Tíminn - 01.12.1961, Qupperneq 2
TÍMINN, föstudaginn 1. desember 198
p - Hýja orgelið f Akureyrarklrkju var vfgt á sunnudaglnn var. Þetta er hlð
glæsilegasta orgel. Jakob Tryggvason organlstl Akureyrarkirkju vígðl org-
' ' elið við messu á sunnudaginn. Ljósm. GPK.
Verður stofnaður
atómklúbbur?
■ w;
Þeir slógust
í þinginu
NTB—París, 30. nóv.
Slagsmál brutust út í franska
þinginu, þegar fjárútlátin
vegna Alsírmálsins voru til
umræðu. Urðu hnippingar
með mönnum svo ákafar, að
forseti taldi ráðlegast að slíta
fundi.
Ræðumenn hægri flokkanna
réðust á stjórnina vegna stefnu
hennar í Alsír. Fulltrúi Korsíku
vildi láta stofna dómstól fyrir
glæpamenn. Dyraverðiinir gerðu
það, sem þeir gátu til að stilla til
friðar. Stjórnin vildi láta fjölga
Aröbum í lögregluliðinu um 20.000
manns, en Alsírmálaráðherrann,
Louis Joxe, sagði að lögregluliðið
yrði áfram undir franskri stjórn.
Sennilega verður fjölgað i lögregl-
unni að umræðum loknum.
NTB—New York, 30. nóv.
Stjórnmálanefnd allsherjar-
þingsins samþykkti í dag á-
lyktunartillögu þess e{nis að
fela aðalritara Sameinuðu
þjóðanna að athuga möguleik-
ana á því, hvort þau ríki, sem
ekki vilja framleiða eða hafa
yfir atómvopnum að ráða, vilji
ekki stofna með sér eins konar
klúbb.
Tillagan var samþykkt með 57
atkvæðum gegn 12. Tvö áðildar
ríkí greiddu ekki atkvæði. Flest
NATO-ríkin greiddu atkvæði
gegn tillögunni, en Noregur og
Danmörk með henni. Það var
Svíþjóð ásamt sjö öðrum ríkjum
sem bar fram þessa tillögu.
Engin atómvopn
Bretland, Frakkland og Banda
ríkin ásamt fjölmörgum öðrum
vestrænum ríkjum voru á móti
tillögunni, en Austur-Evrópuríkin
greiddu henni atkvæði, svo og
Kanada.
, .„ •-. yamafc,,
Wilson
körfubolfar
kommr á nýju, lágu verSi.
Wilson íþrótlabúningar og
íþróttaföskur.
PÓSTSENDUM.
í tillögunni er ætlazt til þess,
að ríkin, sem gerist aðilar að hin
um fyrirhugaða klúbb, lýsi því
yfir, að þau muni ekki hefja
framleiðslu slíkra vopna eða út-
vega sér þau á annan hátt og
þau muni heldur ekki veita öðr
um ríkjum heimild til að flytja
atómvopn yfir landsvæði, sem
þau ráða yfir.
í tillögunni er þess einnig far-
ið á leit, að stórveldin vinni sam
an í anda hennar án sérstakra
skuldbindinga. — Fulltrúi Sovét-
ríkjanna, Mendelevitsj, kvaðst
geta greitt tillögunni atkvæði;
hún væri verðug tilraun til að
hindra atómstríð. Hann kvað
ýmislegt benda til, að Vestur-
Þjóðverjar hefðu nú í undirbún
ingi aö framleiða atómvopn,
þrátt fyrir gagnstæðar yfirlýsing
ar Adenauers.
Kjörgarði Laugavegi 57.
Austurstræti 1.
Gaitskell
víxlar til
NTB—London, 30. nóv.
Foringi brezkra jafnaðar-
manna, Hugh Gaitskell, gerði
í dag þvSinoarmiklar breyting-
ar á brezku „skuggastjórn-
inni".
