Tíminn - 25.08.1961, Page 2
«
TÍMINN, föstudaginn 25. ágúst 1961.
EFNAHAGSHRUN
í FÆREYJUM?
Kaupmannahöfn, 24. ágúst. —
Færeyska blaðið Dimmalætting
skrifar í grein um sammarkaðinn,
að Færeyingar liafi huigsað með
eftirvæntingu fram til ársins 1963,
en reiknað var með, að þá losn-
uðu þcir við togveiðar útlendinga
uppi í landssteinum.
Nú eru ekki horfur á, að árið
1963 muni losa Færeyinga við
veiðiásókn útlendinga, ef sam-
markaðurinn kemst á í óbreyttu
formi ,en Danir hafa eins og kunn
ugt er, sótt um aðild að honum.
Ensk, þýzk, belgísk og önnur
fiskiskiþ munu geta lagt undir sig
miðin við Færeyjar og haft um
sig þar eins og heima hjá sér. —
Einnig er mjög sennilegt,, að það
verði ekki látið nægja, heldur
verði komið á fót erlendum fisk-
verkunarstöðvum í Færeyjum, til
þess að geta gemýtt Færeyjamið-
in betur.
Blaðið heldur áfrarn og segir,
að enginn efi sé á því, að stjórn
in sé öll af vilja gerð að vernda
hagsmuni Færeyinga, þegar sam-
ið verður um aðild Danmerkur
að sammarkaðnum. Vandamálið er
hins vegar það, hvort Dönum tekst
að ná viðunandi samkomulagi um
þetta. Það mun þurfa mikla samn
ingslipurð til þess.
Ef samkomulag næst ekki, sem
gerir ráð fyrir sérstöðu Færeyja,
mun allt efnahagslíf þjóðarinnar
fara í vaskinn, segir blaðið að
Merkur dagur
lokum.
Aðils.
(Framhald at 1 siðu.)
Björn Br. Björnsson, fundarritari.
Félagar í Flugmálafélaginu eru|
í dag 520.
Á sunnudaginn verður haldinn'
flugdagur í Reykjavík, hinn 7. í;
röðinni. Munu þar verða sýnd
helztu flugtæki landsins og allar
vélar, sem þá verðá staddar í
Reykjavík, munu taka þátt í sýn-
ingunni.
Fyrsta flugfélag heimsins!
Það kom fram á fundinum, að
ef Flugfélag íslands hefði starfað,
óslitið frá því að það var stofnað
í fyrsta sinn, væri það eitt elzta
flugfélag heimsins. Hinn 19. marz!
1919 var flugfélagið DDL, sem nú
er í SAS-samsteypunni stofnað, og
Flugfélag íslands hið fyrsta um;
leið. Nokkrum dögum síðar var^
síðan hollenzka flugfélagið KLM
stofnað. En Flugfélag íslands var
hið fyrsta af þessum félögum, sem
hóf starfsemi, og þar með hið
fyrsta í heiminum.
Noröurlandakonur í Reykjavík
(Framhald al 16 slðu^
þúsund meðlimum alls. Aðaltil-
gangur sambandsins er enn sá,
sem tilgreindur er í formála sam-
bandslaganna: að styðja, vernda
og bæta kjör þeimilanna. Kven-
félög landsins vinna að mörgu,
sem horfir til hagsbóta fyrir heim-
ilin í efnahagslegu tilliti, þau veita
fræðslu um barnauppeldi og heilsu
gæzlu og reyná að vekja áhuga'
kvenna fyrir þjóðmálum með nám-'
skeiðum, fyrirlestrum og lesefni.'
Ríkið greiðir um 60—70% af laun
um heimilisráðunauta. Húsmæðra-
samtökin vilja vekja konur til um
hugsunar um, að með því að skipa
sér í félagsheildir geta þær haft
áhrif á gang mála, ekki aðeins í
sínum þrönga hring, heldur og á
vettvangi stjórnmála og þá um
leið lagt sitt lóð á metaskálarnar
þegar verið er að móta framtíð
mannkynsins.
Næst talaði frú Elvy Vinquist
frá Finnlandi.
