Stapakoti í Njarðvúkum 30. des. ácið 1906, en fluttisl í bernsku til Reykjavíkur og óx þar upp. í æsku sinni fékk Eggert tilsögn í teikn- ingu hjá Ríkarði Jónssyni og í mótun mynda hjá Einari Jónssyni. Keð þetta veganesti sigldi Eggert tvítugur til Þýzkalands, en þá var í Múnchen einn fremsti listahá- skóli í heimi. 140 listmenn þreyttu þá inn'tökupróf og var Eggert í tölu þeirra 30 sem stóðust prófið. Eftir fjögur námsár í Múnchen og eitt á Ítalíu var Eggert Guð- nvundsson kominn í fremstu röð ís- lenzkra málara og sýning hans í sölum B.T. í Kaupmannahöfn varð upphaf eins hins mesta gengis sem nokkur íslenzkur málari hefur átt að fagna erlendis. Strax árið eftir var Eggert boðið að halda sjálf- stæða málverkasýningu i London og vísað þar til öndvegis í „All I eoples Association“ sem þá var cinn frægasti listsýningarstaður heimsborgarinnar. Slíkur heiður hlotnaðist aðeins útvöldum lista- mönnum. Stórblaðið „The Times“ iofar landslagsmyndir Eggerts og segir um þær m. a. „í „Nótt á Þingvöllum ‘ og „Almannagjá“ er hyggingarstíll náttúrunnar ekki ar.d: „Nevvs Chronicle": ,.Ég geng um þrjú stór herbergi; þau eru full af góðmennsku andl'tum, mál- uðuni í olíu, sem mig iangar ekki til að sjá aftur .. Mér fannst skemmtilegt að koma frá þessum óJiósu andlitum inn á sýningu Eggerts Guðmundssonar á Foyles Art Gallery. Með rauðum og svört- um litum hcfur hann málað sterk isienzk andlit, svipmikil og tígu Ieg. Margir „f þessum veðurbörðu sjómönnum og bændum eru ó- gleymanlegir. f einveru sinni og bardaga við öfl náttúrunnar hafa þeir tíma til að hugsa mikið og alvarlega. Það skín út úr andlít- unum“. Þessum frægðarferli Eggerts Guðmunds-sonar í Bretlandi lauk með því, að hann kom fram fyrstur Norðurlandabúa í brezka sjónvarp inu, sem þá var nýtekið til notkun ar, og voru þar sýnd málverk lista- mannsins. Nú skyldu menn ætla að þessi væringi sneri heim sigurvegari úr vikLngaferð smni og yrði vel fagn- að af löndum sínum og búin hin beztu skilyrði til að iðka lisf sína. Því var þó ekki að heilsa. Þessi litla þjóð, sem einkennist öðru fremur af minnimáttarkennd, sem kemur fram í óvild gagnvart skáld- um og listamönnum, hefur alltaf baft sérstakt lag á að refsa mönn- um fyrir góða frammistöðu. — Beitarhús cinungis tekinn föstum tökum heldur mótaður af áhrifamiklum samstilíum“ — og „The Times“ endar gagnrýni sína með því að kalla teikningar og svartlistar- myndir Eggerts stórvel gerðar. Excellent er orðið. sem blaðið rotar. Hinn ungi listamaður sýndi eftir þetta í nokkrum brezkum borgum cg loks aftur í Lundúnum í „Foyl- es Art Gallery". Myndir hans seld- ust nær allar og hann fékk góða dóma í mörgum helztu blöðum í Bretlandi. Um sýningu Eggerts í „Foyles Art Gallery ‘ segir t. d. gagnrýn- Þegar Eggert kom heim hófst mót- íakan á þvi að honum var meinað að taka þátt í sýningu íslenzkra málara í Miðbæjarbarnaskóianum!! — Málverk hans endursend — tal- ín ósýningarhæf. Síðan hefur Egg- crt raunar alltaf verið í ónáð hjá þeim mönnum, sem völdin hafa í málum listamanna og skapa með aðstöðu sinni og ýmsum vafasöm- um aðferðum álit listsnobbanna og aimennings að nokkru leyti. Samt hefur Eggert átt stóran vinahóp, enda vinfastur og drengur hinn bezti. — Eggert hefur haldið sínu siriki, haldið sig við að skapa þjóð- iega list, málað íslenzka náttúru, þjóðlífsmyndir úr atvinnulífinu og