Tíminn - 07.11.1961, Page 5

Tíminn - 07.11.1961, Page 5
T í MI N N, þri'ðjudaginn 7. nóvember 1961. 5 HsJlflór Kris*jánsson, Kirk;ubóli: Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.i. Andrés Kristjánsson .lón Helgason Fulltrúi rit stjórnar- Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri: Egill Bjarnason - Skrifstofur í Edduhúsinu — Símar 18300—18305 Aug lýsingasimi 19523 Afgreiðslusímr 12323 — Prentsmiðian Edda h 1 - Askriftargjald kr 55 00 á mán innanlands í lausasölu kr 3 00 eintakið Ingélfiir og þingið Það er nýtt dæmi um virðingarleysi núv. ríkisstjórnar fyrir Alþingi, að Ingólfur Jónsson skuli ákveða að leggja Áburðarsölu ríkisins niður og fela Áburðarverksmiðjunni verkefni hennar á sama tíma og Alþingi er að fjalla um málið samkv. tillögu hans sjálfs og hefur enga endan- leg'a afstöðu tekið til þess. ÖUu méiri lítilsvirðingu verður Alþingi vart sýnd. Þessi verknaður Ingólfs verður þó enn vítaverðari. þegar þess er gætt, að lögin um áburðarverksmiðjuna girða raunverulega fyrir það, að henni sé falin slík verzlun. Lögin um áburðarverksmiðjuna eru þannig orðuð, að bersýnilegt er að löggjafinn ætlast til þess, að verksmiðjan hafi ekki neina áburðarverzlun með hönd- um. Ingólfur Jónsson hefur líka óbeint viðurkennt þetta sjónarmið, þar sem hann hefur bæði á þinginu 1959 og 1960 lagt fram frumvarp, er heimilaði landbúnaðarráð- herra að fela Áburðarverksmiðjunni áburðarverzlunina. Ingólfur hefði ekki beðið um þessa heimild, ef hann hefði talið sig hafa hana skýlausa Nú hefur hann í þriðja sinn lagt fyrir þingið frumvarp, sem veiti hon- um þessa heimild, en áður en hann fær nokkra afgreiðslu hjá þinginu, ákveður hann að framkvæma það, sem hann er að biðja um heimild þingsins til áð gera. Hlutur Ingólfs batnar svo ekki við það, þegar það er athugað hvers vegna hann tekur þessa ákvörðun. Á- stæðan er sú, að þingið er tvívegis búið að svæfa frá honum frumvarp um þetta efni. Margir flokksbræður hans á þingi hafa verið andvígir þessari breytingu. Efþr að hafa lagt málið fram í þriðja sinn,ikemst Ingólfur enn að raun um, að viðhorf þeirra er óbreytt. Hann gerir sér þá lítið fyrir og tekur ákvörðunina upp á sitt eindæmi. Þingmenn stjórnarflokkanna standa þannig frammi fyrir gerðum hlut. Ingólfur telur sig hafa þannig beygt þá til að fylgja sér, þótt þeir geri það nauðugir. Það er með slíkum vinnubrögðum, sem þingræðið hefur verið brotið niður i ýmsum löndum. Ráðríkir stjórnarherrar hafa neytt flokksmenn sína á þingi, oft mjög nauðuga, til að skerða smátt og smátt vald þings- ins, unz það er raunverulega ekki nema nafnið eitt. Hé> stefnir nú mjög í þessa átt. Það eru því orð í tíma töluð, þegar kjördæmisþing Framsóknarmanna í Vesturlands- kjördæmi skorar á menn að standa aukinn vörð um þingræðið vegna þeirrar viðleitni valdhafanna að þrengja nú hlut þess á flestan hátt. Aburðarverðið Sú réttlæting er færð fyrir þvi, að Aburðarverk- smiðjunni er falin áburðarverzlunin, að það muni gera .