Tíminn - 16.11.1960, Page 13
13
T í MIN N, miðvikudaginn 16. nóvember 1960.
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
Næsti leiðbeiningabækllng [
ur Neytendasamtakanna fjall
ar um snyrtivörur eða nánar
tiltekið um andlitskrem og
k'rukkurnar undir þau. Eins
og áður hefur verið frá skýrt,
hafa Neytendasamtökin einka
rétt á birtingu niðurstaðal
gæðamats hliðstæðra sam- i
taka og stofnana erlendis, og|
eru þessar upplýsingar frá
rieytendasamtökum í Eng-
landi, en þær eiga nær jafn
mikið erindi til kanpenda þess
ara vara hérlendis sem þar.
BORGAR SIG AÐ KAUPA
HORMÓNAKREM ?
: Hormónakrem er mun dýr
ári vara en venjulegt and--
litskrem, en um ágæti þess
eða yfirburöi eru skiptar
skoðanir. Brezku neytenda-
samtökin ákváðu að gera til-
raun með hormónakrem og
buðy konum innan samtak-
anna að taka þátt í henni.
Af 3550 sjáJfboðaliðum voru
200 konur valdar, 100 yngri
en 45 ára og 100 eldri en 45
ára. Tilraunirnar stóðu í 6
vikur, og er gangur þeirra
rakinn ítarlega í bæklingi
Neytendasamtakanna og orð
rétt úr riti hinna ensku. Þótti
rétt að birta greinina í heild,
þar sem hún sýnir í senn ná
kvæmni og sanngirni í leit að
niðurstöðum, sem mættu
verða neytendum til leiðbein
ingar. Jafnframt verður
mönnum ljöst, hve mikil
vinna og kostnaður liggur að
baki athugun sem þessari. En j
það e.ru einnig ótrúleg verð- í
mæti í húfi fyrir neytendur.
Greinin ætti ekki að þykja
leiðinleg aflestrar og er hóf-
lega löng.
HVAR ER BOTNINN í
KRUKKUNNI?
Önnur neytendasamtök í
Englandi athuguðu að gefnu
tilefni, hve mikið magn af
andiitskremi væri í hinum
mjög svo mismunandi krukk
um, sem það er fáanlegt i.
Reyndist einnig svo, að um-
búðimar blekktu augað stór-
lega í mörgum tilfellum.
Gerðar voru nákvæmar mæl
ingar á innihaldi 13 krukkna
kunnra tegunda, og reyndist
það vera frá 74%—35% af
rúmtaki ytri krukku, — sem
augað sá. Þá var einnig verð
svo mismunandi, ef tekið var
tillit til þunga innihaldsins,
að þau dýpstu voru 5—7 sinn
um dýrari en þau ódýrustu.
í bæklingi þessum eru birt
ar niðurstöður af þessum at
hugunum ásamt þverskurðar-
mynd af krukkunum, fullu
vöruheiti og verði í Englandi.
Óheimilt er að birta nán-
ari upplýsingar annars stað
ar né nota niðurstöður þess
ara athugana í auglýsinga-
skyni. Bæklingurinn verður
sendur meðlimum Neytenda
samtakanna í næstu viku. Mót
taka nýrra meðlima er í síma
1 97 22 daglega kl. 1—4 og
5—7.
N eytenda&amtökin.
Frá héraðsfundi Borgarfj.prófastdæmis
Héiaðsfundur Borgarfjarðarpró-
fastsdæmis var haldinn að Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd sunnudaginn
11. sept. s. 1. Á undan fundi var
messa í Hallgrímskirkju. Héaðs-
prófastúr, séra Sigurjón Guðjóns-
son í Saurbæ, þjónaði fyrir altari,
séra Jón M. Guðjónsson á Akra-
nesi prédikaði. Prófastur gaf ýtar
legt yfirlit yfir störf kirkjunnar
í prófastsdæminu og flutti ávarp.
