Tíminn - 11.07.1961, Side 12

Tíminn - 11.07.1961, Side 12
12 T í M I N N, þriðjudaginn 11. júlí 19b. mm Enn sigra Skotar, 4:0 RITSTJORI HALLUR SIMONARSON \ ■j', • í fyrrakvöld léku skozku knattspyrnumennirnir annan leik sinn á Laugardalsvellin- um við styrkt lið Akurnes- inga. Óhætt er að fullyrða að þeir menn sem voru fengnir að láni í liði Akurnesinga voru liðinu til styrktar, þó það nægði ekki til betri útkomu en 4:0 fyrir Dundee. Akurnesingar unnu hlutkestið, kusu að leika undan smá golu. Skotarnir hófu leikinn og gætti nokkurs taugaóstyrks hjá Akurnes ingum, en smám saman fundu þeir hvern annan og áttu sinn bezta leikkafla fyrstu 30 mínút- urnar. Þegar fimm mínútur eru af leik er dæmd aukaspyrna rétt ut- an við vítateig á Skotana, sem Högni Gunnlaugsson framkvæmdi vel, spymti á mark, en markmað- uíinn gat slegið frá og hrökk knött urinn fyrir fætur Skúla Hákonar- sonar, sem spyrnti lausum bolta beint í fang markmannsins. Þarna fór eitt bezta marktækifæri Akur- nesinka, og segir það sig sjálft, að þetta var mikil óheppni fyrir Akur nesinga að skora þarna ekki, því að það hefði verið mikill „móralsk S - V- úrval valið Landsliðsnefnd sendi blöðun- um í gær nöfnin á þeim Ieik- mönnum, sem þeir hafa valið sem úrval Suðvesturlands á móti skozka > liðinu Dundee. Liðið er þannig, taiið frá mark verði til hægri útherja: Heimir Guðjónsson, Árni Njálsson, Hreiðar Ársælsson, Ormar Skeggjason, Rúnar Guð- mannsson, Sveinn Teitsson, Guð jón Jónsson, Ellert Schram, Þórólfur Beck, Gunnar Felix- son, Ingvar Elíasson. Varamenn: Björgvin Her- mannsson, Hörður Felixson, llelgi Jónsson, Guðmundur Ósk arsson, Þórður Jónsson. Leikurinn fer fram í kvöld kl. 8.30 á Laugardalsvellinum. ur“ sigur fyrir þá að fá þarna mark í upphafi leiks. Akurnesingar héldu þó áfr'am sókninni eins og fyrr segir, eins og t. d. á 20. mín. er Þórður lék upp kantinn og gaf vel til Ingvars, sem renndi knettinum til Skúla, sem var alveg frír fyrir opnu marki, en spyrhti framhjá. Skúli hafði þarna nægan tíma og hefði átt að geta lagt knöttinn fyrir sig. Of fálmkenndur En það átti ekki fyrir Akurnes- ingum að liggja að koma knettin- um í mark Dundee, því að það lá eins og í loftinu að Skotarnir voru að taka yfirhöndina. Það vantaði þá nákvæmni og hörku í Akranes- liðið, senr þarf til þess að skora. Leikur þeirra var of fálmkenndur. Og á þrítugustu mínútu kemur fyr'sta markið og það fyrir alger- an klaufaskap. Skúli ætlaði að spyrna knettinum frá marki, en hitti knöttinn svo illa, að hann hrökk í áttina að marki Akurnes- inga. Helgi slær knöttinn naum- lega frá, en þá myndaðist þvaga fyrir framan.markið, sem miðherji Skotanna skoraði úr. Annað markið kom svo á fertug- ustu mínútu og var þar aftur mið- herjinn að verki. Bakvörðurinn hjá Dundee var kominn fram á miðju og gaf knöttinn til innherja, sem renndi knettinum vel til mjðherja og skoraði hann fallegt mark úr þröngri stöðu. Síðasta tækifæri, í þessu hálf- ■leik fyrii’ Akurnesinga að skora hjá Dundee var, þegar Þórður Jónsson lék upp með knöttinn og gaf til Björgvins Daníelssonar, sem var frír fyrir framan markið og spyrnti hann hátt yfir. Helgi slær knöttinn — skozki miðframherjin virðist vera að kalla eitthvað til dómarans. ir kunna alls ekki aðrar stöður en sína eigin, sem ekki er nema eðlilegt, þar sem þeir leika þær alltaf með liðum sínum. Þessu til sönnunar má geta þess að þau fáu upphlaup, sem Akurnesingar áttu, komu öll frá Þórði en ekkert eft- ir að hann kom á miðjuna. Þarna kom upp landsliðsstaðan, tveir miðframherjar léku á köntunum og voru algerlega óvirkir. Ingvar meiddist í lok hálfleiksins varð Ingvar Elísson fyrir1 gróflegu broti af hálfu vinstri bakvarðar Dundee og var hann haltur, það sem eftir var af leiknum. Þórður Jónsson kom þá inn á miðjuna og Ingvar fór út á kantinn. Betra hefði verið, að Björgvin hefði farið inn á miðj- una, því að það er hans staða. En það er nú orðin hefð hér, að ekki skipti máli hvar menn leika í fram iínunni, samanber landsliðið okk- ar, þar eru þrír miðframherjar í framlínunni. Auðvitað er þessi háttur reginfirra, þar sem mið- framherjarnir okkar sumir hverj- Dundee nær algerlega hægri yfjrhendinni Strax í seinni hálfleik tóku Skot- arnir leikinn í sínar hendur. Stöð- ug