áburðinn ódýrari. Slíkt er þó lítið trúlegt. þar sem Á- burðarsala ríkisins hefur verið sérstaklega vel rekin. eíns og sjá má á því, að allur rekstrarkostnaður hennar var 340 þús. kr. á síðastl. ári. Hins vegar hefur verið sýnt ljóslega fram á, að Áburðarverksmiðjan hefur selt fram- leiðslu sína mjög dýrt og að margra áliti miklu dýrara en lög leyfa. Það bendir ekki til þess, að bændur muni græða á þessari breytingu. Það gæti þó orðið bændum trygging gegn of háu áburðarverði. ef annar aðili yrði látinn ákveða áburðarverðið en stjórn Áburðarverksmiðj- unnar, sem að sjálfsögðu hefur það sjónarmið að draga sem mest taum hennar við verðlagninguna. Ráðherrakaffi á landsfundi „Þegar gengið hafði verið frá kjöri nefndanna, var stuttlega rætt um það, að gerðar yrðu "áð stafanir til að bændur, sem komnir eru til landsfundarins viðs vegar að af tandsbyggðinni, hittust sérstaklega til að ræða sín mál. Boðaði iandbúnaðarráðherra, Ingóifur Jónsson, þá til fundar við sig miðdegis í dag.‘ Mbl. 21. okt. 1961. Þessi írásögn Mbls. af lands- fundi Sjálfstæðisflokksins má vel fara víða. Svo er að sjá, að ekki hafi þótt ástæða tii að bændur ræddu mál sín í flokknum. Þau áttu ekki erindi á landsfund. Sunnudaginn 22. okt. segir Mbl. svo frá: „í kaffihléi sátu bændur á iandsfundinum boð landbúnaðar- ráðherra Ingólfs Jónssonar og var þar rælt um ýmis málefni bændastéttarinnar.“ Ekki er Ijóst hvað þetta kaffi- iilé hefur verið langt, en blaðið -egi:, að fundur hafi byrjað kl. 2 þennan dag. Á þeim fundi flutti Jóhann dómsmálaráðherra sína ,,.skörulegu“ ræðu. Eftir kaffi hófst fundur að nýju „laust eftir kl. 4.30“. Einn af fundarmönnum, gamall og þaulrevndur fréttamaður Mbls., segir mér, að þetta ráðherrakaffi hafi verið drukkið í Tjaraarkaffi uppi. Hann taldi, að á landsfund- inum hefði verið á þriðja hundrað bænda og þorri þeirra komið til kaffisins. Ef að líkum lætur tekur það nokkurn tíma að færa slíkt f,i|ij,yienpi íniJlýjþiji^a og koma því uhdir bo'rð, ‘ því" að váénfanléga hafa þeir, sem töldu ekki séð tvö- falt, — eða a.m.k. ekki nema tvö- falt. Varla hefur því verið mikið tóm til að ræða þar vandamál bænda skipulega, enda sagði heim ildarmaður minn, að það hefði. ekki verið gert. Frásögn Mbls. erl eflaust rétt fyrir því. Auðvitað I hafa menn rætt um „ýmis málefni! bændastéttarinnar“ og sjálfsagt j mörg í senn, — hver við sinn! sessunaut. Það hefði þurft að' vera fræðslu- stofnun fyrir ráðherrann. Ýmsir kunna að halda, að eitt af því sem á að vera jákvætt ogj uppbyggilegt við fjölmenn flokks-í þing sé einmitt það, að menn i kynnist þar viðhorfum annarra.! Vera má, að einhverjir bændur! hafi komið á landsfund Sjálfstæð- ismanna í þeirri trú, að þar væri vettvangur til að auka skilning á, málstað bænda og tækifæri til að ræða mál landbúnaðarins við fulltrúa úr öðrum stéttum. Hafi svo verið eru þeir þá reynslunni ríkari. Ekki er ástæða til að efa að ráðherrakaffið hafi verið gott og sízt er ástæða til að sjá eftir sop- anum ofan í landfundarbændur, — suma langt að komna og far. móða. En ósköp hefði það verið ákjósanlegt, að ráðherrann hefði mátt vera að því að taka á móti nokkurri fræðslu frá bændum jafnframt því, sem þeir þökkuðu honum fyrir kaffið. Þn hefðu ræð- ur hans á Alþingi um lausaskuldir bænda sennilega orðið með öðrum hætti. AUt í lagi rneðan mjólkurbúin sföðvast ekki. Ráðherranum þótti það eðlilegt að gerður væri