Tvö erindi voru flutt, séra Guð-
mundur Þorsteinsson á Hvanneyri
og Björn Jakobsson kennari í Reyk
holti. Séra Einar Gunnarsson í
Reykholti flutti fróðlega frásögn
um fer’ð sína og konu sinnar um
fjögur Evrópulönd í sumar.
Helztu ályktanir:
Héraðsfundur Borgarfjarðarpró-
fastsdæmis, haldinn í íSaurbæ 11.
Björn Jónsson
sept., 1960, skorar á Alþingi að
semja lög um sælgætissölur, þar
sem bönnuð sé sælgætissala í nánd
við skóla hvar sem er á landinu.
Héraðsfundur’inn lýsir áhyggjum
sýnum yfir opinberum skemmtun-
um í félagsheimilum víðsvegar um
landý sakir þess hve þar gætir
óreglu í vaxandi mæli.
Héraðsfundurinn beinir þeim til
mælum til Alþingis, að breyting
verð gjörð á lögum um veitingu
prestakalla, þannig, að prestaval
hverju sinni verði lagt í hendur
biskupi og viðkomandi prófasti.
Verði þeir sammála er kirkjumála
ráðherra bundinn af vali þeirra.
En verði þeir hins vegar ósammála
er úrslitavaldið í höndum ráðherra.
Þá sé hann skyldur til að skipa ann
,an þeirra tveggja, er hlotið hafa
meðmæli biskups eða prófasts.
(Framhald af 6 síðu).
um málum. Var s’æti hans ætíð vel
skipað, og starfaði hann ætíð við
bezta traust. Björn gat þó virzt
nekkuð einn á ferð og ollu því hin-
ir dulrænu hæfileikaj hans, hinir
irnsæju vitsmunir hans, en slíkum
nönnum er frekast gjarnt til að
líta fram hjá skrautsýningum
heimsins — og vita betur —. En
hvort sem hann var einn á ferð
eða blandaði geði við aðra, þá
horfði hann alltaf fram, og bjóst
s-tíð við hinu betra.
Björn var vegna vitsmuna smna
og mannkosta einn af merkustu
bændum austanlands á sínum tíma.
I-annig skipaði alþýðumenntaskól-
inn íslenzki Birni til rúms í þjóð-
lííinu, því ekki gekk hann á aðra
sl.óla.
Björn var tæplega meðalmaður
vexti, hvatur á fót og rösklegur,
enda hinn mesti starfsmaður og
jafnan heilsugóður. Hann var
skarpleitur, sviphreinn og svip-
síerkur, og hvarvetna var eftir
honum tekið. Hann var þrifnaðar-
bóndi og heimili hans hið mesta
þ> ifaheimili, þar naut Björn sín
bezt. Létt kýminn og glaður var
honn jafnan við samlundi manna,
og sómdi sér á hverium bekk er
hann skipaði, kurteis og orðvar.
Björn kvæntist árið 1896 Sigríði
Pálsdóttur frá Norður-Reykjum í
Reykholtshreppi, svstur Jónasar
Pálssonar oiganleikara í Winnipeg.
Var hún mikilhæf ágætis kona og
vel mennt og átti sinn stóra þátt í
þrifnaði Hámundarstaðaheimilis.
Hún lézt 1942. Fjögur eru börn
þeirra: Jónas skipstjóri nú . Hali-
fax, Páll, verkamaður í Reykjavík,
Hámundur Eldjárn vélstjóri í
Stykkishólmi og Þorbjörg búsett í
Reykjavík. Til hennar og manns
hennar Ólafs Jóhannessonar flutt-
ist Björn árið 1945. og fram úr því
seldi hann Hámundarstaði. Síðustu
árin dvaldi hann á Elliheimilinu í
Reykjavík og andaðist þar sem
fyrr segir, 1. okt. Hélt hann sálar-
kröftum +-il hinztu stundar og
íylgdist með öllu er gerðist í
gegnum blöð og útvarp.
