Tíminn - 05.11.1960, Blaðsíða 8

Tíminn - 05.11.1960, Blaðsíða 8
8 TÍMINN, laugardaginn 5. nóvember 1960. „S'kjótt hefir sól brugðið sumri“. Þorkell Jóhannesson var í lok síðustu helgar heill maður og kenndi sér ekki meins. Hann var, sem oftar, í vinnuhug. Mörgu var að sinna: Kennslustörfum, skóla, stjórn í æðstu menningarstofnun þjóðarinnar á nýbyrjuðu starfsári, menningarmálum öðrum og félags- málum, sem hann var við riðinn. Á liðnu sumri hafði hann verið í langferð, bæði vestan hafs og austan, og kannað áður ókunnar slóðir. Hann átti eftir að brjóta það til mergjar, sem fyrir hann hafði borið, og miðla öðrum af. Bók átti hann í smíðum. Hugurinn bjó yfir mörgu, er koma skyldi í framkvæmd, ef ævi entist. Síðdeg- is dvaldi hann í vinnustofu sinni, lagði á ráð, hversu haga skyldi störfum og ræddi við menn í síma um þau efni, naut hinnar ljúfu gleði heimilisins og hugði gott til annríkis virkra daga, svo sem títt er um starfsglaða menn. En á á- liðinni nóttu, hinn 31. okt., kenndi hann lasleika og var fluttur í sjúkrahús um morguninn. Um stund horfði svo, að takast myndi að ráða bót á sjúkleika hans. Svo varð þó eigi. Bar andlát hans brátt að, um hádegisbik þennan sama dag. Hann var fæddur á Syðra-Fjalli í Aðaldal 6. des. 1895. Foreldrar hans voru Jóhannes bóndi þar, Þorkelsson, fróður maður, vel rit- fær og skáldmæltur, er stundað hafði nám í Möðruvallaskóla, og kona hans Svava Jónasdóttir frá Hraunkoti. Þeir voru bræður, Jó- hannes á Syðra-Fjalli og Indriði, fræðimaður og skáld á Ytra-Fjalli. Þorkell bóndi á Fjalli, faðir þeirra, var sonur Guðmundar bónda á Sílalæk (afa Guðmundar á Sandi), Stefánssonar bónda þar, Indriða- sonar bónda þar Árnasonar. Jónas bóndi í Hraunkoti, sem fiuttist til Vesturheims, faðir Svövu á Fjalli, var Kristjánsson, er síðast bjó í Leirhöfn á Sléttu, Þor'grímssonar bónda í Hraunkoti, Marteinssonar. Er frændlið Þorkels fjölmennt í heimahögum, föðurætt einkum í Suður-Þingeyjarsýslu, móðurætt í Þingeyjarsýslum báðum. Þorkell Jóhánnesson fór að heim an til náms haustið 1912, settist í 2. bekk Gagnfr'æðaskólans á Akur- eyri og lauk gagnfræðaprófi þaðan átján ára, vorið 1914. Eftir það settist hann um kyrrt við búskap með foreldrum sínum, og mun honum þá um skeið hafa verið efst í huga að gerast bóndi á föður leifð sinni. En hann hafði fleira fyrir stafni en bústörfin. Löngun og hæfileikar til að leggja stund á þjóðleg fræði var honum .í blóð borið, og frá bernsku hafði hann vanizt iðkun þeirra fræða. Á heim- ili hans og í söfnum héraðsins var gnægð bóka, erlendra sem inn- lendra. í heimahúsum ætla ég, að hann hafi lagt grundvöllinn að j hinni miklu og sjalfstæðu þekk-j ingu sinni á sögu íslands og bók-; mentum íslendinga og annarraj þjóða. Ekki veit ég, hvenær það; hefur ráðizt eða hvernig, að hann gengi áfram skólaveginn, enda var hann aldrei margtalaður um sjálf an sig eða það, er á daga hans dreif, og telja má til einkamála. En vorið 1922, er hann var 26 ára gamall, gekk hann undir stúdents- próf í Menntaskólanum í Reykja- vík, og hafði þó aldrei stundað, nám í þeim skóla. Að loknu stúdentsprófi hóf hann nám í íslenzkum fræðum við háskólann. Hann hafði þá náð rneiri þrozka en aimennt gerist um stúdenta og kunni góð tök á námi sínu. Hann varð fljótt einn af leiðandi mönnum í félagsskap stú- denta og naut þar vinsælda, var kjörinn í stúdentaráð og formaður þess á sínum tíma. Um