Tíminn - 09.08.1961, Blaðsíða 6
TÍMINN, miðvikudaginn 9. ágúst 1961.
e
MINNING:
Frú María Hjálmarsdóttir
í dag, 7. ágúst, er merkis-
konan María Hjálmarsdóttir til
grafar borin frá heimili sínu,
Sandhúsi í Mjóafirði.
María var fædd að Brekku í
Mjóafirði 18. febrúar 1866. Hún
andaðist 30. júlí síðast liðinn í
sjúkr'ahúsi Seyðisfjarðar, og var
því 95 ára er hún lézt.
Foreldrar hennar voru Hjálmar
Hermannsson bóndi og hreppstjóri
á Brekku, og seinni kona hans,
Jóhanna Sveinsdóttir. Stóðu að
þeim þekktar bændaættir á Aust-
urlandi. Til dæmis var Hjálmar
sonur Hermanns Jónssonar í Firði,
sem margir rekja ættir sínar til
og var um marga hkiti á undan
sinni samtíð.
María ólst upp hjá foreldrum
sínum á mannmörgu heimili, þar
sem stundaður var landbúskapur
og útgerð jöfnum höndum, af
miklum dugnaði og fyrirhyggju.
María giftist 1888 Lars Kristjáni
Jónssyni útgerðarmanni og síðar
verzlunarstjóra við verzlun Kon-
ráðs Hjálmarssonar, bróður Maríu.
Þau hófu búskap í Sandhúsi í
Mjóafirði, þar höfðu þau útgerð
og dálítinn landbúskap. Var oft
margt fólk þar í heimili, enda
heimilið rómað fyrir gestrisni og
myndarskap, og öll umgengni úti
og inni til fyrirmyndar um allan
þrifnað.
Þau eignuðust 6 börn:
1. Rebekku, gifta Sveinlaugi
Helgasyni, búsett á Seyðisfirði.
2. Hjálmar, kvæntan Sigurveigu
Einarsdóttur, búsettan í Sandhúsi
Mjóafirði.
3. Gísla, kvæntan Fanneyju Ingv
arsdóttur, búsettan í Hafnarfirði.
4. Svanbjörgu, er alltaf var með
móður sinni, henni til aðstoðar,
þar til hún andaðist árið 1953. Var
sem gift er Hjálmari Björnssyni,
búsett í Neskaupstað.
Börn og gamalmenni áttu þar
athvarf um skemmri eða lengri
tíma. Það leið öllum vel í návist
Maríu.
Mann sinn missti María árið
1941, eftir 53 ára farsæla sambúð.
Það var mikið áfall fyrir hana,
hann hafði verið henni góður föru
nautur, og búið henni gott heimili.
Blómagarði kom hún upp við
hús sitt snemma á búskaparárum
sínum, sem var til mikillar prýði,
og blóm í stofum hennar báru
þess merki að um þau var hugsað
af alúð. Handavinna hennar var
falleg og vel unnin.
María var glæsileg kona, sem
hvarvetna vakti eftirtekt. Hún var
lánsöm í lífinu, átti góðan mann
og myndarleg börn, sem allt vildu
fyrir hana gera, enda naut hún
ástar þeirra og umhyggju til
hinztu stundar. Heilsugóð var
María fram á síðustu ár. og alltaf
átti hún heima á sama stað.
Eftir að hún hætti sjálf búskap,
var hún hjá Hjálmari syni sínum
og konu hans, Sigurveigu Einars-
dóttur í Sandhúsi. Og þótt hún
dveldi á vetrum hjá dætrum sín-
um á Seyðisfirði, kom hún ævin-
lega, þegar fór að vora heim í
Sandhús, þangað stóð hugur
það þung raun fyrir Maríu að sjá
á bak dóttur sinni, er ávallt hafði
verið henni ómetanlegur styrkur.
5. Jón, kvæntan Jónínu Baldv.-
dóttur, búsettan í Keflavík, og
6. Sigríði, gifta Einari Ólasyni,
búsett á Seyðisfirði.
Auk þess ólu þau upp frænku
Mariu, Brynhildi Haraldsdóttur,
hennar.
Síðastliðið haust fór hún eins
og áður til Seyðisfjarðar, til Sig-
ríðar dóttur sinnar og manns henn
ar, Einars Ólasonar. og var þar
þangað til að hún lagðist inn í
sjúkrahús Seyðisfjarðar, en þar
andaðist hún eftir þriggja mánaða
BALASTORE sólgardínan
er ný á íslenzkum markaði.