Svo kveð ég þig Björn! Og
þakka þér fyrir gömul kynni og
samstarf og ég veit að hugsjónir
þinar rætast síðar.
Benedikt Gíslason
frá Hofteigi.
V*V»,V»V«V*-V*V«V*V«V«V»V«A.*V*V*V»V*V*V*X*'V.X ,
,*V*V*V*V*V*‘
Úreltar kvikmyndir
(Framhald af 11. síðu).
en hæstu hús stórborganria
og eftir því hás>alegar.
í JAPÖNSKU ævintýra-
kvikmyndinni Rodan flýgur
hin ægilegasta ugla úr 20
milljón ára gömlu eggi og
raunar fleiri en ein. Þess-
ar ægilegu skepnur fljúga
hraðar en hljóðið, leggja
borgir í eyði með vængja-
tíðar skordýr á stærð við
járnbrautarvagna, en þau
slætti sínum, skelfa allt og
alla með illum hjóðum og
eru í stuttu máli sagt hinar
herfilegustu plágur. Einnig
koma fyrir nokkur fyrri
? gleymast alveg í þeim fyrir
* gangi sem verður af yfir-
ferð uglanna og veit enginn
hvað af þeim verður.
BLAÐIÐ SEGIR menn
hafa fengið nóg af svo góðu
og biður ekki um meira.
Bílaeigendur
Haldið 'akkino á Dilnum
við.
Bílaspráufun
Gunnars Júlíussonar
B-göru 6 Biesugróf
Sími 32867
S0LGRJ0N
SKYR saman
Byrjlð dajlnn vel, neytlð grauts úr Sólgrjónum, eða hraerings, þvl SÓLGRJÓN
og skyr elga mjög vel saman. Ljúffengt bragð fínsaxaðral1SÓLGRJÓNA og
skyrbragðlð blandast S hinn' bezta hátt og hrarlngurlnn verður mjúkur og
bragðgóður.
SÓLGRJÓN Innlhalda rlkutega cggjahvituefnl, elnnlg kalk, JSrn og fosfór og
svo B-vIumln- allt nauðsynleg efnl llkamanum, fyrlr eldrl og yngrl.
Munlð að dlskur af SÓLGRJÓNUM og skyrl, hrært saman I harfilegum hlut-
föllum, hefir að geyma'/, af daglegrl eggjahvltuefna þörf barnslns.
NEYTIÐ SÓLGRJÓNA sem veita ÞREK og ÞRÓTT.
640 bls. fyrir aðeins 65 kr.
er kostaboð okkar þegar þérxgerizt
áskrifandi að
heimilisblaðinu SAMTÍÐIN
sem flytur ástasögur, kynjasögur, skopsögur drauma-
ráðningar, afmælisspádóma, viðtöl. Kvennaþættí Frevju
með Butterick-tízkusniðum, prjóna og útsaumsmynztr-
um, mataruppskriftum og hvers konar hollráðum — í
hverju blaði er skákþáttur eftir Guðmund Arnlaugsson,
bridgeþáttur eftir'ÁTna M. Jónsson, þáttunnn Úr ríki
náttúrunnar eftir Ingólf Davíðsson getraunn, krossgáta,
vinsælustu danslagatextarnir o m fl.
10 blöð á ári fyrir aðeins 65 kr.
og nýir áskrifendur fá einn árgana í kaupbæti ef ár-
gjaldið 1960 fylgir pöntun. Póstsendið í dag eítirfarandi
pöntunarseðil:
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að SAMTÍÐ-
INNI og sendi hér með árgjaldið 1960 65 kr (Vinsam-
legast sendið það í ábyrgðarbréfi eða póstávísun)
Nafn
Heimili
Utanáskrift okkar er SAMTÍÐIN Pósthólt 472, Rvík.