þessar mundir stóð félagslíf stúdenta með meir'i blóma en lengst af áður. Þá var mötuneyti stúdenta — „Mensa akademica" — starfandi, og unn- dð var að því, að komið yrði upp stúdentagarði. Lét Þorkell þessi mál og fleiri áhugamál stú- MINNING: ÞORKELL JÓHANNESSON HÁSKÓLAREKTOR denta til sín taka, enda var hon- um vel treyst. I náminu gerði hann sögu að sérgrein sinni, og lauk meistaraprófi vorið 1927. Sex árum síðar hlaut hann doktors- nafnbót við Hafnarháskóla fyrir bók sagnfræðilegs efnis. Meistaraprófsritgerð Þorkels fjallaði um „höfuðþætti í búnaðar- sögu og búskaparháttum íslend- inga frá upphafi og fram til siða- skipta". Með þeirri ritgerð og fræðimennsku sinni yfirleitt mátti telja að hann gerðist landnáms- maður á því sviði sögunnar, sem íslenzkir sagnfræðingar höfðu fram til þessa ekki gefið mikinn gaum. Þar höfðu persónusaga og ættfræði setið í fyrirrúmi En rann sóknir Þorkels og rit beindust að atvinnulífi og hagþróun þjóðarinn- ar fyrr á tímum. Síðan hefur ís- lenzk sagnfræði færst meir inn á þetta svið og mun gera á komandi tímum. Árið 1928 birti hann í tíma ritum tvær ritgerðir, sem voru að meira eða minna leyti byggðar á þáttum úr meistaraprófsritgerð- inni: „Um atvinnu- og fjárhagi á fslandi á 14. og 15. öld“ (Vaka) og „Plágan mikla 1402—1404“ (Skírnir). Doktorsritgerð hans fjallaði um „Stöðu frjáls verka- fólks á_ íslandi fram um miðja 16. öld“.. í sambandi við atvinnusög- una hafði hann snemma áhuga á söfnun örnefna og samdi sjálfur’ ritgerð um örnefni í Vestmanna- eyjum. Þá ætla ég, að hann hafi unnið að hinu sögulega yfriliti um landeign, ábúð og leigukjör á ís- landi, er birt var með greinargerð ábúðarlagafrumvarps milliþinga- nefndar, sem lagt var fyrir Al- þingi 1929. Haustið 1927 varð Þorkell Jó- hannesson skólastjóri Samvinnu- skólans og gegndi því starfi til 1931. Jafnframt var hann þá, ásamt Jónasi Jónssyni, ritstjóri Samvinn- unnar. Árið 1930 var hann meðal umsækjenda um prófessorembætt- ið í sögu við háskólann og tók þátt í ritgerðasamkeppni. Fyrir ritgerð sína á því prófi hlaut hann síðar doktorsnafnbótina við Hafnarhá- skóla. Bókavörður við Landsbóka- safnið var hann 1932—43 og landsbókavörður 1943—44. Hann var ritstjóri Nýja dagblaðsins 1933 —34 og stofnaði tímaritið Dvöl, sem var gefið út á vegum blaðsins. Tímaritið var þá safn þýddra úr- vals-smásagna, og þýddi hann þær flestar sjálfur. Árið 1944 var hann skipaður prófessor í sögu við há- skólann og gegndi því embætti eft- ir það. Hann var kjörinn rektor háskólans í fyrsta sinn árið 1954, í annað sinn árið 1957 og í þriðja sinn á þessu ár'i. Hann var kjörinn í stjórn Þjóðvinafélagsins árið 1936 og var jafnan síðan ritstjóri tímaritsins Andvara og þjóðvina- félagsalmanaksins, en árið 1958 var hann kjörinn forseti félagsins. Forseti Sögufélagsins varð hann árið 1955. Bók hans „Búnaðarsamtök á ís- landi 1837—1937“ kom út á aldar- afmæli samtakanna. Nokkru síðar hófst ritun og- útgáfa hinnar stóru íslandssögu á vegum menntamála- ráðs og Þjóðvinafélagsins. Var fyrst prentað IV. og V. bindi sög- unnar, en þrjú fyrstu bindin eru enn órituð. Þor'kell ritaði síðari hluta yi. bindis, sem kom út 1943, og VII. bindi, sem kom út 1950. Þetta verk hans fjallar um tíma- bilið 1750—1830. í sögu Alþingis ritaði hann bindi það, er fjallar um atvinnumál — og kom það út árið 1948. Hann sá um útgáfu ævi- sagnasafnsins „Merkir