Tíminn - 05.11.1960, Blaðsíða 9

Tíminn - 05.11.1960, Blaðsíða 9
TÍMINN, laugardagmn 5. nóvember 1960, 9 BÆKUR OG HÖFUNDAR Þriöja bindi ritsafnsins ,Úr byggðum Borgarfjaröar* Þóríur Kristleifsson hefur búitS þatS til prent- unar at$ föður sínum látnum Nýlega <;r komið út á vegum Isafoldarprentsmiðju þriðja bindi af ritsafninu Úr byggð-; um Borgarfjarðar eftir Krist' 'eif Þorsteinsson á Kroppi. Pyrsta bindið af verki þessu kom út 1944 en annað bindið 1948. En höfundurinn lézt 1952. Kristleifur Þorsteinsson er í hópi merkustu alþýðlegra fræðimanna hér, og báru rit hans því órækt vitni. Síðasta sumarið, sem hann lifði, rit- aði hann langa sagnaþætti þótt hann stæði á níræðu og væri sjónlítill orðinn. Minni hans og frásagnarstíll lét lítt á sjá. 1 í írlandi hefur fólksf jölgunin orBiS mjög lítil síðustu árin — og því má með sanni segja, aS frú Bridget Maguire sá óvenju- lega góður föðurlandsvinur. Hún var nefnilega fyrir skömmu að eignast 20. barnið sitt — og er þó ekki nema 41 árs að aldri. 20. barnið var myndarlegasti strák- ur eins og við sjáum á mynd- innl. Af 20 börnum frá Maguire lifa nú 14» en ein dóttirin aetlar ekki að gefa móður sinni neitt eftir í frjóseminni, því að fyrir skömmu átti hún sitt tíunda. ☆ Ferðaskrifsfofan SUNNA tekur í vetur upp þá ný- breytni, að gefa fólki kost á ódýrum utanlandsferðum að vefrinum. Er þetta fyrst og fremst gerr fyrir þá, sem vilja nota veturinn til ferðalaga og sækja sér skemmfun og sum- arauka suður á bóginn að vetrarlagi. Geta þeir sem taka vilja þátt í þessum ferðum notfært sér þann sparnað og það hagræði, sem því er sam- fara að ferðast þannig á veg- um ferðaskrifstofunnar. Eg sé í blöðunum í Reykjavík, að gert er ráð fyrir gull-leit á íslandi og mun ekki af veita, Hvaða upplýsingar nú eru fyrir hendi um þetta gull sem hefja á leitina að. veit ég ekki, en samtíma heimildir um gullið eru á þessa leið: „Á þessu hausti brotnaði liollenzkt skip vtiS Skeiðarár- sand hjá Öræfum austur, á nóttu í stormi og myrkri. Það kom frá Aust-Indien, en villt- ist hingað Flutti bæði gull og perlur, silfur og kopar, kattun, súlki og lérept yfirfljótanlegt og margs konar dregna dúka og ábreiður. Var mælt að kostað hefði 48 tunnur gulls. Almæltu allir, að aldrei hefði þvílíkt skip (með svo dýrmæta áhöfn) við ísland komið, síðan það var fyrst byggt. Mikið fordjarfað- ist af góssinu Menn komust af nokkrir af s'kipsbrotunum og bátunum, en margir dóu í sjó- volki, og þegar á land kom, af frosti og kulda, því langt var til byggða, svo ekki lifðu eftir (af tveim hundruðum fólks, sem á skipinu voru) nema nærri 60. Sigldu sumir á Eyrar- bakka og annars staðai, þar þeir gátu, en nokkrir voru hér í landi eftii'liggjandi á Seltjarn- arnesi að samantöldum útlenzk- um á Kjalarnesi 60 alls. Þeir hollenzku fluttu varninginn að austan. Var mæli að þeir hefðu haft silki til undirgirðinga og heftinga á hestum sínum, eða GulS eða snuð fengu þeim, er hafa vildu, fyr- ir annað traustara, bönd, beizli, ístöð og undirgirðingar Þetta fé kölluðu danskir vogrek og væri því kóngsfé. Voru sýslu- menn fyrir austan til skyldaðir, að flytja varninginn t.il Bessa- staða, hver um sína sýslu, og svo var gert. Haldið var, að margur yrði þá fingralangur