Tíminn - 13.08.1961, Síða 5
TlMINN, suimudaginn 13. ágúst 1961.
^ .
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason. Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábj, Andrés
Kristjánsson, Jón Helgason Fulltrúi rit-
stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsinga
stjóri: Egili Bjarnason — Skrifstofur
í Edduhúsinu — Simar: 18300—18305
Auglýsingasími: 19523 Afgreiðslusími:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
•v.x.v.v.x.vx.v.'v v.x.'v.'v.v.'vy
Hvers vegna var
krónan íelld?
Hvers vegna réðst ríkisstjórnin í það vanhugsaða
fljótræði að lækka gengið og beitti til þess hinum ólýð-
ræðislegustu bolabrögðum? Þetta er sú spurning, sem
menn leita nú einna mest svara við.
Það svar er þegar fengið, að þessa hafi ekki verið
hin minnsta þörf vegna atvinnuveganna. Dæmi það, sem
Eysteinn Jónsson hefur greint frá varðandi afkomu frysti
húsanna, sýnir það betur en nokkuð annað. Við þetta
bætist svo, að verðlag útflutningsvara hefur farið hækk-
andi og að síldveiði verður mörgum sinnum meiri í ár
en um langt skeið. Með hinum hóflegu kaupsamning-
um, er voru gerðir í sumar, var því lagður grundvöllur
að varanlegum kjarabótum, stöðugu gengi, jafnvægi í
þjóðarbúskapnum og vinnufriði í þjóðfélaginu, ef ríkis-
stjórnin hefði ekki kollvarpað þessu öllu með gengis-
lækkuninni.
Hvað rak þá ríkisstjórnina til þess óhappaverks og
ofbeldisverks? Það er ekki undarlegt, þótt menn spyrji.
Svarið við þessari spurningu er í stuttu máli þetta:
í fyrsta lagi er hér að ræða um hefndarráðstöfun,
því að ríkisstjórnin hafði orðið undir í kaupdeilunum
í sumar og vildi ekki láta það sjást, að þær kaup-
hækkanir, sem hún hafði barizt á móti, gátu vel stað-
izt. Með þessari hefndarráðstöfun á að hræða laun-
þega og bændur frá því að knýja fram kjarabætur,
því að ríkisstjórnin geti strax eyðilagt þær með
gengislækkun.
í öðru lagi er þetta í samræmi við þá stefnu, sem
ríkisstjórnin fylgir, að hér eigi að vera þjóðfélag fárra
ríkra og margra fátækra. Eins og foringjar Alþýðu-
flokksins hafa lýst svo rækilega oft áður, er það ó-
hjákvæmileg afleiðing gengislækkana að gera þá ríku
ríkari og fátæku fátækari.
í þriðja lagi er það takmark ríkisstjórnarinnar
með þessu að reyna að hæna hingað erlent einkaf jár-
magn á þeirri forsendu, að hér sé miklu lægra kaup-
gjald en í öðrum löndum. Þetta hefur hvað eftir ann-
að komið greinilega fram, bæði í Mbl. og Vísi. Áhrifa-
menn í Sjálfstæðisf lokknum dreymir bersýnilega
orðið um, að þeir geti matað krókinn með því að ger-
ast umboðsmenn erlendra auðhringa. Um hitt er ekki
skeytt, þótt þetta verði keypt því verði, að kaupgjaldi
og lífskjörum verði haldið hér langt neðan við það,
sem er í nágrannalöndum okkar.
Allar eru þessar ástæður ríkisstjórnarinnar fyrir
gengislækkuninni jafn rangar og fordæmanlegar.
Allar sýna þær jafnljóst, að hér er á ferð hættuleg
ríkisstjórn, hefnigjörn. ofstækisfull. einræðissinnuð —
ríkisstjórn, sem stefnir að auknu misrétti og stéttaskipt-
ingu í þjóðfélaginu, — ríkisstjórn, sem ekki aðeins þjón-
ar innlendum auðjöfrum, heldur er reiðubúin tii að
þjóna af engu minni tryggð erlendum auðhringum og
berjast fyrir kjaraskerðingu íslenzkrar alþýðu í þágu
þeirra.
