Tíminn - 09.07.1961, Blaðsíða 14

Tíminn - 09.07.1961, Blaðsíða 14
14 T í MI N N, sunnudaginn 9. júlí 1961. vægi í allri meðhöndlan. Þaði væri mikil ábyrgð því sam-1 fara að geta börn. Barniðl væri guðs gjöf. Barn yrði þvíj aðeins til, að drepið væri ál dyr lífsins og þegin gjöf al- mættisins. Slík almættisgjöf i væri barnið og foreldrar þess vígðir til samhjálpar um upp- eldi þess. Hjónabandið væri eina færa leiðin og um leið sjálfsagðasta og eðlilegasta: leiðin svo að barnið nyti sinl og fyndi sjálft sig, yrði að vönduðum manni og góðum. Nú væru þau Ásrún foreldrar þessa litla sveins, sem skírð- ur var þá um daginn, viður- kenndar sóma- og dugnaðar- manneskjur. Þess vegna bæri að leggja fast að þeim að stíga sporið til fulls. Nú stæði að- eins á honum., Hjónaband þeirra myndi ekki einasta gefa þeim þetta eina efnis- barn, heldur fleiri, og bless- un guðs myndi ríkja yfir sam- hjálp þeirra og velfarnaðar verða hlutskipti þeirra. Það kvaðst presturinn vera sann- færður um. — Ég á ekkert til, sagði Óskar. — Og ég ber ekki snefil af elsku til Ásrúnar. Þegar þetta tvennt fer sam- an, er hjónaband útilokað. — Sjálfsagt er að athuga þetta hvort tveggja, sagði prestur. — Þér eigið ekkert til. Svo er það. Þér eigið þó heilbrigði og kjark, manndóm, verk- lagni og andlegt þrek fram yfir hvern meðalmann. Ég veit ekki hvað eign er, ef þetta heyrir ekki undir þann lið. Sá, sem býr yfir þessari andlegu reisn, ber auðæfin í sjálfum sér. Hann sér til lands og nær landi, hvernig sem örlögin geysast. Og svo þegar þar við bætist, að hægt er að ganga til liðs við þessa góðu eðliskosti yðar, þá er leiðin rudd. — Hvað eigið þér við? spurði Óskar. — Ég á við það, sagði prest- ur, — að jörðin Sjávarbakki er nú laus úr ábúð, við frá- fall Jóns gamla. Og ég á ráð á jörðinni, þar sem hún er kirkjujörð. Hún stendur yður til boða. Jörðinni fylgja tvö og hálft kúgildi, það eru 15 ær framgengnar. Dálítill reki til húsabóta er á jörð- inni til hagsbóta og þér eruð hagleiksmaður; hrognkelsa- veiði árviss og fiskur flest' sumur. Mér er sagt. að Ásrún J eigi fimm ær. Hrossin á húnj tvö, þó að annað sé tryppi og þá innstæðu í búinu hér, seg- ir hreppstjórinn, að hann fær ykkur kú í vor, ef þið setiið saman bú, og 15 ær ætlar hann að leigja ykkur í vor, og eigið þið að skila þeim á næstu tíu árnu bannig: Eftir eitt ár einni á. Eftir tvö ár tveimur ám og þannig áfram. Einni á annað áriðtveimur ám hitt, unz öllum er skilað eft- ir 10 ár. Enga leigu greiðið yður, hafi I annan tíma boð- izt það hér á ísiandi, sem nú opnast yður. Takið eftir: Heimili og sjálfsforræði með bakhjarli ekki ómerkilegri en sóknarprestinum og hrepp- stjó~a sveitarinnar. Þér verð- ið innan lítils tíma merkur bóndi hér i sveitinni. Það er trú mín og sannfæring. — Gefið mér umhugsunar- frest, sagði Óskar. BJARNI ÚR I * '* 'IRÐI: AST I MEINUM ykkur saman. Eg er viss um það. ' — Þið séra Þórður hugsiö I báðir eins. En þið þekkið mig , ekki. Eg get ekki hugsað til •að lifa í ástlausu hjónabandi. Siíkt hjónaband myndi óefað leiða þær hörmungar yfir . heimili mitt, sem Ásmundur I tclur svartasta blett heimilis- | lífsins. hórdóm, sem húsbónd- linn væri valdur að. Eg met boð ykkar mikils. Og nú kem ég með gagntilboð. Fj? tek boði ykkar um jarðnæðið, og reisi í vor bú með Ásrúnu. Eg skal vera góður