Tíminn - 17.09.1961, Qupperneq 12

Tíminn - 17.09.1961, Qupperneq 12
12 T í M I N N, sunuudagiim 17. september 1961. ■ m RITSTJORI HALLUR SÍMONARSON Héraðsmót Ungmenna- sambands Skagafjarðar Hér er mynd af gulldrengjum Fram. Talið frá vinstri: Arnar Ásgeirsson, Hinrik Einarsson, Sigurður Friðriksson ag Hallkell Þorkelsson. Ljósmynd: Tíminn, GE. Þaö ætti að vera iiverjum ungum knattspyrnumanni guliin meðmæli 42 drengir úr Fram tóku próf í knattþraut um Knattspyrnusambands Islands. Það vakti mikla athygli s.l. sunnudag í leikhléi úrslita- leiks íslandsmótsins, að mörg- um drengjum úr Fram voru afhent afreksmerki KSÍ fyrir knattþrautir, og þar af hlutu fjórir gullmerki sambandsins. Blaðið náði í gær tali af Al- freð Þorsteinssyni, sem þjálf- að hefur yngri flokka félags- ins og átt mikinn þátt í þess- um árangri drengjanna, og fór ust honum orð á þessa leið: — Þessi árangur er að sjálf- sögð'u bæði ánægjulegur og góð- ur. Mikið starf, fórnfúst og tíma- frekt, hefur verið unnið í -þessu sambandi, en árangurinn má þó fyrst og fremst þakía þeim gífur lega áhuga, er drengirnir hafa sjálfir undantekningarlítið sýnt. Stjórn knattspyrnunefndar Fram hefur jafnan sýnt þessum málum sérstaka velvild, og lagt ríka á- herzlu á það hverju sinni að sem flestir -drengjanna -æfðu -þessar þrautir, enda hefur það greinilega sýnt sig, að dre-ngir sem æft hafa þessar þrautir, koma yfirleitt mun betur út úr leikjum en ella, Á innanfélagsmóti KR í gær var var keppt til úrslita í kúluvarpi og kringlukasti. Úrslit í kúluvarp inu urðu þau ,að Hallgrímur Jóns son, Ármanni, sigraði, varpaði kúl unni 14,47. Annar varð Friðrik Guðmundsson KR, varpaði 14,35 m. Þriðji varð Gunnar Alfreðsson ÍR, varpaði 10,96 m. — Sigurveg ari í kringlukasti varð Hallgrímur Jónsson, Ármanni, kastaði 49,79. Annar varð Friðrik Guðmundsson KR, kastaði 45,44 m. Jón Péturs- son KR yarð þriðji, kastaði 40,35 metra. og er slíkt að sjálfsögðu aðalat- riðið. Æfingar á þessu ári hófust ó- venju snemma í vor, aðallega und ir stjóm Halls Jónssonar, og hafa verið síðan á hverjum sunnudegi í allt sumar. Til marks um hinn gífurlega áhuga, má geta þess, að milli 20—30 drengir mættu að jafnaði á hverri æfingu yfir allt sumarið, enda er árangurinn líka eftir því. Að þessu sinni luku alls 42 drengir prófum í þessum þraut- um, þar af 4 með gullmerki, en það eru þeir Hinrik Einarsson, Sigurður Friðriksson og Hallkell Þorkelsson úr 3. flokki, og Arnar Ásgeirsson úr 4. flokki, 14 luku við silfurmerki, og 24 við bronz- merki. Það kom okkur nokkuð á óvart, að við skyldum vera eina Reykja víkurfélagið með þessar þrautir í ár. Ef til vill má rekja áhugaleysi hinna félaganna til þess, að ýmis framkvæmdaatriði eru beinlínis þess valdandi, að þau deyfa þann' áhu'ga, sem fyrir hendi þarf að vera, ef árangur á að nást. Eins og málunum er háttað nu, . er t.d. jpög^ilegt fyrir drengi í 5. aldursfíokki að ljúka prófi fyr- ir gullmerki, en slíkt hefur í för með sér, að í 4. og 3. aldursflokki hafa þessir drengir að engu að keppa í þessu sambandi, og vita- skuld er slíkt mjög slæmt, hitt er þó ef til vill öllu verra, að metnaður og áhugi þeirra eldri virðist vera mjög takmarkaður gagnvart þessum þrautum, ein- mitt vegna þessa atriðis. Úr þessu má þó auðveldlega bæta, t.d. með því að leyfa ein- ungis drengjum úr 3. aldursflokki að spreyta sig við gullmerkið, slikt glæðir að sjálfsögðu áhuga hinna eldri fyrir þrautunum, en það er einmitt það sem vantar. I I Aðalgallinn við þessar knatt- þrautir er þó fólgin í því, að ekki, skuli vera til nein verkefni fyrir' drengi eftir 17 ára aldur. Allir | hljóta þó að sjá, að nauðsyn ber til fyrir drengina að fá að halda áfram að viðhalda því