Tíminn - 11.07.1961, Page 12
12
T í M I N N, þriðjudaginn 11. júlí 19b.
mm
Enn sigra
Skotar, 4:0
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
\ ■j', •
í fyrrakvöld léku skozku
knattspyrnumennirnir annan
leik sinn á Laugardalsvellin-
um við styrkt lið Akurnes-
inga. Óhætt er að fullyrða að
þeir menn sem voru fengnir að
láni í liði Akurnesinga voru
liðinu til styrktar, þó það
nægði ekki til betri útkomu en
4:0 fyrir Dundee.
Akurnesingar unnu hlutkestið,
kusu að leika undan smá golu.
Skotarnir hófu leikinn og gætti
nokkurs taugaóstyrks hjá Akurnes
ingum, en smám saman fundu
þeir hvern annan og áttu sinn
bezta leikkafla fyrstu 30 mínút-
urnar. Þegar fimm mínútur eru af
leik er dæmd aukaspyrna rétt ut-
an við vítateig á Skotana, sem
Högni Gunnlaugsson framkvæmdi
vel, spymti á mark, en markmað-
uíinn gat slegið frá og hrökk knött
urinn fyrir fætur Skúla Hákonar-
sonar, sem spyrnti lausum bolta
beint í fang markmannsins. Þarna
fór eitt bezta marktækifæri Akur-
nesinka, og segir það sig sjálft, að
þetta var mikil óheppni fyrir Akur
nesinga að skora þarna ekki, því
að það hefði verið mikill „móralsk
S - V- úrval
valið
Landsliðsnefnd sendi blöðun-
um í gær nöfnin á þeim Ieik-
mönnum, sem þeir hafa valið
sem úrval Suðvesturlands á
móti skozka > liðinu Dundee.
Liðið er þannig, taiið frá mark
verði til hægri útherja:
Heimir Guðjónsson, Árni
Njálsson, Hreiðar Ársælsson,
Ormar Skeggjason, Rúnar Guð-
mannsson, Sveinn Teitsson, Guð
jón Jónsson, Ellert Schram,
Þórólfur Beck, Gunnar Felix-
son, Ingvar Elíasson.
Varamenn: Björgvin Her-
mannsson, Hörður Felixson,
llelgi Jónsson, Guðmundur Ósk
arsson, Þórður Jónsson.
Leikurinn fer fram í kvöld kl.
8.30 á Laugardalsvellinum.
ur“ sigur fyrir þá að fá þarna
mark í upphafi leiks.
Akurnesingar héldu þó áfr'am
sókninni eins og fyrr segir, eins
og t. d. á 20. mín. er Þórður lék
upp kantinn og gaf vel til Ingvars,
sem renndi knettinum til Skúla,
sem var alveg frír fyrir opnu
marki, en spyrhti framhjá. Skúli
hafði þarna nægan tíma og hefði
átt að geta lagt knöttinn fyrir sig.
Of fálmkenndur
En það átti ekki fyrir Akurnes-
ingum að liggja að koma knettin-
um í mark Dundee, því að það lá
eins og í loftinu að Skotarnir voru
að taka yfirhöndina. Það vantaði
þá nákvæmni og hörku í Akranes-
liðið, senr þarf til þess að skora.
Leikur þeirra var of fálmkenndur.
Og á þrítugustu mínútu kemur
fyr'sta markið og það fyrir alger-
an klaufaskap. Skúli ætlaði að
spyrna knettinum frá marki, en
hitti knöttinn svo illa, að hann
hrökk í áttina að marki Akurnes-
inga. Helgi slær knöttinn naum-
lega frá, en þá myndaðist þvaga
fyrir framan.markið, sem miðherji
Skotanna skoraði úr.
Annað markið kom svo á fertug-
ustu mínútu og var þar aftur mið-
herjinn að verki. Bakvörðurinn
hjá Dundee var kominn fram á
miðju og gaf knöttinn til
innherja, sem renndi knettinum
vel til mjðherja og skoraði hann
fallegt mark úr þröngri stöðu.
