Tíminn - 25.08.1961, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.08.1961, Blaðsíða 3
TÍMINN, föstudaginn 25. ágúst 1961. 3 Veturliði sótti málverkið BlaMð hafði spurnir af því í gær, að Veturliði Gunnarsson, mál- ari, hefði sótt málverk eftir sig á Reykjavíkursýninguna í Melaskói- anum, skorið það niður af vegg og fjarlægt það af sýningunni. Á Reykjavíkursýningunni eru verk eftir flesta íslenzka málara, eitt eða fleiri eftir hvern. Blaðið náði tali af Veturliða, sem kvaðst hafa sótt málverkið og farið með það heim. Hann sagðist hafa lánað málverkið til að sýna það, en ekki til þess að nudda sér utan í það, en málverkið hefði ver- ið hengt upp í löngum um tveggja metra br'eiðum og illa lýstum gangi. — Þetta málverk, sagði Vet- urliði, er tveir metrar á lengd, og hékk þar ásamt nokkrum smærri málverkum. Að hengja svo stórt málverk á þennan stað er nokkuð svipað og að láta hljómsveit spila í kvistherbergi. Það er rétt, bætti hann við, ég skar myndina niður, og ég eftir- læt öðrum þetta pláss. NÝR LEIKUR RÚSSA I TAFLINU NTB—London, Washington og París 24. ágúst. — í gær- jkvöldi voru samtímis afhent- jar samhijóða orðsendingar Ráðstjórnarinnar til hernáms veldanna í Berlín, og er þetta svar við orðsendingum þeirra um málefni borgarinnar fyrir skemmstu, er mótmælt var einangrun V-Berlínar og ferða hömlum milli borgarhluta. í orðsendingum þessum leika Sovétríkin nýjan leik í stórveldataflinu um Berlín, og gerbreyta taflstöSunni. j Þau draga í efa rétt vestur- veldanna til frjáls og óhindr- 1 aSs aSgangs aS borginni í lofti og vilja takmarka þann rétt. Þetta hafa þau aldrei gert áSur. I , I orðsendingunni segist Ráð-1 stjórnin oft hafa vakið athygli' Bandaríkjanna á þeirri undirróð-j ursstarfsemi og áreitni, sem rekin hafi verið af hálfu V-Þýzkalands í. Berlín. Eigi að síður hafi vestur- veldin ekkert gert til að stöðval þetta. Með þegjandi samþykki her námsveldanna þriggja hafi þetta hins vegar færzt enn í vöxt, sér- staklega í sambandi við tiliögurn- ar um friðarsamninga við Þýzka- land þegar í stað og lausn V-Berlín armálsins á þeim grundvelli. Ernst Lemmer, ráðherra sambandsstjórn arinnar í alþýzkum málum, hafi lengi haft bækistöð í Bei'lín. Alls konar menn, heiftræknis-1 seggir, öfgamenn, hryðjuverka- menn og njósnarar hafi verið flutt- ir frá V-Þýzkalandi til V-BerlínarJ Einnig komi opinberir stjórnar-j fulltrúar vesturveldanna eftir þess um loftleiðum og fari beint frá1 flugvellinum til áróðurs gegn | A-Þjóðverjum. Orðsendingarnar | enda á því, að Ráðstjórnin krefst þess, að setuliðsveldin geri ráðstaf anir til að binda endi á hina ólög-j legu og ögrandi starfsemi þýzka sambandslýðveldisins í Berlín. s r Taugastríðið í Berlín verður langvinnt Frá iðnstefnu samvinnumanna (Framhald aí I siðu.i manna í garn, dúka, húsgagna- áklæði og teppi fyrir innanlands- markað og nú síðari árin til út- flutnings. Með sömu þróun mun ekki langt að bíða þar til öll ull- arframleiðslan fer til vimnslu í Gefjuni og verður flutt út, sem unnin vara. Iðunn vinnur svo að segja allar nautgripa- og hrosshúðir, sem til falla í landinu í ýmiss konar leður í skófatnað, fata- og hanzkaskinn, tösku- og beltaskinn, söðlasmíða- leður og fleira. Samtals vann verk smiðjan 415 þúsund ferfet af ýmis Heklu er nú verið að reisa nýtt verksmiðjuhús, sem væntanlega verður fullbúið næsta vor. Með hinni bættu aðstöðu, sem verk- smiðjan fær þar, verður hægt að stórauka framleiðsluna. Saumastofurnar á Akureyri og í Reykjavík framleiða yfir 6 þús- und alklæðnaði karlmanna og nokkur þúsund karlmannabuxur og frakka. Fataverksmiðjan Fíía í Húsa- vík saumar vinnuskyrtur og vinnu- vettlinga og