Tíminn - 10.08.1961, Síða 9

Tíminn - 10.08.1961, Síða 9
TÍMINN, fimmtudaginn 10. ágúst 1961. í Þess eru dæmi, aS fólk, sem býr við mikla líkamlega ör- orku, þroskar svo andlega eig- inleika sína, að það lifir auð- ugu og ánægjulegu lífi. Sé ör- orka hins vegar sprottin af vitsmunaskorti, hvort sem hann er meðfæddur eða hefur orsakazt af sjúkdómum eða slysum, þrengist mjög það svið, sem einstaklingurinn hef ur til þroska. Slíkt fólk verð- ur því enn háðara umhverfi sínu en hinir. Hérlendis eru enn ekki nægilega góð skil- yrði til þess að veita öllum þess háttar öryrkjum æskilega umönnun, því að breyttir heimilishættir verða þess vald andi, að færri heimili verða þess megnug að annast þá, vegna fólksfæðar og þröng- býlis. í Kópavogi rekur ríkið hæli fyrir vangefið fólk og veitir frú Ragnhildur Ingibergsdóttir, lækn- ir, því forstöðu. Er hún eina kon- an, sem gegnir yfirlæknisstöðu við sjúkrastofnun hérlendis. Mað- |um, eru ca. 29% með greindarvísi- ítölu frá 75—50, 38% eru með greindarvísitölu frá 50—35, og 33% eru með greindarvísitölu undir 35. Það er að segja, að í Brejning, þar sem tala sjúklinga er um 1700, eiru 500 vanvitar, 650 hálfvitar og 550 örvitar. Ef við gerum ráð fyrir, að hlutfalls- lega jafnmargir þurfi á hælisvist að halda hér á landi og í Dan- mörku, þá þyrfti hér hæli fyrir 340 vistmenn miðað við núverandi fólksfjölda. — Hve margir rúmast hér á hæl- inu? — Við höfum nú 92 vistmenn og er þá bókstaflega drepið í hverja smugu. Þegar lokið verður, byggingu starfsmannabústaðar,! ættum við með sömu nýtingu hús- næðis að geta bætt við 20 vist- mönnum. (Eg skal skjóta því hér inn í, að j auk Kópavogshælisins eru aðeins j tvaér aðrar stofnanir, sem annast vangefið fólk, barnaheimilið að Skálatúni, sem rúmar um 27 börn og Sólheimahælið, sem rúmar um 34 vistmenr.. Samtals er því til hælisrúm fyrir um 153 vistmenn.) — Hafið þér ekki námsstúlkur hér á hælinu? — Jú, að áeggjan Vilmundar Jónssonar þáverandi landlæknis Fró Ragnhildur Ingibergsdóttir, yfirlæknir. „Það er furðu margt, sem þeir geta og gera“ ur hennar, Björn Gestsson, kenn- ari, er ráðsmaður og starfskenn- ari á hælinu. Yfirhjúkrunarkona er frú Ásta Björnsdóttir. Hitti ég hjónin að máli fyrir skömmu og skoðaði hælið undir leiðsögn þeirra. Bað ég frú Ragnhildi að segja mér af starfseminni og öðra þar að lútandi. — Allt frá upphafi mannkyns- ins hafa verið til einstaklingar, sem voru upp á aðra komnir vegna greindarskorts, sagði hún, en fá- vitahæli var þó ekki stofnað fyrr en árið 1828 og var það í Austur- ilki. Kennari að nafni Goggenmos gekkst fyrir því. Það hæli var ætl- að fólki, sem haldið er sérstökum sjúkdómi, sem nefnist Kretinism- us og var landlægur í fjallahéruð- um Alpanna, en kemur varla fyrir hér á landi. Síðar fékk svissneski læknirinn Guggenbuhl áhuga á þessum málum og stofnaði hæli árið 1840 á Abendberg í Kanton, Bein í Svi^s, og upp úr því fer hælunum að fjölga. Danir voru meðal þeirra fyrstu, sem stofnuðu hæli fyrir vangefið fólk. Hér á landi var fyrstu stofnuh þeirrar tegundar komið á fót um það bil hundrað árum eftir að fyrsta fá- vitahælið var stofnað í Evrópu. Var það barnaheimilið Sólheimar í Grímsnesi, sem frú Sesselja Sig- mundsdóttir hefur veitt forstöðu alia tíð. Við fslendingar höfum því