íslenzkri sögu og sögnum Eggert befur verið niadur manna mest af ýmsum „lisífræðmgum“ upplausn- araflanna, sem nalda að mönnum þeirri speki „að öll pjóðleg list sé siæm lisrt en öll góð list verði þjóð- leg“. Með því eiga þeir við að hin ,,góða list“ — klessumálverk og ítskræmingar — eigi eftir að verða þjóðlcg list!: Þrátt fyrir þetta hefur bjóðin kunnað að meta myndir Eggerts og bæði listamað- urinn og mvndir han-, mur.u halda velli, meðan Islendingar hafa ekki að fullu týnt sjálfum sér. Síðustu göngur Gunnai Dal. I 1 ! I s Kveð/umd/ úr Vestri i I ■- i I' | .J 1 1 s I H (Jósep Húnfjör;ð) i I I 1 | I i 1 8 1 | 1 I 1 | 1 1 Ú n 8 1 m Heill og sæll í sali draumsins! Syngdu ljóðin fjalla slyngu íslendingur, arfi braga óðs þíns málmur bjartur hjálmur. Ljóða-fákur! lýðsins yndi! léttstígur með skeiðasprettum. Þýðar raddir rómi snjöllum, reisa vörðu og áfram geisa. Stefnufastar fornar glóðir fólust þér í hjarta og ólust. Handa-band þitt yfir álinn ættar vinur, fjalla hlynur! Réttir mér í rími snjöllu rúnir óðs úr þingi Húna. Þangað varma í vorsins þeynum varpar klökk mín ljóða harpa. Norræn drenglund nam sér virki naust í lundu fram að hausti. Hjartanu jafnan heilög skylda, hóflega glæða þjóðar elda. Stefna fast að fjærstu ósum við fossanið með andans blossa hraustlega toga ár mót öldum. Gegn öiðugleikum hörðu beita. Far þú heill um huldar slóðir, hjarta glaður, nóttin bjarta lýsir eins og árdags röðull yfir þessum skapa stigum. Bjarma tún og óma öldur, Óðin geymir heima þjóðin. Gullkorn sem að gafstu Freyju glitra á heiðum braga vitar. Kveð ég þig með klökkum huga, þin kynning endurglæddi minning föður míns af æskuárum, er unduð þig á gleðistundum. Bikar tryggðar barmafullan barst þú mér og drengur var,stu. Um Húnvetninga héruð stafar heiðum bjarma af þínu leiði. Franklin Johnson n i 1 I 1 i I | I 1 I § 1 i I I 1 I 1 I I I V I I 1 1 8 | 1 i I i I i Athugasemd Jósep Húnfjörð og faðir minn, Guðmundur Magnús Jónsson, voru leikbræður á unglingsárum í Húnavatnssýslu fyrir’ aldamót. Fyrir tæpum tveimur árum sendi Jósep mér kvæði og „Hlíðin mín“ — aðra ljóðabók sína. Sökum vanrækslu varð eigi að því að ég svaraði. Svo dó Jósep í fyrravetur og þess vegna varð þetta kvæði til. F. J. Bindindisvikan i fulium gangi Bindindisvika Landssam- bandsins gegn áfengisbölinu, hófst með samkomu í hátíða sal Háskólans á sunnudags- kvöldið kl. 20.30. Pétur Sigurðs son, ritstjóri, formaður sam- bandsins, setti samkomuna og bauð gesti velkomna. Ræðumenn voru Bjarni Benediktsson, dóms- og kirkju málaráðherra og Ezra Péturs- son læknir. Fluttu þeir báðir stórmerkar ræður, sem sýndu glögglega hve mikið vanda- mál ofnautn áfengis er og hve áríðandi það er að hver þjóðfélagsþegn gefi því máli gaum og vinni að því að finna orsök þeirrar meinsemdar og útrýma henni. Á mánudagskvöldið var kom ið saman í Hallgrímskirkju, en um dagskrá þeirrar kvöldvöku sá Prestafélag íslands, Lands- samband framhaldsskólakenn ara og Samband íslenzkra barnaskólakennara. í fyrrakv. var samkoma í Góðtemplarahúsinu á vegum ÍSÍ og UMFÍ. Þar voru fluttar ræður og ávörp, Þjóðdansa- félag Reykjavíkur sýndi, og sýndar voru kvikmyndir. í gærkvöldi var komið saman í KFUM-húsinu og hófst sam koman kl. 8,30. — Kvenna- samtökin í Landssamband- inu gegn áfengisbölinu sáu um dagskrá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.