George Brown, sem fram að
þessu hefur séð um varnarmál,
mun eftirleiðis annast innanríkis-
rnálin. Harold Wilson, sem í tíu ár
hefur unnið á fjármálasviðinu,
hefur nú verið útnefndur aðaltals-
maður flokksins um utanríkismál
í neðri málstofunni. Verður hann
eftirmaður- Denis Healey, en Pat-
rick Lordon Walker tekur við her-
málum. Hir.r nýi fjármálasérfræð-
ingur er James Uham.
Ekki opnaft ....
(Framhald af 1. síðu).
komu. Ólærður maður hefur smíð-
að orgel og fiðlu, sem er á sýning-
unni og fengið, af því viðurnefnið
„spillemann11. Þar eru einnig til
sýnis ýmsar gamlar uppfinningar',
eins og hleypiklyfberinn, sem ætt-
aður er úr Svarfaðardal. Hann hef
ur þá kosti, að aðeins þurfi að
kippa í spotta til að -ná sátu af
klakknum. Þar er einnig svokölluð
rakstrarkona, fundin upp af Sig-
urði Ólafssyni á Hellulandi í Skaga
firði, en hún er þannig útbúin, að
sett er net eða grind á ljáinn, svo
að grasið fellur í múga og ekki
þarf að raka því saman.
Merk uppfinning, tappafræsar-
inn, er til sýnis, og hefur Kristján
Sigurðsson á Akureyri fundið
hann upp. Tappafræsari þessi hef
ur verið notaður í Völundi þar' til
fyrir 10 til 15 árum til að búa
til tappa í tunnur.
Kunnir listamenn eins og Rík-
harður Jónsson myndskeri eiga
einnig muni á sýningunni, og er
þar meðal annars útskorinn spegil
rammi eftir hann.
Þarna er líka til sýnis heilt vei'k
stæði, hattaværkstæði ísafoldar
Jónsdóttur frá því 1930. Þar sjást
tæki þau, sem notuð voru við hatta
gerðina, myndir af nýjustu hatta-
tízkunni og svo hattar frá þeim
dögum.
Gestabók Þjóðminjasafnsins er
tli sýnis, en kápan á henni er hag-
lega skorin út í tré af Jóhannesi
Helgasyni.
Nýútkomið ritverk um Þorstein
á S'kipalóni, gefið út af Landssam
bandi Iðnaðar'manna, er á sýning-
unni.
Sýningin verður opin alla daga
kl. 14—22 til 11. desember.
Sæsíminn
(Framhald aí l síöu).
milli Færeyja og íslands væri nú
nálægt því að vera fulltengdur,
þótt nokkuð vanti á. Þær mæling-
ar, sem hafa verið gerðar á hon-
um, hafa reynzt hagstæðar, og allt
samkvæmt beztu áætlun.
Skakkaföll skipsins
•.- - - \
En eftir er að leggja strenginn
milli Færeyja og Skotlands. Skip-
ið, sem það átti að gera, varð að
bíða af sér óveður, áður en það
gæti lagt af stað, en þegar veður
batnaði, kom í ljós að magnarar
tveir höfðu eyðilagzt. Magnarar
þessir eru með vissu millibili á
sæstrengnum, og gegna því hlut-
verki að halda hljóðstyrknum og
forða trui'lunum á talrásunum. Á
strengnum héðan til Færeyja eru
15 slíkir-magnarar, en verða 10
frá 'Færeyjum til Skotlands.
Skipið, sem er amerískt og heitir
McKay, er nú farið til Southamp-
ton til þess að sækja nýja magnara,
og einnig hélt Magnús, að eitthvað
af kaplinum sjálfum hefði
skemmzt. •
Bókin um Tóa
Út er komin nýstárleg drengja-
bók, sem segir frá strák, sem
lendir í landhelgisdeiluævintýrum
á varðskipi. þegar landhelgisdeil-
an stendur sem hæst. Bókin heitir
,,Tói strýkur með varðskipi" og er
eftir Eystein unga. Með Tóa í aev-
intýrunum tekur hvolpurinn Týri
þátt.
