Tíminn - 09.07.1961, Blaðsíða 11

Tíminn - 09.07.1961, Blaðsíða 11
• T f MINN, sunnudaglnn 9. júlí 1961. 11 Þetta var hann og enginn annar. Hún kom auga á hann um leið og hann birtist í bjarmanum frá götuljósker- ‘ inu. Hinrik að bíða eftir strætis- vagni! hugsaði hún með sér. Vagninn var ekki sjáanleg- ur. Hún dró sig í hlé, vildi ekki verða á vegi hans, en þó.... hana langaði vissu- lega til að rétta honum hönd- ina og tala við hann. Það var hellirigning. Strætisvagninn kom í ljós, en hann var full- 1 skipaður og ók fram hjá. Nú kom hann auga á hana. — Lísbet! sagði hann Það var undrun í rödd hans. Eins og ósjálfrátt gekk hún í átt til hans og rétti honum hönd- j ina. — Góðan daginn, sagði hún, en það var eitthvað fjarrænt við ávarpið. Hún brosti til hans, eins og til að bæta upp þessa kuldalegu kveðju. — Það var slæmt, að vagn- inn skyldi ekki stanza, sagði hann, en orðin voru ekki í beint sannfærandi. — Já, sagði hún. Stattu h*ma undir regnhlífinni hjá mér það getur orðið bið á því, jp ð næsti vagn komi. það. þekki ég. ' — Jæja, svo að þú þekkir það. Notar þú oft þennan vagn? spurði hann um leið og hann smeygði sér undir regn- l hlífina. 1 — Aðeins á miðvikudags- kvöldum. Þá fer ég á nám-, skeið. Annars bind ég inni bækur í tómstundum, en af þvl hef ég bæði gagn og gam- an, og nokkrar tekjur. — Einmltt það, sagði hann. Finnst þér það skemmtilegt? Haiyi ætlaði að segja eitt- i livað .fléira, en varð orðfall. — Ilyers vegna notar þú ekki.þlnn eigin vagn i þessu veðri? — Konan mín þurfti að nota hann, svaraði hann hálf viðutan. — Hún, hugs^ði Lísbet. — Hún, sem þröngvaði sér inn í Iíf okkar og tilveru, einmitt er við vorum að yfirstíga erf- iðleikana fjárhagslega og allt virtist leika í lyndi. Hún birtist eins og hungruð Ijón- ynja, með reistan makkann og hárbeittar rándýrstennur og þóttist geta hremmt hvaða bráð, sem væri.... líka Hin- rik. Lísbet gleymdi aldrei bréf- inu, er hún skrifaði henni, þar sem hún sagði meðal ann- ars: — Látið manninn minn í friði. ef þér eruð ekki alveg samvizkulausar. -Látið heim- ilið okkar í friði. börnin okk- ar og allt, sem okkur er helg- ast. Finnið þér yngrj mann við yðar hæfi Það fylgir því engin gæfa að ánetja eigin- rnann annarrar konu. Þannig skrifaði hún í ein- feldni sinni og örvæntingu og leitaðist þannig við að snerta við sómatilfinningu hennar, rf nnkkur væri. Þetta oinskáa bréf hennar hafði engin áhrif. bað var eins og olía á eld. — Þau hjónin töluðu lítið saman. Hinrik var að eðlis- fari ósjálfstæður, svo að hún gat ekki horft upp á hann striða við sinn innri mann. Að halda í þann, sem óskaði eftir frelsi, gat aldrei leitt til hamingju, svo að hún gaf eftir skilnaðinn. Hún hafði SUMARREG börnin og meðgjöf með þeim. | Hinrik gerði sér rangar hugmyndir um Hönnu sem húsmóður. Hún vildi lifa sínu fyrra lífi og ekkert leggja í( sölurnar, allt átti að koma j af sjálfu sér. En Lísbet lét ekki bugast. Nú voru börnim komin á legg og farin að ganga í skóla. Hún vann sérj talsvert inn og var farin aðj líta bjartari augurxi á fram- tíðina. Hún var héldur ekki nema um þrítugt, hraust og starfsglöð og börnin voru hennar augnayndi. Um þetta hugsaði hún, er hún stóð við hlið hans undir regnhlífinni. Hún gaut til hans hornauga. Já, Hanna hafði vagninn. Þar var þenni rétt lýst. En hvað kom þetta henni sjálfri við Nú veittj hún þvi athygli, að það vantaði hnapp í frakk ann hans. Veslings Hinrik! Gat nú ekki þessí fyrrvprandi