heimilisfað- ir. Og undir eins og ég finn, að við samþýðumst skal ég ganga að eiga hana. Þá hefi ég fundið það, sem þið teljið. að liggi við dyrnar. Þá hefi ég fxmdið sanngildi þeirra orða, sem þið hafið mælt. Þá geng ég inn í hjónabandið hugheill og óskiptur. Slíkt hjónaband þrái ég. Annars konar hjónaband er ekkert líf og ekkert vit heldur. Ásmundur gekk fast að Óskari, þar sem hann sat á 17,30 þig með ánum. Leigurnar eru uppbót á kaupi Ásrúnar. Og meira hefi ég í bakhöndinni, Óskar minn. Jón gamli átti hér engan náinn erfingja. Við Ásmundur höfum keypt bú hans allt. Yður skal nú gef- inn kostur á því úr búi Jóns, sem bér æskið að fá, með við- ráðanlegu veröi. Nefni ég þar sem dæmi: Fi'Ushesta, reiðver, búsáhöld, bátinn, netin og allt annað, sem yður leikur hugur á að eignast. Skilyrði okkar er aðeins eh,f: Þér kvongizt Asrúnu. Húsbóndi yðar skoðar hans fósturbarn sitt. Hann ber traust til yðar. Og hann vill að þér skiliið vel við heimili sitt. Og eftir það sem þegar er skeð hér; skiljið þér því aðeins vel við heimili hans, að þér kvongizt Ásrúnu. Þér segist ekki elska hana. Það er mikill skaði. | Ásrún er góð stúlka og hún býr yfir miklu, engu síður en þér. Og ég er viss um, að það lærið þér að meta við nánari kynningu. Þegar þið farið samhuga að stunda sameigin- lega bú, kviknar ástin. Barn- ið mup og leiða ykkur sam- an. Eg get ekki trúað því, að jafn gerfilegur piltur og þér eruð, viljið ganga laus- unginni á hönd. Nú standið þér á vegamótum. Mikilvæg- um vegamótum'. Eg efast um. að ókunnugum pilti, sem Presturinn og hreppstjór- inn horfðust í augu. Það var stutt þögn. Svo rauf hrepp- stjórinn þögnina: — Þú þarft engan umhugs unarfrest, fram yfir þann frest, sem þegar er veittur. | í hálft ár eða lengur hefurj bú vitað hvert stefndi hér. Þú, hafðir mök við Ásrúnu, sem! ég tel standa börnum rm'num 1 næst allra vandalausra. Það hefur ekki skeð hér á Sjónar- hóli síðan ég tók hér við bús- forráðum, að hér hafi fæðst lausaleiksbarn, sem stofnað var til á mínu heimili, öðru- vísi en undanfari giftingar. j Það mun verða þér dýrt, ef| þú hyggst innleiða hér ósiði. En hverfum frá þvi. Það eina, sem stóð í veginum var jarð- næði og áhöfn, sem hæfði lífs- orku þinni og dugnaði. Nú er úr því bætt með tilstilli okk- ar séra Þórðar. Því áttu hik- laust að segja já. — En Ásmundur, húsbóndi góður. Eg met þig mikils. En finnst þér í sannleika sagt ráð að knýja mig til að kvong- ast stúlku, sem ég elska ekki? — Já, Óskar. Þú ert mann- tegund, sem ekki bregzt. Þeg- ar þú ert genginn í hjóna- band með Ásrúnu, muntu kannast við skyldur þínar og haga þér samkvæmt því. Og skyldleiki sá, sem býr í fari ykkar Ásrúnar, mun leiða Sunnudagur 9. júlí: 8,30 9,00 9,10 18,30 19,00 19,20 19,30 20,00 20,40 21,25 21,40 22,00 22,05 23,30 Barnatími (Anna Snorradóttir) a) Saga úr sveitinni: Haíga- mýsnar í höll sumarlandsins. b) Lárus Pálsson leikari les þulu eftir Jónas Árnason. c) Verðlaunagetraun: Lag, ljóð og höfundur. d) Fimm mínútur með Chopin. e) Upplestur: Stuart litli. Tónleikar: Suisse-Romande hljómsveitin leikur vinsæl lög. Victor Olof stjórnar. Tilkynningar. Veðurfregnir. Fréttir. „í kjölfa.r Kólumbusar", sam- felld dagskrá um Vestur-lnd- íur, tekin saman af Benedikt Gröndal ritstjóra. Kvöld með þýzkum ljóðasöngv urum (Þorsteinn Hannesson óperusöngvari). Upplestur: Steingerður Guð- mundsdóttir leikkona les ljóð eftir Bjarna Thorarensen, Guðmund Guðmundsson, Davið Stefánsson og Einar Benedikts son. Tónleikar: Ungverskir dansar eftir Brahms. — Fílharmoníu- sveitin i Berlín lelkur. Paul van Kempen stjórnar. Fréttir og veðurfregnir. Danslög. Dagskrárlok. 