Tíminn - 05.11.1960, Blaðsíða 16

Tíminn - 05.11.1960, Blaðsíða 16
Laugardaginn 5. nóvember 1960. 250. blaS. listamenn heimsækja íslendinga Tónleikar í Þjóðieikhúsinu á sunnudag SMIRNOFF Hingað til lands eru komnir nokkrir sovézkir listamenn, á- samt fararstjóra. prófessor Smirnoff frá Moskvuháskóla. Hér er um að ræða óperu- söngkonuna Klepatskaja, fiðluleikarann Sobolevski, ein- söngvarann Reshetín og píanó leikarann Kalinkovitskaja. Listamennirnir halda tónleika ■ Þjóðleikhúsinu á morgun (sunnudag). í dag fór Smirnoff fararstjóri, sem er prófessor í jarðfræði við Moskvuháskóla, austur undir Eyjafjöll með Sigurði Þórarinssyni. Smirn- off sagði á blaðamannafundi í gær að hann hefði lengi haft áhuga á því að koma hér, enda væri ísland paradís jarðfræð- inga. Valentína Klepatskaja, f. 1931 í Hvíta-Rússlandi. Hún lærði söng í Tónlistarháskólanum í Sverdlovsk í Síberíu, og vöktu afburðahæfileikar hennar þá þegar mikla athygli. Árið 1955 tók hún þátt í alþjóðakeppni söngvara í Varsjá og var þar í hópi sigurvegaranna. Ári síðar var hún svo ráðin einsöngvari viö Bolsjoj-óperuna í Moskvu og hefur starfað þar síðan, — meðal hlutverka hennar má nefna Vanja í óp. ívan Súsanín eftir Glinka; Olgu í Évagenín Onegín eftir Tsækovskí; Sibil í Paust eftir Gounod, og Sonju í óp. Striö og friður eftir Prokoffief. — V. Klepatskaja hefur þar að auki haldið sjálfstæða hljóm- leika um öll Sovétríkin og er- lendis, þar á meðal í Englandi, Noregi, Ungverjalandi, Póllandi og Þýzkalandi, og hvarvetna hafa gagnrýnendur lokið hinu mesta lofsorði á raddfegurð (Framhald á 15. síðu). KLEPATSKAJA Frumsýning LR er annað kvöid „Tíminn og við“ eftir Priestley frumsýnt á morgun, en nýtt islenzkt leikrit eftir jóí Annað kvöld hefur Leikfé- iag Reykjavíkur /rumsýningu á leikritinu „Tíminn og við", eftir J. B. Priestley. Þýðingu gerði Ásgeir Hjartarson, Gísli Halldórsson er leikstjóri leik- tjöld málaði Steinþór Sigurðs- son, en búninga saumaði frú Nanna Magnússon. Leikrit þetta heitir á frum- málinu „Time and the Con- way’s“ og er dramatískt leikrit eitt þeirra sem fjalla um hug- takið Tími. Höfundurinn segir þetta leikrit eitt af sínum uppá halds verkum. Ungir leikarar Leikendur í þessu leikriti eru allir meðal þeirra yngstu i LR, og er það skemmtileg tilviljun, því í haust eru einmitt liðin 10 ár síðan LR hóf starf á ný eftir opnun Þjóðleikhússins, en árið áður varð truflun á starfi félagsins vegna þeirrar stofn- unar. Leikendur eru: Helga Valtýs dóttir. Helga Bachmann, Þóra Friðriksdóttir, Guðrún Stephen- sen, Guðrún Ásmundsdóttir, Sig ríður Hagalín, Helgi Skúlason, Guðmundur Pálsson, Birgir Brynjólfsson, Gísli Halldórsson. Priestley Pristley er einn þeirra höf- unda, sem hvetur til umhugs- unar. Verk hans eru oft um þjóð félagsmál, blönduð heimspekileg um umþenkingum og tillögum um endurbót, en alltaf að- íi-x-'-x-x' Ari Brynjólfsson sést hér til hægri á myndinni. íslendingur stjórnar rafeindatæki í Risö Við kjarnorkutilraunastöð- ina í Risö í Danmörku starf- ar ungur íslenzkur vísinda- maður Ari Bryrsjólfsson að nafni. Hann er aðeins 33 ára gamall. Ari hóf nám við Kaup- mannahafr arháskóla árið 1948 og lagði stund á eðlis- fræði og stærðfræði og lauk meistaraprófi í báðum þess- um greinum árið 1954 Hann vann síðan um eins árs skeið sínu. „Tíminn og við er skrifað 1937. LR hefur áður sýnt tvö leikrit eftir þennan sama höf- und: „Ég hef .komið hér áður 1943 og „Gift eða ógift' 1945. Þjóðleikhúsið sýndi leikrit hans „Óvænt heimsókn, ‘ og leikrit hans hafa verið leikin í útvarpi, svo sem „Hættulegt horn.