Tíminn - 01.06.1961, Page 14

Tíminn - 01.06.1961, Page 14
14 TIMINN, fimmtudaginn 1. júní 1960. Nice bjó sig undir kjöt- Jcveðjuhátið. Það lá í loftinu, *fevo að allir urðu varir við það, jafnvel áður en maður tófe eftir verkamannaskaran- um, sem vann baki brotnu við að koma upp ljóskerum, flaggstöngum og öðru skrauti á Masenatorginu og undir pálmatrjánum meðfram föt- unum, jafnvel áður en mað- ur' kom auga á risafígúrurnar sem komið var fyrir og skraut lýstar yrðu kvöldið, sem Kon ungur Kjötkveðjuhátíðarinn- ar kæmi til borgarinnar, áður en maður vissi að öll gisti- hús voru troðfull og það úði og grúði af ferðamönnum á Fromenade des Anglias. Fólk talaði hraðar og hló hærra. Kjötkveðj.uhátíðin var hátíð unga fólksins og allir urðu ungir á ný. Shlrley var ung, en hún hló ekki. Hún sat við blámál að borð fyrir utan Hotel Ruhl og starði á litla auglýsingu í Luhdúnarblaði. Andlit henn- ar var fölt og þreytulegt. Hún hló stuttaralega. „Þaö var nú það“, sagði hún upphátt við sjálfa sig. „Öllu lokið. Punkt ur.“ Ungur maður við næsta borð starði á hana. Hann átti því ekki að venjast að fólk talaði upphátt við sjálft sig, allra sízt ungar fallegar stúlk ur. Og þaö var enginn vafi á að hún var falleg, þótt hún væri föl og virtist þreytuleg. Hann sá hana fletta blaö- inu, en hún virtist ekki geta slitið sig frá auglýsingunni. Hún pahtaði meira kaffi og ungi maðurinn sá hana| hvarfla augunum niður eftir dálknum með yfirskriftinni „Ýmislegt" á forsíðu blaðs- ins. í þetta sinn lyfti hún höfði -og horfði forviða fram fyrir sig og aftur sagði hún upphátt: Merkilegt! Undarleg til- viljun! Og meira að segja í dag. Robert Reveneau. Ungi maðurinn ýtti stóln- um sínum aftur og hallaði sér að henni. — Má bjóða yður sígarettu? Og viljið þér ekki frekar tala við mig en spjalla við sjálfa yður? Mér finnst það afleitur ósiður. — Ó. Hún leit snöggt upp. Og þá sá hann að hún hafði heiðblá augu. Ekki gráblá — heiðblá. . — Afsakið, hvaö. sögðuö þér? Jennifer Ames: Grímuklædd hjörtu i. Hann ræskti sig. — Eg spurði hvort þér vildur siga- rettu. Og svo leyfði ég mér að spyrja hvort þér vilduð ekki frekar tala við mig en sjálfa yður. — Eg vissi ekki ég hefði sagt það upphátt. Eg sá bara dálítið í blaðinu. Eg varð mjög undrandi. — Eg er búinn að lesa The Times upp til agna og ég sá ekkert sem vakti furðu mína, sagði hann og brosti. — Það var persónulegs eðl- is, sagði hún kuldalega. Og hún leit enn einu sinni á til- kynninguna eins og hún gæti varla trúað eigin augum. En það var engin æsifrétt. Aðeins stutt klausa um að Reveneau gi-eifynja tæki á móti gestum á Chateau Trione í nágrenni Nice, sem hefðu áhuga á að læra frönsku eða þyrftu að hvilast eftir veikindi. — Þér hafið ekki svarað hvort þér vildúð reykja? sagði hann og bætti við: Þær eru amerískar. Hún leit aítur á hann. Hann var geðfelldur, þrekinn, og hún heyrði á málhreim hans að hann var ameríkani. — Þökk fyrir. Eg myndi þiggja eina. Hann kveikti í fyrar hana. — Má bjóða yður kaffi? sagði hann og leit á tóman stólinn við borðið hennar. Hún