Síðasta tækifæri, í þessu hálf-
■leik fyrii’ Akurnesinga að skora
hjá Dundee var, þegar Þórður
Jónsson lék upp með knöttinn og
gaf til Björgvins Daníelssonar,
sem var frír fyrir framan markið
og spyrnti hann hátt yfir.
Helgi slær knöttinn — skozki miðframherjin virðist vera að kalla eitthvað til dómarans.
ir kunna alls ekki aðrar stöður
en sína eigin, sem ekki er nema
eðlilegt, þar sem þeir leika þær
alltaf með liðum sínum. Þessu til
sönnunar má geta þess að þau fáu
upphlaup, sem Akurnesingar áttu,
komu öll frá Þórði en ekkert eft-
ir að hann kom á miðjuna. Þarna
kom upp landsliðsstaðan, tveir
miðframherjar léku á köntunum
og voru algerlega óvirkir.
Ingvar meiddist
í lok hálfleiksins varð Ingvar
Elísson fyrir1 gróflegu broti af
hálfu vinstri bakvarðar Dundee og
var hann haltur, það sem eftir var
af leiknum. Þórður Jónsson kom
þá inn á miðjuna og Ingvar fór út
á kantinn. Betra hefði verið, að
Björgvin hefði farið inn á miðj-
una, því að það er hans staða. En
það er nú orðin hefð hér, að ekki
skipti máli hvar menn leika í fram
iínunni, samanber landsliðið okk-
ar, þar eru þrír miðframherjar í
framlínunni. Auðvitað er þessi
háttur reginfirra, þar sem mið-
framherjarnir okkar sumir hverj-
Dundee nær algerlega
hægri yfjrhendinni
Strax í seinni hálfleik tóku Skot-
arnir leikinn í sínar hendur. Stöð-
ug sókn braut Akranesliðið alveg
niðúr og átti vörnin erfiðan dag.
Skotarnir gerðu tvö mörk í þess-
um hálfleik, fyrra markið kom eft
ir að þeir voru búnir að spila vörn
Akurnesinga sundur og saman,
en hitt markið skoraði hinn frægi
Gordon Smith úr fyrirsendingu
frá vinstri kanti, fékk knöttinn á
vítateigshorni og spyrnti viðstöðu-
laust í fjarstætt horn án þess að
Helgi hefði nokkui tök á að verja.
Fallegasta mark leiksins, fram-
kvæmt af bezta manninum á vell-
inum.
Leiknum lauk því 4:0 fyrir
Dundee, sem segja má að hafi ver
ið verðskuldað, þó að Akurnesing-
ar hefðu átt að geta skorað eitt
eða tvö mörk í fyrri hálfleik, ef
heppnin hefði verið með.
lið í dag, þó að svona langt sé lið-
ið á leiktímabilið. í vör’ninni var
Árni Njálsson beztur og hafði í
fullu og öllu við mótherja sinn.
Ekki var hægt að kenna Helga um
mörkin og lék hann einn sinn
bezta leik í sumar. Framvarðarlín-
an barðist nokkuð vel, en þeir
voru mistækir á stundum. Þórður
Jónsson var beztur í framlínunni
meðan hann var á kantinum. Ann
ars var línan sundurlaus og náði
alls ekki saman, nema rétt í upp-
hafi fyrri hálfleiks.
Skotarnir sönnuðu ágæti sitt frá
KR-leiknum. Ure er klettur í vörn-
inni, en hann var óþarflega gróf-
ur þann tíma, þegar Akurnesing-
ar höfðu yfirtökin í leiknum. Gor-
don Smith átti mjög góðan leik og
skiptingar hans ei'u til fyrirmynd-
ar. Hann var hiklaust bezti maður-
inn á vellinum.