íslending- ar“, sem kom út í 5 bindum á ár- unum 1947—51, valdi ævisögurn- ar og ritaði formála og skýringar. Bréf og ritgerðir Stefáns G. Steph anssonar bjó hanni.undir prentun í fjórum bindum (1938—48) og ljóðasafn skáldsins, Andvökur (1953—58), einnig í fjópum bind- um. Það útgáfustarf var honum hugleikið, og til þess varði hann miklum tíma og mikilli vinnu. Ár- um saman vann hann, er hann hafði tíma til, að ævisögu Tryggva Gunnarssonar, og kom I. bindi út 1955. Ilér er að verulegu leyti um að ræða þætti úr atvinnusögu 19. aldar. Þessu v?r’: entist honum / ekki aldur til að ljúka. Mun þar mikið ópr'entað í handriti. Margt ritaði hann, sem hér verður ekki talið, tímaritsgreinar, útvarpser- indi, blaðagreinar o. fl. Nefna má t. d. þætti um járngerð og ullar- iðnað í Iðnsögu íslands (1943), um landbúnað á íslandi 1874—1940, í Almanaki (sama ár) og „Brot úr verzlunarsögu", í Andvara 1957 og 58. Hann átti sæti í útgáfustjórn „Nordisk Kulturleksikon" og tók þátt í samstarfi norrænna sagn- fræðinga af íslands hálfu. Verk hans eru af trúleik unnin, og með virðingu fyrir hinu fornkveðna, að hafa það heldur, er sannara reyn- ist. Eftir að hann varð háskóla- rektor, gafst honum minni tími til ritstarfa en hann hefði kosið, en sinnti þeim þó eftir föngum. Hann lét sér annt um háskólann, vildi efla veg hans í hvívetna og var þess hvetjandi að þjóðin aflaði sér þekkingar í nútíma vísindum ekki síður en hinum þjóðlegu fræðum. Hann for utan þegar á stúdents- árum sínum og oft síðan, einkum í seinni tíð, vegna skyldustarfa sinna á vegum háskólans. Oftast lá leið hans til Norðurlanda en þó einnig til fleiri landa í Norðurálfu. Til Vesturheims fór hann tvisvar sinnum, dvaldi þar og kom víða Þessum hlédræga manni, sem í æsku bjóst við að verða bóndi heima í dalnum, þar sem búið höfðu faðir hans og afi, voru þau örlög sköpuð, að sækja heim há- borgir nýmenningarinnar í hinni víðu veröld og að taka sem odd- viti íslenzkra mennta á móti virð- ingarmönnum í andans heimi og þjóðhöfðingjum, sem gist hafa þetta land. Hann leysti það allt vel af hendi, sér og þjóð sinni til sæmdar. Framkoma hans og við- mót vann honum hylli. Menntun hans og mannvit þurfti hvergi griða að biðja. — Hann hefði líka orðið góður bóndi heima í daln- um. í þessu sambandi hæfir að til- færa þau ummæli, er einn gagn- merkasti samstarfsmaður Þorkels Jóhannessonar, Jón heitinn Jó- hannesson prófessor, lét falla um hann á sextugsafmæli hans fyrir fimm árum: „í kringum hann rík- ir ró hins menntaða manns, sem hefur komizt í jafnvægi við um- hverfi sitt og haggast ekki, hvað sem á dynur“. Þannig kom hann samverkamönnum sínum fyrir sjónir, er þeir kjöru hann til for- sjár. Hann hefði getað tekið sæti inn- arlega á bekk íslenzkra ljóðskálda eins og hann átti kyn til. En hann var vandlátur við sjálfan sig og iðkaði ekki hina „vammi firrðu" íþrótt. Það er mikið tjón fámennri þjóð að missa mann eins og hann fyrir aldur fram. Þorkeil Jóhannesson kvæntist árið 1935 Hrefnu Bergsdóttur, bónda á Ökrum í Mýrasýslu, Jóns sonar. Hún hefur verið honum tryggur förunautur og stutt hann í starfi með ástúðlegri umhyggju. Hefur og ekki farið varhluta af þeim umsvifum, er embætti hans fylgdu í seinni tíð. Heimili þeirra í nágrenni háskólans og umhverfi þess, ber vitni þeirri smekkvísi ög alúð í starfi, sem einkennt hefur þau bæði í ríkum mæli. Einnig að öðru leyti voru þau