fleira. Skyrtufram- leiðslan nemur 12—14 þúsundum á ári. NTB—Berlín og Bonn, 24. ágúst. — í Berlínarborg varð fátt til tíðinda í dag. Austur- Berlínarbúar halda enn áfram að treysta gaddavírsgirðingar og annað, sem verða má til að hefta mannaferðir milli borgarhluta, og sífellt er verið að neita mönnum urn ferða- leyfi. Aðeins tveir menn fengu í morgun atvinnu sinnar vegna, að fara inn í Austur- Berlín. Þrír þéttskipaðir, stórir fólks- flutningabílar, sem í voru banda- Erlendur Elnarsson, forstjórl S.I.S., ávarpar gesti á iðnstefnunni. j konar skinnum og leðri ug 9.000 ( kg af sóla- og söðlasmíðaleðri s. 1. ár. Enn fremur loðsútar verk- smiðjan 30—40 þús. gærur árlega. Langmestur hlutinn fer í leður í skófatnað, en skóverksmiðjan Ið- unn vinnur nú árlega um 90.000 pör af skóm á karla, konur og börn. Fataverksmiðjan Hekla er ein af stærri verksmiðjum samvinnu- félaganna. Hún vinnur mikið úr garni frá Gefjuni í ýmis konar prjónfatnað fyrir innlenda mark- aðinn og nú einnig til útflutnings. Verksmiðjan framleiðir, 50—60 þús. pör af sokkum árlega og 40— 50 þús. stk. af alls konar vinnu- fatnaði og kuldaúlpuin. Fyrir ■ Harry Frederiksen, framkvæmda- stjóri iðnaðardeildar S.Í.S., setur iðn- stefnuna. Sjöfn framleiðir hátt í 400 lestir af þvottadufti og sápum og um 200 lestir af málningu og málningar- vörum árlega, og Kaffibrennsla Akureyrar selur yfir 300 lestir af brenndu og möluðu kaffi. Rafvélaverksmiðjan Jötunn fram leiðir 200—300 rafmótora og er aðalframleiðsla verksmiðjunnar einfasa súgþúrrkunarmótorar fyrir sveitirnar. Heildarsala ofangreindra verk- smiðja nam á síðasta ári 118 millj ónum króna, og í vinnulaun greiddu þær samtals 24 milljónir króna. Við þessar verksmiðjur vinna um 600 manns. Framkvæmdastjóri iðnaðardeild-1 ar Sambandsins, Harry Frederik- sen, hefur gegnt því starfi frá stofnun deildarinnar árið 1949. Verksmiðjustjórar eru: fyrir Ull arverksmiðjuna Gefjun og sauma- stofu Gefjunar: Arnþór Þorsteins- son, Skinnaverksmiðjuna Iðunn — sútun Þorsteinn Davíðsson, Skinna verksm. Iðunn — skógerð Richard Þórólfsson, Fataverksmiðjuna Heklu Ásgrímur Stefánsson, Fata- verksmiðjuna Fífa Höskuldur Sig- urgeirsson, Sápuverksmiðjuna Sjöfn Ragnar Ólason, Kaffibætis- gerðina Freyju og Kaffibr. Akur- eyrar Guðmundur Guðlaugsson, Fataverksmiðjuna Gefjun, Rvík Sigtryggur Hallgrímsson, og Raf- vélaverksm. Jötun Sigurður Auð- unsson. Auk framantalinna verksmiðja taka þátt í iðnstefnunni að þessu sinni eftirgreindar verksmiðjur og fyrirtæki: i Kaupfélag Eyfirðinga: Smjörlík- isgerðin Flóra, verksmiðjustjóri Svavar Helgason, Efnagerðin Flóra verksmiðjustjóri Björgvin Júníus- son, og Pylsugerð KEA, verk- smiðjustjóri Valdimár Helgason. Kaupfélag Ámesinga: Efnagerð Selfoss, verksmiðjustjóri Matthías Ingibergsson. Kf. Reykjavikur og nágrennis: Efnagerðin Record, verksmiðjustj. Geirlaug Ólafsdóttir. Hjá þessum verksmiðjum vinn- ur nokkuð á annað hundrað manns. Sá þýðingarmikli atburður fyrir íslenzkan ullariðnað hefur nú gerzt, að gerðir hafa verið sölu- samningar um útflutning á. hús- gagnaáklæði, ullarteppum og prjónapeysum að verðmæti rúmar 12 milljónir króna. Ullarvörurnar hafa líkað mjög vel, og bendir allt til þess, að öruggur og aukinn markaður sé nú aftur fenginn erlendis fyrir íslenzkar ullarvör- ur, en sem kunnugt er, voru ís- lenzkt prjór.les og vaðmál ein aðal útflutningsvara íslendinga að fornu. rískir setuliðsmenn, fengu í dag að fara í kynnisferð um Austur-, Berlín. í fyrstu atrennu hafði þeim verið neitað um að fara gegn . um hlið það, sem eingöngu er. fyrir sendiráðsmenn og hermenn' vesturveldanna í Berlín, þar sem! það væri greinileg ögrun, að svona! margir menn færu