Tíminn - 16.11.1960, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.11.1960, Blaðsíða 4
4 T í MIN N, miðvikudagimi 16. nóvember 1960. Félag íslenzkra listdans- ara telur tímabært að vekja athygli á nokkrum atriðum í rekstri Listdansskóla Þjóðleik hússins. Félagið gerir það á opinberum vettvangi, þar eð telja verður að hér sé um mál að ræða, er almenning varðar. Nemendur skólans eru um 300 talsins. Listdansskóli Þjóðleikhúss- ins tók til starfa haustið 1952 og voru frá upphafi kennarar hans hjónin Lisa og Erik Bid- sted. Meginhluti nemenda, sem inngöngu fengu í skólann þetta haust, höfðu áður notið kennslu um lengri eða UM LISTDANS- SKÓLA ÞJÓÐLEIK- HÚSSINS skemmri tíma hjá viðurkehnd um listdanskennurum. Bidsted hjónin höfðu orð á þvi við meðlimi F.Í.LD., að þau hefði ekki órað fyrir að fá svo marga nemendur með trausta og rétta kunnáttu í öllum grundvallaratriðum listdans- ins, þö að það kæmi aldrei fram á opinberum vettvangi. Fjöldi nemenda varð strax svo mikill að hjónin gátu með naumindum annað kennsl- unni og hefur svo verið síðan. Kennsla hefur ávallt legið nðri í 5 mánuði yfir sumar- tímann, og þá jafnframt allar æfingar í listdansi innan Þjóð leikhússins. F.Í.LD. hefur mælzt til þess við þjóðleikhús stjóra að reynt yrði að halda uppi kennslu og æfingúm yfir sumarið og þá jafnframt boð ið fram starfskrafta meðlima félagsins, enda telur félagið það frumskilyrði fyrir mynd- un frambærilegs listdans- flokks og viðgang, að æfingum sé haldið áfram með sem stytztum hléum allan ársins hring. Þessum tilmælum hef ur ekki verið sinnt. Síðastl. vetur varð dvöl og kennsla Bidsted hjónanna hér skammvinn og síðla vetrar tók einn af nemendum skól- ans við kennslu, er auglýstir kennarar voru farnir af landi brott. Á þessu hausti er Erik fBidsted auglýstur sem aðal- íkennari skólans og meðkenn ari hans einn af félögunum í F.Í.LD. Af auglýsingum og myndskreyttum fréttatilkynn ingum má ætla að Erik Bid- sted sé aðalkennari skólans, en svo er þó ekki. Hans var aldrei von til landsins fyrr en í fyrsta lagi um áramót og öll kennsla þess vegna falin aðstoðarkennara hans, sem er að vísu liðtækur dansari og hefur sannað hæfni sína á sviði Þjóðleikhússins, en hef ur hvorki kunnáttu né reynslu til þess að kenna 300 nem- endum ein og óstudd. Þjóð- leikhúsið er með þessu athæfi uppvíst að auglýsingaskrumi fyrir listdansskóla sinn, sem því er með öllu ósamboðið. Það verða að kallast svik við nemendur skólans og forráða menn þeirra að auglýsa viður kenndan balletmeistara sem aðallyftistöng skólans og leið beinanda, þegar hans mun ekki njóta við nema skamma stund af mjög stuttu kennslu tímabili, sem þó er krafizt fullrar greiðslu fyrir. Þessu leyfir F.Í.LD. sér að mótmæla. F.Í.LD. álítur að Þjóðleik- húsið sé vettvangur, sem rétt ur sé til uppbyggingar á isl. iistdansflokki. Slíkum flokki verður aldrei lífsvon nema Þjóðleikhúsið ráði til sín ball ettmeistara, sem 'starfi við það allt árið og verði ekki í- þyngt um of við kennslu byrj enda, heldur geti nýtt krafta sína til þjálfunar í leikritum og söngleikjum, og jafnframt til sjálfstæðra listdanssýn- inga. Meðal nemenda skólans má nú finna hæfa nemendur sem geta orðið uppistaðan í sýningarfiokki leikhússins og undir handleiðslu Þjóðleik- hússins ætti að vera á föstum samningi og þar af leiðandi fastlaunaður. Einnig má vekja athygli á því, að auglýst hefur verið, að nemendur ættu að taka próf inn í skólann. en hingað til hafa börnin aöeins þurft að mæta með stundatöflur og ieikfimisskó til innritunar. Að lokum má geta þess að í sambærileeum skólum erlend is eru ávallt tekin próf á vor- in. í listdansskóla Þjóðleik- hússins hafa nemendur aldrei tekið próf í þessi átta ár sem hann hefur starfað. (Frá Fél. ísl. listdansara) Happdrætti Krabbameinsfélags Reykjavíkur Ef heppnin er meS. getið þér eignast Volkswagen- bifreið fyrir aðeins 25 krónur 6 aðrir góðir vinn- ingar, meðal annars kæliskápur. — Þtur, sem nafa hug á að taka m;ða í umboðssólu geri svo ve og snúi sér til skrifstofu félagsins i Bióðbankanum við Barónsstíg, sími 1-69-47. Leggjumst öll á eitt að vinna tmg á skæðasta sjúk- dómnum. — Sölubörn — þið getið líka hiálpað til með því að selja sappdrættisvniða féíagsins. Góð sölulaun. Krabbameinsfélag Reykjavíkur. Auglýsið í Tímanum ) ) ) ) ) ) ) ) ) > ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) f ) ( ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) r NÝ ENDURBÆTT SUNLIGHT SÁPA FREYÐIR FLJÓTAR SUNLIGHT sápa þv allt svo vel, en mildilega Þessi nýja Sunlight sápa, sem freyðir svo vel, fjarlægir ö!l óhreinindi án þess að þurfi að nudda. Allui þvottur yðar fær nýjan fagran blæ, þegar þér notið hina mildu Sunlight sápu. Sjáið einnig, hve mjúkai og faliegar hendur yðar haldast Biðjið um h’na mildustu þvotta- sápu, sem tii er — hma mildu Sunlight sápu. gjHrgrararafHiHiErarajHiafarajgfEjE Herbergi til leigu ásamt eJdunarpláss’ í Kópa vogi. Odýrt. E.nhver hús- hjálp ef‘ir sami- omulap’ — Uppl. i síma 13720 í kvöld kl. 5-7. 1 IdliHJHiaiHJHiHiHiHfBjajamHJHiaia fúlka óskast til heimilisstarfa. Sérherbergi Upplýsingar í síma 18300 frá kl. 9—5 e h. .-x »-V **V - -V •-V*"V .-V •v*v«v*v*v»v*v Lækningastofu hef ég opnað að Mánagötu i3. Sím 13884. — Viðtalstími kl. 17—18, laugardaga kl. 13—14. BJÖRN L. JÓNSSON. læknir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.