Tíminn - 13.08.1961, Qupperneq 4

Tíminn - 13.08.1961, Qupperneq 4
4 T í M IN N, SMnnudaginn 13. ágúst 1961. V. V,. <w V- l. bATTUR KIRKJUNNAR rrrcrrrcr y]ýtt tilío] j-n% ohh ur Léttir, fallegir og þægilegir iiskór úr fyrsta flokks plastefni, njóta æ meiri vinsælda ánæg'ðra kaupenda. Tilboð okkar innifelur fjölmargar tegundir nýtízku skófatnaðar, sem áreiðanlega mun auka sölu yðar. Þess vegna ættuð þér nú að birgja yður upp. Umboðsmenn okkar munu fúslega veita yður allar nánari upplýsingar og uppfylla sérkröfur yðar: EDDA h.f. umboðs- og heildverzlun Grófin 1, Reykjavík Útflytjendur: DEUTSCHER INNEN - UNDAUSSENHANDEL TEXTIL BERLINW8 • BEHRENSTRASSE46 Deutsche Demokratische Republik B A N N „Varðveit þú hjarta þitty/ Öll umferð um Fróðárland, Fróðárhreppi, Snæ- fellsnessýslu, til berjatínslu, fugladráps o. s. frv., er strangega bönnuð öllum óviðkomandi. JarSeigandi Manntalsþing Hið árlega manntalsþing verður haldið í tol.lstjóra- skrifstofunni í Arnarhvoli þriðjudaginn 15' þ. m. kl. 4 e. h. Reykjavík, 11. ágúst 1961. Tollstjóraskrifstofan, Arnarhvoli. Otrúlega fáar áminning ar virðast mikilsverðari nú á dögum en þessi orð helgra „Varðveit þú hjarta þitt.“ ritninga frá löngu liðnum öldum. Hjartað verður að stand- ast mikla raun, stundum ofraun, á tímum hins kalda stríðs hins mikla hraða. Og ein helzta dauðaorsök á skýrslum læknkanna er einmitt: Brostið hjarta“. Allt í einu verður spenn- an of mikil, byrðin of þungj erfiðið ofviða fyrir þessa undursamlegu lífsins vél, sem aldrei fær andartaks hvíld að heita má frá vöggu til grafar. Hjartað og starf þess er heill heimur út af fyrir sig. Og allt, sem við sjáum og heyrum, störfum að og lifum fyrir, hefur þar sín álirif. Það er þessi litla veröld í okkar eigin barmi, sem rúmar allar lífsins kenndir í hita tilfinning- anna fyrir öllu því, sem gerist í heimi atvikanna. Við finnum slög þess í gleði og sorg, í ótta og til- hlökkun. Það fylgist með og veldur mestu um gæfu eða ógæfu, heilbrigði eða heilsuleysi. Og hver ein- ast maður eða kona, sem við mætum, á einnig sitt hjarta með óteljandi strengi, sem titra við hvern slátt þess, unz öll eru. Eitt af sérkennum tím- anna, eitt af táknum ald- arfarsins eru fréttir um hjörtu, sem hættu allt i einu að slá, að því er virt- ist löngu fyrir tímann, af því að þeim hafði verið of boðið, þau höfðu ekki ver- ið varðveitt, ekki veitt stund til undansláttar við hraða og spennu, stund á friði og lotningu, þögn og kyrrð. En samt er þetta hjarta, þessi st;arfsheimur í barmi hverjum, aðeins hið ytra þess, sem kalla mætti inn- tak þeirrar hugsunar, sem felst á bak við orðin „að varðveita hjarta sitt“. Frá löngu liðnum öldum hefur orðið hjarta verið tákn alls þess, sem nefnt er til- finningalíf mannssálar, kjarni vitundarlífs og per- sónuleika hverrar mann- eskju. Samkvæmt þeim hugsanagangi elskum við, trúum og vonum með hjart anu. Allt hið æðsta, allt hið göfuga og innsta í vitund og vild er þannig háð því og þess starfi, beint eða ó- beint á raunverulegan eða táknrænan hátt. Allt, sem snertir hið innsta „ég“ rúm ast þannig í orðinu eða hug takinu hjarta. Og þannig verður þessi litla veröld í barminum býsna stór, eigin lega andlegur heimur, sem rúmar í sér samúð og um- hyggju, ást og tryggð, lang anir og þrár, fögnuð og harma. Og jafnframt vor- um við gædd hæfni til að gefa eða glata auði þessar- ar veraldar í hjartanu, varð um, göfga hann og hreinsa eða vanrækja hann og saurga. Og þessi varðveizla fer fram í orðum og athöfn um, þar getur eitt svip- brigði, eitt hljómfall í orði og tóni, eitt bros, handtak eða hreyfing valdið örlög- um