11,00 12,15 13,00 14,00 15.30 16.30 Létt morgunlög. Fréttir. Morguntónleikar: a) Jiri Reinberger leiku.r tvö orgelverk eftir Bach: 1) Pre- ludia og fúga í Esdúr. 2) Sálmaforleikur (Christ lag in Todesband). b) Mormóna „Tabernacle‘‘-kór inn syngur andleg lög. Stjórn- andi: Richard P. Condie. — Philadellphiahljómsveitin leik- ur með undir stjórn Eugenes Ormandy. c) Frá tóniistarhátíðinni í Prögu í maí 1961: FiÖlukon-l sert i a-moll op. 53 eftir Dvorák. — Josef Suk og tékk- neska filharmoníuhljómsveitin leika. Karel Ancerl stjórnar. Messa í Hallgrímskirkju. (Prestur: Séra Jakob Jónsson; organleikari: Páll Halldórs- son). Hádegisútvarp. Frá landsmóti UMFÍ á Laug- um í Suður-Þingeyjarsýslu. Miðdegistónleikar: a) Sónata í G-dúr op. 37 eftir Tsjaikovski. Sviatoslav Richter leikur á píanó. b) Atriði úr óperunni „Tosca“ eftir Puccini. — Zinka Milan- ov, Jussi Björling, Leonard Warren og fleiri syngja með kór og hljómsveit Rómaróper- unnar. Erich Leinsdorf stj. Sunnudagslögin. Veðurfregnir. Mánudagur 10. júlí: 8,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisútvarp. 12.55 „Við vinnuna": Tónleikar. 15,00 Miðdegisútvarp. 18.30 Tónleikar: Lög úr kvikmynd- um. 18.55 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnk. 19J30 Fréttir. 20,00 Um daginn og veginn (séra Gunnar Árnason). 20.20 Einsöngur: Guðrún Á. Símon- ar syngur íslenzk og erlend lög. 20,45 Samtalsþáttur: Hugrún skáld- kona ræðir við Höllu Bach- mann kristniboða á Filabeins- ströndinni. 21,00 Tónleikar: Konsert í C dúr fyrir flautu, hörpu og hljóm- sveit K299 eftir Mozart. — Camillo Wanausek leikur á flautu, Hubert Jellinek á hörpu með Pro Musica kamm- erhljómsveitinni í Vínarborg. 21.30 Útvarpssagan: „Vítahringur“ eftir Sigurd Hoel XVHI. (Arn- heiður Sigurðardóttir). 22,00 .Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Um fiskinn (Tho.rolf Smith fréttamaður). 22,25 Kammertónleikar: Frá tónlist- arhátíðinni í Björgvin í maí s. 1. a) Sónatína fyrir píanó op. 35 — eftir Knut Nysted. — Finn Nielsen leikur. b) Divertimento fyrir flautu eftir Öistein Sommerfeldt, — Per Öien leikur. c) Dúó fyrir fiðlu og selló eft- ir Johan Kvandahl. — John Brodahl leikur á fiðlu og John Mönk á selló. 22.55 Dagsikrárlok. FTRTRUR VÍÐFFÖRLI Hvíti h r a f n i n n 133 Eiríkur átti fullt í fangi með að snúa sér ekki við og fara mönnum sínum til hjálpar, en hann vissi, að ef hann átti að ná Hvíta hrafn- inum, yrði hann að gera það nú begar. Og léttur eins og hind baut hann upp tröppurnar, sem lágu upp i turninn. Hann hugsaði með sér, að bezt væri nú að rekast á Morkar, og brosti með sjálfum sér, þegar honum varð hugsað til þess, hvað hann ætlaði að gera við hann. Allt í einu heyrði hann til ferða varðar, og dró sig í hlé inn í skugga. — Hver er þar? kallaði vörðurinn. Eiríkur lét skrjáfa i sér, og vörðurinn gekk í gildruna með þvi að koma nær.1 — Ef þú lætur nokkuð í þér heyrast, ertu dauðans matur, hvíslaði Eiríkur og greip kverkataki á manninum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.