jánkaði og honum virt ist hún gera það vegna þess hún vildi tala við einhvern um eitthvað annað en þaö, sem hélt huga hennar föstum. — Eruð þér nýkomnar? Eg hef ekki séð yður fyrr, sagði hann. Hún leit tortryggnislega á hann. — Eg kom frá París í kvöld. — Verðið þér lengi hér? — Já. Cleo frænka . frú Hall, frænka mín, pantaði herbergi fyrir mig. — Þér eruð heppnar aö eiga Cleo frænku að. Hann leit á ríkmannlega framhlið gisti- hússins. — Það eru ekki marg ir sem geta leyft sér að búa á slíkum stað. — Frænka mín er gift bankastjóra í París. Eg átti aö vera hj á þeim en .... hún; þagnaði. Hann tók eftir þreytusvipnum á andliti henn ar. Ósjálfrátt fann hann að| hún þyrfti á hjálp að halda. Hann sagði kæruleysislega: — En Cleo frænku fannst þér ættúð að fara til Nice? — Eftir fáeina daga hefst — Kjötkveðjuhátíðin? — Kjötkvðjuhátíðin? — Já, hafið þér ekki séð að borgin^skrýðist hátíðabún ingi? — Hún hristi höfuðið. — Kjötkveðjuhátíðin í Nice er raunveruleg hátíð. Ljósa- skreytingar, skreyttar götur, allt sem heyrir til. Eg vonast til að fá efni i grein, sagði hann. — Grein? Eruð þér blaða- maður? Hann brosti glaölega. — Bæði já og nei. Sem stendur er ég til reynslu. — Nú? — Eg settist hér að eftir striðið og las frönsku. Þegar ég kom heim aftur kenndi ég í nokkur ár, en komst loks að þeirri niðurstöðu að það var harla vanþakklátt verk að troða frönsku innjí krakka orma, sem alls ekki hlustuðu á hvað ég sagði. Og þegar ég frétti að Daily Age vantaði fréttaritara i Frakklandi, þá sótti ég um starfið. Þeir sögðu mér að vera á kjötkveðjuhá- tíðinni og ná í eitthvaö mat- arlegt að skrifa um. — Og hafið þér haft heppn ina með yður? Hann þagði um stund. — Eg veit það ekki fyrir víst. í kvöld hitti ég mann á veitingahúsi, sem sagði mér f/á nokkru, sem gæti orðiö stórkostleg grein, en þaö er að minnsta kosti ekki kjöt- kveöjugrein. — Nújá, sagði hún, en hlustaði ekki á. Hún var með hugann allan við tilkynning una. Hvað oft hafði hún heyrt Robert Reveneau tala um móður sína, greifynjuna..... Hann tlaði mjög hlýlega um hana. „Það er aldrei að vita upp á hverju mamma getur fundið. Hún var leikkona þeg ar hún kynntist pabba. Hún var slungin að ná í hann. Hún átti ekki grænan eyri °n pabbi hafði titil. Hann var forríkur þá. Það var ekki fyrr en eftir stríð, að fjárhagurinn fór að rýrna. Hann hafði brosað dapurlega, en heillandi. Mamma finnur alltaf upp á einhverju sem hægt er að græða á. Stund- um breytir hún Röllinni okk- ar í hótel eða hlöðunni i leik hún eða hefur námskeið í frönsku og matreiðslu fyrir ungar stúlkur. Þú ættir að vita, hvað sumar hugmynd- irnar eru fáránlegar!" Eg held ég hafi verið hrif- in af honum, hugsaði hún með sér. En ég var bara sautj án ára, það fylgir þeim aldri að Vcrða ástfangin. En hún vissi að Robert Reveneau hafði fleira til brunns aö bera en myndarlegt útlit. Hann var hugrakkur. Hún hafði séð þess mörg merki í hinum þremur skuröaðgerðum, sem hann hafði gengist undir. Hann hafði svo undursamlegt skap. Honum hafði meira að segja tekizt að fá