saman í hóp,! en i annarri atlögu gekk greitt að fá leyfi, og fóru hermennirnir óáreittir ferða sinna. Brátt mun brezlc hersveitj sem búin verður sérstökum 1 tækjum til loftvarnja, verða| send til Berlínar til eflingar liðinu þar. „Létu dæluna ganga" Austur-þýzkir verðir beindu í dag öflugum vatnssprautum aS nokkrum Vestur-Berlínarbúum,! sem höfðu farið inn fyrir 1001 metra beltið við hverfamörkin, og „létu dæluna ganga“, svo að fólk| ið vöknaði heldur betur. Þetta var í fyrsta skipti, sem Austur-, Þjóðverjar gera alvöru úr því að hrekja fólk af þessu svæði. Þetta atvik gerðlst við Brandenborgar- hliðið. Yfirvöld í Vestur-Berlín skipuðu í dag að loka skrifstofu austur- Hindrun samgangna sama og áras NTB—Washington 24. ág. Kennedy Bandaríkjaforseti kunngerði frá Hvíta húsinu seint í kvöld, að á það yrði litið sem árás, sem Ráð- stjórnin yrði að bera alla ábyrgð á, ef Sovétríkin eða Austur-Þýzkaland færu að grípa fram í aðgöngurétt- indi vesturveldanna til Berlínar og reyna að tak- marka þau. Þetta er hátíðleg aðvörun til Ráðstjórnarinnar, segir í orð- sendingunni frá Kennedy, sem kveðst hafa kynjjt sér síðustu orðsendingu Rússa. Þær ásak- anir, sem Rússar báru fram um not loftleiðanna til Beirlínar, séu rangar. OrSsending Kennedys er annars mjög bermál og skorin- orð, og það vekur athygli, hve fljótt hér er brugðizt við til svars. þýzka kommúnistaflokksins í V- Berlín. Lokun þessi felur ekki í sér neitt bann á kommúnistaflokk- inn í sjálfu sér og er svar við því, að Austur-Þjóðverjar hafa lokað skrifstofum sósíaldemókrata þar. Samtímis hafa borgaryfirvöldin í V-Berlín sett upp eftirlitsstöðvar sín megin hver'famarkanna þannig að allir, sem koma að austan, verða að ganga fyrir lögreglumenn V-Berlínar með skilríki sín. Til- gangurinn er sagður að koma í veg fyrir, að óæskilegt fólk slæð- ist yfir. Brandt borgarstjóri hvatti til rósemi í dag í útvarps- og sjón- varpsræðu, er hann hélt. Gerir hann Island að ferðamannalandi? Undanfarnar 6 vikur hefur þýzkur kvikmyndatökumaður, Alfred Ehrhardt að nafni, dvalizt hér á landi á vegum Ferðamálafélagsins. Hyggst hann. gera landkynningarkvik- mynd um ísland og hefur tek- ið fjölda mynda víðs vegar um land í því skyni. Ehrhardt þessi hefur hlotið heimsfrægð og fjölda verðlauna fyrir kvik myndir sínar, m. a. mynd um Portúgal, sem sýnd hefur verið hér á landi, en sagt er, að hún hafi gert Portúgal að ferðamannalandi í einu vet- fangi. Ehrhardt hefur tvisvar komið til íslands áður, og eftir aðra heim- sókn sína, árið 1938, gerði hann stutta kvikmynd og myndabók um ísland. Hann sagði, að tvennt hefði orðið til þess, að hann hóf að gera þessa kvikmynd nú, ást sín á ís- landi og velvilji Ferðamálafélags- ,ins, Flugfélags íslands, Loftleiða |og Eimskipafélagsins, en þessi fé- I lög hafa öll styrkt hann við mynda tökuna. Ehrhardt kvaðst hafa séð marg- ar myndir frá íslandi og sumar ! ágætar, en engin þeirra þætti sér þó lýsa nógu vel því, sem sérstæð- ast væri hér og ekki væri til í öðrum löndum, hinni upprunalegu og ósnortnu náttúru landsins. Kvaðst hann vilja gera kvikmynd, sem væri öðru vísi en allar aðrar myndir af íslandi, mynd, sem sýndi hjarta landsins sjálfs. í ferð sinni nú hefur Ehrhardt tekið myndir af mörgum sérstæð- ustu náttúrufyrirbrigðum landsins, s s. Dettifossi, Krýsuvík, Mývatni, Námaskarði, Landmannalaugum og mörgum fleiri. ( Fullgerð mun kvikmyndin verða eftir 3 mánuði og verður hún sýnd um allan heim. Sýningartími á að verða um 15 mínútur. Þetta jverður. litmynd með tali og tón- list, og textinn á ensku og þýzku. . ef til vill einnig á frönsku og Ispænsku.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.