Tíminn - 10.08.1961, Page 4

Tíminn - 10.08.1961, Page 4
4 TIMIIN N, fimmtuaaginn 10. agusi igoi. LV ÞREFALT SYSTRABRÚDKAUP Fyrir skömmu sagði frétta- ritarinn okkar í Trékyllisvík á j! Ströndum frá þreföldu systra- ■; brúðkaupi þar norður hér í blað !| inu. Nú hefur hann gert enn j! betur og sent okkur myndir, j! teknar við þetta tækifæri. Birt- Ij ast myndimar her. — Onnur "■ þeirra er af brúðhjónunum, er j! þau ganga í kirkjuna. Hin er Ij tekin eftir vígsluna sunnan und Ij ir kirkjunni. Er það stæiri |I myndin, og á henni sjást talið frá vinstri: — Fanney og Jón Ij Jónsson, Solveig og Guðmund- jl ur Jónsson, Anna og Þórður I; Magnússon. Brúðimar em allar Ij dætur Jóns Guðmundssonar í jl Stóru-Ávík og konu hans Unnar »J Jónsdóttur. 1» ■.V.V.V.V.V.V.W.V.VV.V.ViW.V.V.W.W.W.V.V.V.'.VAV.V.'.Vi . .V.V.V.V.V.V.' Þéfiö, þegar togarinn SoufEheBia var tekinn Laust eftir miðnætti aðfara- nótt laugardagsins 5. ágúst síð- ast liðinn kom gæzluflugvélin TF Rán að brezka togaranum Southella H-303, þar sem tog- arinn var að ólöglegum veið- um 1,6 sjómílur innan fiskveiði takmarkanna út af Álftanesi, sem er skammt norðan við Seyðisfjörð. Togarinn var að veiðum með stjórnborðsvörpu og sneri þeg- ar út úr landhelginni, er hann varð flugvélarinnar var. Varð- skipið Þór var statt skammt undan eða grunnt út af Gerpi. Gerði flugvélin varðskipinu viðvart og hélt það á fullri ferð í áttina til togarans, sem sigldi til hafs á fullri ferð, eftir að hafa dregið inn vörpuna. Kl. 2,24 hafði varðskipinu tekizt að stöðva togarann, eftir að það hafði skotið nokkrum lausum skotum að honum. Veður var slæmt þarna, norðvestan bræla. Skipstjórinn á togarunum, Georg Pearson að nafni, frá Hull, nei'íaði að taka við varöskipsmönnum um borð í skip sitt og kvaðst ekki hafa verið að veiðum innan fisk veiðilandhelginnar. Sætzt var á af hálfu land- helgisgæzlunnar að bíða komu brezku freigátunnar Duncan, ef það mætti greiða fyrir málinu, en venja hefur verið að leyfa erlendum herskipum, sem hér eru við fiskveiðieftirlit, að fylgjast með gangi slíkra mála. KL hálfníu um morguninn kom brezka freigátan á vett- vang. Yfirmaður frá herskip- inu kynnti sér aðstæður, en kvaðst ekki geta aðhafzt neitt frekar í málinu. En kvað tog- araskipstjórann nú vera að bíða eftir fyrirmælum frá út- gerðarfélagi sínu. Klukkan rúmlega tólf kvaðst skipherrann á Þór ekki bíða lengur, og sigldi togarinn þá af stað í áttina til hafs. Varð- skipið fór þegar af stað á eftir togaranum og hóf skothríð. Stöðvaði togarinn þá von bráð- ar og féllst skipstjórinn á að fylgjasl með varðskipinu til Seyðisfjarðar, en þangað komu skipin svo klukkan um sex á laugardag. Garðar Pálsson, sjóliðsfor ingi, sem nú er stjórnandi á TF Rán, kom til Seyðisfjarðar á sunnudagskvöld og hófust réttarhöld í máli togaraskip stjórans þar á mánudagsmorg un. Bæjarfógetinn á Seyðisfirði Erlendur Þorsteinsson, dæmir í málinu, en verjandi skipstjór ans er Gfsli ísleifsson, lögfræð ingur. Dómtúlkur er Ólafur 'Framh. a bls. 15.) Hinir fjórir bílar forsetaembættisins Nýi forsetabíllinn hans Kennedys er dálítið annað tóbak en farartækin, sem Bandaríkjaforsetar notuðu fyrir um hálfri öld. Bíllinn er af gerðinni Lincoln Cont- inental Convertible, hann er 7 metra langur og eins fínn og hægt er. Þess má og geta í sambandi við bílinn, að hann var ekki tekinn af fjöldaframleiðslunni, heldur var hann smíðaður sérstak- lega, undir eftirliti margra verkstjóra. Sá fyrsti af hinum bandarísku forsetum, sem vogaði sér upp í sjálfhreyfivagninn, var William McKinley. Ríghélt sér í sætið Árið 1901, nánar tiltekið 18., júlí, bauð bílaframleiðandinn Sib : Davis írá Cleveland McKinley j forseta í ökuferð í nýmóðins sjálfhreyfivagni. Þegar forset- inn fór í sína fyrstu ökuferð, var hann náfölur og ríghélt sér í sætisbakið fytir framan sig. Nokkrum mánuðum síðar fór hann í aðra ökuferð, þegar sjúkrabíll flutti hann á sjúkra- 'hús eftir að ofstækisfullur morð- ingi hafði skotið á hann úr skammbyssu á sýningu í Buffalo. Taft var með bíladellu Næsti forscti á eftir honum, Theodor Roosevelt, kaus að fara ferða sinna í fereykisvagni, en notaði þó endrum og eins gufu- knúinn vagn. Sá næsti á eftir honum, William Hovard Taft, var með ákafa bíladellu og lét gera bílastæði við Hvíta húsið. Hann lét rífa gömlu hesthúsin til þess að rýma fyrir hinni nýju tækni. Eftirkomendur hans, X Togarinn Southeila liggur hér.við bryggju á SeyðisfirSi^vitS hlið Þórs sem kom með hann til hafnar eftir nokkurt þóf. Woodrow Wilson og Warren G. Harding, notuðu bifreið þá, sem hann keypti í sinni stjórnartíð, en hún var af gerðinni Pierce Arrow og var á sínum tíma álit- in undursamleg með tilliti til þæginda og útlits. En þao var ekki fyrr en með tilkomu Hardings forseta árið 1921, að bílarnir leystu fereykið endanlega af hólmi. Áður hafði það verið notað við allar mjög hátíðlegar athafnir, eln hann lagði það alveg til hliðar, og not- aði Pierce Arrow bifreiðina við öll tækifæri. Var vinur gamla Fords Og Pierce Arrow bíllinn var eini bíll forsetaembættisins, allt þar til Calvin Coolidge tók við. Hann lagði bílnum og lét kaupa nýjan Lincoln Limousine, mest vegna þess, að hann var náinn vinur Henry Ford. Það var árið 1939. Hann var síðan notaður allt til ársins 1950, þegar Trum- an lét endurnýja hann með því að kaupa hinn fræga Lincoln „blöðrutopp“, sem Eisenhower síðan notaði allan sinn stjórnar- tíma. Og hann spjaraði sig vel þangað til í júnímánuði síðast liðnum, að Kennedy fargaði hon- um fyrir hinn sérlega byggða Lincoln Continental Convertible af árgerð 1961. Málflutningsskrifstofa MálfJutningsstörf. innheimta, fasteignasala skipasala. Jón Skaftason hrl. lón Grétai Sigurðsson. lögfr. Laugaveg) LU5 (2 bæð) Simi 11380

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.