Tíminn - 13.07.1961, Qupperneq 16

Tíminn - 13.07.1961, Qupperneq 16
Fimmtudaginn 13. júlí 1961. 156. blað. „Hámark lífsins" Fréttamönnum blaðanna var í gær boðið að sjá kvik- ( mynd, sem sýnd verður í Stjörnubíó á næstunni á veg- um Moral Re-Armament, en sú hreyfing hefur verið nefnd Siðvæðing á íslenzku. Áður hefur sami félagsskapur sýnt hér á landi eina kvikmynd, er nefndist FRELSI, en þessi nýja kvikmynd ber heitið HÁMARK LÍFSINS og er, að sögn fulltrúa samtakanna, byggð á ævi svertingjakon- unnar Mary McLeod, sem vann sig upp úr sárustu ör- birgð og varð ráðunautur tveggja forseta Bandaríkj- anna, Hoovers og F. D. Roose- velts. Markmið þessara samtaka bygg- ist á ævagömlum sannindum, sem fylgt hafa manninum og eru jafn gömul draumi hans um betra og fegurra líf. Hyggjast samtökin sameina alla jarðarbúa í einni alls- herjar siðvæðingu og lækna þannig meinsemdir mannlegs lífs. Þessar tvær kvikmyndir ásamt fleiru eru þáttur í þeirri baráttu. Það er hryggilegt að vita, að jafn ágætur málsstaður skuli fæða af sér jafn lélegt verk, sem þessi kvikmynd „Hámark lífsins" er. Áhrif myndarinnar eru þveröfug við það, sem til er ætlast. í stað þess að hrífa og fylla áhorfand- ann trú á mátt og gildi samtak- anna, fylla þau hann vantrú og leiða. Það er ekki að efast um góðan vilja framleiðenda myndar- innar til þess að frelsa heiminn, því að heilagleiki þeirra- gagnvart málstaðnum gegnsýrir hvert atriði hennar svo mjög, að hann er í raun og veru það eina, sem hún vitnar um. En það er engin þörf að kvikmynda þennan heilagleika, því að það er hægt að finna hann í hvaða sértrúarflokki, sem vera skal. Þáð kann að vera að hann sé mikils virði þeim, sem eru haldnir af honum, en hann er ekki líklegur til að hrífa aðra, hvorki í veruleika né á kvikmynda- tjaldi. Þetta er nokkurs konar halle- lújamynd, þar sem allt gengur eins og smurt sé með smjöri. Stór- kostleg vandamál eins og sambúð hvítra og svartra og frelsun manna úi klóm kommúnismans eru leyst með nokkrum væmnum orðum og titrandi tárum. Svartur og hvítur brosa og gráta hvor framan í ann- an og allt er klappað og klárt, og kommúnistinn í myndinni er ekki annað en afvegaleiddur mömmu- drengur og er bjargað á einni hallelújasamkomu. Hver af öðrum rísa menn af öllum kynþáttum upp og vitna um endurfæðingu sálar sinnar og það er brosað og hlegið og klappað. Svo er okkur sýnt málverk af mörgum ágætismönn- um eins og dr. Adenauer og Ro- bert Schuman, þar sem þeir eru í félagsskap Frank Buchman, stofn- anda Siðvæðingar. Allt á þetta að sýna og sanna ágæti samtakanna, en gerir hvorugt, þvi miður, og (Framhald á 15 sfðui Krestova, eitt af þorpum Dúkóborsa í Manitoba. DÚKÓBORSAR — eilífðarvandamál Þeir neita aí gegna herþjónustu, harðneita aS borga skatta, trúa ekki á heilaga þrenningu né guÖdómleika Krists Dúkóborsarnir eru ákaflega staðið að baki því, að leyfið var veitt. Dúkoborsarnir lifa í mjög nánu samfélagi og skipta sér lítið af umheiminum. Þeir giftast ek’ki ut úr trúflokknum. Dúkóborsarnir hafa margsinnis lent í útistöðum við kanadisk yfir- völd. Þeir láta sér ekki nægja að neita að borga nokkra skatta né gegna herþjónustu, heldur neita þeir yfirleitt að hlýða nokkrum lögum. Þeir senda börn sín ekki í skóla. Kanadastjórn hefur lengi verið ákaflega þolinmóð við þessa vand- r'æðamenn, en nú telja margir I einkennilegir sértrúarmenn, sem námu land í Manitoba í ;Kanada skömmu fyrir síðustu aldamót. Þeir