Tíminn - 07.11.1961, Qupperneq 1
AfchiiWafrsími Tímans er
143 23
46. árgangur 1961.
Þriðjudagur 7. nóvember 1961.
Jarðfræðingar
í snjóhúsi ?
í viðtali, sem fregnritari Tím-
ans á Akureyri átti í gær við tvo
jarðfræðinga, nýkomna frá Öskju,
þá Tómas Tryggvason og Guð-
mund Kjartansson, bar það á góma
hve dýrt það er og umhendis, að
senda hvað eftir annað leiðangra
jarðfræðinga til Öskju. Fræði-
menn þurfa að eyða tíma og fé í
ferð alla leið frá Reykjavík, en
geta þó ekki verið nema stutta
stund við gosstöðvarnar. Þá er
einnig viðbúið, að ef eitthvað mark
vert gerist þar innfrá, verði það
einmitt, þegar enginn fræðimaður
er þar nærri.
Þá datt þeim í hug, hvort það
væri ekki góð lausn á þessu máli,
að einn — eða ef til vill tveir —
jarðfræðingar hefðust við í snjó-
húsi uppi við Öskju í vetur. Það
er nógur snjór, og þar kemur aldr
ei slík hláka að vetrinum, að góðu
snjóhúsi sé hætt. Þá, sem þarna
dveldu, væri hægt að búa út með
nægar vistir og annan útbúnað.
(Framhald á 2. síðu. >
ko
Laxinn kreistur
BlaSamaður og Ijósmyndari frá Tímanum brug'ðu sér í gær upp
að Elliðaám til þess að horfa á, þegar laxlnn þar ”ar frjóvgaður.
Sjá frásögn á baksíðu.
austan við gígana Hún rennur
í gær voru Öskjugos talin
í rénun, þótt nágrannar
hennar að norðan sjái stöðugt
eldsbjarma frá henni á heið-
skírum kvöldum. Jarðfræðing-
ar, sem þangað fóru inn eftir
á föstudaginn, komu til baka í
gær, og hafði þá fréttaritari
Tímans á Akureyri, Erlingur
Davíðsson, tal af tveimur
þeirra, Tómasi Tryggvasyni
og Guðmundi Kjartanssyni.
Þeir sögðu Öskju halda áfram að
gjósa, en gosin fara sífellt minnk-
andi. Aðeins tveir gígar gjósa nú
orðið, og eru gossúlurnar úr þeim
eitthvað um 50 metrar á hæð, en
látlausar. Hraunið rennur lítið
fram, en þykknar stöðugt. Þó hafði
runnið yfir bílaslóðir þær, sem
næstar voru hrauninu.
Þá hefur komið hraunspýja of-
an úr f jalli, austan gíganna. Þar
kom þó ekki gos, heldur rofnaði
jörðin og hraunið rann fram. Þar
höfðu áður verið mannaferðir,
svo það er ekki með öllu- hættu-
laust að ganga um nágrenni
Öskju, þótt sakleysislega líti út.
Ármann Pétursson í Reynihlíð
sá, þegar hraunið tók að renna á
þessum stað. Það var á laugar-
dagskvöldið. Sagði hann að það
hefði runnið um 100 metra á 10
mínútum, og var straumurinn á
að gizka 57—70 metra breiður.
Hraun þetta er mjög heitt.
Ármann sagði ennfremur, að
gígarnir hefðu hlaðið háum hiaun-
hólum í kringum sig, og það var
við neðstu brún austasta gíghóls-
(Framhald á 2. síðu.)
Segja gagnfræöa-
skólakennarar upp
Á föstudaginn var haldinn
fundur i Félagi gagnfræða-
skólakennara hér í Reykjavík.
Þetta var bæði -f jölmennur og
fjörugur fundur. Var sam-
þykkt á fundinum aS krefjast
um 60% kauphækkunar og
fela stjórn félagsins aS kanna
grundvöll fyrir nokkurra daga
verkfalli kennara og einnig al-
mennri uppsögn starfa hjá
gagnfræSaskólakennarastétt-
inni.
A fundi þessum voru mættir um
140 kennarar, en það er um helm-
I ingur gagnfræðaskólakennara í
Reykjavik
Fundurinn gerði ályktun um. að
gagnfræðaskólakennarar gerðu
kröfu til 60% launahækkunar, þar
sem kennarastéttin beri mjög
skarðan hlut frá borði miðað við
aðrar stéttir þjóðfélagsins.
' 4
Einnig var á fundinum sampykkt
að fela stjórninni að kanna, hvaða
lundirtektir væru meðal félags-
manna fynr þvi, að gagnfræða-
skólakennarar grípi til mótaðgerða,
sem stæðu vfir í þrjá til fimm daga
til þess að leggja aukna áherzlu á
kröfur stéttarinnar
Stjórninm var einnig falið að
kynna sér afstöðu félagsmanna til
þess, að þeir segi almennt upp
kennslustörfum sínum með lögleg-
i um uppsagnarfyrirvara Kynni hún
sér jafnframt. hversu mikið gagn
fræðaskólakennarar treysti sér að
leggja i sölurnar fyrir kjaraleið-
réttingar.
En hversvegna?
Málningin, sem rennur af, er frá ýms-
um verksmiðjum og ýmislega lit
Stöðugt berast nú fregnir af því,
að málning leysist upp og renni af
húsþökum víða um land.
Blaðið átti í gær tal við Óskar
Bjarnason efnaverkfræðing og
spurðist fyrir um það, hvort At-
vinnudeildmni hefði borizt fleiri
sýnishorn af málningarvatni. Hann
sagði, að svo væri ekki, og aðeins
hefði borizt þetta eina sýnishorn
frá Kirkjubrú á Álftanesi. en ekk-
ert kom fram við athugun á því.
Ekki sagði Óskar, að Atvinnudeild-
in hefði gert neinar ráðstafanir til
að rannsaka þetta mál neitt frekar,
en víst gæti það orðið fróðlegt
rannsóknarefni. Óskar taldi ósenni-
legt að þetta málningarrennsli
stafaði frá Öskjugosinu. en ef til
vill gæti verið um að kenna máln-
ingunni sjálfri.
Frétzt hafði af slíku málningar-
rennsli á Fiateyri og átti blaðið tal
við fréttaritara sinn þar í gær.
Hann kvað þetta ekkert undarlegt
fyrirbrigði, þvi að aðeins hefði
runnið af einu húsi og málningin
á þvi væri ónýt. Húsið var málað
fyrir 5--6 árum og hafði verið bor-
ið snowceme á það áður. Talið er,
að ekki hafi verið hreinsað nógu
vei af þakinu undir málninguna.
(Frjmhaid a 2. síðu.)
Askj a
sækir
sig enn
Seint í gærkvöldi barst Tíman-
um svohtjóðandi skeyti frá Jökli
Jakobssyni, sem er með leið-
angri Guðmundar Jónassonar við
Öskju:
Leiðangur Guðmundar Jónas-
sonar kominn að Herðubreiðar-
lindum eftir 12 klukkustunda
dvöl í Öskju mánudag. Gos i
þremur gígum virðast hafa auk-
izt, hæst 200 metrar. Glóandi
hraunelfur kom upp þar sem áð-
ur var spræna, kom skyndilega
og sprengdi upp storknað hraun
á stóru svæði líkast stórfljóti að
ryðja sig. Beljandi straumþungi í
fjórum hraunfossum. Ógleyman-
leg sjón. Stórar hcllur sporðreist-
(Framhald o 2. síðu)