Tíminn - 11.07.1961, Síða 14

Tíminn - 11.07.1961, Síða 14
14 TÍMIXN, þriðjudaginn 11. júlí 1961. kistunni miklu,. sem stóð und-1 ir annarri hlið stofunnar. | Hann hvessti á hann augum og hleypti brúnum. Fyrst í, stað var hann fastmæltur og| rómurinn reiðibrunginn, en mýktist, er á leið og var inni- legur, er hann lauk máli sínu. — Hefur þú ekki skilið, Óskar, að boð olckar séra Þórðar stendur og fellur með því, hvort þú gengur að eiga Ásrúnu eða ekki? Dettur þér í hug, að ég samþykki það, að Ásrún verði frilla þín? Það eru fjölmörg dæmi þess, að hjónabönd hafi blessazt, þó ,að lítið hafi farið fyrir ást- inni fyrsta sprettinn. En þau eru hins vegar næsta fá hjóna böndin, sem verða til eftir að menn fara að búa með barns- mæðrum sínum. Og þetta er ofur skiljanlegt. Kvæntur maður fagnar, þegar hann finnur mannkosti konu sinn- ar, er honum voru áður duld- ir, það vekur metnað hans, traust og ást. En hinn, sem býr með barnsmóður sinni, er alltaf að safna fleiru og fleiru, sem skyggir á. Enda enginn von til þess, að hið sanna eðli fái notið sín í trássi við guð og góða siði. Allt, sem byggt er utangátta við siðmenninguna hefur hrunið í sjálfu sér. Það er hrófatildur, sem riðar á grunni. Eg sagði áðan, að þú ættir hiklaust að segja já við boði okkar séra Þórðar. Við vorum það lífsreyndir, að maður á þínum aldri sér ekki til vegar á borð við okkur. Við höfum tryggt þér jarðnæði og áhöfn, sem hæfir lífsorku binni og dugnaði. Opnað þér leið til farsællar sjálfsbjarg- ar. Ef þú þekkist ekki boð okk ar séra Þórðar, bakarðu sjálf um þér ómetanlegt og óbætan legt tjón. Skiljirðu við Ás- rúnu nú, ferðu ekki einasta ómannlega með hana, heldur lítilsvirðirð'u mig o^ heimili mitt. Var það ætlun þín, er fundum okkar bar saman við Búlandshöfða? Nei, Óskar, þú| hefur aldrei ætlað þér illt hér. Það þori ég að fullyrða. Þú ert glæsilegur, ungur piltur, Óskar Gunnarsson, og mátt ekki fara í hundana. Það er ekki óalgengt að þeir, sem búa yfir glæsibrag, komizt í vand- ræði. Þú hefur kynnzt þeirri hlið, Óskar Gunnarsson. Þú telur þig eiga úr vöndu að ráða, og ef svo er, bá er það þín eigin sök og engra ann- arra. Þú tókst boði mínu við fyrstu fundi okkar. Hefur þig iðrað þess? Ef svo er, þá ertu eina hjúið hér á Sjónarhóli, sem svo mælir. Eg mun hafa; sagt, er þú réðst til mín, að þér myndi allt til þrifa á Sjón arhóli, ef þú kynnir sjálfur fótum þínum forráð. Og þú hefur að þessu eflzt að mann- dómi og mannkostum. Á þess ari stundu ræð ég þér eins mínu. Eg mun þó ekki hrapa fyjir björg að ástæðulausu. Presturinn má lýsa með okk ur Ásrúnu, sé það hennar vilji, en ég áskil mér einum rétt til þess að ráða því, nær ég geng í hiónabandið Þó lofa ég því að gifta mig áður en ég flyt að Sjávarbakka í vor. Eg mun sannprófa áður, hvaða vildarkjör verða á þeim gripum, sem ég þarf að kaupa BJARNI ÚR í nrr' i FIRÐI: í l/TT'TTiTTTTIi' AST 1 \ [ MEINUM og vinur og velunnari. Og fáð mitt er ekki út í bláinn: Taktu boði því, sem nú stendur þér opið, og velferð þín er tryggð. Nú varð löng þögn. Óskar beygði sig fram og hleypti í brúnir. Hann kreppti hnefana öðru hverju, svo að hnúarnir hvítnuðu. Allt í einp vék presturinn sér að Ásmundi og hvíslaði einhverju. Ásmundur hafði tekið sér sæti við annan borð endann. Hann reis nú úr sæti með nokkurri tregðu þó, gekk að stórum skáp í einu stofu- horninu, tók fram