Hún sagði, að fæðingarár
finnsku kvennasamtakanna, árið
1899, hefði verið Finnum þungt í
skauti. Þa var unnið að því af
kappi að koma Finnlandi öllu und-
ir Rússland og mikill áróður var
hafður í frammi um það, hve
niklu betur fólkinu myndi líða
rndir vernd hins volduga rúss-
íeska keisara. Til mótvægis þeim
iróðri sáu Finnar helzt það ráð
ið efla menntun almennings og
)á var nauðsynlegt að ná einnigj
:il kvennanna, sem á þeim tíma;
t?oru að iangmestu leyti bundnarj
við heimílisstörf. Ekkert skipti þó;
meira máli en að ættjarðarástin j
glæddist á heimilunum, að mæð-í
umar yrðu sér meðvitandi um þáj
ábyrgð, sem uppeldi barnanna'
fylgdi. Forystukonum kvenfélaga-j
samtakanna var Ijóst, að til þessj
að einstaklingurinn þroskist, verð-
ur hann að skilja mikilvægi síns
eigin starfs fyrst af öllu. Rússar
voru andvígir lýðmenntunarhreyf-
ingunni, en þegar konurnar kváð-
ust ætla ■ að stofna svonefnd
Mörthu-félög, sáu þeir enga hættu
í því. Síðan hafa finnsk kvenna-
samtök víða kiomið við. Fyrstu 25
starfsárin voru finnsku- og sænsku
mælandi konur saman í félögum.
Þá var þeim skipt og nú eru 90
þúsund konur í finnskumælandi
félagsdeildum og 22 þúsund í þeim
sænskumælandi. Þær starfa eftir
þremur meginreglum. f fyrsta lagi
vilja þær stuðla að persónuþroska
einstaklinganna með námskeiðum,
leshringum og fundahöldum, í
öðru lagi vilja þær búa konur und-
ir að gegna sem bezt móður- og
húsfreyjustarfi og í þriðja lagi
vinna þær að félagslegum umbót-
um, svo sem húsmæðraorlofi, bætt
um aðbúnaði gamalmenna og sum-
ardvöl borgarbarna í sveitum. Frú
Vinquist lauk ræðu sinni með þeim
orðum, að finnsku konumar væru
hreyknar af því, að samtök þeirra,
sem til urðu af þörf líðandi stund-
ar, skuli hafa átt þann lífskraft og
þroskiamöguleika, sem ætíð hafi
endurnýjað grundvöllinn, svo að
starfið væri í samræmi við líðandi
stund.
Þá talaði frú Elsa Germeten frá
Noregi og flutti kveðju fr'á 68 þús.
norskum konum, sem sameinaðar
eru í kvennasamtökum þess lands.
Hún lýsti að nokkru hinum afar
fjölbreyttu námskeiðum, sem þar
eru starfrækt af kvenfélögum um
allar landsins byggðir, Auk hlið-
stæðra verkefna og hér eru kennd
á námskeiðum, þá halda þær t. d.,
námskeið til að þjálfa konur tili
foiystu í félagsmálum, til að kynna j
hvernig ráða megi fram úr sam-
búðarvandamálum fólks og fá í því
sambandi sálfræðinga og lækna tilj
að flytja erindi og þær hafa leið-í
beininganámskieið fyrir ungt fólk,
sem hyggur á hjónaband og heim-
ilisstofnun. Einnig taka þær til
meðferðar lesefni barna og barna-'
leikhús, þ. e. beina börnunum að
leikstarfsemi til að forða þeim fr'á
þeim skemmtunum, sem ekki krefj
ast neinnar virkrar þátttöku. Þær
fjalla um samvinnu heimila og
skóla og örva hana. Vandinn er,
sagði frúin að lokum, að forysta
félagssamtakanna sé alltaf hæfi-
lega langt á undan, þannig að
hvorki skilji með forystukonunum.
og almennum félagskonum, né
heldur að forystan vanræki að vera!
sífellt á varðbergi um að dragast
ekki aftur úr við að leita lausnar
á viðfangsefnum hvers tíma.
Þá tók til máls frú Margit Har-
ward frá Svíþjóð. Hún kvað ísland
eiga sérstöðu í hjörtum norrænna
kvenna og fór með ljóð um það,
er Gunnar á Hlíðarenda sneri aft-
ur1 og fékk ei slitið sig frá ættjörð-
inni.
í Svíþjóð eru 45 þúsund konur
í húsmæðrasambandinu, en léns-j
sambönd eru 23 og sambandssvæði
víða svo stór, að margra daga fcrð
er að heimsækja allar félagsdeild-
ir. Því kappkosta þær að halda
uppi sambandi sín á milli gegnum
blöð og landsmót, sem haldin eru
annað hvert ár. Þangað geta kven-|
félögin sent einn fulltrúa fyrir
hverja hundrað meðlimi, en auk
þess eru allar félagsbundnar kon-
ur velkomnar, sem geta komið því
við að sækja mótin og hafa stund-
um um 1200 húsmæður verið á
slíkum mótum. Kvennasamtökin í
halda uppi mikilli leshringastarf-
semi með ríkisstyrk. Einn þáttur
í félagsstarfi þeirra er að koma
saman til að hlusta á leikrit lesin,
eða lesa saman leikrit og hefur
það reynzt ágæt þjálfun og skemmt,
un í senn. Húsmæðrasambandið
velur sér einkunnarorð fyrir hvert
ár og þetta ár er það: „Bli en ny
Eva í ár“ — verðið ný Eva í ár.