orðið um hundrað árum á eftir nágrönnum okkar í þessum málum og liggja til þess margar augljósar orsakir, sem ég ætla ekki að fjölyrða um. — Hva'ð er að jafnaði talið að mikill hluti hverrar þjóðar séu ör- yrkjar vegna vitsmunaskorts? — Engar nákvæmar skýrslur eru til um það hérlendis, eh sem hliðstæðu má nefna ástandið í Danmörku. í bréfi, sem M. Claus- ager, yfirlæknir við Den Kellerske Institution í Brejning skrifar mér á þessu ári um þörfina fyrir hælis- rúm þar í landi, nefnir hann eftir- farandi tölur: 1 af hundraði af 'íbúunum eru vangefnir, ef miðað er við gremdarvísitöluna 75. 4 af hverju þúsundi eru á framfærslu hins opinbera vegna greindar- skortí- en 2 af hverju þúsundi eru á hælum. Af þeim, sem em á hæl-1 og Georgs Lúðvíkssonar fram- ; kvæmdastjóra ríkisspítalanna, var haustið 1958 byrjað að kenna stúlkum, sem læra vildu gæzlu og I umönnun vangefinna. Kennd er I sálarfræði, líkams- og heilsu- , fræði og undirstöðuatriði hjúkr- unar, bókleg og verkleg. Þetta er tveggja ára námsskeið og jafn- framt vinna stúlkurnar á stofn- uninni, þar sem slíkt nám hlýtur að vera að miklu leyti verklegt. Nú hafa fimm stúlkur lokið prófi, þar af eru þrjár starfandi hér á stofnuninni, ein er gift og ein er við framhaldsnám í Danmörku og hefur til þess hlotið styrk frá Styrktarfélagi vangefinna. — Er erfitt að fá stúlkur til að stunda þetta nám? — Enn þá hafa alltaf borizt fleiri umsóknir en hægt hefur verið að sinna. En það er nauð- synlegt, að í þetta starf veljist góð-' ar stúlkur og glaðlyndar. Þær þurfa fyrst og fremst að vera hlý- legar og þolinmóðar. Á svona stofnun verður alltaf að ríkja ró og reglusemi, því að allur gaura- gangur og hávaði, já, jafnvel all- ar breytingar, eru miður æskileg- ar. Bezt er að hafa sama fólkið sem lengst og sama lag á öllum hlutum. Enn sem komið er, getum við I ; Frú Sigríður Thorlacius ræðir við yfir- lækninn á Kópavogshælinu - frú Ragn- hildi Ingibergsdóttur ekki tekið við nema 3—5 nemum árlega. Þær stúlkur, sem hér hafa starfað, hafa reynzt góðar og hugs unarsamar og oft lagt á sig vinnu og snúninga umfram skyldustörf. — Hvort teljið þér æskilegra að stefna að stækkun þessa hælis eða stofnun fleiri hæla? — Miðað við það, sem tíðkast erlendis, er þetta lítil stofnun og yrði jafnve) ekki úr hófi stór, þótt fullnægt væri hér á einum stað hælisþörf fyrir landið allt. En kostir við stóra stofnun era svo margir, að vafalaust ætti að stefna að því að mynda eitt stórt hæli. Þá er hægt að flokka sjúk- lingana í samstæðari deildir. Meiri líkur eru til að fá sérmennt- að fólk til staifa, þar sem vinnu- skilyrði eru betri og verkaskipt- ing meiri. Einnig er heppilegra, að tvær til þrjár manneskjur á sömu stofnun séu færar um að stjórna. Reynslan hefur sýnt, að mjög erf- itt er, að allt hvíli á einni mann- eskju, jaínvel þótt stofnunin sé ekki stór. — Er ekki reynt að láta sjúk- lingana vinna, eftir því sem geta þeirra leyfir? — Jú, og það er furðu margt, sem þeir geta og gera. Sumir hjálpa til á deildunum, létta undir með smásnúningum, þvo upp, sópa gólf, leiða þá úti, sem þess þurfa með og leika við þá, sem eru á því stigi. Við höfum stóran kartöflugarð, sem piltarnir vinna (við, en handavinnuna skulum við skoða um leið og við göngum um stofnunina. Þau hjón fylgja