Tíminn - 19.11.1961, Síða 1
295. tbl. — 45. árgangur
Sunnudagur 19. nóvember 1961
Prjóna og vefa dag
og nótt á Rússann
Mikið annaríki er í verk-
smiðjunum Gefjuni og Heklu
á Akureyri. Þar er unnið dag
og nótt; vélarnar í Heklu
stöðvast ekki, vaktir ná saman
í Gefjuni, og þar er unnið í
loðbandsdeild og vefnaðar-
deild á laugardögum og sunnu
dögum.
ÞaS sem veldur annrikinu, er
fyrst og fremst samningur um
framleiðslu á þrjátíu þúsund ull-
arteppum og tuttugu og fi.mm
þúsund ullarpeysum á Rússlands-
markað. í fyrra framleiddu verk
smiðjurnar tíu þúsund teppi og!
tvö þúsund og fimm hundruðj
peysur fyrir Rússlandsmarkað. í
ár báðu Rússar um það magn,
sem fyrr greinir, svo ekki er ann
að að sjá en varan hafi líkað vel.
Hér er því stórt spor stigið, síð
an íslenzk uil var flutt til útlanda
sem óunnin vara.
Mörg verkefni
Blaðið ræddi í gær við Arnór'
Þorsteinsson, verksmiðjustjóra
(FramhaJd a 2 síðu.
HÁLHJ TONNIAF
SiMAVlR STOLIÐ
Ekki er okkur kunnugt
um nafn þessa unga manns,
sem starir svo stórum aug-
um á skrýtna manninn með
myndavélina, án þess þó að
taka plastkubbinn út úr
sér. Við vitum það eitt, að
ljósmyndari Tímans rakst
á hann á barnaheimili
Reykjavíkurkynningarinn-
ingarinnar, sem haldin var
— sællar minningar — í
haust. Þá var sveinninn
ungi ekki í þurrum buxum,,
en mjakaði sér áfram á gólf
inu, og hinir krakkarnir
notuðu rákina eftir hann
fýrir bílabraut.
í fyrrinótt var framið inn-
brot og stórþjófnaður í birgða-
geymslu Landssímans á Mel-
unum. Þjófarnir höfðu brotið
upp hengilás, sem var fyrir
geymsluhurðinni og stolið ná-
lega hálfu tonni af símavír í
rúllum, sem vógú 10—15 kíló
hver.
Þessi vír er einþættur, hreinn
eirvír. Gert er ráð íyrir, að brota-
piálmsverðmæti hans nemi um tíu
þúsund krónum, en sem símavír
er hann líklega tvisvar til þrisvar
sinnum verðmætari, eftir því sem
lögreglan tjáði blaðinu í gær.
Koparkailarnir sem stálu leiðslu-
vír úr birgðastöð rafveitunnar og
víðar, ganga nú lausir. Lögreglan
hafði ekki yfirheyrt þá, þegar blað-
ið vissi seinast til í gær, en lög-
reglumaður sagði heldur ólíklegt,
að þeir væru aftur komnir á stúf-
ana á þessum vettvangi.
Verkfræöingar
hefja vinnu
f fyrradag hættu verkfræðingar
verkfalli sínu, sem hefur nú staðið
nærri því í fjóra mánuði. Ekki var
iþó um samninga að ræða, heldur
er verkfræðingum nú heimilt að
hefja störf að nýju, en hver’ verð-
ur að semja um sitt kaup sjálfur
við viðkomandi vinnuveitenda.
Ekki er vitað, hvort samningaum-
leitunum verður haldið áfram, eða
það fyrirkomulag látið ríkja í fram
tíðinni, að verkfræðingar verði að
búa við þau kjör, að hver og einn
verði sjálfur að karpa um kaup
cití- -triS ’aixjruiiToij-JxnAann
FRIÐRIK ÓLAFSSON
Skákþáttur
Friðriks
Eins og lesendum er kunn-
ugt hefur Friðrik Ölafsson,
stórmeistari, oft skrifaS skák-
þætti í Tímann og hefur það,
að dómi allra skákmanna hér,
verið það bezta, sem skrifað
hefur verið um skák hér á
landi. Hins vegar hafa þessir
þættir ekki getað birzt reglu-
lega, þar sem Friðrik dvelst
oftast erlendis nokkra mánuði
á hverju ári, teflandi á stór-
mótum. Friðrik verður nú
heima næstu vikurnar, og hef-
ur blaðið þá ánægju að skýra
frá því, að hann mun skrifa
skákþætti í blaðið, sem birtast
munu á sunnudögum næstu
vikurnar, og er hinn fyrsti á
blaðsíðu 12 í dag. Birtir hann
þar meðal annars eina skák
frá stórmótinu í Bled, sem háð
var í haust.
Þessar þrjár yngismeyjar
sitja að hannyrðum og eru
húsmóðurlegar á svipinn,
þótt ekki séu þær enn þá
komnar á giftingaraldur-
inn. Það líða þó væntanlega
ekki mjög mörg ár, áður en
þær stofna sín eigin heimili
með einhverjum drauma-
prinsinum og það er því
betra að kunna eitthvað
fyrir sér. Myndina tók ljós-
myndari Tímans G. E. í
Gagnfræðaskóla verknáms-
ins í síðustu viku.