Undir þessu kjörorði efna þær til
námskeiða í ýmsu, sem lýtur að
heilsuvernd, snyrtingu og smekk-J
legum klæðnaði. Sænska þingið
sendir húsmæðrasambandinu laga-'
frumvörp til umsagnar og hafa þær1
látið til sín taka með mörg trygg- j
, ingamál og önnur mál, sem varða
konurnar og heimili í löggjöf. Þær
berjast fyrir því, að eiginkona
verði að samþykkja veðsetningu
sameignar hjóna og að ekk'jur fái
! eftirlaun til jafns við það, sem
j eiginmenn þeirra áttu rétt á.
Að lokum sagði frá Harward,
að sænsku kvennasamtökin vildu
! vekja til umhugsunar um, hve
j mikilsvert það væri fyrir hinar
smáu Norðurlandaþjóðir, að skapa
sameiginlega menningarheild.
' Frú Dahleiup þakkaði ræðurnar
og Iýsti einkenniskeðju þeirri, sem
fylgir embætti formanns Norræna
húsmæðrasambandsins. Keðja
þessi er gjöf frá norskum konum.
Á henni er skjöldur með mynd af
móður með börn, en á smáhlekkir,
sem eru tákn gagnkvæmrar vin-
áttu landanna, eru grafin nöfn
þeirra kvenna, sem hafa gegnt for-
mannsstörfum. Það fylgir mikil
ábyrgð á því að bera þessa keðju,
sagði frú Dahlerup, en hún verður
aldrei þung vegna þess, hve marg-
ar sameinast um að bera hana. Og
þó að við séum ólíkar, allar þessar
fimm þjóðir, þá eium við það að-
eins á sama hátt og venjulegur
systkinahópur er. Hún tsagði, að
fáum væri gefið að vera á undan
sinni samtíð, flestir væru aðeins
börn síns tíma, en samt væri lífs-
nauðsyn að móta starf þessara sam
taka svo, að þau yrðu traustur
grundvöllur þess mannlífs, sem
framtíðin skapaði. Af dæmi fortið-
ar ætti að fá djörfung til að starfa
fyrir framtíðína, sá ætti að vera
sameiginlegur arfur frá hinum
fornu frjálsu, norrænu ’konum.
í upphafi samkomunnar léku
Katrín Dalhoff og Fritz Weiss-J
happel íslenzk lög og með undir-í
leik þeirra voru sungnir þjóðsöngv
ar allra Norðurlandanna milli
ræðanna. I
Síðar um daginn ræddu erlendu
konurnar við blaðamenn og verð-.
ur nánar sagt frá því síðar. S.Th.l
Raunvísindi
(Framhald af 1. síðu.)
ur verði efldur nú á fimmtíu ára
afmæli háskólans og gerður að
burðai'stoð vísindarannsókna á
þessum sviðum. Gera þeir ráð fyr-
ir, að í stofnuninni fullskipaðri
verði vinnuaðstaða fyrir 28 sér-
fræðinga og 28 aðstoðarmenn, og
skulu sérfræðingarnir ýmist vera
fastráðnir, lausráðnir eða styrkþeg
ar. Tíu er ætlað að starfa á sviði
stærðfræði, tuttugu að eðlisfræði,
fjórtán að eðlisfræði og tólf að
jarðeðlisfræði. Auk þessa starfs-
liðs þyrfti tíu menn á skrifstofur
og verkstæði.
Hæfilegt húsnæði slíkrar stofn-
unar er talið 2500 fermetrar gólf-
flatar, og búið yrði það að vera
margvíslegum tækju'm til rann-
sókina og tilrauna. Byggingarkostn-
aður slíks húss er áætlaður
fimmtán milljónir króna, en tæki
og húsbúnaður allur myndi kosta
um tíu milljónir. Rekstrarkostnað-
ur er áætlaður fjórtán milljónir
króna á ári. Þess er þó að gæta,
að nú eru við háskólann sjö sér-
fræðingar á þessum sviðum, og
þar sem gera má ráð fyrir, að þeir
yrðu fastir starfsmenn stofnunar-
innar, má draga laun þeirra frá ár-
legum rekstrarkostnaði, þar eð um
tilfærslu yrði að ræða.
