Tíminn - 17.09.1961, Blaðsíða 16

Tíminn - 17.09.1961, Blaðsíða 16
í Innanstokksmunir r«ra Ófeigs f Fellsmúla, meSal annars bekkur, klæddur mislítum gærum. Ýmis tóvinnuáhöld, klöpp og fleira. Járnkvarð'i frá biskupsstólnum f Skáiholti. Sunnudáginn 17. september 1961. 212. blað. Brennivínspeli bóndans á heiðlnni — nýr gripur í byggðasafninu í Skóg- um. Það bar vel í veiði, þegar Þórð- ur snaraðist sjálfur inn í skrif- stofu Tímans á dögunum, því að einn af blaðamönnunum hafði fyrir skömmu gert sér ferð í Skóga safn. Blaðamanninum hafði virzt nokkuð orðið áskipað í hinu nýja safnhúsi, en það leyndi sér ekki, að Þórður dregur samt að jafnt og þétt. Hann var með alla vasa fulla af munum, sem honum höfðu á- skotnazt í þessari Reykjavíkur- ferð. Meðal annars var hann með bláan pela, sem fyrr meir hafði verið brennivínspeli Runólfs Guð- mundssonar, er bjó á Svartanúpi á Búlandsheiði á miðri 19. öld. Þórður sagði okkur sögu safns- ins í stuttu máli. Séra Jón Guð- jónsson, sem þá var prestur í Holti, hreyfði hugmyndinni fyrst- ur manna á sýslufundi Rangæinga 1945. Var þar kosin nefnd til þess að koma málinu áleiðis, og voru í henni séra Jón, Guðmundur Er- lendsson á Núpi og Þórður í Vallnatúni. Þetta fór hægt af stað, en þó var fljótt önglað saman dá- litlum vísi að safni, sem var varð- veittur í húsakynnum Skógaskóla. Við brottför séra Jóns úr hér- aði tók svo ísak Eiríksson í Ási sæti í nefndinni. Árið 1952 ákváðu Vestur-Skaft- fellingar, að frumkvæði Jóns Kjart anssonar sýslumanns að taka þátt Skyndiheimsókn í Skógasafnið Austast í hverfi því, sem risið hefur upp í kringum Skógaskóla undir Eyjafjöllum, stendur nýlegt hús, ein hæð með risi. Þetta hús var byggt handa byggðasafninu í Skóg- um, og skammt frá því er íbúðarhús Þórðar Tómassonar frá Vallnatúni, sem er hinn sí- vökuli vörður þess og forsjár- maður og aldrei ann sér hvíld ar við að hlynna að því og afla því muns, sem þar sóma sér vel. í þessu starfi, og brátt kom þar, að of þröngt varð um safnið í húsa kynnum Skógaskóla. Því var ráð- izt í það, nú fyrir nokkrum árum, að byggja sérstakt hús handa safn- inu. Skráðir munir í Skógasafni eru nú rösklega tvö þúsund, og vantar þar ekki margt í heilsteypta mynd af þeim verkfærum, sem menn notuðu fyrr meir við vinnu sína. Þar er einnig talsvert af listræn- um munum, einkum útskurði og málmsmíði. Stærsti gripurinn í safninu og sennilega hinn merki- legasti er áraskipið Pétursey, sem að stofni til er frá Í855 og var HúsiS, sem byggt var fyrir nokkrum árum yfir byggðasafnið í Skógum Það verður senn of þröngt. Þórður Tómasson, S3fnvörður. flutt í safnið, að frumkvæði Magn- úsar Gíslasonar skólastjóra. Báðir skólastjórar skólans, Magnús og Jón Hjálmarsson, hafa ætíð látið sér mjög annt um safnið, og Jón Þorsteinsson, sýslufulltrúi í Vík, og Óskar Jónsson, fyrrverandi al- þingismaður, hafa báðir unnið mjög að söfnun muna. Svo skulum við hverfa austur að Skógum og líta inn