sókn braut Akranesliðið alveg niðúr og átti vörnin erfiðan dag. Skotarnir gerðu tvö mörk í þess- um hálfleik, fyrra markið kom eft ir að þeir voru búnir að spila vörn Akurnesinga sundur og saman, en hitt markið skoraði hinn frægi Gordon Smith úr fyrirsendingu frá vinstri kanti, fékk knöttinn á vítateigshorni og spyrnti viðstöðu- laust í fjarstætt horn án þess að Helgi hefði nokkui tök á að verja. Fallegasta mark leiksins, fram- kvæmt af bezta manninum á vell- inum. Leiknum lauk því 4:0 fyrir Dundee, sem segja má að hafi ver ið verðskuldað, þó að Akurnesing- ar hefðu átt að geta skorað eitt eða tvö mörk í fyrri hálfleik, ef heppnin hefði verið með. lið í dag, þó að svona langt sé lið- ið á leiktímabilið. í vör’ninni var Árni Njálsson beztur og hafði í fullu og öllu við mótherja sinn. Ekki var hægt að kenna Helga um mörkin og lék hann einn sinn bezta leik í sumar. Framvarðarlín- an barðist nokkuð vel, en þeir voru mistækir á stundum. Þórður Jónsson var beztur í framlínunni meðan hann var á kantinum. Ann ars var línan sundurlaus og náði alls ekki saman, nema rétt í upp- hafi fyrri hálfleiks. Skotarnir sönnuðu ágæti sitt frá KR-leiknum. Ure er klettur í vörn- inni, en hann var óþarflega gróf- ur þann tíma, þegar Akurnesing- ar höfðu yfirtökin í leiknum. Gor- don Smith átti mjög góðan leik og skiptingar hans ei'u til fyrirmynd- ar. Hann var hiklaust bezti maður- inn á vellinum. Dómari var Guðbjörn Jónsson og örkuðu , Tiar hans vægast sagt stundum einxennilega á áhorfend- ur og leikmenn. — f.h. í ársSif í annarri deild Smith beztur Það, sem mest áberandi var hjá Akurnesingum var úthaldsleysi, eins og virðist vera með öll islenzk Frá leiknum ísafjörður — Breiðablik: Björn Helgason sspyrnir Lárusson aftan. — Núna um helgiaa fóru fram þrír leikir í annarri deild hér Sunnan lands. Sandgerffingar kepptu viff Þrótt og sigruðu 4—0, ísfirffimgar léku hér á Melavellinum við Vík- inga og sigruffu 2—0, og á sunnu- daginn ’,éku ísfirffingar við Breiða blik og unnu 5—1. ísfirðingar eru því örugigir um sigur í sínum riðli, þar sem þeir eru búnir að sigra Víking tvisvar, heima og lieiman, og sigruðu nú Breiðablak, en eiga eftir að leika við þá heima. Leikurinn milli Breiðabliks og ísfirðinga var háður hér á Melavellinum í fyrradag. Leik- urinn var ekki upp,á marga fiska, því fátt var þar um fína drætti. Breiðablik átti góða skorpu til að byrja með, en þeim tókst ekki að gera mark. Þó fengu þeir dæmda vítaspyrnu í fyrri hálf- leik ,en brenndu af. Síðari hálfleikur var frábrugð- inn þeim fyrri í því að þá sýndu ísfirðingar á köflum stutt og skemmtilegt spil, sem gaf þeim góðan árangur. Breiðablik gerði samt fyrsta markið, og var þar að verki innherji Breiðabliks. Svo tóku ísfirðingar upp stutta spilið sem þeir höfðu sparað um of, og mörkin komu nú hvert af öðru og urðu alls 5. Björn Helgason, sem ; er langbezti maður liðsins, skor-! aði fjögur mörk, þar af þrjú með skalla og Erlingur Sigurlaugsson skoraði eitt markanna. ísfirðingar ;ýndu í þessum leik, og þó einkan lega á móti Víking, að það er til nokkuð spil hjá liðinu, og þeir hafa á að skipa vel liðtækum ein- stakli.ngum. Björn Helgason er eins og áður greinir, bezti maður liðsins, enda er hann þeirra reynd ast.ur, hefur bæði leikið í pressu- liði og B-landsliði. Auk hans mætti nefna Jón Kristmannsson, mið- framvörð, Albert Karl Sanders. og ungan og liðler s Halldór Halldórsson, framvörð leikmann, miðherja. Akureyri - Fram 2:1 A sunnudaginn léku Akureyr- ingar cg Fram í íslandsmótinu í fyrstu deild. Leikurinn fór frani á Akureyri. Leiknum lauk meff sigri Akureyringa, 2—1. Jakob Jakobsson gerði bæffi mörkin fyrir Akureyri, en Guðjón Jónsson fyr ir Fram. Umsögn um leikinn birt- ist á morgun. Ekk! látrsir vita Knattspyrnulið 3. flokks á lsa: firði er hér í bænum og tekur þátt í íslandsmótinu í 3. flokki. Pétur Sigurðsson, formaður Vestra og fararstjóri, sagði okkur að þeir hefðu átt að keppa vi Ölfyssin n á fimmtudag samkv. leikjaskrá, KSÍ, en Ölfyssingar ekki mætt til leiks. Þeir hefðu hætt við þátt7 töku í mótinu, en KSÍ ekki látið Ísfirðinga vita. Kvað Pétur þetta mjög bagalegt því að þeir hefðu komið þremur dögum of fljótt af þessum sökum. (

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.