íöður henn ar, hinn fræga skozka skurð- lækni, til að hlæja og það var vissulega ekki á allra færi. Hafði hann líka verið hrifinn af henni? Um tíma hélt hún það, en hann sagði aldrel neitt. Og þegar hún hugsaði málið löngu síðar, komst hún að þeirri niðurstöðu að hann hefði aðeins viljað sýna henni þakklæti fyrir alla þá umönn un hennar í langri sjúkralegu hans. Kannski líka af því að faðir hennar, sem hafði hjálp að honum og gert honum fært að hreyfa sig á ný. Faðir hennar hafði stundum talað um Robert Reveneau áður en hann lézt. „Daginn, sem flugvélin steyptist niður í grennd við húsið okkar og þeir báru hann UTVARPID Fimmtudagur 1. júní. 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 12.30 Útvarp frá guðsþjónustu í Bcsstastaðakirkju, að viðstödd um Noregskonungi og íslenzku forsetahjónunum. (Biskup ís- iands, herra Sigurbjörn Einars son, predikar; séra Garðar Þor steinsson prófastur þjónar fyr ir altari. 13.10 Tiikynningar. 13.30 „Á frívaktinni", sjómannaþátt ur (Kristín Anna Þórarinsd.). 15.00 Miðdegisútvarp. 18.30 Tónleikar: Lög úr óperum, 18.55 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.15 Norsk tónlist: a) „Galdreslátten", sinfónískur dans með passacaglíu eftir Harald Sæverdu (Fílharm- oníuhljómsveitin í Osló leik ur; Öivin Fjeldstad stj.). b) „Karnival í París" op 9 eft ir John Svendsen (Konung- lega óperuhljómsveitin í Covent Garden leikur John Hollingsvorth stj.).' 20.35 Úr Heimskringlu (H. Hjörvar). 20.55 Tónleikar: Valter Gieseking leikur lýríska píanóþætti eftir Grieg. 21.15 Erindi: Framkvæmdir Frakka í Alsír (Eiríkur Sigurbergsson viðskiptaf ræðingurj. 21.40 fslenzk' tónlist; Lagaflokkur eftir Skúl,a Halldórsson við ástarljóð Jónasar Hallgrímsson ar (Þuríður Pálsdóttir, Krist- » inn Hallsson og hljómsveit Rík isútvarpsins flytja, Hans Ant- olitsch stjórnar). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Úr ýmsum áttum (Ævar R. Kvaran leikari), 22.30 Sinfónískir tónleikar: Sinfónia nr. 2 i B-dúr eftir Johan Svendsen. (Filharmoníusveitin í Osló leikur; Odd Gruner- Hegge stjórnar). 23;00 Dagskrárlok; EIRÍKUR VÍÐFFÖRLI Hvíti fcr.af n i n n Andartaksstund starði Eiríkur á lokaðar dyrnar. Svo tók hann að vclta því fyrir sér, hvernig hann gæti flúið, svo hann og Elín slyppu við að verða drepin. — Flýttu þér, settu eitthvað fyrir dyrnar, ég verða að reyna að kom ast út um gluggann, sagði hann við Elínu, sem strax tók að draga húsgögnin fram að dyrunum. Hann leit sem snöggvast á tinda brjóstvarnarinnar, svo gerði hann reipið, sem hann hafði tekið með sér í öryggisskyni, fast í einn tind- inn og sveiflaði sér út. — Vertu ekki hrædd, barnið gott, ég kem aftur og sæki þig. Vertu bara þol- inmóð. Hvíti hrafninn er særður, en honum líður vel og hann er i öruggum höndum. Þetta voru hans síðustu orð, áður en hann sveif' aði sér burtu. Um leið opnuðust dyrnar, og sú gamla kom inn í fylgd með þremur hermönnum. — Þarna er hann, hann er að flýja, flýtið ykkur að skera á kaðalinn, fíflin ykkar!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.