í safnið sjálft. Við erum ekki fyrr komin inn fyrir dyrastafinn en við sjá- um, að hér er saman komið býsna mikið' af munum. Allir veggir eru þaktir gömlum og fornfálegum gripum og hillur og borð slikt hið sama. Á miðju gólfi er Pétursey, áraskipið, sem forðum hélt til fiskj ar frá brimströndinni og nú er orðið meira en hundrað ára. Því fylgja þeir munir, sem heyrðu til þvílíkri sjósókn. — Af þessu skipi drukknaði aldrei maður, þótt djarft væri sótt og hvergi brima- samara, þar sem skipi var annars á sjó hrundið. Þegar farið er að hyggja að safn mununum, er margt, sem dregur að sér athyglina. Við rekum aug- un í gömul drykkjarhorn, og þegar að er gáð, vitnasrt, að þau eru skor- ,in af Jóni Einarssyni í Skaftafelli í Öræfum. Þeir Skaftafellsfeðgar voru á sínum tíma frægir smiðir og langt á undan samtíð sinni. Þeir smíðuðu vagn fyrir tvö hundruð árum, og þeir smíðuðu byssur, sem jafnvel voru skotin með bjarn dýr, sjálfsagt verkfæralitlir og , sneyddir aðstöðu til þess að læra : smíðar að ráði. Það var þeirra jeigin hugvit og handlagni, sem þeir urðu að búa að. Hornístöð frá Hvoli leiða hug- ann til þess tíma, þegar ekki jfékkst einu sinni járn í landinu í j skeifur í því héraði, þar sem kaup staðarferðirnar tóku marga daga, 'svo að menn urðu að bjargast við horn í ístöð. Við sjáum þarna líka ; beizlisstengur úr kindarhorni frá; i Norður-Götum í Mýrdal. i Ferðalög voru mikill þáttur í lífi ,manna, og það eru margir aðrir jmunir í safninu, sem minna á það. Þarna hefur til dæmis varð- 'veitzt ferðabelti frá Skammadals- hóli í Mýrdal frá 19. öld. Það var um að gera að vera sem bezt bú- inn á langferðum. Á mörgum smíðum er fallegt handbragð, enda var margt góðra smiða í Rangárvallasýslu og Vest- ur-Skaftafellssýslu. Við rekum aug un í svipu, smíðaða af Jónasi gamla Magnússyni í Strandarhöfða, og alinmál, útskorið af honum.- Margar haglegar rúmfjalir eru varðveittar, og meðal annars ber fyrir augu okkar rúmfjöl Þorsteins og Karítasar í Vatnsskarðshólum frá árinu 1777, aðra frá Brekkum í Hvolhreppi úr eigu Ó. Ólafsson- ar og G. Guðnadóttur, og hina þriðju úr eigu séra Stefáns Hans- sonar á Valstrýtu, skorna með höfðaletri á Stað í Aðalvík árið 1839. Öllu sérkennilegri smíð er þó hvalbeinsgluggi frá Fíflholtshjá- leigu. Birtu hefur þessi gluggi samt ekki borið að ráði, enda var fólk lítilþægt í þeim efnum, því að breiddin svarar rúmlega lengd litlafingurs á karlmanni, en hæðin er tæplega tvær lengdir þess fingurs. Á einum stað glóir á gamlan ei- ketil frá Hólmahjáleigu í Austur- Landeyjum, og á öðrum stað skart- ar eirhamar, smíðaður af Jóni á Seljavöllum. Á reizlu frá Dyrhól- um, búna steinlóði, hefur það ein- hvern tíma verið vegið með tor- tryggni, er kaupmaðurinn á Bakk- anum lét austanmönnum í té á lestunum. Frá eldri timum er rauðablástur frá Vorsabæ í Land- eyjum. Margt er þarna hluta, sem nú- (Framhald 3 15 -iðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.