Tíminn - 16.11.1960, Síða 1

Tíminn - 16.11.1960, Síða 1
MiSvikudagsgreinin | ArSrén — bls. 8—9, Miðvikudagur 16. nóvember 1960. stjórnað? Þessar myndir voru teknar af Ijósmyndara Tímans við setningu Alþýðusambands- þingsins í K.R. heimilinu við Kaplaskjólsveg í gær. Á myndinni að ofan til hægri sér yfir þingheim, en á myndinni hér að ofan sést forseti A.S.Í., Hannibal Valdimarsson, setja þingið. (Ljósm. TÍMINN, K.M.) 27. þing AlþýSusambands íslands var sett í samkomu- húsi K.R. við Kaplaskjólsveg kl. 3.30 í gær, af Hannibal Valdimarssyni, forsetá sam- bandsins. Á þinginu eiga sæti um 340 fulltrúar. Er fulltrúar höfðu gengið til sæta sinna söng Alþýðukórinn undir stjórn dr. Hallgríms Helgason- ar, nokkur lög og að því búnu flutti forseti þingsetningar- ræðu sína. Hóf hann mál sitt með þvi að minnast látinna félags- manna, en þingheimur reis úr sæti í virðingarskyni við hina ) látnu. Frá setningu Alþýðusambandsþings í gær Hannbal Valdimarsson kvað það jafnan hollt að líta öðru hvoru um öxl, rifja upp hvern ávöxt barátta verkalýðsfélag- anna hefði borið, hvað hefði áunnizt og hváð tapast. Fyrir verkalýðsfélögin væri það sér- staklega lærdómsrikt að bera að þessu leyti saman tvö tíma bil, sem liðið hefðu milli þinga samtakanna. Væri þá annars vegar um að ræða tímabilið frá þinginu 1955—1958 og frá 1958—1960. Á fyrra tímabilinu komst á náið samstarf milli verkamanna, bænda og ríkis- valdsins. BjargráS stjórnarinnar í útvegsmálum er að minnka fiskveiðilandhelgina um helming „Viðreisn“ ríkisstjórnarinnar er komin í algert strand á öll- um sviðum. „Viðreisnin" eins og ríkisstjórnin sjálf kallaði efnahagsaðgerðir sínar var sögð fyrst og fremst við það miðuð að skapa „heilbrigðan“ rekstursgrundvöll fyrir útgerð- ina. Allt er miðað við það, sagði ríkisstjórnin, að útflutningsat- vinnuvegurinn geti borið sig. Þetta nýja „kerfi“ mun þola öll áföll og laga sig eftir að- staiðunum hverju sinni. Aldrei framar verður þörf á að gera „bráðabirgðaráðstafanir“ effia taka upp uppbætur að nýju. Ekkert ber eins Ijósan vott um skipbrot „viðreisnarinnar“ og hagur útgerðarinnar nú. Málgögn stjórnarflokkanna við- urkenna að hún sé á helj.ar- þröm, allt sé að stöðvast og bátaflotinn að lenda undir upp- boðshamarinn. Ekki verður kom izt hjá því að gera róttækar ráðstafanir nú þegar á þessu ári til að bjarga þjóðarbúinu frá algcru hruni. Ríkisstjórnin heldur samt áfram aS lofsyngja „viðreisnina". Segir að þessir erfiðleikar stafi af „gífurlegum aflabresti“ og verðfalli á fiski- mjöli. Sannleikurinn er sá, að aflatrcgða hefur að vísu verið nokkur hjá togurunum undan- farið, en heildarfiskaflinn er svipaður og í fyrra. Verðfallið á fiskimjöli var þegar hafið, er efnahagslögin voru sett og í greinargerðinni með efnahags- málafrumvarpinu var það tekið fram, að tekið liefði verið tillit til verðfallsins við samningu laganna. Slíkar röksemdir fyrir ófremdarástandi því, sem nú ríkir, falla því dauðar og ómerk (Framhald á 2. síðu). Heilladrjúgt samstarf Það samstarf varð öllum al- menningi í landinu heilla- drjúgt. Þá stórjókst fiski- skipaflotinn, reistar voru síld- arverksmiðjur og fiskvinnslu- stöðvar víðs vegar um land. Stór átök gerð í raforku- og húsnæðismálum. Sett voru lög um atvinnuleysistryggingar og lífeyrissjóð togarasjómanna, margt unnið til hagsbóta fyrir bændastéttina að ógleymdu því að landhelgin var færð út í 12 sjómílur. Fólksflótttinn úr dreifbýlinu stöðvaðist að mestu og aldrei höfum við ver ið nær því marki, að gera at- Vinnuleysi með öllu útlægt. Tekjur af Keflavíkurflugvelli lækkuðu á þessu tímabili úr 370 milj. í 130 millj og í des. 1958 var kaupmáttur launa hærri en nokkru sinni fyrr. Þá voru og skattar lækkaðir á sjómönnum og láglaunafólki og þannig mætti halda áfram. Gengið aftur á bak En hvað væri svo um síðara tímabilið að segja? Einkenni þess væru í stuttu máli að stjórnarvöldin reyndu að rífa allt það til grunna, sem þá var byggt upp. Nú væri veizt að verkalýðsfélögunum og öðru láglaunafólki í sveit og við sjó með afnámi vísitölu, vaxta og skattaokri og til þess að reka endahnútinn á allan þokkann væru verkföll bönn- uð. Kaup væri lækkaö með lög um. Lækkun árstekna hjá venjulegum launamanni væri frá 7000—12000 kr. Samvinnu ríkisvaldsins og stéttasamtaka almennings slitið. Allt hefði þetta verið fóðraö með því, að lækka þyrfti dýrtiðina og ráða niðurlögum verðbólgunnar. Ekki hefur verkalýðurinn á móti því. Hann hefur líka sýnt biðlund. Nær ár er liðið síðan stjórnin gerði sínar ráðstafan- ir. Alþýðusambandið hefur boð ið ríkisstjórninni samstarf um leiðréttingu á kjaramálunum, sent henni tillögur sínar og kosið nefnd til viðræðna við hana Eftir hálfan rriánuð var (Framhald á 2. síðu). Samningum frestaö enn? London, 15/11. — Fréttastofan NTB flutti þá frétt seint í gærkveldi og hafði hana eftir áreiðanlegum heimildum í London, að samningaviðræðurr: Breta og íslendinga um riskveiðitíeil- una hefði verið frestað fram i lok þessa mánaðar, en eins og kunnugt er áttu þær að hefjast í Reykjavík næstkom- andi fimmtudag. er Dönsku þingkosningarnar - bls. 3

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.