komu þangað frá Rússlandi, en þar var trú- arfélag þeirra stofnað um miðja átjándu öld. Þeir voiu ákaflega illa séðir í Rússlandi af grísk-kaþólsku kirkj- unni, voru oft ofsóttir, en fengu árið 1890 leyfi stjórnarinnar til þess að flytjast úr landi, og er tal- ið að rithöfundurinn Tolstoi hafi mælinn vera orðinn fullan og vilja ganga milli bols og höfuðs á starf- semi trúarflokks þessa. Flestir Dúkóborsar hafa land sitt á leigu frá stjórninni, en borga enga leigu. Stjórnin hefur reynt að selja undan þeim jarðnæðið, en þeir hafa svarað með því að eyði- leggja eignir fólksins, sem við jörð unum hefur tekið. Á undanförnum árum hafa þeir valdið skemmdum, sem nema yfir hálfri annarri millj ón dollara. Innan trúarflokksins standa yfir ákafar deilur milli hægfara arms og róttæks arms, sem nefnir sig Frelsissyni, en þeir standa mest í vegi fyrir samkomulagi. Þeir kveðj ast vera ákaflega friðarsinnaðir, en sjálfir láta þeir sig hafa það, að ganga um brennandi og skemm- andi, ef eitthvað er gert, sem þeim líkar ekki. Nú í vor hefur fylkisstjórnin í Manitoba gert ítrekaðar samkomu- lagstilraunir, en þær hafa allar strandað, og telja sumir Dúkó- borsana vera orðna eilífðarvanda- mál. Heillaskeyti til Gaga- ríns af Holtavörðuheiði í sæluhúsinu á Holtavörðu- heiði er slitin og þvæld gésta- bók á borði. Hún varðveitir nöfn fjölda gesta, og í hana hafa einnig verið skráðar stuttar skýrslur um athafnir og fyrirætlanir fólks, sem þar hefur átt viðdvöl. 14. apríl hefur veiið þröngt set- irin bekkurinn í sæluhúsinu. Þar teppist þá fjöldi fólks úr áætlunar- bílum, og daginn eftir er þetta skráð í gestabókina: „Við 75, sem hér að framan er- um rituð, og sennilega nokkur ; fleiri, ef enginn hefur týnzt, höf- um dvalizt i þessu ágæta hóteli, ‘ sem sameinar kosti Mýramanna og Húnvetninga með íblöndun af Ströndum, samkvæmt landfræði- legum aðstæðum, frá kvöldi hins 14. til kvölds hins 15. á ævintýra- legri ferð okkar yfir Holtavörðu- heiði. Voru þó ekki í upphafi sam- antekiin ráð, heldur lentum við saman af hendingu sem títt er um farþega. Dvölin hér gaf okkur mikla : ánægju og gleði: í fyrsta lagi vegna ágætrar og ; öruggrar leiðsagnar Gunnars Jóns- sonar og Jóns Olafssonar. í öðru lagi vegna þess, hve feg- iinsamlega við neyttum þess, sem á borð var borið, sem mestmegnis I var hafraseyði og sykurlaust kaffi. í þriðja lagi vegna þess; að allir i voru í góðu skapi allan tímann.“ Þegar þessi stóri hópur var tepptur í sæluhúsinu, höfðu þau ; tíðindi gerzt úti í heimi, að Júrí , Gagarín kannaði fyrstur manna víða vegu geimsins utan við gufu- ■ hvolf jarðar. Honum bárust skeyti 'frá mörgum löndum og stöðum á hnettinum, og samkvæmt gesta- ! bókinni i sæluhúsinu, var eitt i skeytið af Holtavörðuheiði. í bók- | ina er þetta skráð: „Heillaskeyti sent 15/4 klukk- an 14.44. Frá höfuðstöðvum fjallahótela á íslandi. Gagarín, Moskvu. Dvlargestir Hótel Holtavörðu- heiði dá afrek þitt. Leiðtoginn.“ Þetta er kannske það söguleg- asta, sem frá er greint í gestabók- inni. En víða getur að líta fáein orð, seni bregða snöggu ljósi yfir smáævintýri. 20. júní hafa litið þarna inn hóp- ar náttúrufræðinga, sem komnir eru langa vegu frá fjarlægum löndum til þess að kynnast íslandi. 29. júní lítur þar inn fiópur (Framhaio a 15 <íðu Þessi mynd sýnir atriSi úr mynd- inni „Hámark lífsins'', sem sýnd /erSur í Stjörnubíó á næstunni. /

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.