Tíminn - 11.07.1961, Side 3

Tíminn - 11.07.1961, Side 3
1 TÍMINN, þriðjudaginn 11. júlí 1961. 3 Tekið á móti Gagarín eins og þjóðhöfðingja Víðtækar öryggisráðstafanir vegna komu hans á sovézku vörusýninguna í Lundúnum í dag I meðhöndlunar vegna. stöðu sinnar NTB—Lundúnum, 10. júlí. Athygli vekur, hve brezk stjórnarvöld gera víðtækar öryggisráðstafanir, vegna komu sovézka geimfarans Júrís Gagaríns til Lundúna á morgun. Scotland Yard hefur gert> álíka miklar öryggisráð- stafanir og þegar þjóðarleið- tcgar koma í opinberar heim- sóknir til höfuðborgarinnar, þótt Gagarín eigi ekki beina kröfu til neinnar sérstakrar Sameiginleg þjóð- stjóm i Kongó NTB—Briissel og Leopoldville, 10. júlí. í fréttum belgísku útvarps- stöðvarinnar í Leópoldville sagði í dag, að kongóska mið- stjórnin í Leópoldviile og bar- áttustjórn Lúmúmba-sinna í Stanleyville undir forystu Antoine Gizenga hafi orðið ásáttar um að mynda sam- eiginlega þjóðstjórn í Kongó. Samkvæmt fréttastofufregn- um verður skipað 32—35 manna ríkisráð og vararíkis- ráð, en tvær til þrjár ríkis- ráðsstöður verða ætlaðar full- trúum Katanga. Nánar verð- ur greint frá skipun stjórnar- innar á morgun eða hinn dag- inn, segir í fréttinni. Ekki er ákveðið, hver skuli verða for- sætisráðherra, en fréttamaður belgíska útvarpsins telur iðn- aðarsérfræðinginn Cyril Ad- oula líklegan í þá stöðu. * Samtímis var frá því skýrt í' i Leópoldville, að Tshombe, sjálf- skipaður vatdsmaður í Katanga, | héldi fast við þá afstöðu sína, að nauðsynlegt sé, að kongóska þjóð þingið komi tafarlaust saman til funda. Leggur hann megináheralu á þafí^ að nýr fundur æðstu manna alls landsins verði haldinn áður en samkomutími þingsins verur boðaður. Mahmoud Khiari frá Túnis, sem Hammarskjöld, sendi sérstaklega til þess að kynna sér málin í Kongó, sagði á blaðamannafundi í Leópoidville í dag, að ekki væri hann fullkomlega ánægður með viðræður sinar við Tshombe i Bl- •isabethville um helgina. Fréttastofan AFP segir í dag, að annar sendifulltrúi S.Þ., O’- Brien, hafi farið til Norður-Kat- anga til þess að eiga viðræður við leiðtoga Balúbamanna. Hann mun stöðugt verða um- kringdur brezkum lífverði, og ó- einkennisklæddir lögreglumenn munu gæta hans eins og sjáaldurs augna sinna, hvar sem hann fer. Brezka stjórnin mun einnig sýna honum meiri heiður en öðr- um ótignum gestum, sem heim- sækja Bretland. Aðstoðarutanrík- isráðsritarinn F. F. Turnbull, sem starfar í rannsóknarráðuneyti Breta, mun taka á móti Gagarín á flugvellinum. Þá hefur heyrzt, að Gagarin hafi verið boðið í heim- sókn til Hailsham, ráðherra í geim- vísindum, og ennfremur er talið sennilegt, að hinn sovézki geim- fari hitti Macmillan að máli. Þá gengur sú saga fjöllunum hærra, að Krústjoff, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, hafi slegizt í för með Gagarín og muni koma öllum á óvart með heimsókn sinni. Hafa blöðin slegið þessari frétt mjög upp, en engin staðfesting hefur féngizt á henni, hvorki hjá brezkum né sovézkum aðilum. Gagarín kemur til Lundúna til þess að heimsækja sovézku vöru- sýninguna, sem þar er haldin. Þá hefur Tass-fréttastofan sagt frá því, að Gagarín hafi verið boðið til Ceylon, en ekkert var nánar greint frá því boði. Júrí Gagarín, fyrsti geimfari sö.gunnar. Þetta er myndin, sem símsend var um allan heim, meðal annars til Tímans, samdægurs og hann fór ferð sína. Var innrás í Kúwait fyrirhuguö 14. júlí? NTB—Kúwait og Lundúnum, áætlanir íraksstjórnar að engu, 10. júlí. segir í fréttinni. Saltað á ðllum Aust f iarðahöf num í gær Síldin er nú komin austur fyrir Langanes, og í fyrrinótt var talsverður afli á Digranes- flaki og suSur undir Glettinga- nes, 8—10 mílur úti fyrir Vopnafirði. í gær var saltað á öllum höfnum Austfjarða, frá Fáskrúðsfirði og norður úr. Talsvert var og saltað á Rauf- arhöfn, en minna á Siglufirði. í gærkvöldi voru bátarnir aft- ur farnir að fá góða veiði út af Vopnafirði. Vélskipið Fanney fann síldina á Digranessflaki á sunnudaginn, og óð hún lítilsháttar. Áður höfðu þó Norðmenn komizt á snoðir um síldina þarna, og höfðu þeir þarna ágæta veiði aðfaranótt sunnudags- ins í góðu veðri meðan íslenzki flotinn lá mestallur í vari hér og þar fyrir Norðurlandi vegna slæms veðurs. Aðeins fáein skip vóru austan Langaness. Að tilvisan Fanneyjar fóru mörg skip að færa sig austur fyrir, en sum kvörtuðu um slæmt veður á leiðinni. Aðeins 4 skip tilkynntu síldarleitinni á Siglufirði afla sinn sólarhringinn fram til klukkan 8 í gærmorgun, og var