vínfleyg og allstór staup, hellti í staupin og sagði hressilega: — Gerið svo vel. Séra Þórður tók eitt staup ið, en Óskar hreyfði sig ekki. — Skál, Óskar, mælti prest urinn. — Við skálum fyrir mikilvægi þessarar stundar. Nú rétti Óskar slg upp, tók staupið og skálaði við höfð- jngjana. Svo renndi hann staupið í botn. Svo sat hann enn þögull og beið áhrifanna. En Ásmundur renndi í staup hans öðru sinni, en nú tók hann aðeins lítinn teyg. Svo tók hann til máls. — Eg fer að ráðum ykkar. Þið látið ykkur ekki hverft við verða, þó að ekki gangi allt að óskum í hjónabandi af ykkur í búið. Hreppstjórinn barði í borð ið, en prestur stöðvaði hann. — Þér eruð hygginn, Óskar, sagði hann. — Mér líkar vel við yður, og ég veit, að fram- tíð yðar verður giftudrjúg. Nú tæmum við staupin og fögn- um góðum málalokum. II. Næst þegar messað var í sóknarkirkjunni, var lýst til hjónabands með ungfrú Ás- rúnu Hallsdóttur og Óskari Gunnarssýni, vinnuhjúum á Sjónarhóii. En þrátt fyrir lýs inguna, dróst giftingin á lang inn. En allt um það vissu nú all- ir, að þau voru heitbundin. Óskar, hinn ungi, mennilegi sveinn á Sjónarhóli og Ásrún Hallsdóttir, sem margir höfðu verið farnir að kalla pipar- mey stórbýlisins. Engin breyting sást á hjóna efnunum. Þau umgengust hvort annað eins og áður. Þar sáust engin elskuhót. Óskar skopaðist þó ekki lengur að Ásrúnu, en hlýyrði í hennar garð heyrðust aldrei af hans vörum. Hún var heldur ekki að slíta sér út á neinu slíku, Það virtist þegjandi samkomu lag ,að umgangast hvort ann að eins og ókunnug væru. Óskar, sem bjó yfir hógværri glaðværð, var nú jafnan al-; var'legur, þegar Ásrún var nærri. Og hýrubros þau, er hann sendi sveininum litla, hurfu, er Ásrúnu bar að. Það var því spáð illa fyrir hjóna- bandi þeirra. Sumir vor- kenndu Óskari; aðrir töldu1 hann eiga alla sökina og Þeim þótti prestur og hreppstjóri sýna mikla röggsemi, er þeir þrengdu Óskari í hjóna’;and-: ið. Og boð þeirra um jarð- næðið og bústofn til fyrir-j myndar. Væri hið sterka og| hiklausa viðbragð þeirra sómi fyrir byggðina og þörf hug- vekja hverjum þeim, sem byggði á lausung. — Það var komið vor. Óskar hafði tekið við jörðinni Sjáv-j arbakka. Voru bæjarhús ný-| leg, en peningahús að falli| komin. Baðstofan var lítil, að- eins tvö stafgólf, með fjór-, um rúmstæðum og tveimur| litlum hliðargluggum og mold; argólfi. Frambærinn var lítiði hlóðaeldhús. og búr sitt hvoru meginn víð útidyrnar. En í dyrunum var lágt geymslu- loft. Það var innangengt úr göngunum í fjósið, sem stóð undir norðurgafli baðstofunn ar. Við það hins vegar var nið urgrafin tóft og þröngur ranghali frá fjósinu að tóftar dyrunum. í ranghala þessum var meisunum staflað. Óskar kaus sér þrjá hesta, úr búi Jóns gamía, þrjár vet! urgamlar gimbrar, fimm ær, þrjá sauði og einn þeirra var forustusauðúrinn, og mest allt innbúið ásamt bátnum og veig arfærum. Þetta fékk hann allt með hóflegu verði. Kýrin var einnig úr búi Jóns og Jíálf ur fylgdi, lánaður yfir sum- aríð. Svo rann upp sá dagur, að Óskar flytti alfarinn frá Sjón arhóli. Ásmundur vildi, að Óskar gifti sig meðan hann; átti enn heimili þar, taldi að um það hefði verið samið. En Óskar skildi samninginn þann ig, að hann gifti sig um leið o^, hann flytti. Og þrátt fyrir boð og bænir Sjónarhólshjón anna, lét hann ekki þoka sér um hársbreidd. Ásmundur var þungur á brúnina yfir þvermóðsku