Tíminn - 01.06.1961, Page 12
Valur misnotafö vítaspyrnu — Skotarnir sýndu
góía knattspyrnu, en voru slakir meS mark-
skot. — Leika næst vií Akranes
Skozka liðið St. Mirren lék
sinn fyrsta leik hér í gær-
kvöldi og mætti þá gestgjöfun-
um, Val. Leikurinn var ekki
skemmtilegur fyrir áhorfend-
ur, þrátt fyrir ágæti Skotanna,
og spenna var aldrei í leikn-
um. Valsliðið átti fáar sóknar-
lotur, sem vit var í, en vörnin
var hins vegar nokkuð traust.
Veður var ekki sem bezt, þegar
leikurinn fór fram, strekkings-
kaldi að sunnan, og rigndi þegar á
leikinn leið. Gerði þetta að verk-
um að áhorfendur fóru í stórum
hópum af vellinum, áður en leikn-
um lauk, enda leikurinn í heild
lítilfjörlegur.
Skoruðu strax
Skotarnir byrjuðu mjög vel og
þegar nim mínúta var af leik tókst
þeim að skora. Vinstri útherjinn
Miller fékk knöttinn í vítateig, lék
liðlega á Árna Njálsson, sem alveg
misskildi stöðuna, og skoraði
Miller, án þess Björgvin Her-
mannsson markvörður Vals gæti
nokkrum vörnum við komið.
Leikur Skotanna úti á vellinum
var oft mjög glæsilegur, og þegar
svona tókst tU í byrjun, bjuggust
áhorfendur við, að þeir myndu
vinna með miklum mun. En þetta
varð þó ekki raunin. Þrátt fyrir
nær algera yfirburði skozka liðs-
ins tókst lcikmönnunum aðcins
að skora þrjú mörk í leiknum og
það eitt úr vítaspyrnu. Þeir fóru
mjög illa með góð tækifæri, og
reyndust litlir skotmenn.
Annað mark sitt í leiknum skor-
uðu Skotar á 37. mín., en þá
dæmdi dómarinn, Guðbjörn Jóns
son KR, vítaspyrnu á Val fyrir
hendi, sem Hans Guðmundsson
gerði sig sekan um í vítateign-
um. Miðvörðurinn tók spyrnuna
og skoraði með miklu öryggi.
Örfá upphlaup
Valsmenn voru heldur skárri
í síðari hálfleiknum og náðu þá
nokkrum upphlaupum, en flest
runnu út í sandinn áður en til
kasta skozka markmannsins kom.
Þó var dæmd vítaspyrna á
Skotana á 20. mín., sennilega fyr
ir hrindingu á Albert Guðmunds
son. Björgvin Daníelsson tók
vítaspyrnuna, en spyrna hans
var í nær mitt markið, og átti
hinn öruggi markvörður St.
Mirren, James Brown, létt með
1 að verja. Þar var farið illa með
gott tækifæri — sem segja má
að hafi verið nær hið einasta,
sem Valur fékk í leiknum.
Hins vegar var oft mikil hætta
við Valsmarkið — og reyndar
furðulegt, að Skotarnir skyldu
ekki skora fleiri mörk. Björgvin
Hermannsson varði oft með mikl-
um glæsibrag, og yfirleitt var
Valsvörnin traust og tókst að
bjarga liðinu frá stórtapi.
Þriðja mark sitt í leiknum skor
uðu Skotar á 32. mín. Árni Njáls
son hafði bjargað á línu, en knött
urinn fór fyrir fætur Bryceland
innherja og skoraði hann af stuttu
færi. Nokkru á eftir bjargaði
i Árni aftur á líníi — en síðast í
leiknum var völlurinn orðinn
mjög háll vegna rigningarinnar,
og erfitt fyrir leikmenn að at-
hafna sig.
|
Gott lið
Það er ekki vafi á því, að við
getum margt lært af skozku leik-
mönnunum. Liðið hafði mikla
yfirburði í leiknum, voru alltaf
einum fljótari á knöttinn en Vals-
menn, en hins vegar tóku þeir
ekki meira á enn þurfti til að
vinna auðveldan sigur. Það er
greinilegt, að liðið getur miklu
meira en það sýndi í gærkvöldi —
en til þess þarf mótstaðan að vera
meiri, en Valsmenn höfðu yfir að
ráða. Markmaðurinn Brown, sem
einnig er fyrirliði liðsins, virtist
mjög öruggur leikmaður, en sama
Markvörður St. Mirren, James Brown, ver vítaspyrnu Björgvins. Ljósmyndirnar frá leiknum tók tngimundur
Magnússon.
og ekkert reyndi á hann í leikn-
um, nema hvað hann varði víta-
spyrnuna á mjög sannfærandi
hátt. Vörnin var yfirleitt mjög
traust með miðvörðinn James
Clunie sem bezta mann, og komst
framlína Vals ekkert áleiðis gegn
henni. Framverðirnir byggðu vel
upp og var gaman að sjá hinn á-
gæta leikmann McTavish, §em áð-
ur fyrr lék með enska 1. déildar
liðinu Manch. City.
í framlínunni bar mest til að
byrja með á útherjanum Miller, en
Árna Njálssyni tókst að ná tökum
á honum, þegar líða tók á leikinn.
Allir leikmenn liðsins hafa yfir
mikilli leikni að ráða, og vonandi
fær maður betur að sjá hvað í
þeim býr í síðari leikjum heim-
sóknarinnar, en næsti leikur liðs-
ins verður á föstudag við íslands-
meistarana frá Akranesi.
Áhorfendur urðu fyrir miklum
vonbrigðum með framlínu Vals —
en vörnin stóð sæmilega fyrir sínu.
Björgvin Hermannsson var bezti
maður liðsins og varði markið af
miklu öryggi. Við mörkunum
þremur gat hann ekkert gert. Bak-
verðirnir Árni og Þorsteinn Frið-
I þjófsson náðu sér vel á strik, eink- ■ hann góðar sendingar. Kantamir
um Árni, eftir heldur slaka byrj- voru lítið notaðir, og Bergsteinn
un. Magnús Snæbjörnsson var Magnússon fór illa með það sem
sterkur á miðjunni — en einum honum var sent. Það var helzt að
um of og voru fjölmargar auka- Björgvin reyndi eitthvað að berj-
spyrnur dæmdar á hann fyrir ast — en hann hefur lítið annað
grófan leik. Ormar Skeggjason,1 en kraftinn, leiknina skortir að
fyrirliði Vals, vann mjög vel en mestu.
vantar meiri hraða. Framlínan var i
hvorki fugl né fiskur. Albert Guð-1 Dómari í leiknum var Guðbjöm
mundssyni tókst ekki að setja Jónsson og var með allt of mikla
neinn svip á hana, en af og til átti Ismámunasemi í dómum sínum.
orar ur vitaspyrnu annað St. Mirren.
Miöherji St. Mtrren, Kerrigan, kominn inn fyrir vörn Vals, en Björgvin varði spyrnu hans, enda vel staðsettur.
Útherjinn Miller sýndi skemmtilegan sóknarleik,