Dómari var Guðbjörn Jónsson
og örkuðu , Tiar hans vægast sagt
stundum einxennilega á áhorfend-
ur og leikmenn. — f.h.
í ársSif
í annarri deild
Smith beztur
Það, sem mest áberandi var hjá
Akurnesingum var úthaldsleysi,
eins og virðist vera með öll islenzk
Frá leiknum ísafjörður — Breiðablik: Björn Helgason sspyrnir
Lárusson
aftan. —
Núna um helgiaa fóru fram þrír
leikir í annarri deild hér Sunnan
lands. Sandgerffingar kepptu viff
Þrótt og sigruðu 4—0, ísfirffimgar
léku hér á Melavellinum við Vík-
inga og sigruffu 2—0, og á sunnu-
daginn ’,éku ísfirffingar við Breiða
blik og unnu 5—1.
ísfirðingar eru því örugigir um
sigur í sínum riðli, þar sem þeir
eru búnir að sigra Víking tvisvar,
heima og lieiman, og sigruðu nú
Breiðablak, en eiga eftir að leika
við þá heima.
Leikurinn milli Breiðabliks og
ísfirðinga var háður hér
á Melavellinum í fyrradag. Leik-
urinn var ekki upp,á marga fiska,
því fátt var þar um fína drætti.
Breiðablik átti góða skorpu til
að byrja með, en þeim tókst ekki
að gera mark. Þó fengu þeir
dæmda vítaspyrnu í fyrri hálf-
leik ,en brenndu af.
Síðari hálfleikur var frábrugð-
inn þeim fyrri í því að þá sýndu
ísfirðingar á köflum stutt og
skemmtilegt spil, sem gaf þeim
góðan árangur. Breiðablik gerði
samt fyrsta markið, og var þar
að verki innherji Breiðabliks. Svo
tóku ísfirðingar upp stutta spilið
sem þeir höfðu sparað um of, og
mörkin komu nú hvert af öðru og
urðu alls 5. Björn Helgason, sem ;
er langbezti maður liðsins, skor-!
aði fjögur mörk, þar af þrjú með
skalla og Erlingur Sigurlaugsson
skoraði eitt markanna. ísfirðingar
;ýndu í þessum leik, og þó einkan
lega á móti Víking, að það er til
nokkuð spil hjá liðinu, og þeir
hafa á að skipa vel liðtækum ein-
stakli.ngum. Björn Helgason er
eins og áður greinir, bezti maður
liðsins, enda er hann þeirra reynd
ast.ur, hefur bæði leikið í pressu-
liði og B-landsliði. Auk hans mætti
nefna Jón Kristmannsson, mið-
framvörð, Albert Karl Sanders.
og ungan og liðler s
Halldór Halldórsson,
framvörð
leikmann,
miðherja.
Akureyri - Fram
2:1
A sunnudaginn léku Akureyr-
ingar cg Fram í íslandsmótinu í
fyrstu deild. Leikurinn fór frani
á Akureyri. Leiknum lauk meff
sigri Akureyringa, 2—1. Jakob
Jakobsson gerði bæffi mörkin fyrir
Akureyri, en Guðjón Jónsson fyr
ir Fram. Umsögn um leikinn birt-
ist á morgun.
Ekk! látrsir vita
Knattspyrnulið 3. flokks á lsa:
firði er hér í bænum og tekur þátt
í íslandsmótinu í 3. flokki. Pétur
Sigurðsson, formaður Vestra og
fararstjóri, sagði okkur að þeir
hefðu átt að keppa vi Ölfyssin n
á fimmtudag samkv. leikjaskrá,
KSÍ, en Ölfyssingar ekki mætt til
leiks. Þeir hefðu hætt við þátt7
töku í mótinu, en KSÍ ekki látið
Ísfirðinga vita. Kvað Pétur þetta
mjög bagalegt því að þeir hefðu
komið þremur dögum of fljótt af
þessum sökum.
(