Tíminn - 20.10.1960, Síða 10
10
T f M IN N, fimmtudaginn 20. október 1960.
/ /
X.
' aéz<
HIKNlSBÖKIN
SLYSAVAR0STOFAN á Heilsuvernd
arstöðinnl er opin allan sólarhring
Inn
Listasafn Einars Jónssonar,
Hmtbjörg er opið a miðvikudög-
um og sunnudögum frá kl 13,30
—15.30.
Þióðminjasaf. ishnds
er opið á priðjudögum. fimmtudög
um og laugardögum frá kl 13—15,
á sunnudögum kl 13—16
Kiddi kaldi og
Dreki
Þvi miður hefur blaðið ekki feng-
ið myndasögurnar Kidda kalda og
Dreka sendar frá dreifingarfirmanu
í tæka tíð og geta sögurnar því ekki
birzt í dag og á morgun. Á fimmtu-
daginn verður vonandi búið að ráða
bót á þessu.
Loftleiðir h.f.:
Edda er væntanleg kl. 9:00 frá
New York. Fer til Oslo, Gautaborg-
ar, Kaupmannahafnar og Hamborgar
kl. 10:30.
Snorri Sturluson er væntanlegur
kl. 23:00 frá Luxemborg og Amster-
dam. Fer til New York kl. 00:30.
H.f. Eimskipafélag íslands:
Dettifoss fór frá Reykjavík 18.10.
til New York. Fjallfoss kom til Rvík-
ur 18.10. frá Vestmannaeyjum.
Goðafoss ko mtil Gravama 19.10.,
fer þaðan til Ábo og Leningrad. Gull-
foss fer frá Kaupmannahöfn 25.10.
til Leith og Reykajvíkur. Lagarfoss
kom til New York 14.10. frá Reykja-
vík. Reykjafoss fór frá Rostoek 18.10,
til Reykjavikur. Selfoss er í Vest
mannaeyjum, fer þaðan til Keflavík
u.r og Norðf jarðar og þaðan til Rott
erdam, Bremen og Hamborgar
Tröllafoss fór frá Avonmouht 17.10
til Rotterdam, Bremen og Hamborg
ar. Tungufoss kom til Lysekil 17.10
fer þaðan til Gravarna og Gauta-
borgar.
ÁRNAÐ HEILLA
Trúlofun:
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Edda Jónsdóttir skrif-
stofustúlka og Ólafur Briem skrif-
stofum, hjá Loftl'eiðum.
Árnað heilla:
Óafur Grímsson fyrrv. fisksali,
Höfðaborg 58, Rvík, er 75 ára í dag.
Trúlofun:
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Theódóra Steinþórsdótt-
ir, Bakka, Ölfusi og Sigurður Valdi-
marsson, Hólmgarði 64, Reykjavík.
ÝMISLEGT
Kvæðamannafélagið Iðunn:
Vísnanefndin hefur kaffikvöld
laugardaginn 22 okt. kl. 8 á Freyju-
götu 27. — Mætum vel og stund-
víslega.
GLETTUR
— Þeir segja allir að ég sé klaufi að beygja fyrir horn, ef ....
...........' ^
iilíll! 1
lllltowS^! FtíSíi!
— Já, en þú nefndir ekki að við ættum að skjóta þau.
iiiiiiiiiillii!
— Hvað er langt síðan þú fórst að vinna hjá gatnagerðinni?
„Mammmmma! Það er matarlykt DENNI
í hverju húsi en ekki þessul'' DÆMALAUSI
— Gettu hvað við lærðum í sunnudagaskólanum í dag, pabbit
Góðan daginn. Ég er frá rafveitunni. Þér eruð of seinn með greiðsluna
svo ég verð að loka hjá yður.
Ný plata með lögum eftir „12.
september“
Innan fárra daga er væntan-
leg á markaðinn ný hljómplata,
sem þau Sigurður Ólafsson og
Hulda Emilsdóttir hafa sungið á
Lögin á plötunni eru bæði eftir
„12. september“ (Freymóð Jó-
hannsson), sem gert hefur fjölda
laga, sem landskunn hafa orðið
Lögin á þessari nýju plötu eru
í fyrsta lagi „Halló“, sem hiaut
önnur verðlaun í síðustu keppni
SKT, en hitt lagið er svo „Hljóða
klettar“, sem nú hefur fengið
nýjan texta eftir hofund lagsins
og um leið annað nafn, nefnist
lagið nú „Bergmál hins liðna“.
Lagið hafði upphaflega verið sam
ið við texta Einars skálds Bene
diktssonar, og einhverra hluta
vegna ekki fengið náð hjá tón-
listardeild útvarpsins og því
sjaldan eða aldrei heyrzt þar í
danslögunum. Með hinum nýja
texta hefur þá væntanlega verið
r’áðin bót á þessu og þetta ágæta
lag á væntanlega eftir að heyrast'
oft í útvarpinu á ókomnum ár-
um.
Sigurður Ólafsson er löngu
orðinn landsþekktur söngvari,
hann hefur sungið inn á mikinn
fjölda hljómplatna, sem vinsælar
hafa orðið En ný plata með hon
um þó ekki komið fram í langan
tíma, er því ánægjulegt að fá
Sigurð enn á ný á plötu og verð
ur væntanlega framhald þar á.
Hulda Emilsdóttir hefur ekki
fyrr sungið á hljómplötu. Hún
hefur samt fengizt við dægurlaga
söng í nokkur ár við góðan
orðstír Einnig hefui hún feng-
izt nokkuð við að leika og komið
fram í allmörgum revíum. Hulda
söng með hljómsveit Árná ís-
leifs í útvarpinu 17, júní s. 1. og
vakti söngur hennar 'mikla at-
hygli. Undanfarið hefur hún
sungið með hljómsveit Guðmund
ar Finnbjörnssonar í Þórskaffi.
Carl Billich annast undirleik
á hljómplötu þeirri, er.hér grein
ir frá og fengið í lið með sér
ekki ómerkari menn en Braga
Hlíðberg harmonikuleikara, Karl
Lilliendahl gítarleikara, Ejnar
B. Waage bassaleikara og Árna
Scheving vibrafónleikara (Lík-
lega er þetta fyrsta hljómsveitin
á íslandi, þar sem allir meðlim-
irnir bera ættarnöfn).
Útgáfu hljómplötunnar annast
nýtt hljómplötufyrirtæki, sem
nefnist „Tónabandið“ og mun
platan þegar þar að kemur verða
seld í öllum hljóðfæraverzlunum
og þeim öðrum verzlunum utan
Reykjavíkur, er annast hljóm
plötusölu.