Hugrún þeirra aflahæst með 1100 tunnur. Afar feit síld Nokkur skip fengu ágæta veiði í fyrrinótt á Digranessflaki, en þá voru aðeins fá skip komin þangað. Síldin þarna er 23% feit og hin fegursta í alla staði. í gær fjölgaði mjög skipum á þessum slóðum. Margir köstuðu en fengu lítið, því að síldin var stygg. Hún var á hraðri leið til lands og var aðeins skamman tima uppi. Með kvöldinu var þetta að lagast, og skipin voru að fá góð köst í gærkvöldi. Seinni hluta dags í gær varð Fanney vör við töluvert magn af síld innarlega a Iléraðsflóa. Veður var sæmilegt, en farið var að kula, og spáð var kalda. Hvers konar síld? Bátarnir fyrir austan lögðu í gær kapp á að dreifa sér til þess, að hægt væri að salta sem allra mest af aflanum. Sjómenn eru ekki á einu máli um, hvers konar síld þetta sé, sem nú er. Telja sumir, að hún sé allt of feit til að geta verið Austurlandssíld. og hljóti þarna að vera Norðurlands- síld á ferðinni. Síldin fyrir austan hefur nú komið upp á svipuðum slóðum og venjulega, og er líklegt, að hún eigi eftir að færa sig suður með landinu. Salfað á öllum fjörðum Til Vopnafjarðar komu í gær 6 skip með 3800 tunnur, og var mest saltað. Þriðja söltunarstöðin þar var í þann veginn að fara í gang í gærkvöldi, og eitthvað hafði ver- ið tekið í bræðslu. Til Seyðisfjarð- ar 'komu í gær 3 skip með 1800 tunnur, og var Auður fyrst þeirra með 1100 tunnur. Fyrsta skipið i með síld til Neskaupstaðar á þessu . sumri var Þráinn með 900 tunnur.! Þangað komu einnig Þorgrímur frá ísafirði og Siguivon frá Akra- nesi. Afli Sigurvonar fór mest- megnis til bræðslu. Til Eskifjarð- ar komu Seley með 700 tunnur og j Hólmanes með 900. Til Fáskrúðs- j f.iarðar kom Hoffell með 500 tunn-1 ui og Gissur hvíti, og von var á' Hoffellinu aftur seint í gærkvöldi. Til Reyðarf,iarðar kom síld í gær, og var verið að salta þar i gær-, kvöldi. Gunnar kom með 900 mál, og fór meiri hlutinn í salt. Von var á Snæfugli, en ekki var vitað um -fla hans. Allt er með kyrrum kjörum í furstadæminu Kúwait, og er ekki vitað um, að meiri liðs- flutningar þangað eigi sér stað. Hins vegar var frá því skýrt í dag, að ein brezk her- deild hefði verið flutt ,frá Kúwait til annarrar bæki- stöðvar við Persaflóa, en allt er á huldu um, hvort Bretar hyggist halda áfram brott- flutningi hermanna frá fursta- dæminu eða bíða átekta enn um stund. Blaðið Al Rai Al Am í Kúwait sagði í dag, að Bretar yrðu ekki beðnir að yfirgefa Kúwait, fyrr en út- séð væri um og trygging feng- in fyrir því, að árás væri ekki yfirvofandi af hálfu íraks. j \ ! „Við báðum biæður okkar um| hjálp, eh þeir daufheyrðust og enginn þeirra kom“, segir blaðið, „og þess vegna leituðum við hjálp ar annars staðar." Sneiðir blaðið þarna að Arabaþjóðum, sem ekki vildu liðsinna Kúwait né taka skýra afstöðu til deilu þess við frak. Meðal ábyrgra aðila í Kúwait er því haldið fram ,að íraks- stjórn hafi ráðgert að leggja Kú- wait undir sig með innrás þann 14. júlí, en þann dag fyrir þrem árum var byltingin gerð í írak. En sjálfstæðisyfirlýsing Kúwait þann 19. júní hefur1 gert þessar Árásarhætta enn Joseph Godber, ríkisráðsritari, sagði í neðri deild brezka þingsins í dag, að Bretland myndi standa fast við loforð sín gagnvart Kú- wait, en jafnframt óskaði brezka stjórnin þess að halda áfram vin- samlegum samskiptum við írak. Einn íhaldsþingmaðurinn spurði Godber, hvort hann teldi hættu á árás frá írak og svaraði Godber því til, að enn væri slík árás ekki ómöguleg og of snemmt væri að segja neitt ákveðið í því sa'mbandi, og því myndu Bretar bíða átekta enn um stund. Sagði rikisráðsritar inn, að Bretum hefði borizt ná- kvæm vitneskja um allar hreyfing- ar írakshers, og viöru þeir því vel á verði og við öllu búnir. Engin herskip um SúesskurS Kaíró-blaðið A1 Ahram segir í dag, að stefna Kassems forsætis- ráðherra sé öll dularfull í hæsta máta, og ekki sé vert að taka hót- anir hans alvarlega. Sérstaklega verði Bretar að gæta sín og láta ekki kröfur hans og hótanir teyma sig út í neina vitleysu, sem hæg- lega gæti leitt tij styrjaldar. Blaðið minnist á leyfið, sem brezkum herskipum var veitt til þess að fara um Súezskurðinn, og undirstrikar rækilega, að Arabíska sambandslýðveldið muni hindra, að herskip fari um skurðinn, ef markmiðið sé að gera innrás í eitt- hvert hinna arabísku landa. Þau munu verða stöðvuð, hvaða af- leiðingar, sem það gæti haft í för með sér, segir í þessari ritstjórnar- grein frá A1 Ahram.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.