Tíminn - 19.11.1961, Side 16
Sunnudaginn 19. nóvember 1961
295. blað
Sterk og létt
plasthúsgögn
VítSir fékk einkaleyfi til framlei'ðslu þeirra
á Islandi
MJOLK
í staðinn
fyrir gos
Svo sem skýrt hefur verið frá í
blaðinu, hafa nokkrir skólar tekið
upp þá nýbreytni að hafa mjólk á
boðstólum fyrir nemendur sína í
Trésmiðjan Víðir er nú að
senda plasthúsgögn á markað-
inn og er hér um algjöra nýj-
ung að ræða. Guðmundur
Guðmundsson forstjóri Víðis
bauð blaðamönnum að skoða
þessi húsgögn í gær og skýrði
frá ýmsu í sambandi við þau.
Fyrirtækið Plastmöbler í Krist-
ianssand i Noregi hefur veitt Víði
einkaleyfi á íslandi til framleiðslu
þessara húsgagna, selt þeim teikn-
ingar og mót að þeim og kennt
þeim framleiðsluaðferðina. Víðir
hlaut einkaleyfið fyrir rúmu ári
og fór þá Þorsteinn Bjarnason
verkstjóri út til að kynna sér
framleiðsluna. í síðustu viku komu
svo tveir menn frá Plastmöbler
hingað til lands og^ munu dveljast
hór um vikutíma og leiðbeina við
bólstrun húsgagnanna.
Húsgögnin eru framleidd á þann
hátt að plastið er soðið og síðan
ýmist þurrkað eða notað blautt og
rennt í þar til gerð mot. Gufu er
svo hleypt i mótin og plastið soðið
á ný og þenst það þá út í mótin.
Þegar plastið hefur verið tekið úr
mótunum er það límborið og er
þá tilbúið til bólstrunar. Húsgögn-
in eru mjög létt í meðförum og
sérstaklega sterk og endingargóð.
Einnig eru þau talsvert ódýrari en
önnur húsgögn eða 25% ódýrari.
Sófasett, úr plasti kostar þannig 11
—12 þúsund, þegar annað hlið-
stætt sett kostar 14—15 þúsund.
Seldi 39 lestir fyrir
42000 mörk
Neskaupstað, 17. nóv.
Fjórir stórir þilfarsbátar róa
héðan með línu og afla vel. Haf-
aldan sigldi nýlega til Þýzkalands
með afla, 39 lestir, og seldi hann
fyrir 42000 mörk. Togskipið Haf-
þór hefur aflað fremur lítið. Hann
! kom inn í gær með um,30 lestir.
Elzti fiskurinn var tekinn á land,
j og mun skipið fara með eigin afla
og nólfkuð af öðrum bátum til
Þýzkalands. — V.S.
Annað á
Snæfellsnesi
’VI
sjálfum skólunum. Ljósmyndari
blaðsins átti af tilviljun leið fiam
hjá Hagaskóla á föstudaginn, þeg-
ar. verið var að afgreiða mjólk til
nemendanna í fyrsta sinn, og tók
þá þessar myndir, sem hér eru á
síðunni.
Mjólkurdreifingunni er þannig
hagað, að tveir némendur annast
afgreiðslu mjólkurhyrnanna, en
umsjónarmenn einstakra deilda
sækja þær til þeirra, og ganga síð-
an með hyrnurnar á milli borð-
anna í skólastofunum. Hver nem-
andi tekur sína hyrnu, og síðan að-
stoðar kennari við að klippa göt á
hymurnar. Nemendur hafa með
sér nesti, sem þeir borða með
mjólkinni. Þátttaka nemenda í
mjólkurdrykkjunni hefur verið
mjög almenn, og það leiðir að
sjálfsögðu af sér, að búðarferðir
nemenda á skólatímanum hætta.
Að vísu er þessi
maður vel kröft-
um búinn, en
hvort sem þið trú
ið því eða ekki,
eru nýju plasthús-
gögnin svo létt,
að húsmóðirin get
ur haldlð þeim
svona með ann-
arri hendi, meðan
hún ryksugar und
an með hinni. —
(Ljósm: TÍMINN,
GE).
12 STUNDIR A MiLLI
Það telst ekki til neinna stór-
viðburða þó að kýr eigi kálf í sveit-
um landsins og fæstir veita því
neina athygli nema húsfreyjan,
sem klappar kúnni sinni, og börn-
in, sem gæla við kálfinn. En alltaf
eru til undantekningar, og undar-
legt atvik kom fyrir í sambandi við
burð fyrsta kálfs kvígu á Eylandi
í Vestur-Landeyjahreppi á dögun-
um. Ilún éignaðist tvo kálfa og
fæddust þeir með tólf klukku-
stunda miilibili. Kúnni gekk erfið-
lega með fyrri kálfinn þar sem
hann var skakkur fyiir og varð að
taka hann frá henni. Var síðan allt
eðlilegt nema hvað hildirnar komu
ekki. Nokkru seinna fékk kýrin
sótt aftur og átti síðan annan kálf
tólf klukkustundum á eftir hinum.
Mjög gekk erfiðlega með kálfinn
og fæddist hann dauður. Kálfur-
inn, sem lifir ei spræk og falleg
kvíga og mjög stór af tvíburakálfi
að vera. Hún er einnig sérkennileg
á lit, þar sem hún er þrílit, rauð-,
hvít- og grábröndótt, og var dauði
kálfurinn alveg eins. Kúnni heils-
ast hins vegar ekki eins vel. Hild-
irnar eru ekki enn komnar, en
kunnáttumenn segja að það komi
oft fyrir, er kýr eiga tvo kálfa, að
hildirnar komi seint.
Nyt er iítil í kvígunni enn sem
komið, er en vonast er til að hún
græði sig, þar sem hún er komin
af ágætu mjólkurkýni.
j Fyrir skemmstu birtum við hér
! frétt norðan úr Bárðardal, þar sem
r.agt var frá því að 6 vetra hryssa
i.hefði kástað folaldi fyrir nokkrum
! dögum, og þótti það óvenjulegur j
: atburöur á þessum tíma árs. Nú
höfum við haft spurnir af því vest-
an af Snrefellsnesi, að þar hafi
hliðstæður atburður gerzt snemma
í síðustu viku. Þá kastaði 6 vetra
hryssa skjóttu hestfolaldi. Hryssa
þessi á heima á Gerðabergi í Eyja-
hreppi; hún er keypt norðan úr
; Skagafirði, eins og hryssan i Bárð-
j ardalnum, en er dóttir hin fræga
kynbótahests Hreins á Þverá,, sem
jhefur oftar en einu sinni hlotið
silfurskjöld á landsmótum hesta- (
manna fyrir ágæti sitt. Hryssan er
lítið tamin en er talin efni í af-
bragðs reiðhross. Það fylgdi frétt-
inni, að þetta þætti einnig á Snæ-
fellsnesi óvenjulegur tími fyrir fol
1 aldsfæðingu. i
Efri myndin sýnir nemenda neyta morgunverSarins, en.á þekri neðri-«ru
umsjónarmenn að sækja mjólkina fyrir deiidir sinar.
\