mér síðan um allt hælið. Andspænis skrifstofu þeirra er tannlækningastofa, sem nýtekin er til starfa. Þangað kem- ur tannlæknir, þegar þess er ósk- að, svo að ekki þarf að óróa sjúk- lingana með því að fara með þá út af stofnuninni til aðgerða. Þar er einnig lækningastofa, þar-sem fram fara allar venjulegar læknis- aðgerðir og skoðanir og einnig eru þar gerðar greindarprófanir. Inn af þessum gangi eru svo tvær stór- ar vinnustofur, önnur fyrir karla, hin fyrir konur. Á milli þeirra eru hurðir, svo að sameina má báðar stofurnar, þegar sýndar eru kvik- myndir eða guðsþjónustur fara fram. Kvikmyndasýningar eru venjulega einu sinni í viku og gaf Styrktarfélag vangefinna kvik- myndavélina og vandað segulbands tæki, og segir frú Ragnhildur, að hvort tveggja sé til mikillar skemmtunar og hagræðis. j í fremri stofunni binda karl- mennirnir bursta og kústa og hafa þeir búið til um 560 stykki af slíku á s. 1. ári. Kaupir Landspít- alinn og Vífilsstaðahælið fram- leiðsluna, sem er umfram það, sem nota þarf heima. Botnvörpunætur eru hnýttar og var lokið við 10 nætur á árinu og sagði netagerð- armaður sá, sem við framleiðsl- unni tók, að margir heilbrigðir menn gengju ekki eins vandlega frá hnýtingunni og vistmennirnir þarna. Útgerðarmenn hafa látið hælið hafa ónýta lóðastrengi úr sísalþræði og úr þeim hafa verið brugðnar gólfmottur, en áður er þráðurinn iitaður á hælinu. Snæris renninga úr nýjum þræði hafa vistmenn ofið og eru þeir fyrsta flokks vinna, sem þolir saman- burð við hvaða vefnað sem er. Það er Björn, sem kennir piltun- um handavinnuna. í innri stofunni sitja nokkrar konur við að vefa og prjóna og ein klippir niður pappír og tuskur til að stoppa með púða, sem önnur hefur saumað úr smápjötlum. Þarna eru meðal annarra systur tvær austan úr Suðursveit, sem komu á hælið, er móðir þeirra dó frá þremur vangefnum börnum sínum, sem öll voru komin yfir miðjan aldur. Frú Ragnhildur og handavinnukennarinn frú Stein- unn Jónsdóttir, segja, að þessar systur séu ákaflega duglegar, þær i spinna og prjóna mikið. Inni í herberginu þeirra sefur fimm ára gamall drengur, sem þær kalla fósturson sinn og elska mjög. Annar drengur, sem var á hælinu, þegar þær komu, dó, og grétu þær þá sárt, en hafa nú snúið ást sinni að litla munaðarleysingjan- um, sem þessa stundina ríslar sér úti undir húsvegg, Ijóshæit barn og frítt, þótt sjúkleikamerki sjá- ist á honum. Yfirleitt segja þau hjón það einkenni á vangefnu fólki, hve elskt það sé að börnum. Þarna I vinnustofunni er keppzt við verkin, og þau hjón segja, að vinnugleði sé mikil hjá vistfólk- inu, ef þess sé gætt, að það þreyt- ist ekki. Að jafnaði vinnur hver hópur tvo tíma í senn og ekki má hafa of marga saman, svo að ekki skapist órói. Stúlkurnar vinna öll ullarnærföt á vistmenn, þær pijóna sokka, tátiljur og vettlinga, jafnvel heilar peysur og vesti, svo að ekkert af þessu þarf að kaupa og borgast allt efnið, sem keypt er að. Þá eru einnig ofnir gólf- og afþurrkunarklútar, og tusku- teppi eru unnin úr gömlum flík- íFramhald ð 13 siðui Kópavogshælið. — Hæsta húsið er gamla byggingin, þar sem hælið hef ur starfað í mörg ár, en lágu bygglngarnar tvær eru viðbætur, sem gerðar hafa verið á síðasta áratug.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.