samhent, og bar heimilisbragur því vitni. Við vinir þessa heimilis hugsum til hennar og dótturinnar ungu, sem enn er á barnsaldri, með samúð og þökk fyrir minninngar frá liðnum tíma. Fyrir mig og mína skal nú sú þökk frarr, borin. Þó heillandi séu hinir grænu hvammar við lífsins veg, getur þar verið dapurlegt á minningastund, þegar sá er á brott, sem „áður hér áði“. Frá persónulegum kynnum okk- ar Þor'kels Jóhannessonar á ég margs að minnast og mikið að þakka. Tungan, sem hann unni og kunni betur en flestir aðrir, á fögur orð um það, sem bezt er í fari lands- ins barna. Mörg þeirra orða mundu hæfa honum við leiðarlok, þótt þau verði nú flest látin ósögð, er kveðja skal. Eg man — og við fleiri munum — svip hans, heiðan og hlýjan, snjallyrði hans og hina ómenguðu leiftrandi fyndni, sem honum var tiltæk. Alvörumanninn, sem gat verið glaðastur allra, hina skörpu sjón og hinn milda skilning, góð- girni hans og hið trausta hand- tak---------- Hann var sá maður, sem gott var að þekkja og Ijúft er að muna. Gísli Guðmundsson. Við fráfall Þorkels Jóhannesson- ar, prófessors, þykir mér við eiga, að grein^ frá atviki, sem leitt gæti til fræðilegrar athugunar, en sjálf- ur hefi ég myndað mér leikmanns- skoðun um það, sem gerðist. Fyrsta dagblað Framsóknar- flokksins, Nýja Dagblaðið, hóf göngu sína undir ritstjórn Þorkels Jóhannessonar haustið 1933. Sjálf- ur hafði ég verið prentari og lengst af unnið við blöð, en einnig lítils háttar fengist við blaðamennsku. Þegar blað Þorkels Jóhannesson- ar kom til sögunnar, brá svo við, að mér var ekki auðvelt að skrifa í þetta blað. Mér varð einna likast manni, sem ekki veit betur en að hann kunni lagið, sem verið er að syngja, en kemst samt ekki uud ir. Kom mér þetta spanskt fyrir og braut um þetta heilann. Þar kom að ég tald mér trú um hvað ylli. Það hafði skipt um tón- tegund í íslenzkri blaðamennsku. Hún var komin á nýja bylgjulengd. Staðreyndin, veruleikinn, hafði verið sett í öndvegi, þar sem orð- fimi og einhvers konar lyrisk leikni hafði áður drottnað. Hefur mér einatt ver'ið hugsað til þessa. Og vissulega hefði þessi breyting, mér liggur við að segja stökkbreyting, stungið meir í stúf, ef um líkt leyti hefði ekki komið nýir menn til sögunnar við önnur blöð, og nefni ég í því sambandi Pétur Ólafsson, sem kom að Morg- unblaðinu um þetta leyti og Finn- boga Rút Valdemarsson, sem tók við Alþýðublaðinu, en báðir þessir menn höfðu aðlagast hinni nýju stefnu í blaðamennsku við nám erlendis. Jiafnframt breyttu nú íslenzk blöð um yfirbragð. Urðu glaðlegri á svipinn, léttara yfir þeim. Grein- ar styttust, fyrirsagnir stækkuðu og þeim fjölgaði, jafnvel smeygðu þær sér einnig inn í hinar lengri greinar. En annað sögulegt atriði varð- andi bllaðamennsku Þorkels Jó- 'hannessonar, er vert að geta um. Hann gaf út fylgirit með blaði sínu, er hann nefndi Dvöl. En Dvöl, undir hans stjórn, flutti einvörðungu úrvals smásög- ur víðfrægra höfunda, gersemar heimsbókmenntana, enda fór þetta ekki fr'am hjá menningarmönnum. Langflestar þýðingarnar gerði Þor- kell sjálfur, og munu einnig þær löngum verða honum til lofs, með slíkum hætti voru þýðingarnar af hendi leystar. Hitt er svo önnur saga, að hór skyldi ekki verða framhald á. En Þorkell Jóhannesson hefur þá á sinni skömmu blaðamannsævi með tvennum hætti markað spor. Guðbrandur Magnússon.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.