Ósk ars og hefði ef til vill hleypt öllu í brand á seinustu stundu, ef húsfreyja hans, Ásdís, og eins brúðarefnið, hefðu ekki unið hann til und anlátssemi. Þegar Ásmundur hafði látið af kröfu sinni, vildi hann ekki fara til hjóna vígslunnar. Hjónin lokuðu sig þá inni í stofunni stundar- korn, sá var háttur þeirra, er þau jöfnuðu ágreining. Af því móti kom Ásmundur ferð búinn og með léttu yfirbragði. Enginn skildi í því, hiað Ás- dís, með hægð sinni og fast- mótaðri skanhöfn, hafði sterk áhrif á bónda sinn. Það brást aldrei, að hún hefði sitt fram, er þeim bar á milli. Ásmund- ur, sem lét ógjarnan hlut sinn fyrir öðrum, fór oft að vilja konu sinnar. Og bað mæltu allir, að hún hefði gert hann mann að meiri með ráðsnilld sinni og hógværri íhlutun, er í odda. skarst. Og það vitnuðu allir, að hjónin á Sjónarhóli bæru mikla virðingu hvort fyrir öðru. Svo var haldið af stað. Ferð inni var fyrst heitið á prest- setrið, sem var í leiðinni að Sjávarbakka. Þar átti hjóna- vígslan að fara fram. Flest heimilisfólkið á Sjónarhóli var með í förinni og allt ríðandi. Öllum munum brúðhjónanna var komið fyrir á tveimur hest um. Voru þeir reknir og eins þriðji baggahesturinn, sem flutti veizlukostinn. Óskar reið einum Sjávarbakka- hestinum, sem hann hafði fest kaup á og teymdi þrevett tryppi, sem hann var að ala upp og hafði miklar mætur á. Ástríður sat á hryssunni ÞriSjudagur: 8,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisútvarp. 12.55 „Við vinnuna": Tónleikar. 15,00 Miðdegisútvarp. 18.30 Tónleikar: Þjóðlög írá ýmsum löndum. 18.55 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fróttir. 20,00 Tónleikar: „Sumarkvöld" eft- ir Kodálv. — Sinfóníuhljóm- sveit ungverska útvarpsins leikur. Miklós Lukacs stjórnar. 20.20 E-rindi: Kirkjan og unga fólk- ið (Séra Árelíus Níelsson). 20.45 Tónleikar: Christian Ferras og Pierre Barbizet leika són- ötu nr. 2 op. 108 fyrir fiðlu og píanó eftir Fauré. 21.10 Úr ýmsum áttum (Ævar R. Kvaran leikari). 21.30 Þjóðlög úr austurrísku ölpun- um, sungin og leikin. 21.45 íþróttir (Sigurður Sigurðsson). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Lög unga fólksins (Kristrún Eymundsdóttir og Guðrún Svafarsdóttir). 23,00 Dagskrárlok. WRÍKIJR VÍÐFFÖRLl Hvíti h r a f n i n n , 1 134 Eftir stundarhik lét maðurinn spjót sitt falla. — Gott, sagði Ei- ríkur, — og nú skaltu vísa mér til herbergis Hvíta hrafnsins, ef þér er annt um líftóruna. Mcð haturs- fullu augnaráði leiddi hann Eirík til herbergis þar rétt hjá. — Nú, svo að hann er ekki í herbergi Elínar, hugsaði Eiríkur. Reiðileg- ur í bragði hrinti hermaðurinn upp hurðinni. Bryan rak upp gleði hróp, þegar hann þekkti Eirík aft- ur. — Hérna, þessi vingjarnlegi Saxi ætlar að lána þér sverðið sitt, sagði Eiríkur við Bryan. Saxinn fékk reiðikast, en þorði ekki ann- að en að rétta Bryan sverð sitt. Síðan skildu þeir manninn eftir í í herberginu og lögðu af, stað nið- ur úr turninum. — Hvernig líður þér? spurði Eiríkur, — geturðu haldið á sverði? — Já, ég er nógu sterkur til þess að gera upp sak- irnar við Morkar, svaraði Bryan og lét fingurna líða mjúklega yfir blátt stálið. — Uss, það lítur ekki út fyrir, að þú verðir að bíða lengi eftir uppgjörinu við hann, hvíslaði Eiríkur. Þeir heyrðu nú rödd Morkars, sem kom þjótandi ásamt nokkrum manna sinna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.