munur á skulda- b'réfum útvegsmanna og bænda á þann hátt að skylda Seðlabank- ann til að kaupa skuidabréf út- gerðarinnar en ekki landbúnaðar- ins, vegna þess, að reksturstöðv- un vofði vfir vinnslustöðvum út- vegsins r var vitað að slík i stöðvun vofði yfir vinnslustöðvum landbúnaðarins. | Ekki trúi ég öðru en á lands- fundinum hafi verið einhverjir bændur, sem hefðu getað útskýrt þetta fyrir Ingólfi. Vinnslustöðv- ar landbúnaðarins eru t.d. mjólk- urbú. Þau kaupa mjólkina ekki á föstu verði; heldur taka við henni til vinnsju og sölu í umboði. ! Þau skila bændum því einu sem reksturinn skilar. Þess ve.gna vof- ir ekki rekstursstöðvun yfir þeim meðan bændur þurfa að láta vinna mjólk. Sama fyrirkomulag gildir um aðra landbúnaðarframleiðslu. Þeg- ar erfiðleikar mæta landbúnaðin- um kemur það ekki fram í því, að stöðvun vofi yfir þessum vinnslu- stöðvum. Rekstrarstöðvun í Iand- búnaði byrjar í sjálfri framleiðsl- ’inni. Hún vofir fyrst yfir búun- um sjálfum'. Uáðherrann og búrentur. Landbúnaðarráðherra gat þess í .■æðum sínum á Alþingi, að bænd- um þættu vextir vanreiknaðir á verölagsgrundvellinum. Ekki voru það þó vextir af skuldum þeirra, sagði hann, heldur vextir af eigin fé í búrekstrinum. Það hefði farið vel á því, að ráð- herrann hefði verið búinn að ræða betur við bændur hvernig þetta kemur út og verkar í fram- kvæmd áður en hann flutti ræðu sína. Ákvæðisvinna og meðaltal. Eins og nú standa sakir má segja. að baendur vjnni ákvæðis- vinnu fyrir þjóðfélag sitt. Þeim er gert að skila ákveðnu framleiðslu- magni og ætlað fyrir það laun líkt og aðrar alþýðustéttir hafa hverju sinni. Þeir reikningar, sem liggja til grundvallar fyrir þessu ákvæði, er verðlagsgrundvöllurinn. Hann j er byggður á því, sem á að vera: meðaltal. Það hefur aldrei staðið, til að borga hverjum einum eítir því, sem hans tilkostnaður eða! eftirtekja er. Sé tilkostnaður meiii eða eftirtekja minni en hið áætlaða meðaltal gerir ráð fyrir, lækkar það kaup bóndans, eins og tekjur hans vaxa líka ef honum tekst að vera hinum megin við meðaltalið með minni tilkostnað eða meira framleiðslumagn. Þeir, sem vilja tala um málefnii og hag bændastéttarinnar í heild' verða að skilja þetta og muna og! gera sér ljóst hvernig þessir reikn-1 ingar koma út almennt. Meðaltal- ið á ekki við alla, enda þótt það væri sanngjarnt og rétt. , Það ciga ekki allir 300 þúsund. í þeim verðlagsgrundvelli, sem nú gildir, er reiknað með að vísi- tölubóndinn skuldi rúmlega 98 þús. kr. Það eru þær skuldir, sem bú með 7 mjólkandi kýr og 115 ær má bera mest, ef það á að skila bóndanum árslaunum eins og alþýðumönnum í öðrum stéttum. Síðan er reiknað með að eign bóndans í búinu sé 300 þús. kr Af því eru reiknaðir vextir Það eru vextirnir, sem Ingólfur ráðherra hafði heyrt að bændum þættu heldur lágir. Það er enn einn þáttur þessara mála, hvernig þessi reikningur kemur við þá bændur, sem raun- verulega eiga 300 þús. kr. í búi sínu. Ekki virðist þessi reikning- ur þó miðast við það, að íjármagn- ið eigi að streyma inn í landbún- aðinn af sjálfu sér samkvæmt því lö.gmáli, að það leiti þangað sjálf- krafa, sem það ávaxtar sig bezt, en því lögmáli skilst mér að ríkis- stjórnin