sem náðst hefur, en ekki að glata því, og fyrir því má ekki lokla augunum. Þessar knattþrautir hafa þegar unnið mikið gagn, og eiga ef- laust eftir að gera það, því ætti það að vera hverjum ungum knatt spyrnumanni sem gullin meðmæli að hafa tekið þær. Héraðsmót Ungmennasambands Skagafjarðar var haldið á Sauðár- króki dagana 19. og 20; ágúst. — Form. sambandsins, Guðjón Ingi- mundarson, setti mótið kl. 4 á laugardaginn og bauð keppendur og áhorfendur velkomr,a til móts- ins. Veður var hið fegursta báða dagana, kyrrt og nokkurt sólskin. Þessir dagar voru tveir af fáum sólskins- og þurrkdögum á sumr- inu og mættu því ekki allir skráð ir keppendur til leiks sökum hey- anna. Úrslit urðu þessi: 100 m. hlaup. 1. Ragnar Guðmundsson H. 11,4 2. Sigurður Ármannsson T. 11,8 3. Ólafur Guðmundsson T. 12,2 | 200 m. hlaup. 1. Ragnar Guðmundsson H. 24,0 | 2. Sigurður Ármannsson T. 24,8 i 3. Ólafur Guðmundsson T. 25,4 400 m. lilaup. 1. Ragnar Guðmundsson H. 54,0 2. Sigurður Ármannsson T. 57,4 3. Ólafur Guðmundsson T. 59,5 800 m. hlaup. 1. Baldvin Kristjánsson T 2:18,0 2. Sigurjón Hallgrímss. H. 2:19,3 3. Björn Sverrisson H. 2:23,7 3000 m. hlaup. 1. Tómas Þorgrímsson H. 11:04,2 2. Sigurjón Hallgríms. H. 11:05,5 3. Frímann Ásmunds. UH 11:07,7 4x100 m. boðhlaup. Sveit Tindastóls 50,5 sek. 1000 m. boðlilaup. Sveit Tindastóls 2:25,4 mín. Hástökk. 1. Ástvaldur Guðmundsson T 1,65 2. Sigurður Ármannsson T. 1,60 3. Ragnar Guðmundsson H. 1,60 Langstökk. 1. Ragnar Guðmundsson H 6,36 2. Sigurður Ármannsson T. 5,91 3. Ástvaldur Guðmunds. T. 5,90 Þrístökk. 1. Ragnar Guðmundsson H 13,11 2. Ástvaldur Guðmundss T. 12,62 3. Sigmundur Pálsson T. 12,33 Kúluvarp. 1. Stefán Petersen T. 11,32 2. Sigmundur Pálsson T. 10,97 3. Sigurður Ármannsson T. 10,50 Kringlukast. 1. Ragnar Guðmundsson H. 32,14 2. Stefán Petersen T. 32,02 3. Þórður Stefánsson H. 29,06 Spjótkast. 1. Sigurður Ármannsson T. 43,00 2. Baldvin Kristjánsson T. 34,65 3. Ólafur Guðmundsson T. 31,20 80 m. hlaup kvenna. 1. Oddrún Guðmundsd. T. 11,3 2. Helena Svavarsdóttir T. 11,5 3. Helga Friðbjörnsd. H. 11,7 Hástökk kvenna. 1. Anna S. Guðmundsd. H. 1,21 2. Helena Svavarsdóttir T. 1,16 3. Helga Friðbjörnsdóttir H. 1,09 Langstökk kvenna. 1. Oddrún. Guðmundsd. T 4,35 2. Helena Svavarsdóttir X. 4,07 3. Jóna Þórðardóttir, H. 3,91 Kúluvarp kvenna. 1. Oddrún Guðmundsd. T. 10,96 Kringlukast kvenna. 1. Oddrún Guðmundsd. T. 24,87 2. Jóhanna Evertsdóttir T. 20,97 3. Arndís Óskarsdóttir H. 14,50 4x100 m. boðhlaup kvenna. 1. Sveit Hjalta 60,2 sek. 2. Sveit Tindastóls 61,4 sek. UMF. Tindastóll hlaut 120 stig og verðlaunabikar mótsins í 2 sinn. UFF Hjalti hlaut 71 stig og UMF Haganeshr. 2 stig. Þá^ hlaut Tindastóll einnig bik ar Árna Guðmundssonar skóla- stjóra íþróttakennaraskólans að Laugarvatni, í annað sinn, fyrir flest stig sameiginlega í sundmóti og Jiéraðsmóti, eða 205,5 stig. Framhaldsaðalfundur / Kaúpfélags Kópavogs, Kópavogi, heldur framhalds aðalfund í Digranesskólanum n. k sunnndag. 17. þ. m. kl. 14.00. DAGSKRÁ: f 1. Skyrsla framkvæmdastjóra. 2. Framtíðarrekstur kaupféiggsin.; 3 r] 11 *'* *v 61 Stjórnin Dodge Weepon bíll með spili óskast til kaups. — Tilboð sen'Ust blað- inu merkt „675“. - X -XX x • x • V V« V V vv« v«v*x«v Afm.ælissýn.in.g MYNDLISTASKÓLANS í REYKJAVÍK í tilefni 15 ára afmælis skólans heldur hann sýn- ingu á verkum nokkura gamalla nemenda í Ás- mundarsal, Freyjugötu 41 (gengið frá Mímisvegi), dagana 16.—25. þ. m. Opin daglega kl. 2—10 e.h. •X»V»V» V«V»V« V« V V« V« V« V« V V« V« V« V V-V« V V« V«V_«'X Til söiu 32 smálesta vélbátur í góðu lagi. Upplýsingar Lögfræðiskrifstofan Laugavegi 19. Skipa- og bátasala.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.