Tillögur atvinnumálanefndar um
náttúrurannsóknir og Náttúrufræði
stofnun íslands og um rannsóknir
í þágu atvinnuveganna eru í frum
varpsformi. Gert er ráð fyrir, að
ýmislegt, sem áður hefur verið í
verkahring rannsóknarráðs ríkis-
ins, varðandi náttúrurannsóknir,
heyri undir náttúrufræðistofnun-
ina og lögð er aukin áherzla á, að
Náttúiufræðistofnunin, sem raun
ar er nýtt nafn á náttúrugripasafn
inu, verði miðstöð almennra, vís-
indalegra rannsókna á náttúru
landsins.
í álitsgerðinni um rannsóknir í
þágu atvinnuveganna er gert ráð
fyrir skdpulagsbreytingu. f stað
þeirra stofnana, er hafa þessi verk
efni nú með höndum, eiga að
koma fjórar deildir, sem annast
rannsóknir í þágu byggingariðnað-
ar, iðnaðar, landbúnaðar og sjávar
útvegsins.
! Nýr fjallvegur
(Framhald af 1. sdðu.)
Fjallabaksleið vestan Mælifells,
þegar þeir voru komnir yfir
Brennivínskvís'l. Komu þeir að
fjallakofa á Rangæingaafi'étt milli
klukkan eitt og tvö um nóttina og
gistu þar. Ferðin hafði þá gengið
j heldur seinlega, en þeir festu þó
i aldrei bíl á leiðinni. Leiðin er víða
| brött. Auk þess voru brýrnar á
j Jökulkvíslum ekki góðar yfirferð-
ar og aðeins jeppum færar.
Sagðist ferðalöngunum svo frá,
að landslagið þaina væri mjög til-
breytingaríkt, og hefði ferðin verið
öll hin skemmtilegasta, þótt nokk-
ur þoka væri og þess vegna ekiki
nógu gott skyggni.
Morgun eftir héldu þeir áfram
niður í byggð í Fljótshlíð. Komu
|þangað um klukkan tvö eftir há-
degi. Leiðin öll reyndist 170 kíló-
metrar frá Herjólfsstöðum.
Ferðalangarnir voru þeir Júlíus
Bjarnason í Akurey og sonur hans,
Bjargmundur, Tómas Kristinsson í
Miðkoti, Óskar Guðjónsson á Uxa-
hrygg, Ágúst Ólafsson á Hvolsvelli,
Símon Pálsson á Mýrum, Bjarni
Þorbergsson í Hraunbæ, Kjartan
Jóhannsson á Herjólfsstöðum og
tveir synir Jóns Gíslasonar, fyrrv.
alþingismanns, þeir Guðlaugur og
Böðvar.
Kve’ðjur
(Framhald af 16. s(ðu)
Starfsmannafélag Reykjavíkurbæj-
ar afhenti borgarstjóra að gjöf inn-
sigli bæjarins úr silfri og 27 félags-
samtök kvenna afhentu veggteppi,
sem afhjúpað var 18. ágúst í fundar-
sal bæjarstjórnar, svo sem áður hef-
ur verið skýrt frá.
(Frá skrifstofu borgarstjóra).
Ekki er í frumvarpi nefndarinn
ar nein ákvæði um aukin fjárfram
lög til rannsóknanna, en þess er
vænzt, að hið nýja skipulag auki
skilning á nauðsyn þeirra og verði
til þess, að meira fé verði varið
til þeirra, bæði frá ríkinu og at-
vinnuvegunum.
H ARÐVIÐUR:
Afzelía
Afromosía
Eik
Camwood
Brenni
Samband ísl. Byggingafélaga
Sími 3 64 85
Happdrættift
Orðsending til umboðsmanna
Nú er aðeins tæpur mánuður þar til dregið verður í fyrsta
skipti um 16 daga orlofsferð til Madeira og Kanaríeyja, ásamt
tveimur ferðum innan lands. Æskilegt væri, að umboðsmenn
hröðuðu sölu sem allra mest. Aðalskrifstofan er í Framsóknar-
húsinu, 2. hæð. Sími 12942.
Veiðiferð F.U.J.
Næstkomandi sunnudag verður farið í veiði- og gönguferð á
vegum Ferðaklúbbs. F.U.F. í Reykjavík. Farið verður að góðu
veiðivatni í nágrenni Reykjavíkur, og er að vænta að mönn-
um verði vel til fanga þar. Fyrir þá, sem ekki eru því mciri
veiðimenn eða eru áhugalausir um veiðiskap, verður farið í
gönguferð um nágrenni vatnsins en þar er margt að sjá.
Þar sem aðeins takmarkaður fjöldi veiðileyfa er fyrir Bendi
þurfa þeir, sem áhuga hafa fyrir að taka þátt i ferð þessari,
að tilkynna þátttöku í dag í síma 12942 í Framsóknarhúsinu
kl. 9—12, og 13—17. ÖUum cr heimil þátttaka.
Ferðaklúbbur F.U.F.