og hamingju vors eig- in hjarta eða annarra. Ekk ert er eins viðkvæmt, ekk- ert eins fíngert og þessi und arlegi heimur mannlegra tilfinninga. Þar eru orð skáldsins: „Aðgát skal höfð í nærveru sálar“, og „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt" í fullu gildi. Þar gildir mest þetta samspil frá hjarta til hjarta til að veita heimi mannkyns alls farsæld og frið. Þar veldur ástand hjartans á þessum skilningi mestu, miklu meira en allt hið ytra, þótt heimspekingar efnishyggj - unnar geri hjartað gjarnan í sínum frásögnum og fræðum aðeins líkt og hluta áf vél eða það sem þeir kalla „pumpu bak við bringubeinið“. sem dæli blóðinu fram og aftur um líkamann. Þetta er rétt, svo langt sem það nær, en samt sem áður fátæklegur hálf- sannleikur, þegar um er að ræða þann heim, sem heit ir mannshjarta. í heimi mannlegrar ham ingju ræður „hjartalagið", hjartahreinleikinn, hjarta- hitinn mestu. Við segjum og skrifum „hjartans þökk“, þegar öll vitundin eignast samspil í þakklæt- inu. Við segjum líka: „Eg elskav þig af öllu minu hjarta“. Og það þýðir allt annað og miklu meira en þótt sagt sé: „Eg elska þig af allri minni blóðpumpu". Og jafnvel þó að við yrð- um nú enn nákvæmari í vís indalegn hugsun og segð- umst elska eða hata af öll- um heila eða allri skyn- semi, þá yrðu jafnvel orð- in köld og steindauð. Þannig er hjartað, það sem spekingurinn sagði í orðsins fyllstu merkingu, uppspretta eða aflstöð lífs- ins, mannlegrar hamingju. Frá hjartaslögum þínuum streymir líf þitt og þar varð veitir þú ást þína og kær- leika, þitt æðsta gildi, þitt helgasta „ég“. Þetta þarf að hafa í huga í sambandi við allt í sálmum og ljóðum, helgum fræðum og söng, þar sem hiarta er með í leik orðanna og ívafi efnis og snilldar. Hjarta táknar hinn innsta kjarna þeirrar andlegu kraftstöðvar, sem skapar mannkyni heillir Við getum ekki verið án hjartsláttar frá samferða- fólkinu, ef svo mætti segja. Því það er víst, að beztu blómin gróa í brjóstum, sem að geta fundið til. Sam úð, mildi og skilningur hjartans brúar öll höf, ger ir allar vegalengdir stuttar alla hamra kleifa, sefar í hörmum og neyð, lífgar og gleður. í hvert sinn, er við gefum eithvað eða njótum einhvers af þessum auði hjartans, verður heimurinn okkar betri og bjartari, í hvert sinn, er við finnum vöntun þessarar hjartans auðlegðar, verður kalt og dimmt eða sárt, allt eftir aðstæðum. Þess vegna er maður hjartaauðsins enn þá mik- ilsverðari lífi heimsins í dag en spekingur hugsana, jafn vel enn þýðingarmeki en allir geimfarar og tízkutrúð ar, þótt ekki skuli þeir og þeirra athafnir lítilsvirt. „Varðveit þú hjarta þitt, ávaxta auð þess, ást þess, og samúð, gæt þess vel, sem göfgast hjá þér finnst, glæddu vel þann neista, sem liggur innst“. Þar, við þínar hjartarætur, er lífs- gróðurinn, sem einn getur veitt samtíð og framtíð þann unað frelsis og bræðra lags, sem öll hjörtu þrá heit ast. Það er sama þótt þú farir um allar jarðir, já, alla leið til tunglsins eða plánetanna með geimför- um og eldflaugum stór- velda heims, þú finnur ekki hamingjuna þar, ef þú hef ur ekki fundið hana í þín- um eigin barmi. „Varðveit því hjarta þitt, fremur öllu öðru, þar eru uppsprettur lífsins". Árelíus Níelsson. WW^.VAV.%VAV^AV.VAV.V.V.V.%%W.V.W.%%S%W.V,WW.-.>%-.V.VW.VA%VW.V.-.V.W, ■ ■ ■ ■ ■ I .W.V, A-ÞÝZKALAND B-LID ISLAND keppnin í frjálsum íþróftum heldur áfram í kvöl d kl. 8. Keppt verður í 8 greinum auk 2000 metra hlaups, sem hinir heimskunnu hlauparar VALENTIN og GRQ00TZKI keppa í og munu reyna heimsmetið. Frjálsíþróttasambaml íslaæiR

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.