Sunnan sex
(Framhald al 16 síðu)
— Lékstu í skólaleikjum?
— Nei, en ég fór til England:
og tók próf í leiklist frá RADA
London. Satt að segja langar mig
til ag leika meira e*n ég geri. Ei
orðinn leiður á að vera hermi-
kráka. En ég má ekki vanþakka
þetta hlutverk í Sunnan sex, mig
hefur sko alltaf langað að leika
sjarm-ör! Þetta er ástarhlutverk
eins og þú getur skilið, ha'h?.
Svo áræddum við að kveðja
dyra hjá Aðalbjörgu og bánim
upp erindið: nokkrar spurningar.
Guðrún Step'hensen virð'ir fyrir sér
þessa ófrelsuðu blaðasnápa og er
sýnilega ekkert hrifin.
— Spyrjið ekki alltaf að því
sama? Sannast að segja eru þessi
viðtöl ægilega pínleg. Leyfið mér
fyrst ag vita hvað hann Kalli
segir.
— Hann Kalli sagðist vera ægi-
lega skotimn í þér, sagði leikstjór-
inn.
— Hm, sagði Aðalbjörg. — Þið
'hafið ekkert bull eftir mér, ekki
einu sinni í Tímann. Eigum yið
ekki ag hafa þetta hátíðlegt.
— Þú gerir mikla lukku í hlut-
verkinu, segjum við.
— Það er þá honum Flosa að
þakka, svarar Aðalbjörg. Annars
finnst mér gaman að leika hana
Aðalbjörgu. Og þar að auki erum
vig að byggja svo ekki veitir af
aurunum. Húsið vferður tilbúið
næsta sumar.
— Já, þú ert gift leiktjalda-
málaranum.
— Hann heitir Hafsteinn Aust-
mann, segir Flosi, — bezti leik-
tjaldamálari í heimi.
Blaðamaðurinn setur sig f hátíð
legar stellingar: Hvernig er að
vera gift listamanni? Og vera lista
kona sjálf?
— Þag er ágætt að vera gift
mínum manni, svarar Aðalbjörg.
— Hvernig finnst þér að leika
ástarhlutverk? Ertu aldrei hrædd
um að missa stjórn á tilfinningun
um?
— Auðvitað finnur maður vissa
strauma hjá honum Kalla, svarar
Guðrún.
Og nú er hljómsveitin byrjuð
að spila. Þrjú sjógörl þjóta úr
klefa sínum, og upp stigann, það
á a^ taka á móti viðskiptaráðherr-
anum frá Skrúanda Úrúndí. Blaða
maðurinn flýtir sér að stiganum
og horfir á eftir þeim upp ....
x.
Fullyeldisfagnaður
stíidenfa i kvöld
Háskólastúdentar halda full-
veldisfagnað sinn að Hótel Borg í
kvöld, og hefst fagnaðurinn með
borðhaldi kl. 19. Óseldir aðgöngu-
miðar verða seldir frá kl 14 í dag
að Hótel Borg (suðnrdyr).
Margt verður til gamans á fagn-
aðinum í kvöld. Formaður SHÍ,
Hörður Sigurgestsson stud. oecon.,
setur hófið, en ræðu kvöldsins
flytur dr. Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur. Þá synguh Ómar
Ragnarsson gamanvísur, og að
lokum verður stiginn dans til kl.
2 eftir miðnætti. Hljómsveit
Björns R. Einarssonar leikur fyrir
dansinum. Einnig verður almenn-
ur söngur meðan setið verður
undir borðum.
(t Stúdentum, sem enn hafa ekki
orðið sér úti um aðgöngumiða, er
bent á að gera það að Hótel Borg
í dag.
Aðalfundur F.U.F. í Kópavogi
verSur haldinn sunnudaginn 3. des. 1961, að Fífuhvammsvegi 31, kl.
3 eftir hádegi.
FUNDAREFNI:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.