Gegn slíkri ríkisstjórn verður að magna samstillt al-
menningsálit og knýja hana þanmg til uppgjafar sem
fyrst.
(
i
)
)
. )
f
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
GAGARIN
T I T O F F
SHEPARD
GRISSOM
Geimfararnir hafa
margt sameigin egt
Margt er skrifað og skraf
að um geimfarana, bæði þá
rússnesku og amerísku.
Hér á eftir fer grein, þar
sem gerður er nokkur sam-
anburður á þeim. Hún er
eftir enskan blaðamann og
birtist nýlega í Daily Her-
ald.
Þér ættuð að spyrja ein-
hvern þeirra fjögurra, sem hér
birtast myndir af, einhvers
um hann sjálfan. Hver þeirra,
sem væri, myndi ugglaust
svara eitthvað á þá leið, að
hanr væri í rauninni ósköp
ven.iulegur náungi — svona
rétt eins og fólk er flest.
En í öllum bænum takið
ekki svona svar trúanlegt.
Þúsundir manna buðu sig
fram til þess að leysa af hendi
þau störf, er þeim hafa verið
falin — en einmit.t þessir
fjórir menn voru valdir úr
þeim stóra hóp. Og það er
ekki vegna þess að þeir séu
ósköp venjulegir menn, held-
ur vegna þess, að þeir eru sér
stæðir. Þeir eru gæodir lík-
.•V*V'X«VX»V V-VVV*V'V
amshæfileikum íþróttamanns
ins, hugviti og djörfung vís-
indamannsins, reglusemi og
skipulagshæfileikum — og
þeir eru hreint alveg lausir
viö alla ímyndunarveiki og
hjátrú.
Jafnt Rússar sem Banda-
ríkjamenn hafa valið geim-
fara sína úr hópi þrýstilofts-
flugmanna.
Það er ekki fráleitt, að þú
finnir til svolítils fiðrings í
maganum, er flugvél hefur
sig á loft með þig innanborðs
á leið í sumarfríið. En þetta
verður ekki sagt um fiug-
menn.
í sannleika sagt eru geim-
fararnir fjórir ekki gáska-
tullir náungar með rytjulegan
skegghýjung, er halla sér
makindalega að bjórglasinu
milli stríða, en svo hugsuðu
menn sér flugmenn fyrir eina
tíð.
En slíkar manngerðarhug-
myndir eiga ekki lengur við
um flugmenn. Hin marg-
slungna stjórn þrýstiloftsflug-
véla, sem kostað hafa a.m.k.
milljón sterlingspund krefst
meiri ástundunar og alvar-
legri þjálfunar. Hið sama gild
ir um stjórnendur geimfara.
Geimfararnir fjórir eru all
ir myndarlegir menn — og
slíkt þarf þreint ekki að vera
nein tilviljun. Gott andlit
hjálpar þér áfram.
Þeir eru allir frá smábæj-
um eða þorpum. Þeir eru frá
ósköp venjulegum heimilum.
Einn á kennara fyrir föður,
annar trésmið, sá þriðji um-
boðsmann vátryggingafélags,
og sá fjórði járnbrautaverka-
mann.
Synirnir hafa reynzt hæfi-
leikum gæddir. Þeir hafa
brotið sér braut áfram. Þeir
eru allir kvæntir. Einnig það
atriði ber vott um heilbrigð-
an hugsunárhátt þeirra. Og
þeir virðast ekki mikið fyrir
það gefnir, að hugsa um
sjálfa sig eða tilfinningar
sínar.
Yuri Gagarín var spurður
að þvi í Lundúnum, hvort
hann hefði ekki haft martröð
eftir geimferðina, og hann
svaraði þvi til, að hann væri
ekki mikill draumamaður.
En þetta þýðir þó alls ekki,
(Framhald á 15 aafcj>
t
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
r
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
(
/
(
t
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
t
• v* -v V*V« V*V*V*V»V*V*V*V*V*V*V»V*V»V‘V*V»‘