vilji treysta. Hún telur eflaust að spar'ifjármyndun sé margfalt nauðsynlegri en bústofns aukning og býsna langt bil á milli. i En það eiga ekki allir þessir 300 þús. Ýmsir vildu t.d. byrja bú- i skap, þó að þeir eigi ekki þetta fé. — Þess er að minnast, að íbúð fjölskyldu og innanstokksmunir kemur ekki þessum tölum við. IJndir þeim kostnaði á bóndinn að standa með launum sínum eins og aðrir. — Sá munur, sem er á raun- verulegum vöxtum af skuld og þessari áætluðu eign bóndans í búinu hlýtur að koma fram, sem bein kauplækkun hjá öllum þeim, i sem skulda meira en verðlags- ’ grundvöllurinn gerir ráð fyrir. ! Það er m. a. þetta, sem gerir erf- itt eignalitlum mönnum að byrja búskap. Þess vegna er nú svo kom- ið, að rekstursstöðvun vofir yfir mörgu sveitabúinu þegar núver- andi bóndi hættir að reka það'. Þess vegna er nú komið til rekst- ursstöðvunar á nokkrum búum, sem eignalitlir menn hófu búskap á síðustu árin. Þetta hefðu eflaust einhverjir góðii landsfundarbændur viljað segja landbúnaðarráðherra sínum og raunar sjálfsagt flokki sínum í heild. En. það átti ekki að vera þeirra hlutverk. Þeir áttu að drekka kaffi hjá ráðherra sínum og fara svo þegjandi heim til sín, glaðir yfir góðum veitingum. i Erfitt að byrja. Það er ekki ætlunin að ræða verðlagsgrundvöllinn í heild í þessari grein. Einn gjaldaliðurinn er kostnaður við vélar. Þar er reiknuð fyrning, 10% af 65 þús. krónum. Þessi tala, 65 þús., virðist oiðin úrelt þegar ein notuð heimilis- dráttarvél allslaus kostar þessa fjárhæð. Þessi liðui hlýtur á næstu árum að samlagast því verð- lagi sem er. Þegar diáttarvél kost- ar 100 þús. þýðir lítið að reikna fyrningu af 20 þús. enda þótt það hafi verið kaupverðið fyrir 10 ár- um. Kostnaðurinn af vélvæðingu á vitanlega allur að koma fram í afurðaverðinu. Það bitnar sam- kvæmt því á neytendum en ekki bændum sjálfum hvað verkfærin kosta. En sagan er ekki öll sögð með því. Það er meðaltalið sem gildir en ekki tilkostnaður hvers einstaks bónda. Þess vegna leggj- ast allar hækkkanir með auknum þunga á þann, sem er að byrja. Ilvers vegna ekki ódýrari vélvæðingu? Mér þykir trúlegt að einhverjir landsfundarbændur hefðu viljað leiða Ingó.lfi Jónssyni þetta fyrir sjónir. Þeir hefðu sennilega vilj- að benda honum á að meðan ríkis- sjóður á annað borð leggur fram fé til að greiða landbúnaðaraf- urðir niður, væri alhugandi, hvort það kæmi ekki jafnvel við að fella niður tolla af landbúnaðarvélum líkt og gert er með innflutt fiski- skip og vélar í þau.. Sú verðlækk- un, sem þannig kæmi fram, gengi öll inn í verðlagsgrundvöllinn og kæmi til lækkunar á landbúnaðar- vörum frá því ella yrði. Jafnframt gerði hún bændum léttara fyrir að fullkomna vélakost sinn og auð veldaði eignalitlum mönnum að byrja búskap. Það yrði spor i þá átt að tryggja framtíð landbúnað- arins á íslandi, því að landbúnað- urinn á sér enga framtíð, nema nýir bændur komi í stað hinna eldri, sem hlióta að hætta. Slík tollaívilnun og verðlækkun, sem henni fylgdi, myndi minnka bilið milli þeirra, sem eiga, og hinna, sem ekki eiga. En ef til vill þykir það ekki sæma við- reisnarstjórn. Framhald á 15. síðu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.