“ Byrja kl. 8,30 Frá því að sýningar hjá LR hófust í haust, hefur verið hald ið uppi skoðanakönnun meðal leikhúsgesta um það hvenær sýn ingar eigi að byrja, og var álit 75% þeirra, að þær ættu að hefjast kl. 8,30. Það mun því verða sýningartíminn a.m.k. fyrst um sinn. Pókók Næsta viðfangsefni LR er ís- lenzkt leikrit eftir Jökul Jakobs son blaðamann, og enfnist það „Pókók.“ Það er leikrit úr Reykjavíkurlifinu ,og felur und ir það, sem á leikhúsmáli nefn- ist „farsakómedía." Leikstjóri verður Helgi Skúlason. Leikendur gengileg og skemmtileg, því í verða 16 talsins, og er reiknað hann er góður húmoristi og hef- með að frumsýningar hefjist ur næma skynjun fyrir umhverfi I strax eftir jólin. við Atvinnudeild Háskóla ís- lands, en hóf síðan framhalds nám í Göttingen í Þýzkalandi og var þar um eins árs skeið. Hann hefur frá 1957 helgað sig kjarnorkurannsóknum. Foreldrar hans eru Brynjólf- ur Sigtryggsson bóndi að Krossanesi við Eyjafjörð og kona hans Guðrún Rósinkars- dóttir. Ástæðan til þess að við ræðum hér um þennan unga vísindamann er úrklippa, sem okkur barst úr dönsku blaði og er hans þar að góðu getið í sambandi við vísinda- störf í Risö. Segir frá því, að til- raunastöðin þar hafi fengið raf- emdatæki frá Bandaríkjunum og verði Ari Rrynjólfsson stjórnandi þess og vænti menn mikils af þess um dansk-islenzka vísindamanni eins og það er orðað. í ágústmánuði s. I. var þessi bandaríski rafeindaaflgjafi tekinn í notkun í Risö en tækið hafði áður verið reynt mánuðum saman vestan hafs. Þetta er fyrsta tæki sinnar tegundar í Danmörku og mörg slík munu yfirleitt ekki vera til. Talið er, að þetta tæki muni valda gífurlegum framförum við ailar rannsóknir, sem stundaðar eru í Risö. Þá á tæki þetta að vera mjög mikilvægt í sambandi við læknastörf og niðursuðu. Aflgjafi þessi hefur kostað eina og hálfa milljón danskra króna en al)ur nauðsynlegur útbúnaður við bann á þriðju milljón danskra króna. Tilraunií þær, sem nú skulu hafnar með þessu nýja tæki hafa áður verið reyndar en með nýja tækinu er hægt að fram- kvæma þær á nær 1000 sinnum skemmri tíma en áður hefur verið mögulegt. Meðal þess, sem tæki þetta ger- ír, er sótthreinsun á kjöti. Geislar eru látnir fara um yfirborð kjöts- ins og eýða skaðlegum efnum. Er n’jög þýðingarmikið fyrir Dani, sem hafa svo mikla framleiðslu á lundbúnaðarvörum m.a. til útflutn ings, að þetta geti gengið mjög fljótt fyrir sig. ' Ari Brynjólfsson var um langt skeið í Bandaríkjunum og kynnti sér hvernig þetta rafeindatæki vinnur. Hann hefur sagt, að hann vænti góðrar samvinnu við stofn- anir þær, sem þurfa að hafa not af þessu tæki en það eru einkum arvinnuvegirnir og sjúkrahúsin. Kaldi Sjáifvirki maðurinn á veð- urstofunni sagði í gær- kvöldi að í dag yrði norð- austan stinningskaldi og léttskýjað.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.