Nafnið BALASTORE er
orðið þekkt um alla Evrópu
og nýtur vaxandi vinsælda.
BALASTORE sólgardínan
er nú fáanleg hjá okkur í
stærðunum:
tilbúin til afgreiðslu. Hún
verður fáanleg í stærðunum
40—260 cm, og hæð að 200
—210 em.
BALASTORE sólgardínan
hentar hverju nútíma heim-
ili.
Gerið svo vel og komið og sjáið sýnishorn í verzlun okkar.
IKRISTJAN SIGGEIRSSON H. F.
Laugavegi 13, sími 13879.
/AWMiVWóSVóíiVi,.V/i,íóí.Vi,,V.WiV»V.Vóí.,.,.'.Wi,AV.Wó,iV.\V.ViV/.Wi
legu hinn 30. júlí s. 1., eins og með bjartari vonir. Slík voru áhrif
áður er sagt. • hennar á samferðafólk sitt.
María átti margar ferðir inn í Hugur reikar austur á Mjóa-
kirkju sina og söng þar oft við fjörð, þar blakta fánar í hálfa
guðsþjónustur, enda var söngur stöng. óvenjumikið fjölmenni safn-
góður í kirkjunni og gott þangað ast saman og nemur staðar við
að koma. Oft hafði hún orð á því, Sandhús, ,-umt er langt að komið.
að altaristaflan væri falleg. Hún Þetta fólk er samankomið til þess
er listaverk, sem vekur eftirtekt. að kveðja síðustu kveðju Maríu
Hún er prédikun, „ef að er gáð, Hjálmarsdóttir. Þetta eru börn
— þá opnast sýn“. hennar, vinir hennar og vanda-
Nú er María Hjálmarsdóttir menn. Að heilsast og kveðjast,
horfin sjónum okkar yfir móðunarþað er lífsins saga.
miklu. Við biðjum henni góðrar i ’ Það eru sungnir sálmar og bæn-
heimkomu. Að leiðarlokum er: ar er beðið. menn drúpa höfði, og
margs að minnast, og margt að af stað er gengið, inn að kirkjunni
þakka. Eg og kona mín þökkum | sem stendur hátt í grænu túni.
henni vináttu og tryggð á langri Kirkjuklukkur hringja, í kirkju er
samleið og margar ánægjustundir gengið og María er kvödd hinztu
á heimili þeirra, þau kunnu vel kveðju.
gestum að fagna. Þangað var gott Guð blessi minningu hennar.
að koma, ekki sízt þeim er áttu . , ,
við erfiðleika og veikindi að Reykjavrk, 7. águst 1961.
stríða. Þeir fóru þaðan hressir og Jón Ingvar Jónsson
Tílboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir er verða sýndar í Rauðar-
árporti fimmtudaginn 10. þ. m. kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5
sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna
Flugfargjöld til NewYork
Það tilkynnist heiðruðum viðskiptavinum okkar,
að frá og með 7. ágúst verða flugfargjöld milli
Reykjavíkur og New York sem hér segir:
Reykjavík—New York 6.890.— 12.402.—
Vetrarfargjöld 10.593.—
LOFTLEIÐIR H.F.
Þakka hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
mannsins míns.
Jóns Guðjónssonar
frá Fíflholtum.
Ingigerður Þorsteinsdóttir.
Þökkum innilega hlýhug og vináttu okkur sýnda við jarðarför
Ingvars Halldórssonar
frá Sandhólaferju.
Sérstakiega viljum við þakka meðlimum Ungmennafélags Ásahrepps
og öllum öðrum, sem lögðu fram mikið starf án endurgjalds.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðrún Halldórsdóttir, Elías Halldórsson,
Slgurður Guðmundsson, Anna Sumarliðadóttir.
ÞAKKARÁVÖRP
Þakka hjartanlega öllum þeim, sem glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 70 ára
afmæli mínu, 18. júlí.
Sigríður Jónsdóttir,
Skála, Eyjafjöllum.
Öllum þeim, sem glöddu mig á áttræðisafmæli
mínu, 27. júlí síðastliðinn, færi ég mínar beztu
þakkir. Sérstakar þakkir færi ég Kjartani lækni
og öðru starfsfólki Sjúkrahúss Suðurlands. Einnig
þakka ég öllum þeim fjölmörgu, er hafa heim-
sótt mig hér og í Reykjavík síðastliðið ár.
Guð blessi ykkur öll.
Sesselja Ögmundsdóttir,
Lágafelli.