fyrir austan “ Þessi frásögn aí strandi þessu stendur í Fitjaannál, og er skil- merkilegasta frásögn annála, af þessum atburði. Oddui annála- ritari á Fitjum er þá 27 ára, þetta ár, er þessi tíðindi urðu, svo hér er um samtíma heimild að ræða. Gera menn yfirleitt ráð fyrir því á íslandi, að kóngsins þjón- ar þar hafi ekki hirt hans góss til hlítar, fyrst ekki verður annað skilið á heimildunum, en að aðstaða til björgunar hafi verið það góð, að björgun hafi oi'ðið til hlítar á farminum! Það eitt er víst, að heimildirnar bera það með sér, að mikil » björgun varð á farmi skipsins, H og sennilega hefur bví verið bjargað fyrst og fremst, sem verðmest var og ekki gat eyði- lagzt af sjó og sandi, eins og gullið og silfrið. Hætt er við, að þeir „fingralöngu“ hafi mátt sín enn betur í björgunarstarf- inu en ksupmenn, þótt fingra- langir væru, og þess vegna sé það hæpið, að leita leifanna á þessu landi. Kristleifur Þorsteinsson Þetta þriðja bindi hefur sonur Kristleifs, Þórður kenn ari á Laugarvatni búið til prentunar af mikilli kost- gæfni og ritar ýtarlegan for- mála. Segir þar m. a.: „Auk þeirra greina, sem í bók þessari birtast og áður Framhald á 13. síðu. Sumarauki suður á bóginn Enda er hér um að ræða svipað íyrirkomulag og í hinum vinsælu Rumarleyfisferðum skrifstofunnar, sem farnar voru sex til útlanda á liðnu sumri. Fyrsta vetrarferð SUMNU verð- ur til Kaupmannahafnar 2. des- ember og tekur 9 daga. Flogið er báðar leiðir með viðkomu í Glasgow milli ferða fyrir þá sem það vilja. Ferðakostnaður er 9 200.00 krónur —flugferðir og uppihald. Meðan dvalið er í Kaup- n;annahöfn getur fólk ráðstafað Uma sínum sjálft að vild, en kvöld- verður er sameiginlegur og flest kvöldin á ýmsum skemmtistöðum borgarinnar og er það innifalið í þátttökugjaldi ferðarinnar. Leik- hús- og skemmianalíf Kaupmanna- hafnar stendur að sjálfsögðu með nuklum blóma á þessum tíma og borgin fagurlega skreytt í jólabún- FertJaskrifstofan Sunna efnir til hópferftar til Kaupmaiinahafnar og Kanaríeyja ing, en verzlanir og vöruhús hlaðin jóiavarningi, eins og þeir vita sem bekkja Kaupmannahöfn fyrir jólin. Ferðin til Kanarieyja veröur 10. febrúar. Flogið héðan tii London og þaðan með Viscount til Ten- j e'úfe, sem er s'tærst Kanarieyja. j Þar verður dvalið í 16 daga á ný- j tízku hótelum Hefui fólk frjálsar ; hendur um það hvernig dvalartím- j i;;n er notaður, en mnifalið er í þátttökugjaldi allt uppihald og j fmgferðir, og kostai ferðin um 115.400.00 krónur. Ferðin frá London er farin í samvinnu við enska umboðsskrifstofu SUNNU í London, er leigir vélarnar og sem- uv við hótelin syðra fyrir mikinn í gestafjöida um lengri tíma. Geta j faiþegar SUNNU því notið góðs j af þeim hagkvæmu samningum og sparað sér útgjöld og fyrirhöfn.! Ilægt er að velja um þrjú dvalar- hótel á Kanarieyjum, sem öll eru ný, eða nýleg, í fyrsta flokki og luxusflokki. Öll eru þau í borginni Puerte de la Ciuz, höfuðborg eyj- ai'innar þar sem aðstaða er góð til sjó- og sólbaða og auk þess einka- sundlaugar við hótelin, sem öll eru nærri ströndinni. Kanaríeyjar eru vegna h;ns milda loftslags og jafna hita árið !• .'a.ti tiaio i;i -ífi.i Frá Kaupmannahöfn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.