skátadrengur fengið sér nál og spotta úr saumakörfu kon unnar sinnar En Hanna og saumakarfa átti ekki saman, nær væri að nefna nafn henn ar í sambandi við sígarettur og annan munað — Hvert- ertu annars að fara?, spurði hún. — Eg ætlaði að skreppa heim og laga mér tesopa. Eg kem af fundi og mér er hroll- kalt. — Þú getur fengið te heimá hjá mér, sagði hún með tals- verðu stórlæti í röddinni. Börnin eru sofnuð, en þú get- ur samt litið til þeirra, það er nokkuð síðan þú hefur séð þau. Hinrik hafði af og til farið með börnin í bíó og á eftir gefið þeim ís og súkkulaði. Aldrei höfðu þau viljað fara inn í þetta nýja heimili hans. Henni fannst ástæðulaust að láta börnin slíta sambandi við föður sinn, þau höfðu ánægju af því og hann að sjálfsögðu ekki síður. Nú kom strætisvagninn loksins. Þau þrengdu sér inn í hann. Það fór um hana und arleg tilfinning að standa svona nálægt honum Hún starði sem í leiðslu á rauðan dömuhatt fvrír framan sig. Hvorugt sagði orð en fegin var hún. er þau stigu af vagn jnum íbúðin var hlý og notaleg. Hún setti ketil yfir gasið og skar brauðsneiðar. — Þetta glóðsteikjum við, sagði Hinrik Hann tók brauð ristina frá sínum vanalega stað og gerði brauðinu til góða. Nú var eins og æðri öfl hefðu lyft þeirri huliðsblæju í milli þeirra, sem hafði verið i mörg ár. Þau komu sér fyrir í borðkróknum við teborðið og opnuðu útvarpið. Nú- sátu þau undir daufri birtu frá gólflampanum, ann- að ljós var ekki í stofunni. — Alltaf er jafn vistlegt hjá þér, og þú hefur fengið þér nýja gólfábreiðut, — og nú brosti hann til hennar. Þau höfðu aldrei efni á að veita sér slíkan munað. Hún útbjó ábreiðu á gólfið — „í gamla daga“ — úr tusk- um og smárenningum til hinna mestu óþæginda fyrir börnin, sem voru að festa fæt urna í þessu og um leið að kútveltast. Hún var búin að afla sér ýmissa hluta í heimilið til þæginda og yndisauka. Þetta hefðu þau allt getað átt sameiginlega. ef forsjón- in hefði ekki leikið þau svo grðtt Henni varð hugsað til Allur bærinn var að fara \ kaf - blátt áfram að drukkna. þess, beiskjublandið samt, að fyrir þessu hefði hún ein unnið, án aðstoðar hans. En slíkar hugsanir véku frá henni, er henni varð litið til hans og hún las niðurbældar tilfinningar hans og hugsanir úr svip hans. Svo kom það, þetta sem hún hafði alítaf vonazt eftir og látið sig dreyma um öll þessi löngu og oft á tíðum erfiðu undanfarin fjögur ár. — Lísbet! Við vitum það bæði, að þetta átti ég aldrei að gera, og nú horfði hann beint í augu hennar. — Þetta var hrein og bein fávizka, frumhlaup frá því fyrsta. Við Hanna hefðum átt að vera skilin fyrir löngu. Hún leit til hans og spurði eins varfærnislega og henni var unnt: — Hvers vegna hafið þið ekki slitið samvistum? — Auðvitað mælir allt með xþví, en það er ekki svo hægt urri vik. Hún getur ekki alið önn fyrir sér, og hver veit, hvað hún myndi taka til bragðs. Hanna! og aftur Hanna.. Hún er full sjálfselsku og eigingirni, hugsaði hún. Nú gat hún ekki lengur á sér setið og sagði: — Þú sem lögfræðingur, veizt ósköp vel, að eftir ákveðinn og takimrk aðan tima, getur hún ekki neitað þér um skúnað og. ... — Það veit ég. tók hann fram í fyrir henni og nú horfði hann i gaupnir sér Er hann leit unp, skein ein lægnin úr augum hans Nú sá hún, að hann elskaði hana enn þá og hafði gert öll þessi ár. — Þú gazt hindrað þetta, Lísbet, með allri þinni stað- (Framhald á 13, siðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.